Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 61

Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Ég hef heyrt margt vitlausara en það að nýr þjóðarleikvangur í fótbolta, sem jafnframt myndi að sjálfsögðu nýtast fyrir fjölmargt annað ótengt íþróttum, myndi rísa utan höfuðborgarinnar. Garðabær hefur meðal ann- ars verið nefndur til sögunnar og eflaust væru fleiri bæjarfélög við Faxaflóa tilbúin til að skoða það gaumgæfilega að slíkur leik- vangur yrði í þeirra lögsagnar- umdæmi. Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær – þessar staðsetn- ingar hljóta allar að geta komið til greina. Jafnvel Akranes eða Keflavík, bæir með gríðarlega mikla knattspyrnuhefð. Umræðan hefur hingað til snúist að mestu um Laugardal- inn, hvort sem gamli Laugardals- völlurinn yrði endurbyggður eða nýr leikvangur reistur við hlið hans. Reykjavíkurborg hefur hins vegar ekki virst sérstaklega áhugasöm, frekar en þegar rætt er um löglegar keppnishallir fyrir innanhússgreinarnar. Við sjáum fjölmörg dæmi um það erlendis að þjóðarleikvangar hafa víða verið reistir í útjaðri stóru borganna eða utan þeirra. Stade de France er til dæmis ekki í París, heldur í nokkurs konar frönskum Kópavogi, Saint- Denis. Ef þessi leið væri farin gæti borgin kannski hlúð betur að gamla Laugardalsvellinum sem höfuðvígi fyrir frjálsíþróttirnar í landinu. Tengt við hann nýja höll fyrir handboltann, körfuboltann, blak- ið og fleiri greinar og samnýtt bílastæði, búningsklefa og margt fleira. En sú höll mætti auðvitað líka fara út fyrir borgarmörkin! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is BADMINTON Kristján Jónsson kris@mbl.is Kári Gunnarsson, landsliðsmaður í badminton, verður á ferð og flugi á næstu vikum og mánuðum í þeirri von að vinna sér inn keppnisrétt á Ól- ympíuleikunum í Japan í sumar. Mun hann keppa á mörgum alþjóðlegum mótum í febrúar, mars og apríl en næsti viðkomustaður er hið umdeilda ríki Íran. „Ég er með dagskrá sem ég fer eft- ir og það eru átta eða níu mót eftir. Hægt er að safna stigum á heimslist- anum fram til 1. maí og þá skýrist hverjir komast á Ólympíuleikana. Keppnistímabilið er ansi stíft og þessi mótatörn er að fara í gang,“ sagði Kári þegar Morgunblaðið spjallaði við hann . „Ég mun keppa í Evrópu og Suður-Ameríku en einnig í Íran,“ en þar verður Kári um aðra helgi. Kári þekkir til í Íran og hefur ekki áhyggj- ur af því að ókyrrð í alþjóðastjórn- málunum muni raska mótshaldinu þar. „Nei, en það hefur verið skoðað. Ég hef verið þar tvisvar áður og þekki aðeins til. Ég er ekkert óörugg- ur yfir því að vera þar auk þess sem mótið fer fram langt frá höfuðborg- inni.“ Fjörutíu komast á ÓL Þegar heimslistinn verður birtur 1. maí þá kemur í ljós hvaða fjörutíu karlar komast inn í einliðaleik þegar búið er að taka kvóta á þjóðir og heimsálfur með í reikninginn. Hvar stendur Kári eins og er? „Ég þarf aðeins að bæta mína stöðu en það eru að ég held fimm á undan mér sem eru að berjast um þetta. Mig vantar í raun nokkur góð úrslit á alþjóðlegum mótum. Ef form- ið og spilið verður eins og það á að vera þá á ég ágæta möguleika. Auð- vitað getur heppni spilað inn í varð- andi hvernig keppendur raðast niður á mótum,“ sagði Kári og á þar við að hann þarf að vinna leik og komast áleiðis í alþjóðlegum mótum sem öll eru með útsláttarfyrirkomulagi. Tapi hann fyrsta leik þá er hann úr leik og fær engin stig á heimslista fyrir við- komandi mót. Hann getur því lent í þeirri stöðu að fá firnasterkan and- stæðing í fyrstu umferð í mótum og detta strax út. Kári segist hafa undirbúið sig mjög vel fyrir mótatörnina sem framundan er. „Ég hef byggt mig upp undanfarið fyrir síðustu mánuði tímabilsins. Lík- aminn er svolítið þungur og þreyttur núna. Framundan er því að vinna í sprengikrafti og snerpu. Áherslurnar breytast því um þessar mundir en æf- ingarnar voru þyngri í desember.“ Í akademíu í Danmörku Kári segist þurfa að vera með alla anga úti til að ná í fjármagn. Útgerð- in er dýr og þá sérstaklega þegar reynt er að vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikum með tilheyrandi ferðalögum vegna móta erlendis. „Sem íslenskur atvinnumaður í badminton þarf maður að treysta á stuðning frá mismunandi aðilum. Til að komast inn á leikana þarf maður að keppa á um það bil tuttugu mótum sem eru haldin úti um allan heim. Leita þarf til fyrirtækja en ég er einnig heppinn að gott fólk í kringum mig hefur hjálpað til,“ sagði Kári en hann er með aðstöðu í íþrótta- akademíu í Danmörku þar sem æft er stíft. „Ég ólst upp í Danmörku og flutti þangað aftur í fyrra eftir eitt ár á Spáni. Ég æfi í akademíu sem Bad- mintonsamband Evrópu heldur úti fyrir besta badmintonfólk í Evrópu. Þar eru fjórir badmintonþjálfarar, styrktarþjálfari, sjúkraþjálfari og eldað er ofan í okkur. Við búum þarna og æfum tvisvar til þrisvar á dag. Akademían er í Holbæk sem er um klukkutíma frá Kaupmannahöfn. Er þetta í raun úti í sveit og ég hef því ekkert annað að gera en að æfa. Ég var svolítið hræddur við að fara þangað vegna þessa en það er fínt að vera svolítið einangraður þegar mað- ur er að einbeita sér 100% að íþrótt- inni.“ Er á góðum aldri Kári er 29 ára gamall á árinu og er á góðum aldri til að toppa í sinni íþrótt samkvæmt fræðunum. „Menn geta verið að toppa frá 25 ára til 33 ára kannski en það er svo margt sem getur spilað inn í hvað gerir þig að góðum badmintonspilara. Fólk hefur oft unnið til gullverðlauna á Ólympíu- leikum á aldrinum 25-30 ára. Það er algengt. Ég er því á mjög fínum aldri núna til að reyna að ná sem mestu út úr mínum ferli,“ sagði Kári Gunnars- son við Morgunblaðið. Mikil mótatörn framundan í nokkrum heimsálfum  Kári Gunnarsson keppir í Íran á næstunni  Allt lagt undir til að komast á ÓL Morgunblaðið/Eggert Heimsreisa Kári Gunnarsson keppist við að safna stigum fram að 1. maí þegar ljóst verður hverjir fara til Tókýó. Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi vann í gær til sinna fyrstu gull- verðlauna í stórsvigi á alþjóðlegu skíðamóti en hann keppti í Jasná í Slóvakíu í Evrópumótaröð Al- þjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra. Hann varð jafnframt fyrstur Íslend- inga til að vinna stórsvigskeppni á alþjóðlegu alpagreinamóti. Hilmar var annar eftir fyrri ferðina á 47,30 sekúndum en fór seinni ferðina á 49,33 sekúndum, var þá eini kepp- andinn sem fór brautina á skemmri tíma en 50 sekúndum og fékk besta heildartímann, 1:37,23 mínútur. Hilmar náði í fyrsta gullið Ljósmynd/ÍF Gull Hilmar Snær Örvarsson á verð- launapallinum í Jasná í gær. Danska handknattleiksfélagið KIF Kolding staðfesti í gær að það hefði samið við íslenska landsliðs- markvörðinn Ágúst Elí Björg- vinsson til tveggja ára, frá og með næsta sumari. Ágúst lýkur því þessu keppnistímabili með sænsku meisturunum Sävehof en þetta er hans annað tímabil með Gautaborg- arliðinu. Kolding er í tólfta sæti af fjórtán liðum í dönsku úrvalsdeild- inni en hefur um árabil verið eitt af stóru félögunum þar í landi. Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyjólfs- son leika með liðinu. vs@mbl.is Staðfestu samn- ing við Ágúst Elí Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Danmörk Ágúst Elí Björgvinsson flytur til Jótlands í sumar. Erkifjendurnir í Norður-London, Tottenham og Arsen- al, bættu við sig leikmönnum í gær en ensku knatt- spyrnufélögin hafa nú aðeins hálfan annan sólarhring til viðbótar til að styrkja sig fyrir lokasprettinn á keppnis- tímabilinu. Tottenham gekk frá kaupum á hollenska kantmann- inum Steven Bergwijn og greiðir PSV Eindhoven 25,4 milljónir punda fyrir hann en sú upphæð getur hækkað í 27 milljónir eftir því hvernig hann stendur sig. Bergwijn er 22 ára gamall og hefur leikið sjö landsleiki fyrir Hol- lendinga. Arsenal fékk spænska miðvörðinn Pablo Morí lánaðan frá brasilísku Suður-Ameríkumeisturunum Flamengo. Morí er 26 ára gam- all og lék úrslitaleik Flamengo og Liverpool um heimsbikar félagsliða í síð- asta mánuði. Hann var áður í þrjú ár í röðum Manchester City en var lán- aður til þriggja liða á Spáni og í Hollandi á þeim tíma. vs@mbl.is Lundúnaliðin styrktu sig Steven Bergwijn Spænska liðið Zaragoza er í efsta sæti í sínum riðli í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik, en liðið vann heimasigur á gríska liðinu PAOK á Spáni í gær 86:76. Zaragoza er með 22 stig eftir 13 leiki en næst á eftir koma þýska liðið Bonn og franska liðið Dijon aðeins stigi á eftir. Zaragoza hefur unnið níu leiki en tapað fjórum. Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lék lítið að þessu sinni, í rúmar fimm mínútur. Skoraði hann 1 stig og tók 1 frákast fyrir Zaragoza. Haukur Helgi Pálsson var einnig á ferðinni með rúss- neska liðinu UNICS Kazan sem heimsótti Galatasaray í Istanbul í Evrópubikarnum. Tyrkirnir höfðu betur, 90:76. Haukur skoraði 6 stig, tók 1 frákast og stal boltanum einu sinni. UNICS hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur í G-riðli eins og Galatas- aray. Mónakó og Rytas eigast nú við í sama riðli og verði heimasigur niður- staðan eru öll fjögur liðin í riðlinum jöfn að stigum. kris@mbl.is Zaragoza hélt efsta sætinu Tryggvi Snær Hlinason Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss hefur verið frestað um eitt ár, en til stóð að mótið færi fram um miðjan mars á þessu ári í Nanjing í Kína. Ástæðan fyrir frestuninni er kór- ónaveiran sem dregið hefur 130 manns til dauða og er talin eiga upptök sín í Wuhan, sem er tæplega 600 kílómetra frá Nanjing. Enginn Íslendingur hefur náð lágmarki á HM en Ísland átti rétt á að senda einn keppanda á mótið. Ekki hafði verið tekin ákvörðun um hver það yrði. Alþjóða frjálsíþróttasambandið leitaði ráða hjá Alþjóða heilbrigðis- málastofnuninni áður en ákvörð- unin var tekin. Sambandið hafnaði tilboðum frá öðrum borgum um að hlaupa í skarðið og halda mótið í vetur samkvæmt BBC. Töldu forráðamenn sambandsins að gestgjafarnir í Nanjing hefðu lagt það mikla vinnu í mótshaldið að eðlilegt væri að þeir fengju að halda mótið þótt síðar yrði. Ekki hefur verið ákveðin dag- setning fyrir mótið árið 2021 en innanhússtímabilið stendur iðulega út mars. HM innanhúss er haldið annað hvert ár og EM innanhúss annað hvert ár. Útlit er því fyrir að tvö stórmót fari fram innanhúss snemma árs 2021. kris@mbl.is Tvö stórmót í frjálsum næsta vetur?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.