Fréttablaðið - 08.07.2020, Side 24

Fréttablaðið - 08.07.2020, Side 24
Frá Valitor til Heklu Halldór Bjarkar Lúðvígsson, sem var áður fram- kvæmdastjóri hjá Valitor þar sem hann stýrði alþjóð- legum fjárfestingum félagsins í svonefndum alrásarlausnum, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Heklu bílaumboðs. Halldór lét af störfum hjá Valitor í lok síðasta árs, ásamt nokkrum öðrum framkvæmdastjórum, en greiðslumiðlunarfyrirtækið vinnur nú að endurskipulagn- ingu á félaginu til að snúa við miklum taprekstri og styrkja kjarnastarfsemina. Áður en Halldór tók til starfa hjá Valitor var hann framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs og fyrir- tækjaþjónustu Arion banka. Skafið úr Orkuveitunni Enn og aftur er slök fjárhagsstjórn Reykjavíkur- borgar til um- ræðu og enn og aftur ætlar meirihlutinn að seilast í fjármuni Orkuveitu Reykjavíkur. Eftir að fjárhagur OR beið mikið skip- brot í kjölfar fjármálakreppunnar 2008, var ein niðurstaðna rann- sóknarskýrslu um fjárhag orku- fyrirtækisins, að arðgreiðslu- stefna fyrirtækisins hafi verið kolröng. Með öðrum orðum: borgin, undir forystu Dags B. Eggertssonar, tók of mikið fé út úr fyrirtækinu og því var það illa í stakk búið til að bregðast við lausafjárvandræðum. Nú á að láta OR taka nýtt lán til að gera upp skuldir gagnvart borginni. Hvar höfum við heyrt þetta lag áður? Kakó-Blanda Minnkandi eftir- spurn raforku á Íslandi hefur í för með sér ýmsar nei- kvæðar afleið- ingar. Tekjufall Landsvirkjunar gæti orðið umtals- vert á þessu ári, ef marka má orð Harðar Arnarsonar, forstjóra fyrirtækisins. Þegar eftirspurn raforku minnkar, er allra fyrst dregið úr framleiðslu vatnsaflsvirkjana. Nú er svo komið að Blönduvirkjun mun líklegast fara á yfirfall í þessum mánuði, stangveiðimönnum til mikillar armæðu. Veiðiklær landsins þurfa því að leggjast á eitt og nota meira rafmagn – skilja ljósin eftir kveikt á nóttunni (það er hvort sem er bjart úti), hafa sem mest kveikt á sjónvarpinu og taka tvær umferðir á öllu leirtaui í upp- þvottavélinni. Blómleg fjárfesting er hér lykilforsenda samdráttar í losun gróður- húsalofttegunda. Það væri að æra óstöð-ugan að byrja þennan pistil á því að minna á mikilvægi þess að grípa til aðgerða til að sporna við áhrifum manna á umhverfi sitt. En það er hér með gert og er það þá frá. En þá að eiginlegu efni pistilsins: samstarfi stjórnvalda og sjávarútvegs til að tryggja að markmið Íslands í lofts- lagsmálum náist. Samstarf þetta var undirritað á sólríkum föstudegi í fyrri viku og gefur dagurinn von- andi góð fyrirheit um árangur í því sem fram undan er. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lét þau orð falla við þetta tilefni að allir væru hluti af vandanum og því yrðu allir að verða hluti af lausninni. Það eru orð að sönnu. Eðli máls samkvæmt verður þó framlag sumra geira atvinnulífsins meira en annarra og misjafnt er hversu góð tækifæri atvinnuvegir hafa til að draga úr áhrifum á umhverfið. Stærstu tækifærin Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gáfu út skýrslu haustið 2017 þar sem gerð er grein fyrir þeirri þróun sem orðið hefur í samdrætti í olíunotk- un í sjávarútvegi. Samdrátturinn er mikill og frá árinu 2005 hefur hann verið 41%. Margir samverkandi þættir skýra þetta, en þeir stærstu eru vafalítið kerfið sem viðhaft er við veiðar á Íslandsmiðum, færri og af kastameiri skip, orkuskipti í Betra er að róa, en reka undan  Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fiskimjölsverksmiðjum, hagkvæm- ari veiðarfæri og framfarir í tækni. Hvað sem mönnum kann að finn- ast um fiskveiðistjórnunarkerfið, þá hefur það leitt til mun umhverfis- vænni veiða og minni olíunotkunar. Losun frá sjávarútvegi hér á landi, bæði frá íslenskum og erlendum fiskiskipum, er um fimmtungur þess sem skrifast á ábyrgð Íslands. Af þessu sést hversu mikilvægt það er að draga úr losun í sjávarútvegi og hve mikilsvert framlag sjávarút- vegs getur orðið, ef rétt er á málum haldið. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda er stefnt að því að samdráttur í losun frá sjávarútvegi verði um 50-60% árið 2030, miðað við árið 2005. Að sumu leyti mun þetta hugsanlega gerast með betra ástandi fiski- stofna og þar með auðveldari sókn. Stærstu tækifærin eru hins vegar í endurnýjun skipaflotans og nýrri tækni. Blómleg fjárfesting er hér lykilforsenda samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda. Rekstrar- skilyrði sem sjávarútvegi eru sett af hálfu stjórnvalda, þurfa því að hvetja til frekari fjárfestinga. Það er ekki bara til að draga úr umhverf- isáhrifum af veiðum, heldur einnig til þess að íslenskur sjávarútvegur standist alþjóðlega samkeppni á erlendum markaði, þar sem um 98 prósent af íslensku sjávarfangi eru seld. Dregur úr samkeppnishæfni Á grundvelli fyrrgreinds samstarfs, hefur fjármála- og efnahagsráð- herra skipað starfshóp sem mun vinna með fulltrúum sjávarútvegs- ins að tillögum til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu. Binda má vonir við að eitt fyrsta umræðuefni hópsins verði kolefnisgjaldið. Árið 2019 greiddi sjávarútvegur tæplega 2 milljarða króna í kolefnisgjald. Það má hafa á því vissan skilning að gjaldinu sé ætlað að hvetja til samdráttar í losun gróðurhúsaloft- tegunda. Í einhverjum tilvikum kann það að gera það, en þó ólík- lega í verulegum mæli. Fram hjá því verður ekki litið, að sjávarút- vegur er grunnatvinnuvegur okkar Íslendinga og enn er ekki komin staðgönguvara sem nýta má alfar- ið í stað jarðefnaeldsneytis þegar kemur að fiskveiðum. Og það er vonandi ekki markmið stjórnvalda að draga úr fiskveiðum. Að óbreyttu gerir kolefnisgjaldið lítið annað en að draga úr sam- keppnishæfni sjávarútvegs og aftra fyrirtækjum frá fjárfestingum sem gætu leitt til samdráttar í losun. Stærstu framfaraskrefin í loftslags- málum verða með öðrum orðum ekki stigin með áframhaldandi skattheimtu. Ef allir eiga að vera hluti af lausninni, líkt og fjármála- og efnahagsráðherra reifaði í fyrri viku, þá munu stjórnvöld vonandi huga að jákvæðum, efnahagslegum hvötum í sjávarútvegi, þannig að göfugum markmiðum í loftslags- málum verði náð. Ef rétt er á spilum haldið, er áðurgreint markmið um 50-60 prósenta samdrátt í losun frá sjávarútvegi nefnilega innan seilingar. Skotsilfur Bjartsýnir á að Wigan fái nýja eigendur til að koma í veg fyrir gjaldþrot Umsjónarmenn með nauðasamningum enska knattspyrnuliðsins Wigan eru þess fullvissir að nýir hluthafar muni koma að félaginu. Fimmtíu fjár- festar hafa lýst yfir áhuga og tveir sýnt að þeir ráði yfir að minnsta kosti tíu milljónum punda. Wigan er þriðja knattspyrnuliðið á Englandi sem fer í nauðasamninga á þessu leiktímabili. Áhorfendur mega ekki mæta á völlinn til að horfa á leiki og því er erfitt að fjármagna reksturinn. MYND/AFP 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.