Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 58

Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 50 ára Heiðrún er fædd og uppalin í Stykkis- hólmi og býr þar. Hún er heilbrigðisgagnafræð- ingur frá Fjölbrautaskól- anum við Ármúla. Heið- rún er eigandi Bóka- verzlunar Breiðafjarðar. Maki: Guðjón P. Hjaltalín, f. 1969, húsa- smíðameistari. Börn: Rebekka Sóley, f. 1989, Höskuldur Páll, f. 1993, Gunnar Kári, f. 2001, og Rak- el Birta, f. 2010. Barnabörnin eru orðin þrjú. Foreldrar: Guðrún Rebekka Kristinsdóttir, f. 1944, d. 2011, bankastarfsmaður, og Höskuldur Eyþór Höskuldsson, f. 1942, d. 2016, bifreiðarstjóri. Þau voru búsett í Stykkishólmi og Reykjavík. Heiðrún Höskuldsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ekki láta plata þig til þess að taka ábyrgð á vandamálum annarra. Þú ert eitthvað týnd/ur þessa dagana en ekki örvænta, það er betri tíð framundan. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er óþarfi að láta sér leiðast þau störf sem skyldan býður. Nú þarft þú að taka málin í eigin hendur og hafa stjórn á lífi þínu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þennan dag ættir þú að nota til þess að skipuleggja ferðir með fjölskyld- unni. Veltu vandlega fyrir þér þeim fjár- festingakostum sem bjóðast. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Óvænt tækifæri berst upp í hendurnar á þér og nú hefur þú enga af- sökun fyrir því að nýta þér það ekki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna fyrir mikilvægi þess að hugsa út fyrir kassann. Gríptu tækifærin á meðan þau gefast. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sköpunargáfa þín er mikil í dag. Gakktu frá ókláruðum málum og hringdu í vini sem þú hefur ekki hringt í lengi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Segðu það sem þér dettur í hug, þótt hugmyndir þínar séu ekki fullmót- aðar. Einhver rennir til þín hýru auga. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Allt hefur sinn stað og stund og nú þarftu ekki annað en grípa tæki- færið þegar það gefst. Mikil fundahöld eru framundan. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Varastu stóryrtar yfirlýsingar og skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll. Þú færð tilboð sem þú hættir ekki að hugsa um. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki hafa samviskubit yfir hálfkláruðum verkum. Láttu það eftir þér að gera lítið sem ekkert. Einhver reynir að vinna þig á sitt band. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er rétta tímasetningin til þess að kaupa eitthvað sem þú hefur þráð lengi. Þú skuldar vini greiða sem þú færð tækifæri til að endurgjalda innan skamms. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú gerir þér far um að vinna í ein- rúmi í dag og kemur miklu í verk fyrir vikið. Með því að orða drauma þína eyk- ur þú líkur á að þeir rætist. fékk góða hjálp frá Woody við það, en við vorum ekki ein eining sem listamenn eins og oft hefur verið skrifað.“ Verk Steinu hafa verið sýnd á helstu söfnum og kvikmyndahátíðum um heim allan, þar á meðal í Whitney Museum og Brooklyn Museum í New York, Centre Georges Pom- pidou í París, Berlin Film Festival, þróun vídeólistar. Frá skjáum til upptöku, og frá heimildarmyndaferli til flókinna innsetninga, hafa þau umbreytt sér og endurskapað sem listamenn, og enn voru þau að þegar Woody féll frá í desember síðast- liðnum. „Við vorum sjálfstæðir lista- menn hvort fyrir sig þótt við fengj- um hjálp frá hvort öðru. Ég var til dæmis frekar löt við að klippa og ég S teinunn Briem Bjarnadótt- ir Vasulka er fædd 30. jan- úar 1940 á Suðurgötu 16 í Reykjavík og ólst þar upp. „Húsið hefur orðið að ætt- aróðali, en það er ennþá í eigu fjöl- skyldunnar. Ég ólst upp við Stein- unnar-nafnið en þegar ég tók eftir því að fólk erlendis átti í mestu erfið- leikum með að stafa nafnið rétt tók ég upp nafnið Steina.“ Hún var sex sum- ur í sveit í Skeiðháholti á Skeiðum. Steina gekk í Miðbæjarskólann og fór einn vetur í Kvennaskólann. „Svo tók ég landspróf þar sem Búnaðar- félagshúsið er, fór síðan einn vetur í Menntaskólann í Reykjavík og það er öll mín skólaganga, ef frá er talin tón- listarskólagangan.“ Hún lærði á fiðlu í Þrúðvangi á Laufásvegi. Árið 1959 fékk hún námsstyrk til að fara í fram- haldsnám í tónlist í Prag. Þar kynnt- ist hún verðandi eiginmanni sínum, Bohuslav Woody Vasulka. Steina og Woody fluttuárið 1964 til Íslands, þar sem Steina starfaði í eitt ár sem fiðluleikari við Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Árið 1965 fluttu þau til Bandaríkjanna og settust að í New York-borg. Árið 1968 var Woody veittur íslenskur ríkisborg- araréttur en þá var hann orðinn land- laus eftir að vorinu í Prag hafði verið hrundið aftur. Í New York starfaði Steina sjálf- stætt fyrstu árin sem fiðluleikari en árið 1969 sneri hún sér að vídeói. „Við höfðum haft það gott í leik og starfi en svo greip vídeóið mig.“ Með til- komu handheldu kvikmyndatökuvél- arinnar hófu þau árið 1969, að vinna með myndbandstækni. Árið 1971 stofnuðu þau fyrsta vettvang vídeó- og margmiðlunarlistar í heimi, The Kitchen, í New York og tveimur ár- um síðar komu þau á fót fyrsta námi í nýmiðlalistum við ríkisháskólann í Buffalo í New York. Frá árinu 1980 hafa Steina og Woody búið í Santa Fe í Nýju Mexíkó. Þau eru talin til merkilegustu til- raunalistamanna heims og eru frum- kvöðlar á sviði vídeólistar. Sérstakt framlag þeirra til vídeólistarinnar byggist á rannsóknum þeirra á eigin- leikum rafrænna mynda og sköpun tækjabúnaðar, vélmenna og ýmissa véla, sem hafa haft mikil áhrif á Ars Electronica í Linz og í The Insti- tute of Contemporary Art í Boston. Steina hlaut Guggenheim-verðlaunin árið 1976. Hún sýndi verk sín í fyrsta skipti á Íslandi árið 1984 þegar henni var boðið að taka þátt í sýningunni 10 gestir á Listahátíð í Reykjavík. Steina kom aftur til Íslands til að taka þátt í sýningu norræna tvíær- ingsins Borealis 6 árið 1993 og sýndi þá verkið Borealis í Listasafni Ís- lands. Sama ár áttu Steina og Woody verk á gjörninga- og vídeólistahátíð sem haldin var í Nýlistasafninu. Steina átti einnig verk á sýningunni Kvenna-vídeó sem var haldin á á Kjarvalsstöðum árið 1995. Ári síðar var fyrsta yfirlitssýningin á verkum Steinu á Íslandi sett upp á Kjarvals- stöðum og árið 1997 var hún fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum. Árið 2014 var opnuð Vasulka-stofa í Lista- safni Íslands og gáfu þau hjón þá mikinn hluta af einstöku gagnasafni sínu til varðveislu á Íslandi. Steinu var veitt hin íslenska fálka- orða fyrir framlag sitt til vídeólistar árið 2015 og árið 2016 veitti Alþingi henni heiðurslaun listamanna. „Ég er núna að endurbæta gamlar myndir, er að fjarlægja gráu slikjuna sem er á þeim svo þær verði eins og nýjar og það er afskaplega ánægju- legt. Ég hef ekki önnur sérstök áhugamál fyrir utan myndlistina, en ég bý í mjög skemmtilegum bæ þar sem er mikið líf. Margir listamenn búa hérna og mörg góð veitingahús eru hér og það nægir mér. Ég kem líka reglulega til Íslands og held góð- um tengslum við fjölskylduna.“ Fjölskylda Eiginmaður Steinu var Bohuslav Woody Vasulka, f. 20.1. 1937, d. 20.12. 2019, verkfræðingur, kvikmynda- gerðarmaður og myndlistarmaður. Foreldrar hans voru hjónin Petr Va- sulka málmsmiður og Flora Vasulka húsfreyja. Þau voru búsett í Brno í Tékklandi. Systkini Steinu: Kristín Bjarna- dóttir, f. 2.3. 1936, d. 9.10. 2018, meinatæknir og sagnfræðingur. Börn hennar eru Ragnhildur Thorlacius kennari, Steinunn Thorlacius líffræð- ingur, Gunnlaug Thorlacius félags- Steina Vasulka listamaður – 80 ára Listamaðurinn Steina við athöfn í Flugsafni Íslands á Akureyri 2008 þegar hún fékk heiðursorðu Sjónlistar. Frumkvöðull á sviði vídeólistar Violin Power I Vídeóverk Steinu. 40 ára Guðlaug ólst upp í Hafnarfirði en býr í Kópavogi. Hún er með MA-gráðu í við- skiptaþýðingum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og MPM-gráðu í verk- efnastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Guðlaug vinnur í skráningardeildinni hjá lyfjafyrirtækinu Vistor. Maki: Ólafur Oddbjörnsson, f. 1980, verkfræðingur hjá Eflu. Dóttir: Sóley Lóa, f. 2017. Foreldrar: Hjördís Karvelsdóttir, f. 1942, sjúkraliði, búsett í Kópavogi, og Jón Már Guðmundsson, f. 1943, stýrimaður og fyrrverandi kaupmaður, búsettur í Reykjavík. Guðlaug Stella Jónsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.