Fréttablaðið - 08.07.2020, Side 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Bjarna
Karlssonar
BAKÞANKAR
PRINCE
POLO
35 G
99
KR/STK
2929 KR/KG
Fyrir svanga
ferðalanga
Þessa viku hef ég notið sumardaga í Færeyjum ásamt eig in konu og barnabarni.
Hér heilsa geldingahnappur og
holta sóley í grænum gróanda, kría
og tjaldur birtast við klettóttar
strend ur og í hillum verslana rekst
Íslend ingurinn á Appololakkrís
og Bingóstangir. Vinnulúnir
jafn aldr ar og upplitsdjörf ung
menni meðtaka aðkomumanninn
for mála laust, vegakerfið ber vitni
um metnað í dreifðum byggðum
og híbýli fólks sýna hagleik og
smekk vísi, í bland við þjóðlega
sjálfs vitund.
Við ferjulægið þar sem komast
má til Sandoy stóð ég á tali við
nokkra karla á mínu reki og var
að velta því upp hvort húsbíllinn
fengi far, þótt ég væri of seinn að
panta. Ef þeir hafa ekki pláss færðu
bara bíl inn minn lánaðan, mælti þá
einn eins og ekkert væri eðlilegra.
Ég veit ekki hvað maðurinn heitir
og hann kann engin deili á mér
önnur en að ég er Reykvíkingur.
Sjálfur er hann sjómaður á báti sem
landar oft í Hafnarfirði. Við ferjuna
gekk maður undir manns hönd að
skapa rými og með nokkurra senti
metra nákvæmni tókst að mjaka
bílnum um borð.
Syðsti bærinn á Sandoy kúrir
undir bröttum hlíðum við opið haf.
Þar heitir Dalur. Smiðurinn í þessu
fámenna þorpi sem jafnframt
rek ur tjaldsvæði staðarins birtist
klædd ur færeyskri lopapeysu og
er í ljós kom að við höfðum ekki
reiðufé en bara kort, bað hann
okkur um blað og penna. Ég rétti
honum það sem var við höndina,
saurblaðið á Sölku Völku í kilju
formi og þar skrifaði hann banka
upplýsingar sínar og bað okkur að
leggja inn í Þórshöfn daginn eftir.
Rithönd þessa hógláta fulltrúa
fær eyskrar gestrisni fer vel, þar
sem tölur og nafn standa skráð
þvert undir nafni Sölku Völku. Má
ég hundur heita bregðist ég trausti
hans.
Færeyjar
Sjáumst á Símamótinu um helgina í góðu keppnisskapi.
Bein útsending verður á Síminn Sport. Fylgstu með
í opinni dagskrá.
Sumarið er þitt á Símamótinu
Áfram stelpur!
siminn.is