Morgunblaðið - 30.01.2020, Side 32

Morgunblaðið - 30.01.2020, Side 32
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tómas Gerald Sullenberger, eigandi og framkvæmastjóri vefverslunar- innar Kostur.is, segir tækifæri í sölu á bandarískum vörum á Íslandi. Vef- verslun hans muni enda hafa skýra sérstöðu á markaðnum. Faðir hans, Jón Gerald, lokaði versluninni Kosti við Dalveg í Kópa- vogi í desembermánuði 2017. Var það líklega fyrsta matvöruverslunin á Ís- landi sem gerði sérstaklega út á bandarískar vörur. Vefverslunin Kostur er því arftaki hennar. Haft var eftir Jóni Gerald á sínum tíma að opnun stórverslunar Costco í Kauptúni hefði átt þátt í þeirri ákvörðun hans að loka Kosti. Að mati Tómasar hafa aðrar matvöruverslanir á Íslandi ekki fyllt upp í skarðið sem myndaðist við brotthvarf Kosts. Verslun Costco er ekki undanskilin í þeim samanburði. Vörurnar ósambærilegar „Upplifun mín sem starfsmaður hjá Kosti er að í öllum látunum þegar verslun Costco var opnuð hafi margir haldið að með því væru amerísku vör- urnar komnar á markaðinn. Við litum ekki svo á málið. Þetta væri ekki sama verslunin. Vörurnar væru enda ekki alveg sambærilegar, þótt vissu- lega væri úrvalið hjá Costco spenn- andi. Allt í einu voru þessar vörur hvergi til. Með því myndaðist eyða á markaðnum en eftirspurnin var klár- lega til staðar. Eftir að pabbi lokaði Kosti flutti hann til mömmu í Miami en ég hélt áfram að fylgjast með markaðnum,“ segir Tómas, sem er menntaður við- skiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Þrátt fyrir að vera aðeins þrítugur hefur Tómas langa reynslu af kaup- mennsku. Hann stýrði meðal annars innkaupum á þurrvörum hjá Kosti og var þá í stöðugum samskiptum við bandaríska birgja. Bjóða meiri gæði Spurður hvaða vörur hafi horfið af markaðnum nefnir Tómas til dæmis bandarískt sælgæti, morgunkorn og hreinlætisvörur. Að hans mati séu amerísku vörurnar gjarnan meiri gæðavara en evrópskar vörur. Margir viðskiptavina Kosts á Dal- vegi hafi veitt þessu athygli og haldið tryggð við verslunina. Með þetta í huga hafi verðsamanburður milli Kosts og lágvöruverslana oft á tíðum verið ósanngjarn, enda gæðin verið misjöfn. Vefverslunin Kostur.is er með lag- er í Vatnagörðum 22 í vöruhúsi sem hún deilir með fleiri netverslunum. Heimsendingargjald, 1.498 krónur, fellur niður ef pantað er fyrir 9.998 krónur eða meira. Gjaldið fellur niður ef vörurnar eru sóttar í vöruhúsið. TVG-Zimsen sér um afhendingu á höfuðborgarsvæðinu en Flytjandi á landsbyggðinni. Ef pantað er fyrir hádegi eru vörurnar sendar heim samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Vörurnar sem fara út á land eru sendar á næstu Flytjandastöð og sækir kúnninn þær þangað. Greitt er með greiðslukorti. Spurður um markhópinn segir Tómas að Kostur.is muni höfða til allra sem lært hafa að meta amerísk- ar vörur. Það sé fjölbreyttur hópur. Fljótur að bjóða nýjungar Tómas segir það verða styrk vef- verslunar sinnar að hún geti verið fljót á markað með nýjungar. „Ég fylgist vel með því sem er að gerast í Ameríku í smávörum og mat- vöruverslunum. Það er mikil þróun á ameríska markaðnum og samkeppn- in mikil. Þar er mikil vöruþróun og stöðugt eitthvað nýtt að koma á markað. Það er klárlega eitt af mark- miðum mínum að geta verið vakandi yfir því sem er nýjast og flottast á markaðnum og geta gripið það og komið því hingað til Íslands,“ segir Tómas sem kveðst munu láta neyt- andann stýra því hvernig vöruúrvalið mun þróast. „Það eru 80-100 vörur á síðunni en ég hef aðgang að tugþúsundum vöru- liða. Næsta pöntun er tilbúin en ég sé fram á að vöruúrvalið verði dálítið breytilegt,“ segir Tómas. Netverslun eigi framtíðina fyrir sér. Markaðurinn sé að þróast út í meiri þjónustu og þægindi. Kostur.is fyllir upp í eyðu á íslenskum matvörumarkaði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kaupmaður Tómas Gerald Sullen- berger hefur stofn- að vefverslun.  Kaupmaðurinn Tómas Gerald Sullenberger býður amerískar vörur í vefverslun Skjáskot/Kostur Ný vefverslun Vörur á Kostur.is. 32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 ALVÖRU VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI vfs.is Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður Komdu með skóna þína í yfirhalningu Við erum hér til að aðstoða þig! -- 30. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.42 125.02 124.72 Sterlingspund 161.9 162.68 162.29 Kanadadalur 94.2 94.76 94.48 Dönsk króna 18.333 18.441 18.387 Norsk króna 13.57 13.65 13.61 Sænsk króna 12.91 12.986 12.948 Svissn. franki 128.33 129.05 128.69 Japanskt jen 1.1423 1.1489 1.1456 SDR 171.15 172.17 171.66 Evra 137.02 137.78 137.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.6523 Hrávöruverð Gull 1579.6 ($/únsa) Ál 1755.0 ($/tonn) LME Hráolía 59.03 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Origo á fjórða ársfjórð- ungi 2019 nam 90 milljónum króna. Sala á vöru og þjónustu nam 4.336 milljónum króna og nam tekjuvöxtur milli ára 5,7%. Fram- legð nam 1.325 milljónum á fjórð- ungnum. Heildarhagnaður félagsins á árinu 2019 nam 456 milljónum króna og EBITDA nam 1.006 milljónum. Sala á vöru og þjónustu yfir árið nam 14.845 milljónum og framlegð nam 3.845 millj- ónum króna. Eiginfjárhlutfall félagsins var 57,1% í árslok og styrktist mjög í kjölfar þess að Origo seldi meirihlutann í Tempo á árinu 2018. Síðarnefnda félagið er nú rekið sem hlutdeildarfélag Origo í sam- starfi við Diversis Capital. Finnur Oddsson, forstjóri félagsins, segir starfsemi félagsins hafa gengið vel á árinu. „Afkomunni var aðeins mis- skipt eftir starfsþáttum, en hún var að mestu borin uppi af hugbúnaðartengd- um verkefnum og þjónustu á meðan af- koma af rekstrarþjónustu og búnaðar- sölu var í járnum,“ sagði hann í til- kynningu. Finnur Oddsson Origo hagnaðist um 456 milljónir í fyrra STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.