Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020 Í vetrarríki Ekki veitti af því að vera vel dúðuð á göngu í miðborginni í gær. Miklar sviptingar voru í veðrinu og hvessti snögglega, fyrst með slyddu og síðan brast á hríðarbylur. Kristinn Magnússon Við Íslendingar kom- umst sæmilega klakk- laust í gegnum liðið ár, þótt ekki blési byrlega á köflum. Samdráttur í efnahagslífinu var minniháttar og flest bendir til að hagvöxtur geti náð sér aftur á strik á þessu og næsta ári. Til að svo verði þurfa stjórnvöld að halda rétt á spilunum. Staðan er í flestu sterk. Verðbólga er lítil, stýrivextir hafa ekki verið lægri. Erlend staða þjóðarbúsins er góð og ríkissjóður stendur vel. Á fyrstu níu mánuðum nýliðins árs var liðlega 111 milljarða afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði – yfir 20 milljörðum meira en á sama tíma 2018. Kaupmáttur launa heldur áfram að hækka en frá 2012 hefur hann hækkað um 36%. Á hverju einasta ári frá 2011 hefur kaupmáttur launa hækkað – mest árið 2016 þegar hækkunin var 9,5%. Lífskjararann- sókn Hagstofunnar leiðir í ljós að hvergi á Norðurlöndunum er ójöfn- uður minni en á Íslandi. Samkvæmt Gini-stuðlinum var jöfnuður hvergi meiri í Evrópu en á Íslandi árið 2018 fyrir utan Slóvakíu. En það eru blikkandi viðvörunar- ljós. Samkvæmt vinnumarkaðsrann- sókn Hagstofunnar voru 8.200 ein- staklingar án atvinnu í nóvember síð- astliðnum. Þetta þýðir að atvinnuleysi var 4,3%. Um 1.500 fleiri voru án atvinnu í nóvember en í sama mánuði ári áður og um 3.800 fleiri sé miðað við nóvember 2017. Þá var hlutfall at- vinnulausra nær helm- ingi lægra. Slaki á vinnumarkaðinum er augljós en fátt særir ís- lenska þjóðarsál meira en atvinnuleysi. Þrátt fyrir að stýri- vextir Seðlabankans séu í sögulegu lág- marki hefur sú vaxta- lækkun ekki náð að seytla um allan fjármálamarkaðinn. Ein skýringin er sú hve fjármála- markaðurinn er óhagkvæmur, ekki síst vegna séríslenskra eiginfjár- krafna og skattlagningar sem eru langt umfram það sem þekkist í helstu viðskiptalöndum. Þótt búið sé að ákveða að lækka bankaskattinn í skrefum frá og með komandi ári, er ljóst að fjármálakerfið er illa sam- keppnisfært. Lítil og meðalstór fyrirtæki gjalda þessa í félagi við heimilin. Viðvörunarljósin er fleiri. Á liðnu ári dróst atvinnuvegafjárfesting saman, annað árið í röð. Fjárfesting hins opinbera minnkaði einnig á síð- asta ári. Mikil aukning í íbúðafjár- festingu kom á móti en eins og kem- ur fram í þjóðhagsspá Hagstofunnar í nóvember eru vísbendingar um að farið sé að hægja á byggingargeir- anum. Ekkert samfélag nær að tryggja og auka lífskjör til lengri tíma án fjárfestinga. Án fjárfestinga fyrir- tækja verða ekki til störf. Það er ekki síst vegna þessa sem nauðsyn- legt er að stjórnvöld hugi að því með hvaða hætti hægt er að örva fjárfest- ingu í atvinnulífinu og á almennum íbúðamarkaði. Vaxtaumhverfi skiptir þar miklu en ekki síður aðgengi að láns- og áhættufé. Í Peningamálum Seðla- bankans í nóvember er bent á að að- gengi fyrirtækja að lánsfé virðist þrengra en það var. Líklega megi rekja það að einhverju leyti til breyttra aðstæðna í þjóðarbúinu en gæti einnig verið vegna erfiðari lausafjárstöðu sumra fjármálastofn- ana. Hinar séríslensku kröfur og álögur. Meðal annars með hliðsjón af ofangreindum staðreyndum er mér umhugað um að koma tveimur laga- frumvörpum í gegnum Alþingi. Hvort um sig vinnur gegn samdrætti í efnahagslífinu, örvar fjárfestingu en byggja um leið undir fjárhagslegt sjálfstæði einstaklinga. Endurgreiðsla virðisaukaskatts Fyrra frumvarpið er einfalt. Lagt er til að virðisaukaskattur af vinnu við byggingu eða viðhald íbúðar- húsnæðis verði endurgreiddur að fullu. Ætla má að byggingarkostn- aður íbúða lækki um allt að 3% nái frumvarpið fram að ganga. Samiðn – samband iðnfélaga – hefur fagnað frumvarpinu og segir í umsögn að breytingin hafi jákvæð áhrif á fé- lagsmenn Samiðnar: „Hins vegar tel- ur Samiðn mikilvægt að umrædd breyting taki einnig til frístundahúsa og telur engin rök hníga í þá veru að undanþiggja frístundahús frá þessari breytingu.“ Þingið hlýtur að taka þessa ábendingu iðnaðarmanna til skoðunar en í greinargerð með frum- varpinu kemur fram að sterk rök séu fyrir því að endurgreiðslan taki einn- ig til frístundahúsa. Ríkisskattstjóri bendir á hið aug- ljósa í umsögn sinni: Mikilvægur hvati dulinnar (svartrar) atvinnu- starfsemi er „að kaupendur þjónustu telji sig geta sparað fjármuni með því að semja við seljanda um að virð- isaukaskattur verði ekki innheimtur. Með fullri endurgreiðslu virðis- aukaskatts vegna vinnu manna við byggingu, endurbætur og viðhald á íbúðarhúsnæði sé sá hvati ekki til staðar að því er þessa starfsemi varðar og því góðar líkur á að skatt- skil muni batna.“ Full endurgreiðsla á virðisauka- skatti vegna vinnu á byggingarstað er dæmi um hvernig ríkisvaldið get- ur með einföldum hætti stuðlað að heilbrigðari vinnumarkaði, bætt skattskil (tryggingagjald, tekjuskatt o.s.frv.) og lækkað byggingakostnað einstaklinga. Það hagnast allir, ekki síst ríkissjóður þegar til lengri tíma er litið. Skattaafsláttur og hlutabréf Síðara frumvarpið snýr að því að styrkja íslenskan hlutabréfamarkað, gera hann skilvirkari og þar með auka aðgengi fyrirtækja að nauðsyn- legu áhættufé. Um leið er skotið enn einni stoðinni undir eignamyndun launafólks. Nái frumvarpið fram að ganga verður einstaklingum veitt heimild, með ákveðnum takmörk- unum, til að draga frá tekjuskatti kaup á skráðum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og hlutabréfasjóðs sem eru skráð á skipulegan verðbréfamarkað eða fjárfesta eingöngu í skráðum hluta- bréfum. Hlutabréfamarkaðurinn er mikil- væg uppspretta fjármagns og veitir fyrirtækjum aðgang að nauðsynlegu áhættufé. Skilvirkur hlutabréfa- markaður er óaðskiljanlegur hluti öflugs efnahagslífs. Sterkur mark- aður þar sem fyrirtæki hafa greiðan aðgang að fjármagni til fjárfestingar og vaxtar á að vera keppikefli stjórn- valda ekki síður en að byggja upp skilvirkan og samkeppnishæfan fjár- málamarkað í heild sinni. Auðvitað tryggir skattaafsláttur til einstaklinga ekki einn og sér öfl- ugan hlutabréfamarkað. Með því að þátttakendum fjölgar verður hluta- bréfamarkaðurinn dýpri, verðmynd- unin eðlilegri og markaðurinn þar með heilbrigðari. Það sem skiptir kannski mestu: Það er verið að styrkja fjárhagslegt sjálfstæði ein- staklinga og gera þeim kleift að taka þátt í atvinnurekstri. Þannig eru hagsmunir almennings og atvinnu- lífsins samtvinnaðir. Áhugi og þar með þekking á atvinnulífinu og stöðu hagkerfisins, eykst. Með því að innleiða skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa vinna allir. Ekki aðeins þeir sem nýta sér mögu- leikana sem í afslættinum felast heldur einnig þeir sem annaðhvort vilja ekki eða eiga þess ekki kost að kaupa hlutabréf. Það græða allir þegar atvinnulífið eflist. Eftir Óla Björn Kárason »Ekkert samfélag nær að tryggja og auka lífskjör til lengri tíma án fjárfestinga. Án fjárfestinga fyrirtækja verða ekki til störf. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Tvö mál til framfara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.