Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020
✝ SigurðurBjarnason,
bóndi á Hofsnesi,
fæddist í Svínafelli
í Öræfum 12. nóv-
ember 1932. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Skjól-
garði á Höfn í
Hornafirði 17. jan-
úar 2020.
Foreldrar hans
voru Lydía Ange-
lika Pálsdóttir ljósmóðir, f.
1899 í Svínafelli, d. 1969 og
Bjarni Sigurðsson, f. 1899 á
Hofsnesi, d. 1985. Systkini Sig-
urðar eru: a) Guðrún, f. 1931,
d. 1989, gift Sigurði Ingvars-
syni, f. 1909, d. 2001, barn
þeirra er Svafa, f. 1966. Börn
Sigurðar af fyrra hjónabandi
voru Guðni, f. 1938, d. 1965,
Arndís Ingunn, f. 1939, Sigríð-
ur Kolbrún, f. 1945, d. 2012,
Magnús Björgvin, f. 1948, og
Ólafur, f. 1954. b) Guðrún Þór-
laug, Hofsnesi, f. 1936. Sonur
hennar er Pétur Waldorff
Karlsson, f. 1957. Hálfsystkini
Péturs eru Unnur Waldorff, f.
1960, Ólavía, f. 1961, Sigfinn-
ur, f. 1962, Fjóla Waldorff, f.
1964, og Eiður Waldorff, f.
1968, kvæntur Matthildi Unni
Þorsteinsdóttur, f. 1971. Börn
þeirra eru Aron Franklín
Jónsson, f. 1991, Ísak, f. 2002,
og Matthías, f. 2003. Aron er í
sambúð með Helen Maríu
Björnsdóttur, f. 1989, og sam-
an eiga þau Trausta Franklín,
f. 2015, og þau búa á Hofsnesi-
Móa. c) Eyrún Ósk, Selfossi, f.
1972, sem á Salómon Smára
Óskarson, f. 1994.
Siggi á Nesinu var Öræfing-
ur í húð og hár. Hann var
bóndi, en vann ætíð önnur
störf með, t.d. á skurðgröfu og
fór til sjóróðra til Eyja. Í Eyj-
um fann hann einnig ástina í
Heiðu og giftist henni 1966.
Siggi rak vörubíla þar til
vinnu við hringveginn var lok-
ið 1974. Þá flutti hann á
Stokkseyri og síðan til Eyja
með fjölskylduna. Þau sneru
svo aftur í Öræfin 1978, en
Siggi og Heiða skildu 1980.
Siggi hætti með sauðfé 1988
eftir að hafa hafið refarækt.
Eftir hrunið í þeirri grein fann
hann síðan lífsviðurværi sem
gerði hann landsfrægan, þ.e.
að fara með ferðafólk á hey-
kerru út í Ingólfshöfða og
fræða það þar um náttúru og
sögu svæðisins. Árið 2010 fékk
hann slæmt heilablóðfall og
dvaldi eftir það á hjúkrunar-
heimilum.
Jarðarför hans fer fram frá
Hofskirkju í Öræfum í dag, 30.
janúar 2020, klukkan 14.
1971, Karlsbörn.
c) Páll Jón, Sel-
fossi, f. 1938.
Kvæntur Viktoríu
Guðmundsdóttur,
f. 1941. Börn
þeirra eru Guð-
mundur Þorsteins-
son, f. 1964,
Bjarni, 1966, og
Smári, f. 1971.
Sigurður átti tvö
uppeldissystkin,
börn föðursystra sinna á Hofs-
nesi, d) Sigrúnu Ingunni Þor-
steinsdóttur, f. 1933, gift
Viggó Jósefssyni, f. 1922, d.
2010 og e) Guðgeir Ásgeirs-
son, f. 1932, d. 2007, kvæntur
Ingeborg Jórunni Kanneworff,
f. 1932. Barn þeirra er Val-
gerður Guðlaug, f. 1968. Sig-
urður var kvæntur Álfheiði
Ósk Einarsdóttur, frá Bjarma-
landi í Vestmannaeyjum, f.
1943, en þau skildu 1980. Börn
Álfheiðar og Sigurðar eru: a)
Guðrún Eyja Hafliðadóttir, f.
1963, d. 1968. b) Bjarni Diðrik,
Selfossi, f. 1966, giftur Önnu
Jónsdóttur, f. 1963, börn
þeirra eru Sigurður Sturla, f.
1993, og Hekla Hrund, f. 1995.
c) Einar Rúnar, Hofsnesi, f.
Hann pabbi minn Sigurður
Bjarnason eða Siggi á Nesinu
eins og hann var kallaður var
góður maður. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt hann fyrir föð-
ur og nú þegar þessi ljúfsári
tími er genginn í garð að þurfa
að sjá eftir honum í stóra ferða-
lagið þá koma svo ótal margar
sögur og atvik upp í hugann
sem bæði gleðja og ylja hjarta
mínu. Hann vann mikið þegar
ég var lítil stelpa en var mér
alltaf góður þótt viðkvæðið
„spurðu mömmu þína“ kæmi yf-
irleitt upp ef ég vildi fá skjót
svör við hlutunum. Það var svo
gaman að sjá hann svo síðar á
ævinni með barnabörnunum
þar sem hann tók virkan þátt í
lífi þeirra og sýndi áhugamálum
þeirra og hugðarefnum mikla
athygli. Við áttum svo margar
góðar stundir saman og um
margt höfum við skrafað og
skeggrætt í gegnum tíðina.
Pabbi hafði einstakt lag á að slá
á létta strengi og sjá spaugi-
legu hliðina á lífinu. Hann tók
sjálfan sig ekki mjög hátíðlega
og var oft til í að segja manni
sögur af hinu og þessu sem
drifið hafði á daga hans. En
aldrei gerði hann grín að öðru
fólki, bara sjálfum sér ef því
var að skipta. Okkar skemmti-
legasti tími saman var þau þrjú
sumur sem ég fékk að vera með
honum í Höfðaferðunum, það
var svo frábært að fá að sjá
pabba blómstra og virkilega
finna sinn rétta stað í lífinu,
hann svo sannarlega naut sam-
vistanna við ferðamennina og
leiðsögumennina og var svo
fullur af stolti yfir náttúrufeg-
urð Öræfanna og Ingólfshöfð-
ans. Hann hafði svo margt til
brunns að bera í þessu starfi;
sérlega skemmtilegur sögumað-
ur, kátur og orkumikill, með
mjög sjarmerandi framkomu
sem lét fáa ósnortna. Ég var
verulega hreykin af honum, því
ég fékk stöðugt sögur og hrós
af honum frá fólki sem hafði
farið með honum í ferðir.
Ein góð saga er þegar pabbi
kemur hróðugur til mín að
hausti og segir: „Eyrún, ég fór
á vigtina og sé að ég hef lést
helling í sumar, ég fór að
reikna og sé að miðað við þann
fjölda sem fór út í Höfða þá hef
ég lést um 20 grömm á hvern
ferðamann.“
Eftir að pabbi fékk heilablóð-
fallið og fluttist á Kumbaravog
á Stokkseyri hittumst við mjög
oft og áttum oft svo indælan
tíma saman, svo þegar hann
fluttist á Skjólgarð á Hornafirði
urðu ferðir mínar til hans tölu-
vert færri en gæðin engu síðri.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið þessi tíu aukaár með
honum þótt ég viti að hann
syrgði fyrri heilsu og var sadd-
ur lífdaga þegar hann lést.
Blessuð sé minning elsku
pabba.
Eyrún Ósk Sigurðardóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir og
afi var einstakur maður á
margan hátt. Hann var gegn-
umgóður og jafnlyndur maður.
Þetta geðslag þýddi þó ekki að
það heyrðist ekkert í honum.
Það gat alveg verið tekist tal-
vert á í samræðum við eldhús-
borðið á Nesinu, ekki síst ef
Framsóknarflokkinn bar á
góma, eða önnur áhugamál
hans. En það var alltaf stutt í
brosið hjá Sigga, þó að roði
hlypi í kinnarnar í áköfum rök-
ræðum við fjölskyldu sína og
vini.
Síðar á ævinni varð Siggi
einnig ástríkur tengdafaðir og
afi og kom reglulega í heimsókn
til að njóta samvista við fólkið
sitt. Hann hringdi þá gjarnan
fyrst og sagðist vera að hugsa
um að koma upp úr helginni, en
birtist svo bara daginn eftir
með bros á vör og sagðist ekki
hafa getað beðið lengur að hitta
okkur.
Siggi sá alltaf fremur það já-
kvæða í lífinu en það neikvæða
og hann var ekki upptekinn af
efnislegum gæðum. Hann var
fróðleiksfús, hafði yndi af lestri
og hann naut þess að vera í
ýmsum félagsmálum, en það
skemmtilegasta sem hann gerði
var að ferðast og fræðast þann-
ig um land og þjóð og síðar um
erlendar þjóðir þegar hann fór
að fara út með Bændaferðum
og heimsækja börnin sín er-
lendis.
Siggi er þekktastur fyrir að
verða frumkvöðull í ferðamál-
um, þ.e. að bjóða upp á náttúru-
og söguferðir. Hann hafði tekið
við vitavörslu í Ingólfshöfða ár-
ið 1989. Um svipað leyti gerðist
það að leiðsögumaðurinn Helga
Pálína leitaði hann uppi og
spurði hvort hann gæti ráðlagt
sér hvernig hún kæmi hópi
ferðamanna þangað út. Siggi
setti þá heykerruna fyrir drátt-
arvélina og ók þeim út í Höfða
og skemmti sér vel. Þarna fann
Siggi hilluna sína sem gerði
hann síðar landsfrægan. Það
var að fara með ferðamenn út í
Ingólfshöfða á heykerrunni og
fræða þá þar um náttúrufar og
sögu Öræfa; allt á kjarnyrtri
öræfaísku óháð því hvort hann
var að tala við gamlan sveit-
unga sinn eða útlending.
Árið 1992 var Landgræðslu-
félag Öræfinga stofnað. Siggi
hafði mikinn áhuga á þessu
verkefni og hóf strax að safna
birkifræi og sá því innan girð-
ingarinnar. Þetta varð hans
helsta áhugaefni, meðfram Ing-
ólfshöfðaferðunum. Það var á
orði haft innan fjölskyldunnar
að hann þekkti hverja birki-
plöntu með nafni sem spratt
upp í Skerinu.
Það var svo 2010 sem Siggi
fékk slæmt heilablóðfall og eftir
það var hann bundinn við hjóla-
stól og gat ekki tjáð sig með
skýrum hætti. Það var ekki
auðvelt fyrir hinn aldna sögu-
mann. Hann dvaldi fyrst á
hjúkrunarheimilinu á Kumb-
aravogi á Stokkseyri og fluttist
svo 2017 á hjúkrunarheimilið
Skjólgarð á Höfn, þar sem veg-
ferð hans lauk á friðsælan hátt.
Á báðum þessum stöðum var
ákaflega vel hugsað um Sigga
og við viljum færa öllum þeim
sem þar lögðu hönd á plóg okk-
ar bestu þakkir. Ekki síður öll-
um þeim ættingjum og vinum
sem ítrekað heimsóttu Sigga á
þessum síðasta áratug af ævi
hans.
Viðmótsprúður geði góðu
gekk hann fram í blíðu og stríðu.
Hæfur fyrir hærri stöðu
hann var sinnar stéttar prýði.
(G.Th.)
Bjarni Diðrik, Anna,
Sigurður Sturla og
Hekla Hrund.
Siggi á Nesinu og Sigurgeir
pabbi okkar voru fermingar-
bræður og vinir. Heiða fylgdi
mömmu í Öræfin eftir vertíð í
Eyjum og var í sveit hjá henni
á Ási. Seinna gengu Heiða og
Siggi á Nesinu í hjónaband og
sambandið á milli fjölskyldna
okkar var sterkt. Synirnir
Bjarni og Einar eru jafnaldrar
okkar og vináttan við þá og Ey-
rúnu gekk í erfðir.
Siggi vann ýmis störf í gegn-
um tíðina. Hann fór ungur mað-
ur á vertíð til Eyja eins og
margir Öræfingar gerðu á þeim
árum, hann vann í sláturhúsinu
eins og flestir sem vettlingi
gátu valdið á meðan sláturtíðin
stóð yfir. Hann keypti vörubíl
sem hann gerði út í vegavinnu
og sinnti bústörfum. Síðar flutti
fjölskyldan á Stokkseyri og til
Vestmannaeyja og þá var Siggi
á sjónum. Leiðin lá síðan aftur
á Hofsnes og Siggi stundaði
sauðfjárbúskap, refarækt og
varð sláturhússtjóri. Seinna
meir gerðist hann frumkvöðull í
ferðaþjónustu þegar hann fann
upp á því að fara með ferða-
menn á heykerru út í Ingólfs-
höfða. Þar naut frásagnarlistin
sín vel: hann hafði lag á að
segja skemmtilega frá og gerði
iðulega góðlátlegt grín að sjálf-
um sér, Siggi hæddist aldrei að
öðrum. Það var alltaf líf og fjör
á Nesinu. Þegar systkinin
Gunna og Siggi voru orðin einu
húsráðendurnir þar þá voru
þau kannski ekki alltaf sam-
mála um dægurmálin, en þau
voru alveg samtaka um að taka
vel á móti gestum sem bar að
garði. Það var alltaf gaman að
koma þangað og heimilið var
mjög gestkvæmt. Siggi hafði
mikinn áhuga á pólitík og um-
ræður voru iðulega fjörugar við
kaffiborðið, hvort sem umræðu-
efnið tengdist hitamálum á
landsvísu eða því sem við vor-
um að fást við hverju sinni.
Siggi var mjög áhugasamur
um skógrækt, hann sótti
birkifræ inn í Bæjarstaðaskóg
og dreifði um skerin á Nesinu.
Hann var einn af stofnfélögum
Landgræðslufélags Öræfinga
og tók alltaf vel á móti hópnum
í unglingavinnunni, um margra
ára skeið plöntuðu ungmenni úr
Öræfum birki í Nesskerin.
Siggi hafði alltaf gaman af að
sýna manni árangur ræktunar-
starfsins, ótal tré eru komin
upp bæði eftir unglingavinnuna
og frædreifinguna hans og
þarna er kolefnið áreiðanlega
að hlaðast upp í jarðveginum ár
frá ári.
Siggi var greiðvikinn, víðles-
inn, hafsjór af fróðleik um sög-
una og samfélagið. Að sögn ýkti
hann aldrei en þessi snillingur
var einfaldlega glaðvær mann-
vinur sem alltaf gat séð birtu
framundan hversu dimmt sem
öðrum sást.
Hann var frábær sögumaður,
flutti afburða tækifærisræður
og gerði einhvern veginn alla
daga betri. Hann var stór og
traustur þáttur í okkar lífi, öð-
lingur sem við kveðjum með
söknuði. Við þökkum hlýjuna
og vináttuna sem alltaf stafaði
frá honum og færum fólkinu
hans okkar bestu kveðjur.
Helgi og Sigrún.
Þá er komið að því að kveðja
þann sómamann og öðling sem
bjó í Sigga á Nesinu. Ég kynnt-
ist honum fyrir margt löngu, ég
sex ára snáði en Siggi á þrí-
tugsaldri. Við Hofsmenn áttum
erindi í réttir hjá þeim Hofs-
nesmönnum og það gustaði af
Sigga í atinu. Hann var hálf-
gerður heimagangur á Litla-
Hofi og lét sig alla vega ekki
vanta á balldögum.
Það var einstaka sinnum að
fundum okkar bar saman úti í
Ingólfshöfða. Síðar meir lagði
Siggi í það frumkvæði að koma
gestum mínum út í undralandið.
Hefur það verið hans vinna síð-
astliðin 30 ár.
Það get ég fullyrt eftir lang-
ar ferðir um allt landið með
hans leiðsögn og fuglanna, út-
sýnis og sagnabrunnsins, að
samveran með Sigga var það
sem stóð uppúr hjá mínu fólki.
Frá þeim tíma hef ég lagt ofur-
kapp á að komast úteftir í
hverri ferð minni.
Einhvern tíman sagði Siggi
mér frá hugmyndinni að Ing-
ólfshöfðaferðum og frumkvæð-
inu í því átaki. Hann hafði tekið
með sér þrjá farþega í lítilli
jeppakerru þegar hann átti er-
indi í vitann og þegar komið var
til lands á ný buðu þessir far-
þegar greiðslu. Siggi hélt nú
ekki, „Vita og hafnar“ greiddu
honum og ekki ætlaði hann að
tvírukka fyrir ferðina. Síðar um
kvöldið læddist svo viðskipta-
hugmyndin að honum og hann
kastaði sér út í verkið. Hann sló
sjaldan af hann Siggi. Hann var
einstaklega viðfelldinn, hjálp-
samur og greiðagóður, kátur og
traustur vinur. Fyrir að hafa
kynnst öðrum eins snillingi er
ég þakklátur og stoltur.
Ólafur Schram,
Litla-Hofi.
Ég vil minnast Sigurðar
Bjarnasonar, móðurbróður
míns, í nokkrum orðum. Sig-
urður Bjarnason eða Siggi á
Nesinu sem hann var iðulega
kallaður var stór maður. Hann
var eins og ég man hann best,
hár og þrekinn, raddsterkur og
fangaði athyglina þegar hann
byrjaði að tala.
Og Siggi hafði gaman af því
að segja frá, var sagnamaður
góður, hvort sem það var eitt-
hvað úr Sturlungu eða Svínfell-
ingasögu, fróðleikur um ættir
okkar eða eitthvað skemmtilegt
sem hann hafði heyrt eða upp-
lifað.
Ég á ótal góðar minningar úr
eldhúsinu hjá systur hans Guð-
rúnu (Gunnu) þar sem þau
systkini, ekki alltaf sammála,
ræddu málin og sögðu sögur.
Siggi var örlátur, bæði á
tíma sinn og veraldlegar eigur
sínar. Hann gaf mér Blesa,
rauðblesóttan gæðing, og hann
reyndist mér sem öðrum ákaf-
lega vel í öllu.
Siggi var börnum mínum
eins og afi, áhugasamur og
þolinmóður.
Sigurður var eins og kunnugt
er mörgum brautryðjandi í
ferðaþjónustu en hann fór
snemma með fólk út í Ingólfs-
höfða sem liggur suður af Hofs-
nesi þar sem Sigurður bjó
lengst af. Aðrir gera þessum
þætti í lífi hans vonandi verðug
skil.
Sigurður var minnisstæður
maður. Hafðu þökk fyrir allt,
kæri frændi. Ég vil svo votta
börnum Sigga og fjölskyldum
samúð mína. Blessuð sé minn-
ing Sigurðar Bjarnasonar.
Svafa Sigurðardóttir.
Sigurður
Bjarnason
✝ Sigríður Ant-oníusdóttir
fæddist 22. októ-
ber 1935 að Búð-
um við Fáskrúðs-
fjörð. Hún lést 7.
janúar 2020. For-
eldrar hennar voru
Antoníus Sam-
úelsson, f. 30.1.
1906, d. 26.5. 1952,
og Sigrún Björns-
dóttir, f. 26.11.
1908, d. 7.11. 1994.
Eftirlifandi maki
er Jón Þór Ólafs-
son, f. 11.12. 1932 í
Reykjavík. Dætur
Sigríðar og Jóns
eru Sigrún Anna,
Ingibjörg, Ólöf og
Þóra Sigríður.
Útför hefur far-
ið fram í kyrrþey
að ósk hinnar
látnu.
„Hvíldu þig amma mín og
ekki hafa áhyggjur.“
Hvað segir maður við ömmu
sína þegar maður veit að mögu-
lega eru þetta síðustu orðin
sem hún mun heyra frá þér?
Íhugar maður hvert orð af
kostgæfni eða heldur maður
áfram daglegu hjali um lífið og
veðrið? Ég vonaði bara að
frænka hefði rétt fyrir sér og
amma myndi reisa sig upp,
hósta hressilega og spyrja ýt-
arlega um hver væri búinn að
koma í heimsókn á spítalann.
Hún elskaði að fá fólk í
heimsókn og það var virkilega
gott að koma í heimsókn til
þeirra afa. Ég græddi eflaust
hvað mest á því þegar ég kom
ein í heimsókn, jafnvel þó ekki
væri nema stutta stund. Amma
gat spjallað við mann um allt
og gefið manni svo tæra og
góða sýn á marga hluti, svo heil
í gegn og einstök bæði hún og
afi. En þegar ég kom með fjöl-
skylduna fengum við öll að
njóta þess besta frá ömmu og
finna fyrir þessu augljósa stolti
sem hún bar í brjósti yfir þess-
um skara afkomenda.
Elsku amma Kókópuffs (þeg-
ar ég var lítil þá átti hún alltaf
kókópuffs þegar maður kom í
heimsókn). Hún hafði alltaf
ákveðnar og sterkar skoðanir á
öllu og var reiðubúin að ræða
um menn og málefni í þaula.
Þegar ég var á unglingsaldri
átti ég það til að koma við hjá
ömmu og afa seint um kvöld
eftir eitthvert flandur um borg-
ina, stundum til að pissa,
stundum til að segja „hæ og
bæ“ áður en ég fór brautina
heim. Vinum mínum fannst
þetta stórkostlega undarlegt,
enda ekki margar ömmur enn á
fótum eftir miðnætti, en þeim
fannst þetta líka frábært og öf-
unduðu mig af þessari hressu
ömmu sem vildi endilega heyra
allt um hversu gaman var niðri
bæ.
Við fjölskyldan komum í
heimsókn rétt fyrir jól eins og
venja er, með konfektkassa til
að gefa. Þáðum ekki neinar
veitingar, ömmu til mikillar ar-
mæðu, því hún vildi auðvitað
alltaf fá að gefa manni að
borða. En hún var svo hress og
hún hlakkaði mikið til jólanna í
ár sem hún svo naut í nánum
og góðum samvistum ættingja.
En síðasta skipti okkar
ömmu var við sjúkrarúmið
þann 7. janúar síðastliðinn, þar
sem ég hallaði að henni, strauk
viðkvæmu litlu höndina og
sagði lágum rómi: „Hvíldu þig
amma mín og ekki hafa áhyggj-
ur.“ Ég keyrði svo af stað til að
vera heima áður en óveðrið
myndi skella á. Mín megin við
brautina voru aðrir í húsinu
sofandi, en veðrið lamdi á
gluggana til að minna á sig
þegar síminn hringdi. Amma
var búin að kveðja.
Ósk mín til ömmu er enn sú
sama: „Hvíldu þig amma mín
og ekki hafa áhyggjur,“ við
munum öll spjara okkur þrátt
fyrir söknuð og tómarúm. Ég
er þakklát fyrir hvað fölskyldan
er samrýnd þegar á þarf að
halda og allir hjálpast að við að
læra á nýja tilveru, áskoranir
og hlúa hvert að öðru. Ég er
þakklát fyrir fallegar og góðar
minningar um einstaka konu,
minningar sem ylja um hjarta-
rætur.
Elsku amma, ég vildi að ég
hefði líka sagt þér hvað ég
elska þig, en ég geri það þegar
við hittumst næst.
Þegar dimmir yfir öllu engin dag-
renning er nær,
og döpur hugsun eyðir von og trú.
Vakna minningarnar um þig, eins og
stjarna björt og skær
því ég veit að það er enginn eins og
þú.
(Magnús Eiríksson)
Þín dótturdóttir,
Berglind Ásgeirsdóttir.
Sigríður
Antoníusdóttir