Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ÚTSALAÁRSINSALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR AF YFIR 1000VÖRUM. ALLT AÐ 50.000KR AFSLÁTTURAF YFIR 300 FARTÖLVUM
LOKADAGAR ÚTSÖLU
Opið í
dag 10-18
Yfir tvö þúsund tonnum af brotajárni var í vikunni skipað um
borð í flutningaskipið Wilson Holla í Krossanesi, fyrir utan
Akureyri, á vegum Hringrásar. Um er að ræða járn víða að af
Norðurlandi og var ráðgert að skipið héldi áleiðis til Hollands
í gærkvöldi, en þar fer farmurinn í endurvinnslu. Til landsins
kom skipið með farm á Grundartanga.
Flokkuðu brotajárninu var mokað í gáma á athafnasvæði
Hringrásar á Akureyri og var síðan keyrt að skipshlið og híft
um borð. Tveir kranar voru notaðir í verkefnið og annar
þeirra frá Reyðarfirði, að sögn Árna Gíslasonar, verkstjóra
hjá Hringrás á Akureyri.
Allt efnið er pressað hjá Hringrás til að minnka ummálið og
þar á meðal bílar, sem Árni áætlar að hafi verið 3-400 tonn af
farminum. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að bílar
sem koma til förgunar hjá Hringrás séu pressaðir í böggul,
sem sendur er til endurvinnslu erlendis.
Í fyrra komu alls 11.600-11.700 bifreiðir til förgunar hér-
lendis samkvæmt upplýsingum frá úrvinnslusjóði og er það
metfjöldi á einu ári. Árið 2018 komu 11.400 ökutæki til úr-
vinnslu. Skilagjaldið er 20.000 fyrir hverja bifreið sem skilað
er til förgunar. aij@mbl.is
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Brotajárn frá Akureyri í endurvinnslu í Hollandi
Bílar 3-400 tonn af yfir tvö þúsund tonna farmi Alls komu yfir 11.600 ökutæki til förgunar í fyrra
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samgöngustofa hefur það sem af er
janúar ákvarðað í 11 málum vegna
kvartana farþega í sambandi við
röskun á flugi vegna veðurs eða glat-
aðs farangurs. Öllum kröfum hefur
verið hafnað eða vísað frá en í þeim
tilfellum sem flugferðum seinkaði
eða var aflýst vegna veðurs telur
Samgöngustofa að viðkomandi félög
hafi lagt sig fram við að takmarka
afleiðingar af hinum óviðráðanlegu
aðstæðum eftir bestu getu.
Flestar kvartanirnar voru vegna
þess að flugferðum hefur verið af-
lýst, fimm sinnum vegna veðurs og
tvisvar vegna vélarbilana.
Tvær kvartanir voru vegna seink-
unar á flugi í um sólarhring.
Ein kvörtun hafði með bókun á
flugi að gera í ársbyrjun 2019 og
önnur um ábyrgð flytjanda á far-
angri sama ár.
Ákvarðanir rökstuddar
Gerð er grein fyrir málavöxtum í
hverju máli fyrir sig og greint frá
forsendum og niðurstöðum Sam-
göngustofu.
Sem dæmi um mál sem kom til
kasta Samgönustofu var kvörtun
hjóna vegna áætlaðs flugs Icelandair
frá Seattle til Keflavíkur 13. apríl
2019. Fóru hjónin fram á staðlaðar
skaðabætur og bætur vegna tapaðra
sumarleyfisdaga, en komu þeirra til
landsins seinkaði um tvo sólarhringa
vegna veðurs. Icelandair féllst á að
greiða kærendum útlagðan kostnað.
Fram kemur að hvor kærandi hafi
talið sig eiga rétt á 600 evrum í bæt-
ur „eða sambærilegt í formi miða til
áfangastaða eða jafnvel punkta
vegna þess tjóns og óþæginda sem
við urðum fyrir af völdum tafanna
seinni daginn“, eins og segir í bréfi
hjónanna.
Í niðurstöðum Samgöngustofu
segir að skilyrði bótagreiðslu sam-
kvæmt reglugerð ESB sé ekki upp-
fyllt því Icelandair hafi sýnt
nægjanlega fram á að félagið hafi
lagt sig fram við að takmarka afleið-
ingar af hinum óviðráðanlegu að-
stæðum eftir bestu getu. Þá hafi
Samgöngustofa ekki ákvörðunar-
vald um bótakröfur vegna tapaðra
sumarfrísdaga og kvartendur verði
því að leita réttar síns á öðrum vett-
vangi fyrir slíkar kröfur.
Í öllum tilvikum kemur fram að
ákvörðunin sé kæranleg til sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt-
isins og skuli kæra berast ráðuneyt-
inu innan þriggja mánaða frá því að
kæranda er tilkynnt ákvörðun Sam-
göngustofu.
Ljósmynd/Anna Sigríður
Leifsstöð Farþegar bíða í röð við upplýsingaborð í Leifsstöð eftir að flugi hefur verið aflýst vegna veðurs.
Öllum kröfum um bætur
hafnað eða vísað frá
Kvartanir vegna röskunar á flugi vegna veðurs teknar fyrir
Breska rafmynta- og greiðslumiðl-
unarfyrirtækið Digital Capital Ltd.
hefur höfðað mál á hendur íslenska
fyrirtækinu Genesis Mining Iceland
ehf., vegna vangoldinna gjalda. Alls
nemur krafan tæpum milljarði ís-
lenskra króna.
Íslenska félagið er í eigu HIVE
Blockchain Technologies Ltd., en
rafmyntafélagið Genesis Mining
Ltd. á 16,9% í því félagi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er HIVE Blockchain um-
svifamikið í greftri eftir rafmyntun-
um bitcoin og ethereum, bæði hér á
landi og í Skandinavíu m.a. Sam-
kvæmt kröfu frá Law 360, sem sagt
er frá á vefsíðunni insidebitcoins-
.com, sakar Digital Capital fyrir-
tækið íslenska um að skulda því
greiðslur fyrir þróun og viðhald á
banka- og greiðslukortahugbúnaði.
Segir Digital Capital að Genesis
hafi hætt að greiða reikninga í
nóvember 2018 og rekur það til þess
að þá hafi verð á bitcoin hrapað.
Genesis Mining Iceland segir á móti
að Digital Capital hafi ekki skilað
umsaminni þjónustu og því hafi þeir
rift samningum í júní á síðasta ári.
Vilja milljarð frá
rafmyntafyrirtæki
Er umsvifamikið á Íslandi