Morgunblaðið - 30.01.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Folaldakjöt
af nýslátruðu
2199 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
2999 kr.kg
Folaldafile
1999 kr.kg
Folaldagúllas
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Refurinn á Hornströndum virðist
hafa gefið eftir á síðustu árum og í
sumar voru virk óðul færri en áður
og talsverð afföll á yrðlingum. Erfið
fæðuöflun auk vaxandi truflunar af
hálfu ferðamanna og myndasmiða
kunna að eiga
þátt í þessum
breytingum.
Þetta er meðal
þess sem fram
kemur í áfanga-
skýrslu um vökt-
un refa á Horn-
ströndum 2019,
sem unnin er af
Ester Rut Unn-
steinsdóttur.
Refaveiðar eru
stundaðar um allt land en Horn-
strandir eru eitt fárra svæða á land-
inu þar sem melrakki nýtur frið-
helgi.
Þrjár vettvangsferðir
Á síðasta ári var farið í vettvangs-
ferðir í mars, júní og ágúst. Í öll
skiptin var farið í Hornvík, en
sjaldnar á aðra staði þar sem eru
þekkt óðul. Í mars sáust alls 10-11
dýr í Hornvík og voru það nokkuð
færri dýr en hafa sést þar á þessum
árstíma í fyrri ferðum, að árinu
2014 undanskildu.
Í júní og júlí kom í ljós að yrð-
lingar voru aðeins á 25-30% grenja
sem að jafnaði eru talin. Einungis
þrjú pör voru með yrðlinga á greni í
austanverðri Hornvík, í stað 5-7
para eins og oft hefur verið. Í
vesturhluta Hornvíkur, Rekavík
bak Höfn og Hvannadal voru tvö
greni í ábúð, en á þessu svæði eru
þrjú óðul að öllu jöfnu. Í Hælavík
var einungis eitt greni staðfest í
ábúð, í stað 3-4 að jafnaði. Stærsta
og auðugasta óðalið í Hælavíkur-
bjargi bar engin merki um ábúð og
er það í fyrsta skipti í a.m.k. 21 ár
sem svo er. Eina grenið í ábúð var
niðri á láglendi.
Eins og ástandið var í Hornvík í
mars benti ekkert til annars en að
um sumarið yrðu hefðbundin 5-7
óðul setin; eitt í Ystadal, eitt til tvö í
Miðdal, eitt til tvö í Innstadal og eitt
til tvö niðri á láglendi. Dýrin virtust
heilbrigð í tilhugalífinu og eftir
norðanrok báru þau í land fjölda
heillegra fugla sem virtust hafa rot-
ast eða laskast í briminu. Þó svart-
fugl hafi verið seinn í bjargið var
fýll sestur upp og rita komin að
björgunum, reiðubúin að setjast
upp fljótlega, segir í skýrslunni.
Á þeim 10 árum sem fylgst hefur
verið með samskiptum ferðamanna
og refa hefur komið í ljós að viðvera
fólks við greni getur orðið til þess
að mæður mjólka ekki yrðlingum
sínum nægilega oft og báðir for-
eldrar koma sjaldnar heim með
fæðu. Þetta gæti verið ein orsök
þess að lífslíkur yrðlinga að sum-
arlagi eru lágar á þessu svæði.
Leitt ef engir yrðlingar
kæmust lengur á legg
Refir á Hornströndum hafa
nokkra sérstöðu á heimsvísu, sér-
staklega vegna mikils þéttleika og
náinna samskipta fullorðinna dýra.
Komið hefur í ljós ýmislegt sem
vakið hefur athygli erlendra fræði-
manna, svo sem há dánartíðni yrð-
linga. Síðastliðin fjögur sumur hefur
borið á fækkun óðala og breytingu á
landamærum þegar óðul stækka.
Jafnframt hefur borið á óeðlilegri
hegðun dýra á svæðinu, hugsanlega
vegna áhrifa af mikilli truflun eða
breytinga á fæðuframboði.
Þetta, ásamt fleiru, þarf að skoða
áfram til að skilja hvað veldur en
grunur beinist að þremur megin-
þáttum: 1) Auknum áhuga og við-
veru ferðamanna við greni á við-
kvæmu tímaskeiði, 2) breytingum í
fæðuframboði vegna ástandsbreyt-
inga hjá stofnum bjargfugla og 3)
mengun fæðu, til dæmis vegna
kvikasilfurs (Bocharova o.fl. 2013)
sem getur valdið vanhöldum. Aðrir
og óþekktir þættir gætu einnig
skipt máli í þessu samhengi, segir í
skýrslunni.
„Það væri leitt ef engir yrðlingar
kæmust lengur á legg í því nátt-
úrulega ríki refa og fugla sem
Hornbjarg er,“ segir í skýrslunni.
Færri óðul og aukin afföll yrðlinga
Refurinn á Hornströndum virðist eiga undir högg að sækja Breytingar í fæðuframboði og við-
vera ferðamanna gætu haft áhrif Melrakkinn á Hornströndum hefur nokkra sérstöðu á heimsvísu
Ljósmynd/David Gibbon
Björg í bú Mórauður refur með nýdauða langvíu í kjaftinum í Jökulfjörðum í febrúar 2017, en yfirleitt heldur fuglinn sig á sjónum á þessum árstíma.
Ester Rut
Unnsteinsdóttir
Ný stjórnunar- og verndaráætlun
hefur tekið gildi fyrir svæðið á
Hornströndum og strangar regl-
ur settar þeim sem vinna við
gerð heimildamynda um dýra-
lífið. Sækja þarf um leyfi til að
kvikmynda nærri greni og þeim
sem fá leyfi til þess er gert að
vinna undir eftirliti umsjón-
armanns.
Sömu ströngu reglur þyrftu að
gilda fyrir aðra ferðamenn sem
augljóslega koma á svæðið til að
taka myndir af refum, segir í
áfangaskýrslu um refinn á Horn-
ströndum.
Sækja þarf um leyfi
STRANGAR REGLUR
Ljósmynd/Ester Rut
Refur Þessi var vakinn af værum blundi á köldum marsdegi í fyrravetur.