Fréttablaðið - 08.07.2020, Síða 36
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Þú finnur bæklinginn
husgagnahollin.isReykjavík Bíldshöfði 20 AkureyriDalsbraut 1 Ísafirði Skeiði 1
CLEVELAND
Tungusófi
Sjá nánar bls. 4
ÚTSALA
SUMAR
afsláttur60%Allt að
www.husgagnahollin.isS
ENDU M FR
ÍT
T
V
E F
V E R S L U N www.husgagnahollin.is F
R
Í HEIMSEND
IN
G
V
E F
V E R S L U N
Stóll í áklæði
63.992 kr. 79.990 kr.
Stóll í leðri
87.992 kr. 109.990 kr.
ÚTSALA
SUMAR
afsláttur
60%
Allt að
ALBA
Hægindastóll með
eða án skemils. Svart,
ljósgrátt,brúnt eða hvítt
leður. Blátt, sinneps-
gult, ljós- eða dökkgrátt
áklæði. Þægilegur stóll
á góðu verði.
AFSLÁTTUR
20%
Skemill í áklæði
15.992 kr. 19.990 kr.
Skemill í leðri
23.992 kr. 29.990 kr.
LOKAVIKAN
Ég spilaði á The Irish Pub á föstudag og laugar-dag og þetta var spilað þrisvar sinnum á hvoru kvöldi, eða sex sinnum á rúmum fjórum tímum,
segir Ellert Sigþór Breiðfjörð Sig-
urðarson, trúbador með meiru.
Trúbadorarnir Bóas Gunnarsson og
Eiríkur Hafdal taka í sama streng.
Hafa spilað lagið oftar en þá langar
að muna.
Lilja Björk Jónsdóttir, sem er
ein af fáum konum sem eru að
trúbador ast í miðbæ Reykjavíkur,
segist hlakka til að takast á við lagið
og lyfta þakinu á þeim skemmtistað
sem hún sé að syngja á – þegar opn-
unartíminn verður rýmri.
Þau eru öll sammála um að Hann-
es Óli Ágústsson, sem verður brjál-
aður í hvert sinn sem hann fær ekki
að heyra lagið í myndinni, fangi
frammíköll Íslendinga af mikilli
snilld.
„Ég tengi rosalega við þennan
karakter,“ segir Eiríkur. „Þetta er
alltaf sami brandarinn. Einhver
þykist vera reiður og öskrar eins
og Hannes Óli gerir í myndinni.
Spilaðu Jaja Ding Dong,“ segir Ellert.
Bóas segir að hann hafi skellt
nokkrum sinnum upp úr, meðal
annars þegar Hannes biður um
lagið. „Hann tekur nokkrar týpur
af þessum karakter og fangar þær
stórkostlega. Þetta er alveg ágætis
ádeila á Íslendinga á börunum.
Það eru alveg til týpur sem vilja
heyra bara einn listamann, konur
um fertugt eru til dæmis hrifnar af
Sálinni. Standa stjarfar fyrir framan
þig eftir drykkju dagsins, og eina
sem þær geta sagt er: Spilaðu eitt-
hvað með Sálinni.“
Ellert bætir við að hann hafi alveg
fengið svona spaða á sig. „Það eru
alveg til svona gaurar sem eru álíka
slæmir og jafnvel verri, en flestir eru
þó kurteisir og skemmtilegir. En
Jaja Ding Dong æði
runnið á landann
Jaja Ding Dong er eitt vinsælasta lag landsins, enda geta allir
sungið og dansað með. Trúbadorar miðbæjarins hafa ekki farið
varhluta af æðinu og eru beðnir um lagið oftar en góðu hófi gegnir.
Will Ferrel og Rachel McAdams enda myndina með nánast viðhafnarútgáfu af laginu sem ómar nú í haus landans.
Hannes Óli biður oft um lagið í myndinni og alltaf með miklum tilþrifum.
JAJA DING DONG
When I feel your gentle touch.
And things are going our way.
I wanna spill my love on you all
day, all day.
Viðlag.
Jaja ding dong (Ding dong).
My love for you is growing wide
and long.
Jaja ding dong (Ding dong).
I swell and burst when I see
what we’ve become.
Jaja ding dong (Ding dong).
Come, come my baby, we can
get love on.
Jaja ding dong (Ding dong).
When I see you I feel a ding-ding
dong.
Love expands when I’m with
you.
All over the Milky Way.
I wanna open up to you all day,
all day.
All right everyone, move your
body, woo.
Viðlag.
maður hefur hitt þennan karakter
af ýmsum stærðum og gerðum.“
Lilja bendir á að einfaldleiki
lagsins sé þannig að allir f lykkjast
út á gólf til að taka sporið. Eiríkur
tekur undir það. „Myndin kom út
á föstudegi og ég spilaði tvö gigg
það kvöld. Ég var ekki búinn að
horfa fyrir giggin og það var beðið
um lagið. Ég vissi ekkert hvaða lag
væri verið að biðja um, þannig að ég
fór heim og horfði og pikkaði lagið
upp, enda einfalt lag. Það geta allir
sungið með.“
Þau eru öll sammála um að lagið
sé það vinsælt að trúlega verði það
farið af lagalistum eftir sumarið.
„Við erum að blóðmjólka lagið svo-
lítið, þannig að eftir hálft ár verður
það trúlega horfið. Ég hélt að það
myndi jafnvel ýta Shallow út af
borðinu, en lagið er eiginlega orðið
of vinsælt. Þetta er algert æði sem
hefur gripið um sig. Ég held að allir
verði búnir að fá nóg eftir hálft ár –
en hvað veit ég?“ segir Ellert. Bóas
segir að hann vonist eftir að lagið
ýti Shall ow burtu. „Ég er kominn
með alveg voðalegt óþol gegn Shal-
low, ef ég á að vera hreinskilinn.“
benediktboas@frettabladid.isBlaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
8 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ