Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
info@fedaszdental.huHafðu samband:
+ 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is
Tannlækningar í Ungverjalandi
Sparaðu allt að 50-70%!
Fyrir
Eftir
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til úthlutunar
einbýlishúsalóð að Suðurgötu 40 fyrir
flutningshús eða nýbyggingu.
Helstu upplýsingar
•Stærð lóðar er 317,8 fm2
•Hámarksbyggingarmagn er 160 fm2
•Nýtingarhlutfall er 0,5
•Uppfylla þarf ýmis skilyrði
•Verð er lágmarksverð einbýlishúsalóða
Nánari upplýsingar, skilmála og skilyrði er að
finna á hafnarfjordur.is undir leitarorðinu:
Lausar lóðir. Sótt er um rafrænt áMÍNAR
SÍÐUR. Umsókn um flutningshús þarf að
fylgja ítarleg greinargerð.
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2020.
Nánar á hafnarfjordur.is
LAUS TIL ÚTHLUTUNAR
SUÐURGATA 40
hafnarfjordur.is585 5500
Atvinna
Fleiri mannskæð
snjóflóð
Í grein minni um reynslu af
snjóflóðum, sem birtist í Morgun-
blaðinu (bls. 15) sl. mánudag, sagði
að engin stór mannskæð snjóflóð
hefðu fallið hérlendis „í tvo áratugi
1975-1995“.
Þetta er því miður ekki rétt. Þann
22. janúar 1983 féllu tvö snjóflóð á
Patreksfirði og fórust í þeim fjórir
og mörg hús löskuðust. Í snjóflóði á
Tungudal við Ísafjörð í apríl 1994
fórst einn maður og um 40 sumarbú-
staðir skemmdust.
Hjörleifur Guttormsson.
LEIÐRÉTT
Í dag er mikill
áróður fyrir svokall-
aðri grænni eða
hreinni olíu og gasi.
Norðmenn eru komn-
ir í þennan áróð-
ursham eins og sjá
má á vefsíðu Morg-
unblaðsins 9. janúar
2020. Þetta er auðvit-
að tóm vitleysa. Allt
sem brennir kol, olíu,
bensíni eða gasi er ekki hreinn
orkugjafi og verður aldrei hreinn
orkugjafi þar sem slík brennsla
eykur magn CO2 í andrúmslofti
jarðar. Hver og einn bíll eykur
kannski ekki magnið mikið en þeg-
ar um er að ræða milljarða af bíl-
um, fyrirtækjum, flugvélum, skip-
um, húsnæði og fleiru þá telst
þetta allt saman.
Enda er það þetta ásamt fleiri
þáttum sem veldur því að magn
CO2 er núna komið yfir eða að
komast yfir 415ppm í lofthjúpi
jarðar. Þetta er magn CO2 sem er
óþekkt og hefur ekki sést á jörð-
inni í að minnsta kosti 66 milljónir
ára. Hitabylgjur standa orðið leng-
ur, eru heitari en áður var og þetta
hefur aukið skógarelda og komið af
stað eldum á pólsvæðum í Síberíu
og Alaska eins og gerðist sumarið
2019. Líklegt er að endurtekning
verði á þessum atburðum á norð-
urhveli jarðar þegar sumarið 2020
byrjar og nær hámarki. Skógar-
eldar í Alaska eru hluti af nátt-
úrunni þar en eru orðnir verri og
standa lengur en áður var.
Afneitun á hlýnun jarðar er af-
neitun á vísindum og þekkingu
mannkyns á þeirri stöðu sem er
komin upp. Þessi afneitun er einn-
ig merki um gegndarlausa græði
og skammsýni viðkom-
andi sem slíkt stundar.
Kostnaðurinn við
það að gera ekki neitt
er útdauði mannkyns.
Náttúrunni er alveg
sama hvort mannkynið
er á jörðinni eða ekki.
Það yrði allt komið á
fullt á ný eftir um
tvær milljónir ára þeg-
ar lífið á jörðinni væri
búið að jafna sig af á
áhrifum mannkyns og
þeirri hlýnun jarðar sem öll þessi
brennsla á kolum, olíu, gasi og
bensíni hefur á jörðina.
Ef fólk vill leggja sitt af mörkum
þá er eina ráðið að nota bílinn
minna, planta trjám og koma í veg
fyrir eins og hægt er aukningu á
CO2 með brennslu af einhverju
tagi. Það er hægt að gera margt
smátt og það telst saman eins og
allt annað, bæði með tímanum og
þegar margir gera þetta sama. Það
mun taka tíma og mikið fjármagn
að skipta um orkugjafa frá olíu og
olíuvörum um allan heim en ef
ekkert er gert og ekkert breytist
þá mun mannkynið deyja út út af
hlýnun jarðar. Það er engin tækni
sem getur bjargað mannkyninu ef
náttúran sem mannkynið þrífst í er
horfin.
Olía og gas eru
óhreinir orkugjafar
Eftir Jón Frímann
Jónsson
Jón Frímann Jónsson
» Ólíkt því sem haldið
er fram í áróðri olíu-
og gasfyrirtækja þá eru
þessir orkugjafar ekki
hreinir og munu aldrei
verða það.
Höfundur er rithöfundur.
jonfr500@gmail.com
Almáttugi Guð, skap-
ari heimsins, höfundur
og fullkomnari lífsins,
miskunna þú okkur
veiklunduðum börnum
þínum sem þú elskar út
af lífinu.
Okkur sem langar og
teljum okkur vilja vel,
skilja svo margt, geta
svo margt og vera svo
klár. En vitum svo í
raun ekki okkar rjúkandi ráð og botn-
um hvorki upp né niður í einu eða
neinu. Gildir þá einu hvað það er sem
tilveran færir okkur í fang að glíma
við.
Forðaðu okkur frá hroka, girnd og
græðgi, skilningsleysi, ofsa og hatri.
Og forðaðu okkur frá þessum öfgum
sem við erum að upplifa. Ekki bara í
samskiptum fólks og þjóða vegna hat-
urs og hernaðartíðinda, heldur einnig
í veðurfari og náttúruhamförum hvort
sem er af mannavöldum eða vegna
ófyrirsjáanlegra náttúruafla. Vegna
elda, brennandi hita, aftakaveðurs og
vinda, mikilla frosta, vatns-, sjávar-
eða snjóflóða, jarðskjálfta eða eld-
gosa.
Lít í náð þinni til okkar og hjálpaðu
okkur og leyfðu okkur að lifa saman
af virðingu og í sátt og samlyndi hvert
við annað, þig og náttúruna. Þar sem
allir eru virtir og fá tæki-
færi til að njóta sín og
láta gott af sér leiða. Þar
sem við fáum að gefa af
okkur og njóta hæfileika
hvert annars og stuðla
að farsæld og vellíðan
hvert annars. Hjálpaðu
okkur að hlusta á þig,
hvert annað og náttúr-
una. Hjálpaðu okkur að
virða hana og vernda um
leið og við fáum notið
með eðlilegum hætti.
Gef að við fáum að vera farvegir
kærleika þíns, friðar, fyrirgefningar
og fagnaðarerindis. Hjálpaðu okkur
að umgangast hvert annað af skilningi
og umhyggju.
Sýndu okkur nú hversu máttugur
þú ert. Þú hið frelsandi afl. Þú sem
reistir son þinn, Jesú Krist, upp frá
dauðum. Hann sem læknaði sjúka,
lægði vinda og vötn. Gekk á vatni og
breytti því jafnvel í vín til hátíðabrigða
ef því var að skipta. Hann sem sagðist
aldrei myndu sleppa af okkur hend-
inni eða skilja okkur eftir mun-
aðarlaus í þessum heimi heldur vaka
okkur yfir hverja stund og reisa okk-
ur upp til eilífs lífs utan tíma, efnis og
rúms þegar við gætum ekki lengur
meir. Hann sem sagði að þótt himinn
og jörð myndu líða undir lok myndu
orð hans og fyrirheit aldrei undir lok
líða.
Nú áköllum við þig. Hjálpaðu okk-
ur að fela okkur þér og treysta þér
sem munt vel fyrir sjá. Leystu okkur
undan hlekkjum syndar og haturs,
kvíða og ótta. Og kenndu okkur að
elska eins og þú hefur elskað okkur
að fyrra bragði.
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji,
svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu.
Amen.
(Jesús Kristur)
Já dýrð sé þér hið eina sanna ljós,
skjól og verndandi andi. Skapari him-
ins og jarðar, höfundur og fullkomn-
ari lífsins.
Þess bið ég af auðmýkt og í þakk-
læti með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Miskunna þú okkur,
elskandi Guð
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Almáttugi Guð,
skapari heimsins,
höfundur og fullkomnari
lífsins, miskunna þú
okkur veiklunduðum
börnum þínum sem þú
elskar út af lífinu.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.