Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er stemning fyrir þessum mót-
um hér heima og líka erlendis. Mikið
er horft og þeir hestaáhugamenn sem
koma til landsins skipuleggja ferðir
sínar gjarnan þannig að þeir geti sótt
þessa viðburði,“ segir Hulda Gústafs-
dóttir, tamningamaður og reiðkenn-
ari á Árbakka. Hún verður meðal
keppenda í fyrstu keppni vetrarins í
meistaradeild í hestaíþróttum, fjór-
gangi, í kvöld.
Meistaradeildin er helsta innan-
hússmótaröð landsins og þar keppa
flestir af helstu knöpum landsins á
mörgum af bestu keppnishestunum.
Fjórgangurinn verður í TM-höllinni
hjá Fáki í Víðidal og hefst kl. 19.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, for-
maður stjórnar meistaradeildar-
innar, segir að alltaf sé góð aðsókn að
mótunum og vaxandi áhugi á streymi
til útlanda og beinum útsendingum
RÚV.
„Ég sit nú inni á skrifstofu við að
færa bókhald. Það verður líka að
gera. Æfingum er að mestu lokið. Við
æfðum í höllinni í gær og tíminn fram
að keppni fer í að undirbúa hestana
og sjálfan sig andlega. Það þarf líka
að þvo hestana og snyrta, þrífa reið-
tygi og setja sig í sparigallann,“ sagði
Hulda þegar rætt var við hana í gær.
Vildu vera saman í liði
Meistaradeildin er bæði einstakl-
ingskeppni þar sem sigurvegari
hverrar keppni fær sín verðlaun, eins
og liðið sem fær flest stig. Að loknum
átta keppnisgreinum á sex keppnis-
dögum er síðan krýndur saman-
lagður sigurvegari meistaradeild-
arinnar og stigahæsta lið keppninnar.
Jakob Svavar Sigurðsson á Fáks-
hólum varð meistari meistaradeildar-
innar á síðasta ári, í fyrsta skipti, og
lið Hrímnis/Export-hesta sigraði í
liðakeppninni.
Eitthvað er um að knapar hafi
fært sig á milli liða í ár. Stærsta
breytingin er þó sú að lið Hjarðar-
túns kemur nýtt inn í deildina í stað
Torfhúsa. Í nýja liðinu er einmitt
meistarinn frá í fyrra og liðið er
raunar mjög vel skipað.
„Það kom aðallega til af því að ég
og kærastan vorum hvort í sínu lið-
inu. Það er mikill kostur að geta verið
saman í liði. Svo fengum við frábært
fólk með okkur og góðan stuðnings-
aðila,“ segir Jakob Svavar um breyt-
inguna. Helga Una Björnsdóttir,
kærasta hans, er liðsstjóri og með
þeim eru Elvar Þormarsson, Hans
Þór Hilmarsson og Þórarinn Ragn-
arsson. „Við erum vel undirbúin með
dálítið af góðum hestum og liðið í
heild er sterkt. Það verður gaman að
sjá hvernig fyrsta mótið verður. Það
er mikið af nýjum hestum. Ég veit
ekkert hver staðan er hjá hinum. Það
gerir þessi mót spennandi,“ segir
Jakob.
Lið Hestvits/Árbakka er sann-
kallað fjölskyldulið. Hjónin Hulda og
Hinrik Bragason liðsstjóri fara fyrir
því og með þeim eru sonur þeirra,
Gústaf Ásgeir, og tengdadóttir, Jó-
hanna Margrét Snorradóttir. Þá er
kominn í liðið nágranni þeirra, Jó-
hann Kristinn Ragnarsson.
Seljum okkur dýrt
„Það er spennandi en jafnframt
mikið átak að taka nánast heilt lið út
úr einu hesthúsi. Við ætlum að selja
okkur dýrt,“ segir Hulda.
Hún horfir björtum augum til fjór-
gangskeppninnar í kvöld. Margir
sterkir hestar frá síðasta vetri eru
farnir til annarra landa, fóru meðal
annars á Heimsleikum íslenska
hestsins í Berlín. Svigrúm skapast
fyrir nýja hesta sem hafa verið að
banka á dyrnar og náð góðum
árangri á mótum síðasta árs. Hulda
mætir með einn af þeim, Sesar frá
Lönguskák, og þau eru önnur í rás-
röðinni.
Spennandi keppni hefst í kvöld
Nýtt lið og breytingar á mörgum liðum í meistaradeild í hestaíþróttum Fyrsta keppni móta-
raðarinnar verður í TM-höllinni hjá Fáki í kvöld Knapar eru að undirbúa sjálfa sig og hestana
Niko ehf., eigandi Hótelbókana.is,
hleypti nýrri starfsemi af stokk-
unum um áramótin en það er
Ferðaskrifstofa eldri borgara.
Fyrirtækið sérhæfir sig í ferðum
fyrir eldri borgara og hefur unnið
að slíkum ferðum síðan 2004, upp-
haflega í Kaupmannahöfn.
Sigurður K. Kolbeinsson veitir
skrifstofunni forstöðu. Þá mun
Gísli Jafetsson, sem starfaði sem
framkvæmdastjóri Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni í
rúm fimm ár, ganga til liðs við
fyrirtækið í mars nk. og annast
fararstjórn í mörgum ferðanna
ásamt því að sinna sérstökum
verkefnum, að því er fram kemur
í tilkynningu.
Að sögn Sigurðar er mikill vöxt-
ur í starfseminni og á þessu ári
eru a.m.k. 10 sérferðir fyrir eldri
borgara á dagskrá. Í maí verður
farið með flugi til Færeyja og aft-
ur í haust. Þá hefjast skipulagðar
ferðir fyrir eldri borgara til Alic-
ante og Torrevieja á Spáni síð-
sumars og svo verða aðventuferð-
irnar á sínum stað en uppselt var í
allar brottfarir á síðasta ári.
Að sögn Sigurðar er þjónustan
opin öllum eldri borgurum sem og
aðildarfélögum innan vébanda
Landssambands eldri borgara.
Ljósmynd/Aðsend
Aðventuferð Hópur eldri borgara í Kaupmannahöfn fyrir síðustu jól.
Ferðaskrifstofa
fyrir eldri borgara
Fyrstu tvö innimót meistara-
deildarinnar fara fram í TM-
höllinni hjá Fáki í Víðidal en þrjú
þau síðustu verða í Samskipa-
höllinni hjá Spretti í Kópavogi.
Meistaradeildin hefur þar með
yfirgefið Ingólfshöllina í Ölfusi.
Bæði húsin hafa sína kosti og
galla. Knapar eru ánægðir með
nýtt undirlag í Fákshöllinni.
Jakob Svavar Sigurðsson tekur
fram að þótt aðstaða í höll-
unum sé ágæt vanti tilfinn-
anlega æfingaaðstöðu innan-
dyra og sambyggð hesthús.
Hvetur hann forystumenn
hestamanna og sveitarfélög til
að koma upp einni alvöru-
keppnisaðstöðu fyrir innan-
hússmótin.
Vantar alvöru-
keppnisstað
KEPPT Í TVEIMUR HÖLLUM
Ljósmynd/Louisa Hackl
Meistari Jakob Svavar Sigurðsson vann marga sigra á Júlíu frá Hamarsey sem nú er erlendis og keppir ekki meira hér.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjölskyldulið Hulda Gústafsdóttir, Hinrik Bragason og Gústaf Ásgeir Hin-
riksson skipa liðið auk Jóhönnu M. Snorradóttur og Jóhanns Ragnarssonar.