Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Ný sundföt 2020 Enn meiri verðlækkun á útsöluvörum 40-70% afsláttur Fyrir réttri viku birtist grein eftir Bolla Kristinsson, fyrrverandi kaup- mann, hér í Morgun- blaðinu. Í greininni kemur hann vel á framfæri afstöðu sinni og félaga sinna til göngugatna í mið- borg Reykjavíkur. Margir kaupmenn eru honum sammála enda sýndi könnun sem gerð var af Miðborg- inni okkar og Sam- tökum verslunar og þjónustu að meirihluti kaupmanna við Laugaveg er mótfall- inn göngugötum. Það sem hann aftur á móti gleymdi í úttekt sinni á könnuninni er afstaða almennings. Það er, afstaða viðskiptavina þessara kaupmanna. Nú er nokk- uð langt um liðið síðan Bolli stundaði kaupmennsku en ég held að þá, líkt og nú, hafi megin- reglan verið sú að uppfylla óskir viðskiptavinarins. Samkvæmt umræddri könnun eru 49,1% íbúa á höfuðborgar- svæðinu hlynnt göngugötum í miðborginni. 32,7% eru þeim mót- fallin. Gerðar hafa verið fleiri kannanir á afstöðu almennings til göngugatna og hafa þær allar verið á sama veg, fleiri eru með en á móti. Þessir höfuðborgar- búar eru viðskipta- vinir verslana í mið- borginni og ættu kaupmenn því að hlusta á þann hóp. Það hefur mikið breyst í verslun á undanförnum árum. Um allan heim verða menn varir við sam- drátt í smásölu og mikill hluti verslunar hefur færst yfir á netið. Um allan heim skella sífellt fleiri verslanir í lás. Í Bretlandi einu hafa tapast 57.000 störf í smásölu á örfáum misserum (tölur fengnar frá British Retail consortium, brc.org.uk). Miklar breytingar hafa átt sér stað í sam- keppnisumhverfi ís- lenskrar verslunar. Nú eru kaupmenn í miðborginni ekki einungis að keppa um viðskiptavini við kaup- menn í öðrum hverfum borgar- innar, verslun í dag er alþjóðleg. Til landsins streyma bögglar og pinklar frá öllum heimshornum. Frá verslunarrisum sem erfitt er að keppa við. Við getum ekki brugðist við því með því að líta til fortíðar. Sá tími er liðinn að fá- keppni geti ráðið viðhorfi kaup- manns til viðskiptavinarins. Við þurfum að bjóða upp á, ekki ein- göngu fjölbreytt vöruúrval, held- ur einnig upplifun sem heillar. Í því efni hefur miðborg Reykjavíkur klárt forskot, ekki eingöngu er hún öflugasta versl- unarsvæði landsins með 275 verslanir (Heimild: Rannsókna- setur verslunarinnar 2019) af ýmsum toga heldur er úrval ann- arrar þjónustu ótrúlegt. Í mið- borginni eru, auk fjölbreyttrar verslunar, skóarar og skraddarar, lögfræðingar og læknar, dómarar og dómkirkja, bókasafn og lista- safn, hárskerar og heilarar, gall- erí og gróður. Það er hvergi skemmtilegra að rölta um, kíkja í búðir, fara á listasýningu og svo er hægt að kíkja inn á eitt af 225 kaffi- og veitingahúsum og næra sig og njóta. Jafnvel enda daginn í leikhúsi, gjörningi eða á tón- leikum. Gróskan er ótrúleg, á undan- förnum misserum hafa sprottið upp margar nýjar verslanir, þar af nokkrar á Laugavegi. Barna- fataverslunin Mói, lífsstílsversl- unin Nomad, fataverslunin CNTMP og Reykjavik Raincoats svo nokkur dæmi séu nefnd. Enn fleiri hafa fundið sér stað í sí- stækkandi verslunarhverfi mið- borgarinnar og hliðargötur eins og Njálsgata, Frakkastígur og Smiðjustígur hafa lifnað við. Aldr- ei hafa fleiri eða fjölbreyttari kaffi- og veitingahús boðið lands- menn velkomna allt frá Hlemmi og út á Granda. Ekki má gleyma Hafnartorgi þar sem má finna margar nýjar verslanir og veit- ingastaði. Undir Hafnartorgi er bílakjallari sem mun fullbyggður verða einn stærsti bílakjallari landsins. Bílastæðahús er að finna víðar, en í dag eru yfir 3.000 yfir- byggð stæði í miðborginni. Auk þess eru fjölmörg stæði á yfir- borðinu. Svo er víða hiti í gang- stéttum, enda tilvalið að fá sér heilsubótargöngu niður Laugaveg- inn þegar kalt er í veðri. Í mið- borginni er eitthvað fyrir alla, bæði unga og aldna á öllum árs- tímum. Það hefur mikið verið fram- kvæmt í miðborginni og nú þegar stærstu verkefnunum fer að ljúka er gaman að skoða allar breyting- arnar sem hafa átt sér stað. Ný torg hafa orðið til, innigarðar þar sem hægt er að setjast niður og njóta. Nútímalegt húsnæði sem hentar betur fyrir verslun og aðra þjónustu. Nú þarf bara að bæta aðgengið að því húsnæði sem eldra er. Sú aðlögun verður auð- veldari þegar minna pláss er tekið undir bíla og umferð. Komandi kynslóðir horfa í meira mæli til vistvænni ferðamáta og eru al- mennt mun hlynntari göngugöt- um. Þetta eru viðskiptavinir framtíðarinnar. Við sem eldri er- um ættum að laga okkur að breyttum kröfum frekar en að horfa sífellt um öxl. Það er einnig ljóst að aðgengi fyrir þá sem erf- itt eiga með gang mun batna til muna með bættri borgarhönnun. Það verður spennandi að fá meira pláss fyrir gangandi í miðborg- inni. Svæði þar sem auðvelt verð- ur að athafna sig með hjólastól eða barnavagn. Brekkur og ramp- ar í stað þrepa, meiri gróður og skjól. Meira mannlíf, betra líf. Miðborgin okkar eru samtök verslunar- og veitingafólks sem vinna sameiginlega að markaðs- setningu miðborgarinnar. Undirrituð er kaupmaður í versluninni Kokku og hefur rekið verslun í miðborginni í nær tvo áratugi, auk reksturs verslana í Kringlunni og Smáralind. Mið- borgin okkar eru samtök versl- unar- og veitingafólks sem vinna sameiginlega að markaðssetningu miðborgarinnar. Í stjórn samtak- anna situr fjölbreyttur hópur fólks sem fulltrúar allra svæða miðborgarinnar. Stjórnin vinnur í þágu allra félagsmanna burtséð frá afstöðu þeirra (eða sinni) til göngugatna. Því þegar öllu er á botninn hvolft er það afstaða við- skiptavinarins, en ekki kaup- mannsins, sem skiptir máli. Ekki gleyma viðskiptavinunum! Eftir Guðrúnu Jóhannesdóttur Guðrún Jóhannesdóttir Höfundur er eigandi verslunarinnar Kokku á Laugavegi. » Við sem eldri erum ættum að laga okkur að breyttum kröfum frekar en að horfa sí- fellt um öxl. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú göngugötum í miðborg Reykjavíkur allt árið?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.