Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 30.01.2020, Qupperneq 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 ✝ Hafdís Hall-dórsdóttir fæddist í Ásbyrgi á Hellissandi 21. júní 1951 og lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 20. jan- úar 2020. For- eldrar hennar voru hjónin Ólöf Jóhannsdóttir hús- móðir, f. í Skuld á Hellissandi 2. nóv- ember 1922, d. 17. febrúar 2011, og Halldór Benediktsson bifreiðarstjóri, f. í Grund- arfirði 6. maí 1920, d. 27. október 1993. Systkini Hafdís- ar eru Þorgerður Elín, f. 26. mars 1943, Jóhann Þór, f. 6. maí 1949, og Ragnheiður Guð- rún, f. 3. október 1953. Hafdís giftist 14. ágúst 1971 Páli Pálssyni frá Borg í Mikla- holtshreppi, f. 16. apríl 1950. Páll er sonur Ingu Ásgríms- dóttur húsmóður frá Borg, f. 24. nóvember 1927, d. 16. júlí 2008, og manns hennar Páls Pálssonar bónda, f. 19. sept- ember 1922, d. 20. júní 2008, Verslun Ásgeirs og í sælgæt- isgerðinni Ópal fyrstu árin. Hún hóf störf á Árbæjarsafni árið 1979 og starfaði þar í 37 ár eða til ársins 2016, þar til hún varð að láta af störfum vegna veikinda. Árbæjarsafn var hennar aðalstarfsvettvangur og var hún lengst af skrifstofustjóri. Hún gegndi líka trún- aðarstörfum og sat í stjórn FÍ- SOS – Félags íslenskra safna og safnamanna. Í tengslum við safnið átti hún mikinn fjölda góðra vina og samstarfsfélaga sem hafa í gegnum veikindi hennar sýnt einstakan hlýhug. Þau hjónin byggðu sum- arbústað á Borg árið 1979 þar sem foreldar Páls bjuggu en fluttu sig í Svínadal í Hval- fjarðarsveit árið 2011. Garð- yrkja átti hug hennar og bar garðurinn í Smárarima og í sumarbústaðnum því greini- legt vitni. Nutu þau hjónin þess að ferðast um Ísland og fara í sólina á Spáni á hverju ári Árið 2014 greindist Hafdís með Lewy body-sjúkdóminn og vegna veikinda sinna dvaldi hún á hjúkrunarheim- ilinu Eir tvö síðustu æviárin. Hafdís verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 30. janúar 2020, klukkan 13.00. frá Þúfum í Ísa- fjarðardjúpi. Dæt- ur Hafdísar og Páls eru: 1) Lóa Dögg viðskipta- fræðingur, f. 21. desember 1972, gift Hallvarði Hans Gylfasyni rafiðnfræðingi, f. 7. ágúst 1975. Börn þeirra eru a) Hafdís Huld, f. 12. febrúar 2006, og b) Arnar Páll, f. 3. september 2008, c) Sonur Hallvarðs er Gylfi, f. 7. maí 2003. 2) Inga Hlín alþjóðamarkaðsfræðingur, f. 30. maí 1979. Hafdís ólst upp hjá for- eldrum sínum á Hellissandi og gekk í Barna- og unglinga- skóla Hellissands. Síðar fór hún til Danmerkur og stund- aði þar nám við Als Husholdn- ingsskole í Vollerup. Hafdís og Páll stofnuðu heimili á Langholtsvegi 155 í Reykjavík og bjuggu síðar í Hraunbæ 6 og Smárarima 98. Í Reykjavík vann Hafdís í Elsku hjartans mamma mín, söknuðurinn er svo mikill. Ég finn fyrir þér, heyri í þér, þú ert alls staðar. Á einhvern hátt róar það mig að tala við þig og trúa því að þú verðir alltaf þarna hjá mér. Ég þekki ekkert annað en að mamma ynni á Árbæjarsafni en hún hóf þar störf sama ár og ég fæddist. Mér fannst ég svo mikil hjálparhella þegar ég fór til hennar alla daga eftir skóla en var líklega öðru fremur í pössun hjá samstarfsfólkinu til að byrja með. Sumrin eru þó mörg sem ég vann þar með henni og sú samvinna gerði okkur samrýnd- ari og kenndi mér svo margt. Við höfðum yndi af því að fara í bíltúra, helst undir jökul eða út í Hólm. Okkur fannst svo gaman að keyra, spjalla og vera saman. Mamma var stoðin og styttan í fjölskyldunni og sunnu- dagskaffi var ómissandi. Heim- ilið var mikið skreytt um jólin og á aðfangadagskvöld var farið í kirkju þar sem Egill söng inn jólin fyrir okkur með „Ó, helga nótt“. Mamma fór ekki út úr húsi án þess að hafa sig til; varalitur, hringir, hálsmen, armband, blás- ið hár og háir hælar. Þau voru ófá skiptin sem pabbi stóð í dyragættinni og beið eftir að hún kláraði að naglalakka sig við eldhúsborðið áður en þau færu eitthvað. Svo gleymdi hún sér stundum og var mætt út í fallega garðinn þeirra að hreinsa beðin á hælaskónum. Rúmið þurfti líka að vera umbúið á hverjum morgni og ekki fór hún frá eldhúsinu nema tandur- hreinu. Mamma var nefnilega einstaklega skipulögð, snyrtileg og kunni að gera hlýlegt í kring- um sig. Þau mamma og pabbi voru samrýnd hjón, gift í rúm 48 ár. Þau nutu þess að vera saman hvort sem það var í bústaðnum, á Spáni, í ferðalögum um landið eða við vinnu í garðinum. Berja- ferðir standa upp úr í huganum enda eru engin ber góð nema þau séu undan jökli. Mamma hafði mikið fyrir því að ná þeim og notaði aldrei berjatínu. Hún arkaði efst í brekkurnar því þar voru auðvitað bestu berin og rúllaði svo niður þegar hún var komin í ógöngur – óborganleg augnablik. Mamma bjó yfir miklum dugnaði og þrautseigju. Í upp- hafi réð hún sig til skúringa- starfa hjá Árbæjarsafni en vann sig svo upp í að vera skrifstofu- stjórinn þar, sem allir leituðu til. Hún veiktist fyrir 15 árum af óútskýrðum húðsjúkdómi sem hafði mikil áhrif á hana. Á þeim tíma þurfti hún líka að gefa öll fallegu blómin sín sem nálguð- ust hundraðið. Þetta var erfiður tími sem hún tók samt með jafn- aðargeði. Síðar veiktist hún af enn erfiðari sjúkdómi og það var svo sárt að sjá hana hverfa inn í heim heilabilunar og missa þrótt og kraft. Á einhvern hátt hélt hún samt gleðinni og við áttum svo margar stundir þar sem við fengum áfram okkar hlátursköst yfir vitleysunni hvor í annarri. Okkur þótti svolítið gott að leggja okkur saman hvort sem það var uppi í bústað, heima eða nú síðast á Eir. Svo varð það allt í einu í síðasta skiptið og þú vildir ekki vakna og viku síðar fórstu frá okkur. Það er huggun í því að ég hafi verið hjá þér en mikið er þetta sárt. Takk elsku mamma fyrir allt, mér þykir svo undurvænt um þig. Við hugsum vel um pabba. Þín Inga Hlín. Elsku amma okkar. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hafdís Huld og Arnar Páll. Systir mín Hafdís Halldórs- dóttir eða Haddý eins og hún var oft kölluð fæddist í Ásbyrgi á Hellissandi 21. júní 1951. Hún ólst upp í foreldrahúsum með þremur systkinum. Bernskuárin voru frjálsleg, vinir og vinkonur mörg. Margt var öðruvísi en nú er, ekki voru til leikskólar og tómstundir barna ekki skipu- lagðar eins og nú tíðkast. Leik- völlurinn var fjaran og hraunið og leikföngin oft heimagerð. Haddý gekk í Barna- og ung- lingaskólann á Hellissandi og fékk þar gott veganesti. Hún gætti barna á sumrin eins og al- gengt var á þeim tíma. Síðar fór hún til Danmerkur í húsmæðra- skóla og átti þaðan góðar minn- ingar. Haddý kynntist Páli Pálssyni frá Borg í Miklaholtshreppi þeg- ar hann kom að vinna í Frysti- húsinu. Þau giftu sig í ágúst 1971 og keyptu fljótlega fyrstu íbúðina sína á Langholtsvegi 155 í Reykjavík. Þau fluttu síðar í Hraunbæ 6 en síðustu 25 árin bjuggu þau í Smárarima 98. Haddý og Palli byggðu sér sum- arbústað á Borg en fluttu sig í Svínadal fljótlega eftir að fjöl- skylda hans hætti búskap. Það var sama hvar þau bjuggu, alltaf var heimili þeirra til fyrirmyndar. Þar var snyrti- mennska, reglusemi og smekk- vísi í fyrirrúmi. Voru garðarnir þeirra í Smárarima og við sum- arbústaðina einstaklega snyrti- legir. Þau voru gestrisin og hress og til þeirra var gaman að koma. Heimilið var miðpunktur stórfjölskyldunnar og voru Haddý og Palli alltaf boðin og búin að hjálpa ef þess var þörf. Það hefur alltaf verið mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar Haddýjar og gagnkvæm- ar heimsóknir. Ég bjó lengi úti á landi og alltaf komu Haddý og Palli í heimsókn á sumrin. Á ferðum mínum til Reykjavíkur var gott að koma við hjá þeim. Fyrir rúmum fimm árum komu slæmar fréttir, Haddý hafði greinst með ólæknandi sjúkdóm. Í rúm tvö ár hefur hún dvalið á Hjúkrunarheimilinu Eir. Palli keypti bíl með hjóla- stólalyftu og þannig gat hún skroppið heim um helgar meðan heilsan leyfði. Hún var þakklát fyrir þá hjálp sem hún fékk og brosti við gestum og starfsfólk- inu sem annaðist hana fram á síðasta dag. Hún lést á Eir 20. janúar sl. Kæri Palli, Inga, Lóa og fjöl- skylda, þið hafið misst mikið en minningin um góða konu lifir. Kæra systir, bestu þakkir fyrir allar samverustundirnar. Hvíldu í friði. Jóhann Þór Halldórsson. Nú er komið að kveðjustund. Ég minnist Haddýjar frænku með þakklæti og hlýju. Hún var í miklu uppáhaldi hjá mér, bros- mild félagsvera sem var alltaf til í að bjóða heim í kaffi. Það tók hana enga stund að dekka borð- ið fullt af allskonar kræsingum. Stundirnar í eldhúsinu þar sem við frænkur sátum heillengi að spjalla, stundum hver ofan í aðra, eru dýrmætar. Fyrst í Hraunbænum og síðan í Smára- rimanum. Það var alltaf fallegt í kringum Haddý, hvort sem það var heima hjá þeim Palla eða uppi í bústað. Blómstrandi garð- ur, blúndur og dúllerí, allt í röð og reglu, hreint og fínt. Þannig var hún. Ég var svo lánsöm að fá að vinna með henni á Árbæjarsafni nokkur sumur. Þar var hún í essinu sínu og þótti mjög vænt um safnið og samstarfsfólk sitt þar. Hún sinnti starfi sínu á skrifstofunni af alúð og naut þess að kaupa inn vörur fyrir miðasöluna og Krambúðina á safninu. Allt svo fallegt og í anda gömlu tímanna. Á safninu kenndi hún mér bókfærslu og þar lærði ég mikilvægi þess að vera skipulögð og hafa allt í röð og reglu. Annars stemmir ekki bókhaldið, sagði hún með bros á vör. Vinátta er mér ofarlega í huga þegar ég hugsa til Haddýj- ar. Systrasamband og vinátta hennar og mömmu var dýrmæt og fyrirmynd fyrir okkur stelp- urnar þeirra. Við frænkur höld- um áfram spjallinu og ég veit að Haddý verður með okkur í eld- húskróknum, sólbrún og sæl. Með þakklæti og söknuði kveð ég elsku Haddý frænku mína. Minningin lifir. Helga Júlía. Það eru að verða 50 ár síðan Palli stóri bróðir kom heim af vertíð frá Hellissandi eins og svo oft áður, en í þetta sinn hafði borið heldur betur vel í veiði. Renndi í hlaðið á Borg á Ford Cortinu P-40 og í farþega- sætinu var hann með kærustuna sína til að kynna hana fyrir for- eldrum og fjölskyldu sinni. Haf- dísi hafði hann kynnst þá um veturinn með ekki svo fáum ferðum í Shell-sjoppuna hjá Dóra Bensa og Lóu – þarna birtist okkur þessi bráðhuggu- lega og yndislega stelpa sem bauð af sér mikinn þokka og traust við fyrstu kynni. Lífsföru- nautur stóra bróður var mætt og mikil gleði ríkti alla tíð með þennan ráðahag. Heimili þeirra hjóna stóð alltaf opið fyrir fjöl- skylduveislur eða annað sem þurfti til að stórfjölskyldan gæti öll verið saman við tímamót, jólaboð eða annað. Ég var ánægður vorið 1979 þegar þau hjónin ákváðu að byggja sér sumarbústað, Brekkuborg, heima í brekkun- um rétt í námunda við „Kára- hvamminn“ á Borg. Þetta var þeirra sælureitur í tugi ára, garðurinn alltaf í skrúða, verið að rækta tré eða byggja við, breyta og viðhalda húsinu. Það var notalegt fyrir okkur heima- fólkið að koma þar við hvenær sem var og þá sérstaklega í morgunkaffi. Ristað brauð og Jacobs-tekex með osti og marm- elaði var staðallinn fyrir kúa- bóndann eftir fjósverkin um leið og kýrnar voru reknar í haga á sumrin. Hellissandur, Snæfellsjökull og svæðið í kringum jökul var hennar uppáhalds, taka hringinn um eftirmiðdaginn, berjatínsla og náttúran heillaði. Þá var bú- staðurinn vel í sveit settur til að njóta nærveru og krafta sem jökullinn gaf. Hafdís var einstök manneskja, tók öllum vel í fjöl- skyldunni, og nutu afi Ásgrímur og foreldrar mínir hlýju hennar og umhyggju alla tíð, fyrst heima á Borg og síðan eftir flutning í Hraunbæinn. Langar mig að þakka Hafdísi sérstak- lega núna við leiðarlok hvað hún reyndist þeim öllum vel með allt sem sneri að þeim, veisluhöld öll og annað sem hún gerði og varð til að létta þeim lífið í ellinni. Elsku Palli minn og dæturnar Lóa Dögg og Inga Hlín hafa staðið vaktina í veikindum Haf- dísar sl. ár af svo miklu æðru- leysi og dugnaði. Þau gerðu allt sem hægt var til að létta henni lífið og þá sérstaklega eftir komu hennar á Eir, allt þar til yfir lauk, ásamt systkinum og fjölskyldu hennar. Ég bið góðan guð að styrkja þau öll í sorginni. Góð eiginkona, móðir, tengda- móðir og amma er gengin á vit feðra sinna. Fyrir hönd okkar systkinanna frá Borg, Kalla frænda, maka og fjölskyldna okkar sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Snæfellsjökull „Ljóst var út að líta“, Ljómaði fagurt oft Snæfell hrími hvíta Við heiðblátt sumarloft; Skein þar mjöll á hnúkum hæst; „Allt er hreinast“, hugði’ eg þá, „Sem himninum er næst“. (Steingrímur Thorsteinsson) Auðunn Pálsson frá Borg. Ung kona í Hraunbænum svaraði kalli þegar auglýst var laust starf við ræstingar í Ár- bæjarsafni. Hún mætti í ráðn- ingarviðtal með unga dóttur sem svaf í vagni fyrir utan Líkn með- an viðtalið fór fram. Hún var ráðin. Þannig var upphafið að fyrstu kynnum okkar Hafdísar og jafnframt að starfsferli henn- ar í Árbæjarsafni sem átti eftir að vara það sem eftir var starfs- ævi hennar. Það var Hafdís sem tók á móti mér þegar ég sneri aftur í Árbæjarsafn aldamótaárið. Mér varð strax ljóst að hún hélt þar í alla þræði og hún varð mér sá trúnaðarmaður sem hver stjórn- andi þarf að hafa sér við hlið. Á þeim tíma sem liðinn var frá því við kynntumst fyrst hafði Hafdís vaxið í starfi og verið óhrædd við að taka að sér sífellt viða- meiri verkefni, tileinka sér tækninýjungar; tölvur, bók- halds- og launakerfi og með aukinni starfsemi fylgdi fleira starfsfólk sem þurfti að fá laun sín greidd á réttum tíma. Rekstri safnsins sinnti hún af því hyggjuviti sem henni var gefið í svo ríkum mæli. Og næg voru verkin sem þurfti að vinna í stóru safni, en af öllu því sem lá á borði Hafdísar var það sum- arstarfið sem lá efst í bunkanum og safnbúðirnar sem lágu hjarta hennar næst. Hún hafði mikla ánægju af að stússast í búð- unum enda sagðist hún vera búðarkona í hjarta sínu. En það var ekki bara safnið sem hún gaf tíma sinn og krafta. Hafdís var mikil fjölskyldukona. Hún naut þess að ferðast með eig- inmanninum og að dvelja í sum- arbústaðnum. Dæturnar sem uxu úr grasi og barnabörnin tvö urðu henni til mikillar gleði og hún sinnti af alúð móður og tengdaforeldrum. Við gengum á svipuðum tíma í gegnum það að horfa á foreldra eldast og veikj- ast og deyja og þurfa að glíma við völundarhús öldrunarþjón- ustu og sjúkrastofnana. Það var stuðningur í því að geta sagt hvor annarri sögur af „okkar“ og stundum vissum við ekki hvort við ættum að gráta eða hlæja. Undir lok tíma okkar saman í Árbæjarsafni fór eitt- hvað að gefa sig hjá Hafdísi. Þessi sterka kona sem fram til þess hafði órög tekist á við verk- efni sín missti kjarkinn, sem var svo ólíkt henni. Ekki áttaði ég mig á því þá, en eftir á að hyggja voru þetta eflaust fyrstu merki um sjúkdóminn sem síðan tók völdin og rændi hana öllum þrótti. En fyrir mér verður hún ætíð sú trygga samstarfskona sem sinnti öllum sínum verkum af áræði, samviskusemi og trú- mennsku. Og þannig vil ég muna hana; á skrifstofunni sinni í Kleppi, þar sem allt var í röð og reglu, hlaupandi út á safn- svæði til að bjarga því sem bjarga þurfti, í krambúðinni við að stilla upp varningi í hillur og mæla sælgæti í kramarhús, til að allt yrði tilbúið 1. júní þegar sumarið byrjaði í Árbæjarsafni. Guðný Gerður Gunnarsdóttir. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum Hafdísi Hall- dórsdóttur, yndislega samstarfs- konu og kæran vin, er starfaði áratugum saman á Árbæjar- safni. Hafdís hóf fyrst störf þar við ræstingar og þrif undir lok áttunda áratugarins en vann síð- an lengst af á skrifstofu safnsins við rekstur og fjármál. Hafdís var einstaklega traust, skipulögð og glögg og hún var öllum hnút- um á safninu kunn. Iðulega var hægt að leita til hennar með ýmis álitaefni, því Hafdís var konan sem kunni á Árbæjarsafn. Og hún var alltaf fús til að miðla af reynslu sinni og þekkingu, enda bóngóð, hjálpsöm og einkar lausnamiðuð. Hún sinnti störfum sínum af alúð og natni, hún setti mark sitt á starf og þróun Árbæjarsafns og alltaf bar hún hag safnsins fyrir brjósti. Hafdís var afar smekk- vís kona og það mátti merkja í þeim verkefnum sem hún tók sér fyrir hendur, svo sem í tengslum við rekstur kaffisölu í Dillonshúsi og safnbúðum Ár- bæjarsafns. Hún tók einnig virkan þátt í félagsstarfi safn- manna á landsvísu og lagði sitt lóð á vogarskálarnar við að efla íslenskt safnastarf og stuðla að vexti þess og aukinni fag- mennsku. Hafdís var lífsglöð og hlát- urmildur húmoristi, sem eru af- ar dýrmætir eiginleikar, og hún hafði iðulega jákvæð áhrif í öllu samstarfi. Allt viðmót Hafdísar í garð samstarfsfólks hennar ein- kenndist af einstakri hlýju og væntumþykju. En Hafdís átti einmitt fjöldann allan af sam- starfsfólki, því á hennar tíð á safninu starfaði mikill fjöldi fólks um lengri og skemmri tíma, iðnaðarmenn, fræðimenn og leiðsögufólk á sumrin, svo nokkuð sé nefnt. Öllum þótti vænt um Hafdísi, því hún tók öllum vel og var á sinn hátt kjöl- festan í starfsemi safnsins um árabil. Margt ungt fólk sem hóf störf á Árbæjarsafni, sem sum- arstarfsfólk eða fræðimenn, minnist einmitt viðmóts hennar og móðurlegrar tilsagnar með hlýhug og án efa hefur það átt sinn þátt í því að margir hverjir ákváðu síðan að gera safnastarf að ævistarfi sínu. Skömmu eftir að Árbæjarsafn var sameinað öðrum söfnum borgarinnar und- ir merki Borgarsögusafns árið 2014 tók að bera á veikindum Hafdísar. Við samstarfsfólk hennar gerðum okkur ekki grein fyrir því í hvað stefndi, en nokkru síðar fór hún í veikinda- leyfi og lét svo af störfum árið 2016. Hélt hún engu að síður tryggð við vinnustaðinn og marga af sínum samstarfsmönn- um næstu árin. Við sem vorum svo lánsöm að hafa fengið tækifæri til að vinna með Hafdísi og kynnast henni erum því afar þakklát. Líkt og Hafdísi þótti svo vænt um Ár- bæjarsafn og samstarfsfólk sitt mun okkur ætíð þykja vænt um Hafdísi. Þó svo að nú sé komið að þeirri stund að við kveðjum Hafdísi með trega mun minn- ingin um vandaða og góða konu lifa í hugum okkar. Fjölskyldu hennar og ástvinum sendum við innilega samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks á Árbæjarsafni, fyrr og síðar, Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri. Það var sumarið 2004 sem ég hóf störf sem sumarstarfsmaður á Árbæjarsafni og kynntist Haf- dísi, eða Haddý eins og hún var kölluð. Ég var svo í fullu starfi frá hausti 2006, og unnum við Hafdís náið saman allt þar til hún lét af störfum vorið 2015. Ég var ungur að árum og fyrir vikið settu galsi og prakkara- strik stundum mark sitt á vinnu- framlag mitt. Hafdísi var ekki alltaf skemmt og strunsaði stundum ákveðin á svip inn á skrifstofu mína til að vanda um Hafdís Halldórsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.