Fréttablaðið - 08.07.2020, Qupperneq 27
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þótt ekki verði haldið til útlanda á þessu sumri er svo ótrúlega margt skemmtilegt
hægt að gera innanlands. Sumar
bústaðaferð með fjölskyldunni
með tilheyrandi grillveislu, eða
gönguferðum í náttúrunni í fall
egu veðri. Það er slakandi að vera
í rólegheitunum í íslenskri sveit.
Með breyttu viðhorfi er hægt að
ná bata gegn streitu í sumarfríinu
og forðast með því álagstengda
sjúkdóma.
Nútíma fjölskyldurútína kallar
fram streitu í daglegu lífi. Það er
því afar mikilvægt að nota tímann
í fríinu til að slaka á. Það er ágætt
ráð að taka af sér úrið og slökkva
á símanum. Sinntu frekar áhuga
málum eins og lestri góðra bóka,
að teikna, huga að plöntum í garð
inum, fara í sund eða göngu.
Samfélagsmiðlar og alls kyns
öpp geta verið mjög stressandi. Ef
okkur líður vel, erum glöð í bragði
og njótum frísins, gefur það um
leið orku og andlega hugleiðslu.
Þegar fólk tekur sér frí frá sam
félagsmiðlum, til dæmis í tvær
vikur, getur það orsakað stress yfir
að verið sé að missa af einhverju
Slepptu streitunni í sumarfríinu
Finnst þér erfitt að slaka á í fríinu? Dekraðu við þig og forðastu áreiti, slakaðu á og hvíldu þig. Vet-
urinn hefur verið erfiður og nú má njóta. Það er margt og mikið skemmtilegt í boði um allt land.
Það má svo
sannarlega
liggja í leti og
slaka á í sumar-
fríinu. Það er
reyndar gott
fyrir heilsuna.
MYNDIR/GETTY
Grillveisla með þínum nánustu er alltaf hin besta skemmtun.
spennandi. Þess vegna er betra að
minnka notkunina eftir fyrir fram
ákveðnum reglum sem maður
setur sér.
Fjölskyldusamvera er nauð
synleg í sumarfríum. Hjón ættu
engu að síður að reyna að gefa sér
dag saman án barna. Það bætir
sambandið, eftir því sem sænskur
ráðgjafi segir við Expressen. Skiln
aðir eru algengastir í september
og október eftir „erfitt“ sumarfrí.
Þar sem utanlandsferðir eru ekki á
dagskrá er ekki úr vegi að taka til
höndum við það sem setið hefur á
hakanum heima. Hjón geta unnið
að því saman.
Þeir sem eru undir miklu álagi í
vinnunni ættu að huga að hreyf
ingu í sumarfríinu. Þá gefst loks
tími til að taka sig aðeins í gegn.
Hreyfing getur verið margvísleg.
Má þar nefna hjólatúr með fjöl
skyldunni, ferð í sund eða á aðra
baðstaði, eða bara að fara í langan
göngutúr með stoppi á kaffihúsi.
Auðveld fjallganga er sömuleiðis
skemmtileg fyrir alla, eða veiði
ferð í nálægt vatn. Á góðviðris
dögum er líka frábært að borða
morgunmatinn utandyra og
gera eitthvað spennandi, eins og
að baka pönnukökur eða fara í
bakaríið og leyfa sér að kaupa
góðgæti sem þar er boðið upp á.
Það er um að gera að njóta hvers
dags án álags og bæta heilsuna
um leið.
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
TRAUST Í 80 ÁR
Fylgdu
okkur á
Facebo
ok
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
RÍFANDI ÚTSALA Á NÝJUM SUMARLÍNUM. ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR. SJÁ LAXDAL.IS
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 8 . J Ú L Í 2 0 2 0