Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Starfsmannamyndir
fyrir öll fyrirtæki og stofnanir
Skjót
og hröð
þjónust
a
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gamlir bátar sem finna má víða um
land segja mikla sögu um sjósókn og
atvinnuhætti, einnig um smiðina sem
byggðu þessi skip. Margir eru þessir
bátar geymdir á vegum safna og
setra og hirt er um þá. Aðrir líða hins
vegar fyrir skort á viðhaldi og fjár-
magni, nokkuð sem er áhyggjuefni
stjórnar Sambands íslenskra sjó-
minjasafna. Með skráningu fornbáta
fyrir tilstuðlan sambandsins er ætl-
unin að gera bátaarfinn sýnilegan
umfram það sem nú er í þeirri von að
auka skilning stjórnvalda og almenn-
ings á gildi hans.
Í skránni er að finna yfirlit um
sögu og ástand 190 báta. Þar kennir
ýmissa grasa, allt frá elstu bátum
sem varðveist hafa og eru safngripir,
en einnig báta sem enn eru með haf-
færnisskírteini þó svo að gamlir séu.
Sjósókn frá Suðurlandi
Af mörgu er að taka, en ef stiklað
er á stóru í skránni er þar að finna
forvitnilegar lýsingar tengdar bátum
í eigu Skógasafns og um sjósókn frá
Suðurlandi. Bátar og skip í eigu
safnsins eru tólf talsins. Þar ber hæst
bátinn Pétursey og haft er eftir Þórði
Tómassyni safnverði að báturinn sé
höfuðprýði safnsins. Í Rangárvalla-
sýslu og V-Skaftafellssýslu eru góð
fiskimið skammt undan landi en sam-
tímis eru þar erfið lendingarskilyrði.
Pétursey var smíðuð úr eik 1855 af
Jóni Ólafssyni bónda í Pétursey og
Sæmundi Bjarnasyni bónda í Vatns-
skarðshólum. Báturinn var notaður
til flutninga, fiskveiða og sem upp-
skipunarbátur og er áttæringur og
seglskip, 10,65 metrar á lengd og
tæplega þriggja metra breiður.
Pétursey var mest notuð til fisk-
veiða á 19. öldinni og formaður lengst
af var Guðmundur Ólafsson í Eyjar-
hólum. Bátnum var róið til fiskjar úr
Maríuhliði við útfall Jökulsár á Sól-
heimasandi 1862-1909. Eftir það var
hann notaður sem uppskipunarbátur
og fiskibátur í Vík í Mýrdal til 1946.
„Pétursey er meðal elstu skipa sem
varðveist hafa hérlendis. Hún sýnir
vel hið sérstaka og staðbundna
brimsandalag,“ segir í skránni.
Hákarlaskipið Ófeigur
Þjóðminjasafnið á 23 báta, en af
þeim eru 18 friðaðir á grundvelli ald-
urs skv. lögum um menningarminjar.
Fyrstu bátarnir sem Þjóðminjasafn
Íslands eignaðist voru áraskipin
Ófeigur, Farsæll og svo kallað Eng-
eyjarskip en öll eru þau mjög verð-
ugir fulltrúar fyrir skipasmíðaarfleifð
þjóðarinnar, segir í skránni. Þetta
voru jafnframt fyrstu bátarnir sem
teknir voru til varðveislu hér á landi.
Áraskipið Ófeigur komst í eigu
Þjóðminjasafnsins 1939 og telst safn-
ið vera eigandi Ófeigs þótt hann sé
skráður inn í Byggðasafn Húnvetn-
inga og Strandamanna á Reykjum og
sýndur þar. Báturinn var byggður í
Ófeigsfirði á Ströndum 1875 og er
súðbyrðingur með breiðfirsku báta-
lagi, smíðaður úr rekavið, 11,9 metrar
að lengd og 3,3 metrar á breidd.
Ófeigur er tíróinn áttæringur og
var notaður við hákarlaveiðar, fisk-
veiðar og flutninga á Ströndum, aðal-
lega viðarflutninga, 1875-1933. Síðast
var farið á honum til hákarlaveiða
1913 en báturinn var hafður til flutn-
inga eftir það uns notkun var alveg
hætt 1933. Síðan var hann geymdur á
þurru landi í Ófeigsfirði uns Þjóð-
minjasafnið fékk hann.
Hrólfur og Hanna
Báturinn Hrólfur Gautreksson er í
eigu Fjarðabyggðar, byggður úr eik
og furu 1906 í Danmörku, en var
dæmdur ónýtur 1965 og hafði þá verið
gerður út í tæpa sex áratugi.
Hrólfur var lengi til sýnis gestum
og gangandi en frá 2018 hefur hann
verið geymdur í skemmu við hlið
safnahússins í Neskaupstað. Báturinn
hefur alla tíð borið sama nafnið, en
var oft kallaður Gauti. Nafnið Hrólfur
Gautreksson er sótt í Fornaldarsögur
Norðurlanda, en ein þeirra ber þetta
nafn.
Árið 2017 var báturinn orðinn svo
fúinn að ekki þótti óhætt að hafa hann
lengur úti og raddir heyrðust þá um
að það ætti að henda honum. Að mati
Guðmundar Sveinssonar bátaáhuga-
manns var það fráleitt, báturinn hefði
komið ári eftir að vélbátaöld hófst í
Neskaupstað 1905.
Síðast en ekki síst í þessum stiklum
er að nefna vélbátinn Hönnu ST 49,
sem smíðaður var í Noregi 1899 eða
fyrr. Fyrsti eigandi Hönnu sem heim-
ildir greina frá var Guðmundur Jóns-
son, kenndur við Helgastaði í Skugga-
hverfinu í Reykjavík.
Karl F. Thorarensen eignaðist
Hönnu 1958 og Hilmar F. Thor-
arensen, sonur hans, hefur átt bátinn
frá 1996. Metnaður hefur verið lagður
í að halda bátnum vel við og hann
gerður myndarlega upp, auk nokk-
urra breytinga sem gerðar hafa verið.
Hilmar hefur róið á bátnum frá
Gjögri flest sumur og stefnir á
strandveiðar í sumar.
Vigur-Breiður og Egill
Nú þegar liggja fyrir upplýsingar
um töluverðan fjölda báta í eigu ein-
staklinga, félagasamtaka og hópa sem
ekki eru gerð skil í skránum, sem nú
hafa verið gerðar aðgengilegar. Má til
dæmis nefna elsta bát landsins, átt-
æringinn Breið frá Vigur á Ísafjarð-
ardjúpi, sem venjulega er kallaður
Vigur-Breiður, og teinæringinn Egil
frá Hvallátrum á Breiðafirði. Að auki
eru allmargir gamlir árabátar og opn-
ir vélbátar sem enn eru í notkun.
Skráning þessara báta og fleiri er sér-
stakt verkefni sem stefnt er að því að
vinna í náinni framtíð.
Höfundur flestra skýrslnanna í
skránni er Helgi Máni Sigurðsson,
sérfræðingur á Borgarsögusafni og
formaður Sambands íslenskra sjó-
minjasafna. Skrár um fornbátana má
nálgast á slóðinni: http://batasmidi.is/
files/.
Merkileg saga í bátaarfinum
Pétursey höfuðprýði Skógasafns Ófeigur smíðaður úr rekavið Enn róið á Hönnu frá Gjögri
Ljósmynd/Skógasafn
Höfuðprýði Pétursey er meðal elstu skipa sem varðveist hafa hér á landi, smíðað 1855. Myndin til vinstri er tekin í safninu í Skógum en sú til hægri er frá Víkursandi.
Ljósmynd/Skógasafn
Ljósmynd/Byggðasafnið á Reykjum
Ljósmynd/Þjóðminjasafnið.
Hákarlaskip Á efri myndinni er Ófeigur á sýningu á Reykjum í Hrútafirði
en sú neðri sýnir skipið undir fullum seglum með 18 manns um borð 1898.
Ljósmynd/Bjarni Guðmundsson
Gauti Báturinn Hrólfur Gautreksson er nú geymdur í húsi í Neskaupstað.
Ljósmynd/Hilmar Thorarensen
Í Karlshöfn Enn er róið á Hönnu frá Gjögri en báturinn er 120 ára.