Fréttablaðið - 08.07.2020, Side 29
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og
Grafningshreppur og Skeiða-og Gnúpverjahreppur
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru eftirfarandi mál auglýst til kynningar:
Skáldabúðir – Virkjanakostur vindorku, Hrútmúlavirkjun – Skipulags- og matslýsing
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti þann 10. júní 2020 að kynna skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipu-
lagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst skilgreiningar á mögulegum vindorku virkjanakosti í landi Skálda-
búða undir heitinu Hrútmúlavirkjun. Framlögð skipulagslýsing tekur til breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps
2017-2029, deiliskipulagi fyrir svæðið auk matslýsingu til samráðs um umfang og nákvæmni upplýsinga í umhverfisskýrslu.
Loftstaðir-Vestri – Ferðaþjónusta, tjöld og þjónustuhús – Skipulags- og matslýsing
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 9. júní 2020 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á aðalskipu-
lagi Flóahrepps 2017-2029 í landi Loftsstaða- Vestri. Í breytingunni felst að notkun á 2 ha svæði vestan við íbúðarhús að Loft-
stöðum- Vestri L165512 er breytt í verslunar-og þjónustusvæði.
Skálabrekka-Eystri – Frístundasvæði – Skipulags- og matslýsing
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2020 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar
á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 í landi Skálabrekku-Eystri. Í breytingunni felst að skilgreindir frístundasvæðis flákar
innan jarðarinnar Skálabrekku-Eystri L224848 eru sameinaðir í eitt samfellt svæði. Stærð svæðisins helst óbreytt.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
Laugarás – Lauftún garðyrkjustöð – Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 14. maí 2020 að kynna og leita umsagna vegna breytinga á deiliskipulagi að
Laugarási. Í breytingunni felst að skipulagi lóðar er breytt þar sem komið er fyrir þremur gróðurhúsum, pökkunaraðstöðu, véla- og
áhaldageymslu/bílskúr og tveimur starfsmannahúsum. Fyrir á lóðinni eru tvö íbúðarhús. Skilmálar deiliskipulags svæðisins frá 29.
des. 2011 halda sér óbreyttir að öðru leyti.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum/breytingum:
Ás 3 III-2 land (Hestás) – Lögbýli og íbúðarhúsalóðir - Deiliskipulag
Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. júní 2020 að auglýsa tillögu deiliskipulags vegna lands Ás 3 III-2 land
L204647 sem skilgreint er sem landbúnaðar- og íbúðarsvæði innan aðalskipulags Ásahrepps 2010-2022. Innan skipulagssvæðisins
er afmörkuð ný 2,21 ha íbúðarhúsalóð sem fengi staðfangið Reykás. Að auki er afmarkaður byggingarreitur á landinu sjálfu sem
verður 12,68 ha eftir landskipti og fyrirhugað að verði gert að lögbýli og óskað er eftir að það fái staðfangið Hestás í stað nú-
verandi staðfangs. Innan byggingarreitanna er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 300 fm íbúðarhús á tveimur hæðum,
allt að 600 fm úthús/skemmu á einni hæð með heimild fyrir 30% millilofti og allt að 100 fm gestahús á einni hæð.
Efri-Reykir – Hótelbygging og baðlón – Deiliskipulag
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 18. júní 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna hótels og bað-
lóns í landi Efri-Reykja. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir að byggð verði baðlón og hótel. Einnig er gert ráð fyrir að byggð verði
starfsmannahús innan svæðisins. Málið hefur áður verið auglýst árið 2018 og er nú auglýst á nýjan leik þar sem meira en ár er liðið
frá síðustu auglýsingu skipulagsins. Fyrir liggur niðurstaða Skipulagsstofnunnar er varðar ákvörðun um hugsanlega matsskyldu
verkefnisins.
Birkilundur 9-13 Friðheimar - Breyting á aðkomu og sameining byggingareita - Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Reykholt í
Biskupstungum. Í breytingunni felst að gerður er sameiginlegur byggingareitur fyrir lóðirnar Friðheima 1 og Skólaveg 11. Gerð er
ný aðkoma að Skólavegi 11 frá Sólbraut, aðkoman er eingöngu ætluð fyrir starfsfólk, fyrir vörumóttöku og vörusendingar. Til að fá
svigrúm fyrir nýja aðkomu að Skólavegi 11 eru gatnamót Sólbrautar og Skólavegar færð um 20 m til suðurs, inn á lóð Skólavegar
13. Lóðamörk Skólavegar 13 breytast til samræmis við færslu Sólbrautar og minnkar lóðin um 192 m2. Göngustígum er breytt í
samræmi við breytingar á Sólbraut og nýjar byggingar.
Kolgrafarhóll – Apavatn 2 – Deiliskipulag
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 18. júní 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir 5 frístundalóðir
auk einnar lóðar sem er skilgreind sem landbúnaðarland í landi Apavatns 2, Efra-Apavatns, í Bláskógabyggð. Svæðið sem er um
13,9 ha að stærð er skilgreint í gildandi aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem F20 (frístundabyggð). Aðkoma að svæðinu
er um Laugarvatnsveg (37) og Kolgrafarhólsvegi.
Ósbakki – Íbúðarhús, reiðskemma, hesthús, vélarskemma – Deiliskipulag
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu í landi Ósbakka í Flóahreppi.
Innan deiliskipulagsins eru afmarkaðir byggingarreitir fyrir íbúðarhús og hesthús/skemmu auk þess sem gert er grein fyrir að-
komu.
Hallandi 1A , Hallandi 1 L166234 – Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 9. júní að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Hallanda 1 og 1A. Í breyting-
unni felst að skilgreind er lóð utan um byggingarreit A. Lóðin sem þegar er stofnuð, Hallandi lóð L197704, er skráð 1.575 fm en
verður 9.090 fm og fær heitið Hallandi 1A eftir breytingu. Byggingarreiturinn breytist óverulega, var 4.852 fm en verður 4.900 fm. Í
núgildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja allt að 200 fm bílskúr/skemmu og allt að 30 fm baðhús en hámarksstærð íbúðarhúss-
ins var ekki skilgreind. Í breytingunni er gert ráð fyrir að hámarksbyggingarmagn innan byggingarreitsins verði 600 fm.
Kiðjaberg Lóð 27 og 28 - Færsla lóðar - Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
Kiðjabergs. Í breytingunni felst að lega lóðar Kiðjabergs 27 Hlíð breytist með þeim hætti að hún er færð fast upp að lóð nr. 28.
Stærð lóðar og byggingarreitir halda sér óbreyttir utan þessarar tilfærslu í samræmi við framlögð gögn. Ástæða breytinganna er
lág lega lóðarinnar sem verður til þess að lóðin getur orðið útsett fyrir flóðum úr Hvítá.
Gilvegur 3 í landi Ormsstaða - Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
vegna Gilvegar 3 í landi Ormsstaða. Í breytingunni felst að heimildir fyrir notkun byggingarefna eru auknar, byggingarheimild
sumarbústaðar er aukin úr 100 m2 í 200 m2. Mænishæð er aukin úr 5 m í 6 m. Heimildir fyrir þakhalla eru auknar úr 14-60° í 2-60°
auk þess sem heimilað er að byggja tvö smærri hús á lóðinni sem ekki mega vera stærri en 40 m2. Heimildum fyrir byggingar innan
byggingarreits er breytt í samræmi við það. Skilmálabreytingar taki til skipulagssvæðisins í heild og verði sérstaklega kynnt innan
þess í samræmi við bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma
embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitar-
félaganna: https://asahreppur.is/, https://www.blaskogabyggd.is, https://www.gogg.is, https://www.floahreppur.is/ og
https://skeidgnup.is/.
Skipulagstillögur og breytingar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 8. júlí til og með 20. ágúst 2020.
Athugasemdir og ábendingar skulu berast eigi síðar en 20. ágúst 2020.
Skipulagstillögur og breytingar eru í kynningu með athugasemdafresti frá 8. júlí til og með 29. júlí 2020. Athugasemdir og ábend-
ingar skulu berast eigi síðar en 29. júlí 2020.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið
vigfus@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Vegaframkvæmdir á Dynjandisheiði og Bíldudals-
vegi, Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vegagerðarinnar er
einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Útboð nr. 20329
Þjórsá - Þverun ofan Þjófafoss
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í að byggja nýja göngu
og reiðbrú yfir Þjórsá um 800 m ofan við Þjófafoss og
leggja stíga að brúnni, samkvæmt útboðsgögnum nr.
20329.
Verktími er frá 1.9.2020 – 31.5.2021.
Vettvangsskoðun verður kl. 13:00 fimmtudaginn 16. júlí
2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar
utbod.landsvirkjun.is
Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef Landsvirkjunar,
utbod.landsvirkjun.is fyrir klukkan 12:00 föstudaginn
31. júlí 2020, niðurstöður tilboða, nöfn bjóðenda og
heildarfjárhæðir með vsk verða birtar eftir kl. 12:00 sama
dag á útboðsvefnum.
Boðað er til íbúafundar miðvikudaginn 15. júlí 2020
kl.17 að Norðurhellu 2 þar sem tillaga að breyttu
aðalskipulagi er nær til Hamraness í Hafnarrði
verður kynnt.
Í breytingunni felst landnotkunarbreyting við
Hamranes. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er
svæðið skilgreint sem S34 (samfélagsþjónusta, 6ha)
VÞ11 (verslunar- og þjónustusvæði, 3ha) og ÍB13
(íbúðarsvæði, 14ha). Með breytingunni verður
landnotkun svæðisins skilgreind sem M3
(miðbær/miðsvæði), heildarstærð þess verður 23ha.
Auglýsingartími breytinganna er til 27. júlí nk.
Tillögurnar ásamt fylgigögnum og athugasemdum
Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í þjónustuveri
Hafnararðar Strandgötu 6 og hjá umhvers- og
skipulagssviði að Norðurhellu 2 til 27.07.2020. Auk
þess er hægt að skoða tillöguna ásamt athuga-
semdum á hafnarordur.is
Náari upplýsingar á hafnarordur.is
ÍBÚAFUNDUR
Íbúafundur vegna tillögu að
aðalskipulagsbreytingu í Hamranesi
hafnarordur.is585 5500
intellecta.is
RÁÐNINGAR