Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 35 cm verð 99.000,- 50 cm verð 149.000,- 70 cm verð 219.000,- ATOLLO Borðlampi – SVARTUR Vico Magistretti 1977 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru að meta hættuna sem stafar af lungna- bólgufaraldrinum í Kína. Hefur bandaríska utanríkisráðuneytið með- al annars íhugað hvort ástæða sé til að banna ferðalög tímabundið milli Kína og Bandaríkjanna. Þetta kom fram í máli Mikes Pompeos, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, en hann er nú á ferðalagi um Evrópu. Ummæli Pompeos komu í kjölfar þess að nokkur flugfélög, þar á meðal Lufthansa og British Airways, ákváðu að fella niður allar flugferðir sínar til Kína vegna lungnabólgufar- aldursins, en 132 hafa nú látist af völdum hans og rúmlega 6.000 manns hafa greinst með kórónaveiruna sem veldur veikinni. Indónesíska flugfélagið Lion Air tilkynnti einnig að það hygðist hætta ferðum til Kína en nokkur önnur flugfélög, þar á meðal United Air- lines, hyggjast einungis draga úr ferðum sínum til landsins vegna minni eftirspurnar. Stjórnvöld í Kasakstan, sem á í miklum viðskiptum við Kína, hafa ákveðið að veita kínverskum ríkis- borgurum ekki vegabréfsáritanir og hyggjast takmarka bæði lestar- og flugferðir milli ríkjanna. Þá hafa stjórnvöld á Papúa Nýju- Gíneu ákveðið að hleypa engum ferðalöngum sem koma frá flugvöll- um eða höfnum í Asíu inn í landið. Funda í dag um ástandið Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hvatti í gær ríki heimsins til þess að vera á varðbergi vegna far- aldursins og grípa til aðgerða til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, sagði að hann hefði boðað til fundar í dag um hvort lýsa eigi yfir alþjóðlegu neyðar- ástandi vegna veikinnar. Íhuga ferðabann til Kína  Flugfélög hætta við ferðir vegna kórónaveikinnar  WHO hvetur til árvekni AFP Kína Þessir krakkar í Peking létu veiruna ekki stöðva boltaleikinn. Þessir tveir pandahúnar, Meng Yuan og Meng Xiang, voru kynntir formlega í dýragarðinum í Berlín í gær, en þeir fæddust þar í ágúst síðastliðnum. Foreldrar þeirra, móðirin Meng Meng og faðirinn Jiao Qing, hafa dvalist í Berlín síðustu þrjú árin, en þau tilheyra kín- verskum stjórnvöldum. Sama gildir um pandahúnana, þótt þeir hafi fæðst í Þýskalandi, og munu þeir snúa aftur til heimalands síns innan næstu fjögurra ára. AFP Kynntu nýja pandahúna til sögunnar Evrópuþingið staðfesti í gær yfirvofandi út- göngu Breta úr Evrópusamband- inu og ruddi þar með úr vegi síð- ustu lagalegu hindruninni fyrir Brexit. Heitar umræð- ur spunnust um málið á þinginu, en 621 greiddi at- kvæði með útgöngunni en einungis 49 á móti. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, sagði við Breta að Evr- ópuríkin myndu „ávallt elska ykk- ur“ og að Evrópusambandið yrði ávallt nærri. Nigel Farage, formaður Brexit- flokksins og Evrópuþingmaður, sagði hins vegar í síðustu ræðu sinni á þinginu að Bretar myndu aldrei snúa aftur í faðm sambands- ins. Í lok ræðunnar var lokað fyrir hljóðnema Farage þegar hann og samflokksmenn hans hófu að veifa breskum fánum, en þjóðfánar og önnur þjóðernistákn eru ekki leyfð í þingsalnum. Evrópuþingið sam- þykkir útgönguna Nigel Farage BRETLAND Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær þvingunar- aðgerðir gegn þeim embættis- mönnum í Kína sem reyna að trufla leitina að næsta Dalai Lama, eða tryggja að hann verði leiðitamur kínverskum stjórnvöldum. Frumvarpið þarf nú að fara í gegnum öldungadeild og forseta til að verða að lögum, en það kallar meðal annars á frystingu eigna og farbann til Bandaríkjanna. Núver- andi Dalai Lama er sá 14. í röðinni og er á 85. aldursári. Vara við afskiptum af Dalai Lama Dalai Lama BANDARÍKIN Mahmud Abbas, leiðtogi Palestínu- manna, lýsti því yfir í gær að hann hafnaði með öllu áætlun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um frið fyrir botni Miðjarðarhafs. Sagði Abbas áætlunina vera „samsæri“ Trumps og Ísraelsmanna og að hún ætti heima á öskuhaugum sögunnar. Sagðist Abbas hafa orðið var við óánægju meðal annarra þjóða með áætlunina og að hann hygðist nýta það sem meðbyr til að vinna gegn henni, en Tyrkir hafa m.a. lagst gegn áætluninni. Stjórnvöld í Sádi-Arabíu lýstu því hins vegar yfir að þau litu á áætl- unina sem „upphafspunkt“ og hvöttu Palestínumenn og Ísraelsmenn til þess að hefja friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjastjórnar. Mótbárur Palestínumanna gegn áætluninni snúa einkum að því að hún gerir ráð fyrir að Ísrael fái formleg yfirráð yfir stórum hluta Vesturbakkans, sem og að Jerúsal- em verði höfuðborg Ísraelsríkis. Mótmæla „samsæri“ Trumps  Abbas hafnar friðaráætluninni Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.