Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 35
brúka klæðið m.a. til að greina
svefntruflanir, andleg vandamál
og við endurhæfingu hjartasjúkl-
inga og mænuskaddaðra.
Fyrir áhugafólk um íþróttir
kynnti ítalska fyrirtækið Soccer-
ment nettengdar legghlífar sem
skrásetja hreyfingar fótbolta-
mannsins og meta yfirferð hans á
vellinum og sendingar. „Hug-
myndin er að veita frístunda-
sparkaranum sömu tól og atvinnu-
manninum til að greina getu sína
og bæta,“ sagði Paulin Tchonnin-
Dodjou hjá Soccerment, sem
áformar að setja greindarhlífar
þessar á markað í ár.
Welt hið suðurkóreska hefur áð-
ur framleitt belti sem greinir lík-
amsform notandans. Mætti það
með nýja útgáfu af því á CES að
þessu sinni sem mælir mittismál
og gangvissu. Er því ætlað að
höfða til aldraðra notenda.
Tengdir fætur
Neðri útlimir eru að tengjast
betur miðað við þau tæki og tól
sem sýnd voru á CES-sýning-
unni. Japanski sportvörufram-
leiðandinn Asics sýndi frumgerð
tengdra innsóla fyrir hlaupaskó.
„Með greiningu ýmissa þátta
geta þeir stuðlað að skilvirkara
álagi,“ sagði markaðsstjórinn
Gentaro Makinoda við AFP-
fréttastofuna.
Ítalska sprotafyrirtækið Wahu
sýndi „virkan sóla“ sem breytir
um lögun til að lagast að mismun-
andi yfirborði, hitastigi og raka.
Greinir hann og hlaupastíl og
fótapressu. Sólinn aðlögugóði er
með inndraganlegum bitum á sól-
anum og nýtist öldruðu fólki en
einnig verksmiðjufólki sem og
námamönnum, að sögn verk-
efnastjórans Patrizia Casali.
Fjölmenni á tæknisýningu Gestir á ferð á CES-sýningunni í Las Vegas í Bandaríkjunum. Sýningin er haldin árlega
og þar kynna lítil fyrirtæki og stór nýjungar a sviði neytendatæknibúnaðar, allt frá smávörum til lúxusbíla.
Rafsæhjól Rafknúna spaðahjólið Manta 5 var sýnt á Las Vegas-vatni á CES-sýningunni í borginni.
Legghlífar sem mælitæki Legghlífar Soccerment skrásetja hreyfingar fót-
boltamannsins og meta yfirferð hans á vellinum og ágæti sendinga.
FRÉTTIR 35Tækni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
Síðumúli 13
577 5500
108 Reykjavík
www.atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
TIL SÖLU TIL SÖLU SMIÐJUVEGUR 4SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 8
Upplýsingar veitir: HalldórMár Sverrisson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is
Fjárfesting -
Skólavörðustígur 8
Til sölu veitinga - og
verslunarhúsnæði á jarðhæð
samtals. 83,3 m2 .
Full innréttaður veitingastaður
með langtímaleigusamning.
Á frábærum stað í hjarta
Reykjavíkur. Góð aðkoma.
Verð kr. 54,9milljónir.
Verslunarhúsnæði -
Smiðjuvegur 4
Til sölu 283m2 verslunarhúsnæði og
lageraðstaða á jarðhæðmeð stórum
gluggummikill sýnileiki frá götu á
frábærum stað fremst við Smiðjuveg -
Græn gata.
Húsnæðið skiptist í fremri sýningarsal, innri sýningarsal og lager.
Fundarherbergi, skrifstofa, eldhúsaðstaða. Eignin er laus til afhendingar við
kaupsamning. Verð 55milljónir.
LÆK
KAÐ
VER
Ð
LÆK
KAÐ
VER
Ð
www.atvinnueign.is