Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 47
fyrir mér, en mín viðbrögð voru ávallt þau sömu; setja upp sak- leysisleg hvolpaaugun og áður en maður vissi af breyttist svip- mót hennar og hlýtt brosið færðist yfir hana og kitlandi hlátur fylgdi í kjölfarið. Hún trúði mér meira að segja fyrir því eitt sinn að hún hefði nú innst inni gaman af strákapör- um okkar strákanna á skrifstof- unni. Hafdís sýndi mér alltaf mikla hlýju, var móðurleg jafn- vel enda var gott að leita til hennar með ráðleggingar. Eitt lítið dæmi var þegar ég vissi ekki hvað ég ætti að gefa stúlku sem ég var að hitta í jólagjöf. Hafdís hafði auðvitað ráð við því, og gjöfin hitti í mark. Við unnum náið saman og alltaf dáð- ist ég að þeirri samviskusemi, skipulagi og metnaði sem hún lagði í störf sín fyrir safnið. Hún fór ekki heim fyrr en allt var komið á hreint og allar krónur taldar þrisvar. Það kom sér líka vel fyrir hana, þegar ný tölvu- forrit voru tekin í notkun, að geta leitað til mín með ráðlegg- ingar og kennslu. Undir lok starfsferils hennar fór að bera á óvenjulegum veik- indum sem komu okkur öllum í opna skjöldu. Í blóma lífsins lenti hún í heljargreipum sjúk- dóms sem verður aldrei skilinn til fulls. Það er einmitt á stund- um sem þessum sem maður lær- ir að meta allar litlu stundir lífs- ins, vorferðir, sumarbústaðaferðir, jólaveislur og allar hinar góðu stundirnar sem við starfsmenn Árbæjar- safns áttum saman. Þessar minningar eru ómetanlegar núna og þörf áminning um það að njóta allra þeirra stunda sem við eigum saman, enda lífið stundum hverfult. Ég sendi fjölskyldu og vinum Hafdísar samúðarkveðjur. Sigurlaugur Ingólfsson. Með fáum orðum kveð ég kæra samstarfskonu, Hafdísi Halldórsdóttur. Kynni okkar Hafdísar hófust árið 1987 þegar ég hóf störf á Árbæjarsafni sem ungur fornleifafræðingur. Haf- dís var þá þegar orðin reyndur starfsmaður minjasafnsins og kom mér fyrir sjónir sem heið- arleg og traust kona sem hafði glögga yfirsýn yfir hið daglega starf og rekstur safnsins. Hafdís var sannkölluð kjölfesta sem skrifstofustjóri safnsins og traust samstarfskona um árabil. Hafdís kom víða við í störfum sínum. Auk skrifstofustarfa hvers konar kom Hafdís meðal annars að mótun safnbúðar, tók þátt í ýmsu er varðaði starfsemi á safnsvæðinu og samskipti við leiðsögufólk. Þá tók hún þátt í undirbúningi hvers kyns við- burða og sýninga í safnhúsunum og fleira mætti nefna. Sem ung- um forstöðumanni minjasafns í mótun og örum vexti var mér mikils virði að eiga Hafdísi að sem samstarfskonu þegar tekist var á við borgarminjavörslu, skráningu safnkosts, fjölþætt rannsóknaverkefni um sögu Reykjavíkur og síðast en ekki síst skemmtilega miðlun til gesta. Hafdís var úrræðagóð og vel liðin meðal samstarfsfólks og setti ljúft mark sitt á starfsum- hverfið og safnastarf almennt. Fjölmargar góðar minningar koma upp í hugann á kveðju- stundu. Hafdís var mikil fjöl- skyldukona sem var afar stolt af fjölskyldu sinni sem var henni svo kær. Ég minnist heimsókna til þeirra sómahjóna á fallegt heimili þeirra þar sem hlýr heimilisbragur og gestrisni réð ríkjum. Ég minnist fimmtugs- afmælis Hafdísar með fjölskyldu hennar og vinum þar sem hún geislaði af heilbrigði og gleði. Með þökk í huga votta ég Páli, Ingu Hlín, Lóu Dögg og fjöl- skyldu mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Hafdísar Halldórsdóttur. Margrét Hallgrímsdóttir. MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 ✝ Þórunn ErnaÞórðardóttir fæddist á Brekku í Norðurárdal 10. desember 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 19. janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin á Brekku, Þórður Ólafsson, f. 1. apríl 1889 á Desey í Norðurárdal, og Þórhildur Þorsteinsdóttir, f. 3. janúar 1903 á Hamri í Þver- árhlíð. Systkini Ernu eru Ólafur, f. 28. desember 1927, Þorsteinn, f. 4. desember 1930, d. 10. mars 2018, og Guðrún, f. 29. apríl 1940. Erna ólst upp á Brekku, gekk í barnaskóla í Norðurárdal og stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni og Húsmæðra- skóla Reykjavíkur. Erna giftist 27. desember 1948 Andrési Sverrissyni leigu- bílstjóra, frá Hvammi í Norður- árdal, f. 27. desem- ber 1918, d. 6. apríl 2004. Foreldrar hans voru Sig- urlaug Guðmunds- dóttir og Sverrir Gíslason í Hvammi. Dætur Ernu og Andrésar eru Þór- hildur, f. 11. júní 1948, skrif- stofumaður, og Sigurlaug, f. 29. ágúst 1952, flugfreyja. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, en frá árinu 1956 voru þau búsett í Kópavogi, á Álfhólsvegi 14a og síðar í Fannborg 8. Erna stundaði ýmis störf meðfram húsmóðurstörfum en lengst af starfaði hún á Kópa- vogshæli við umönnun og aðstoð við iðjuþjálfun. Útförin fer fram frá Nes- kirkju í dag, 30. janúar 2020, og hefst klukkan 15. Þegar kvöldsólin er að hníga, þá minnir útsýnið af bæjar- hlaðinu á Brekku einna helst á málverk. Grábrókin og mosavax- ið hraunið með sínu fallega kjarri, Norðuráin líður fallega í gegnum landið og yfir þessu margbrotna landslagi Norðurár- dalsins vakir svo Baulan, fjalla- drottningin sjálf. Brekkan sem bærinn stendur undir er tignar- leg og er þar að finna góðar berjabrekkur. Sá sem hefur lifað lengi og fallega skilur alltaf eftir sig góðar minningar, og þeir sem verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast slíku fólki eru ríkari á eftir. Erna föðursystir mín var ein af þessum einstaklingum og við andlát hennar hefur einn þáttur í lífinu orðið fátæklegri en áður. Hún var af þeirri kynslóð Íslendinga sem hefur upplifað meiri breytingar en nokkur önn- ur kynslóð þjóðarinnar. Hún ólst upp á Brekku við al- menn sveitastörf þess tíma, elst fjögurra systkina. Fyrir ferm- ingu var barnakennsla í fundar- húsinu við Dalsmynni part úr vetrum og þangað fóru ung- menni sveitarinnar gangandi. Síðar lá leiðin að Laugarvatni í einn vetur og síðar í Kvenna- skólann á Blönduósi. Þau Andr- és frá Hvammi urðu lífsföru- nautar, stofnuðu heimili og eignuðust dæturnar tvær. Hún var vinnusöm, dugleg, fróð og fylgdist vel með og myndaði sér skoðanir og lét þær óhikað í ljós. Hún var ávallt glöð og átti auð- velt með að slá á létta strengi. Var alltaf vel tilhöfð og bar sig vel, var frá á fæti og á manna- mótum mætti hún á háhæluðum skóm. Við sem yngri erum máttum okkur lítils hvað hælalengd varð- aði þegar Erna frænka var ann- ars vegar. Á kveðjustund skýr- ast óljósar minningar bernskunnar og verða að lifandi myndum. Minningarnar eru margar, minningar sem verður gott að geta yljað sér við í fram- tíðinni. Mikil samgangur var á milli fjölskyldna, sérstaklega á meðan amma og afi bjuggu ennþá hér á Brekku með for- eldrum mínum, og oft var komið við á Álfhólsveginum þegar sveitafólkið var á ferðinni. Meðal bernskuminninga minna eru þegar þau hjón komu í heimsókn í sveitina, gjarnan á haustin, þegar berin í brekkunni voru orðin blá, þá fór Erna í berjamó en Andrés fékk sér gjarnan bíl- túr á meðan, berjalyngið heillaði hann ekki jafn mikið og Ernu. Hún vissi upp á hár hvar berin var að finna og það tók hana ekki langan tíma að fylla hverja dós- ina á fætur annarri. Henni þótti leiðinlegt að vita að ein berja- brekkan hefði þurft að víkja fyr- ir nýjum vegi hér í gegn fyrir nokkrum árum. Það var taug í dalinn sem slitnaði aldrei alveg. Nú er komið að kveðjustund. Blærinn flytur kveðjur og þakkir fyrir samfylgd. Blessuð sé minning Þórunnar Ernu Þórðardóttur. Þórhildur Þorsteinsdóttir. Lokið er nú hér á jörðu langri vegferð mætrar konu. Hún Erna er nú gengin, létt á fæti inn í sumarlandið þar sem ástvinir sem á undan eru farnir hafa tek- ið fagnandi á móti henni. Veit ég að þar hefur hann Andrés henn- ar beðið með opinn faðminn. Samhentari hjón voru vandfund- in og gestrisin voru þau með af- brigðum. Ég kynntist þeim hjón- um sem foreldrum Þórhildar skólasystur minnar og síðar sem vinkona Sigurlaugar yngri dótt- ur þeirra hjóna. Frá fyrstu kynnum tóku þau mér, dreifbýl- ingnum, opnum örmum og létu mér líða eins og einni úr fjöl- skyldunni. Hjá þeim ríkti ávallt gleði og léttleiki enda Erna með afbrigðum glaðlynd og brosmild. Það var svo ótrúlega notalegt að kíkja við og rabba um landsins gagn og nauðsynjar og lá þá Erna aldeilis ekki á skoðunum sínum um menn og málefni líð- andi stundar. Eftir lát Andrésar skapaðist sú hefð á aðventunni að ég kíkti til Ernu eina kvöldstund eða svo. Alltaf biðu mín smákökur og jólaöl sem við gæddum okkur á, mösuðum og hlógum eins og unglingar allt kvöldið. Þá gátu jólin sko komið. Að leiðarlokum vil ég þakka Ernu ævarandi vin- áttu og tryggð og votta vinkon- um mínum þeim Þórhildi og Sig- urlaugu innilega samúð mína. Ég er stolt af vináttu okkar Ernu. Björk Kristjánsdóttir. Börn mótast mikið af um- hverfi sínu. Hún Erna var svo sannarlega stór hluti af umhverfi mínu í æsku. Hún var nefnilega móðir hennar Sillu, stórvinkonu minnar. Segja má að leikfélagar deili með sér heimilum. Og gilti það um okkur Sillu. Þannig varð heimili Sillu að hluta heimili mitt og heimili okkar að hluta henn- ar. Mamma vann um hríð úti og gat því sannarlega verið gott fyrir unga stelpu að eiga sér annað skjól inn á milli eftir skóla. Og alltaf var tekið á móti manni opnum örmum. Það var gott að eiga Ernu að. Ekki síður tók Erna þátt í mótun okkar Sillu á unglingsárum og gelgj- unnar. Þá getur verið vandratað í uppeldinu þegar unglingurinn telur sig vita betur og meira. Erna sýndi okkur alltaf næman skilning án þess að vaða yfir blessaða unglingana. Erna Þórðardóttir átti sem sagt drjúgan þátt í mótun æsku minnar. Minnist ég hennar sem hlýrrar manneskju, skynsamrar og með sterka réttlætiskennd. Hún átti sinn stóra þátt í að hnýta þau vinabönd milli okkar Sillu sem enn halda svo vel. Hún skapaði okkur góðan grunn. Um leið og ég votta Sillu, vin- konu, og Hildu systur hennar mínar innilegustu samúð bið ég blessunar fyrir minninguna um Ernu Þórðardóttur. Kristín W. Árnadóttir. Þórunn Erna Þórðardóttir ✝ Kristjana Jóns-dóttir fæddist á Stokkseyri 28. febrúar 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Grund 8. jan- úar 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jóna Jónsdóttir, f. 24. september 1891, d. 31. ágúst 1978, og Jón Kristjánsson, f. 7. maí 1885, d. 7. maí 1925. Krist- jana átti fjögur systkini. Þau voru Anna Svava, f. 4. október 1911, d. 28. apríl 2008, Ágústa Magnea, f. 8. ágúst 1914, d. 9. feb. 1985, Gísli, f. 7. febrúar 1917, d. 20. maí 2001, og Har- aldur f. 24. mars 1924, d. 4. apríl 1990. Kristjana giftist Ólafi Breið- fjörð Finnbogasyni 7. ágúst 1945. Ólafur fæddist á Bíldudal 14. desember 1918, d. 21. maí 2010, sonur Jóhönnu Kristjáns- dóttur, f. 1882, d. 1973, og Finnboga Rúts Ólafssonar, f. 1890, d. 1947. Synir Kristjönu og Ólafs eru: 1. Jón Breiðfjörð Ólafsson, f. 4. júlí 1945, d. 2. febrúar 2002, kvæntur Guð- rúnu H. Ingimundardóttur, börn þeirra eru Ingi Rafn, f. sambýliskona er Monika Ewa Orlowska og eiga þau tvo syni, Guðrún Lilja, f. 1994 í sambúð með Árna Valdór Elíssyni og eiga þau eina dóttur, og Jó- hannes Axel, f. 1998. 5. Valdi- mar Ólafsson, f. 24. okt. 1958, kvæntur Margréti Steinunni Bragadóttur, sonur þeirra er Björn, f. 1995. Kristjana fæddist á Stokks- eyri en bjó á Bjargarstíg í Reykjavík frá tíu ára aldri. Eftir skyldunám fór hún að vinna í Þorsteinsbúð við Grundarstíg. Kristjana var heimavinnandi húsmóðir þar til hún fór að vinna í Penna- viðgerðinni sem þau Ólafur stofnuðu árið 1942 en starfs- ævinni lauk hún í Pennanum. Fyrstu hjúskaparár þeirra Ólafs bjuggu þau í Skerjafirði, síðan í Hlíðunum þar til um 1960 er þau byggðu Skólabraut 21 á Seltjarnarnesi með vini Ólafs. Árið 1995 fluttust þau í Eiðismýri og bjó hún þar til hún flutti á Hjúkrunarheimilið Grund fyrir um tveimur árum. Kristjana hafði ánægju af að taka þátt í félagsstarfi og um tíma starfaði hún með Kven- félaginu Seltjörn. Hún tók virkan þátt í félagsstarfi Sina- wik-kvenna. Hún hafði yndi af allri handavinnu og fór t.d. á námskeið í glerlist og búta- saumi. Útför Kristjönu fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 30. janúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. 1970, kvæntur Hrund Magn- úsdóttur og eiga þau þrjú börn, og Kristjana Ýr, f. 1976, gift Anders Hald Jensen og eiga þau tvö börn 2. Finnbogi Breið- fjörð Ólafsson, f. 1. febrúar 1949, d. 22. ágúst 2014, kvæntur Þórleifu Drífu Jónsdóttur, synir þeirra eru Ólafur Breiðfjörð, f. 1974, giftur Dögg Hjaltalín og eiga þau tvær dætur og á Dögg eina dóttur, Sindri Már, f. 1978, í sambúð með Írisi Schweits Ein- arsdóttur og eiga þau tvo syni og Íris á einn son og Þórir Jök- ull, f. 1987, í sambúð með Unni Björk Gunnlaugsdóttur og eiga þau eina dóttur. 3. Björn Ólafs- son, f. 28. október 1952, d. 14. desember 1987. 4. Ólafur Haukur Ólafsson, f. 1. júní 1956, kvæntur Elínu Örnu Arn- ardóttur Hannam, dóttir þeirra er Elísabet Assa, f. 2018, fv. maki Ólafs er Ásta Knúts- dóttir, börn þeirra eru Jó- hanna Lilja, f. 1983, gift Gunn- laugi Má Péturssyni og eiga þau tvö börn og Gunnlaugur á eina dóttur, Dagur, f. 1987 Í dag kveð ég kæra tengda- móður mína Kristjönu Jónsdótt- ur eða Sjönu eins og hún var alltaf kölluð. Ég kynntist þeim hjónum Sjönu og Óla fyrir rúmri hálfri öld og var afar vel tekið á móti mér í fjölskylduna. Sjana var ánægð með að fá stelpu í strákahópinn sinn, en í gríni sagðist hún oft eiga sex syni og væri Óli sá sjötti. Heim- ili þeirra hjóna var einstaklega fallegt og mikill myndarbragur á öllu. Í kjallaranum á Skólabraut- inni bjó Svava systir Sjönu ásamt Jónu móður þeirra. Sam- band þeirra hjóna og ræktar- semi við þær mæðgur var til eft- irbreytni. Sjana kynnist því ung að vinna fyrir sér og aðstoða móð- ur sína við að sjá heimilinu far- borða, en faðir hennar lést þeg- ar hún var fimm ára. Svava eldri systir hennar sá um heimilið svo að móðir þeirra gæti unnið fyrir heimilinu. Fyrst vann Sjana við afgreiðslustörf í Þorsteinsbúð við Grundarstíg og varð henni tíðrætt um vinnu sína þar. Hún mundi tímana tvenna. Þegar hún afgreiddi nýlenduvörur frammi í búðinni en þurfti svo að fara í portið fyrir aftan til að setja steinolíu í ílát ef viðskipta- vinina vanhagaði um hana. Þetta væri nú ekki leyft í dag sagði hún sposk á svip en svona var þetta og þótti ekki tiltöku- mál. Í viðtalsbók við séra Auði Eiri Vilhjálmsdóttur, Sólin kem- ur alltaf upp á ný, sagði hún um Sjönu að hún væri ein af þessu merkilega fólki í götunni, stoð og stytta í hverfinu. Hún hefði verið svo væn við þær stelp- urnar. Það eru orð að sönnu, hún Sjana var afskaplega væn við alla sem hún átti samskipti við og hvers manns hugljúfi. Fyrir þó nokkrum árum fóru „krakkarnir“ af Grundarstígn- um að hittast komin á efri ár og buðu þeir Sjönu að koma á samverustundir með þeim. Þetta gladdi hana mikið og var hún stolt að tilheyra þeirra hópi. Þau hjónin stofnuðu Penna- viðgerðina árið 1942 og eftir að synirnir voru komnir á legg vann hún þar. Þangað var alltaf gott að koma og vel tekið á móti öllum. Seinna vann hún í Pennanum eða þar til hún fór á eftirlaun. Sjönu var margt til lista lagt. Hún hafði gaman af að baka og töfraði fram marengskökur og aðrar hnallþórur. Þá var alltaf heimabakað með kaffinu þegar komið var í heimsókn. Sjana var einstaklega flink í höndun- um, prjónaði, heklaði urmul af teppum og gerði milliverk í sængurföt handa fjölskyldunni, saumaði út í forláta dúka, fór á glerlistarnámskeið, lærði búta- saum og eru mörg teppin eftir hana hrein listaverk. Eftir andlát Óla kom í ljós hve sterk og sjálfstæð kona hún var. Hún stundaði sundið áfram eins og þau hjónin höfðu gert í áratugi. Hún kynnti sér félags- starfið á Aflagranda og fór þangað og vann að bútasaumi. Þegar á Grund var komið naut hún þess að taka þátt í handa- vinnutímunum. Samband tengdaforeldra minna var einstakt í hartnær sjötíu ár. Þau hjónin voru sam- heldin, tóku þátt í margs konar félagsstarfi og ferðuðust vítt og breitt um heiminn sér til ómældrar ánægju. Ég kveð tengdamömmu með söknuði, þakka henni góðu stundirnar sem við áttum saman en þær munu lifa í minningunni. Guðrún Ingimundardóttir. Kvödd er Kristjana Jónsdótt- ir. Hún var ein af stofnendum „Sinawik Reykjavík“. Við sökn- um allar kærrar vinkonu. Í gegnum árin, var hún vel virk í félaginu okkar. Ef hún náði ekki að mæta, tókum við eftir því. Hún var alltaf brosmild og ljúf. Hjartahlý og falleg kona. Þann- ig munum við hana. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til aðstandenda hennar. Guð blessi minningu yndislegr- ar samferðakonu. F.h. Sinawik Reykjavík. Dagný Heiða Vilhjálmsdóttir formaður. Kristjana Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR húsmóðir, Reynivöllum 12, Selfossi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 3. febrúar klukkan 14. Bertha Sigrún Jónsdóttir Pétur Guðjónsson Sigríður Jónsdóttir Hjörleifur Þór Ólafsson Einar Jónsson Ragnhildur Jónsdóttir Anton S. Hartmannsson Guðbrandur Jónsson Guðrún Edda Haraldsdóttir Ingólfur Rúnar Jónsson Svanborg B. Þráinsdóttir Sveinn Þórarinn Jónsson Selma Sigurjónsdóttir Brynhildur Jónsdóttir Guðjón Kjartansson Matthildur Jónsdóttir Hjörtur Bjarki Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.