Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 64

Morgunblaðið - 30.01.2020, Síða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is Gott úrval af reimum í snjósleða, fjórhjól og bíla. í snjósleða, bíla og fjórhjól 2012 2019 reimar Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Benni Hemm Hemm gefur út breiðskífu á morgun, 31. janúar, sem ber kraftmikinn og forvitnilegan titil, Kast spark fast. Benni fagnar útgáfunni með heljarmiklum tón- leikum í Tjarnarbíói að kveldi sama dags og á þeim mun fjöldi listamanna leggja honum lið og þá ekki aðeins tónlistarmenn. „Það er kona að koma til landsins frá Bandaríkjunum sem heitir Abby Portner, sviðshönnuður sem hefur unnið með John Cale og Animal Collective og fleirum, og hún er að fara að hanna sviðsmynd sem verður smíðuð og varpanir og alls konar. Hákon Páls- son kvikmyndatökumaður sér um sviðsetn- ingu líka, ljós og þess háttar og svo verða Ás- rún Magnúsdóttir og unglingarnir, sem eru með henni í sýningunni Teenage Songbook of Love and Sex, með í nokkrum lögum, dansa og syngja,“ segir Benni um tónleikana. Nokkrir gestir komi líka fram með honum og hljómsveitinni, þau Prins Póló, Kött Grá Pjé og Kristín Anna. „Þetta verður algjörlega sturlað dæmi,“ segir Benni um tónleikana. Andinn fékk að ráða –Þessi titill, Kast spark fast, hvað á hann að þýða? Eru þetta áhrif frá tónlistarkennslu þinni í Hagaskóla eða hvaðan kemur titillinn? „Góð spurning. Ég held að það sé einhver rauður þráður á bak við lögin á plötunni og ég get voða illa útskýrt hvað er að gerast. Ég er einhvers konar miðill í sköpunarferlinu. Ég var að skrifa kynningar fyrir plötu vikunnar á Rás 2 og stóð mig að því að skrifa við hvert lag að ég væri ekki beint hæfur til að útskýra um hvað það væri,“ svarar Benni. –Af því þú veist það ekki sjálfur? „Já, og allt ferlið í kringum þetta er mjög mikið þannig, ég er bara að gera það sem and- inn segir mér. Og það sem ég heyrði fyrir mér með titilinn var að í honum ættu að vera þrjú eins atkvæðis orð og að þau ættu að hljóma einhvern veginn svona. Ég prófaði ýmislegt og svo kemur bara í ljós hvað þetta á að fyrir- stilla,“ segir Benni kíminn. –Ég hélt kannski að hann þýddi að platan væri þrískipt með einhverjum hætti, en er það bara vitleysa í mér? „Nei, það getur vel verið að mjög mikið sé til í því,“ segir Benni. Benni segir sköpunarferli plötunnar litað af tilraunum og leit að því hvað hann ætti að vera að gera, í stað þess að hugsa mikið og skipu- leggja. –Fékkstu þá endurnýjaðan sköpunarkraft? „Já, alveg hiklaust. Þetta er ferli sem nær yfir nokkur ár og ég veit ekki hvort einhver himintungl hafa breyst – ég verð að spyrja ein- hvern stjörnuspeking út í það – en það skiptist um gír í hausnum á mér og það varð mjög auð- velt að búa til tónlist. Ég bjó til mikið af tónlist og það var mjög skemmtilegt,“ svarar Benni. Sú fyrri tilhneiging hans til að hugsa of mikið í sköpunarferlinu sé farin og það spari mikinn tíma. „Þá verður allt betra og þá verður meira til,“ útskýrir Benni. –Er þetta afleiðing af einhverju sem gerðist hjá þér? Benni hlær að spurningunni. „Ég fór til spá- miðils fyrir svona ári og það hafði óneitanlega áhrif að sjá inn í aðra heima.“ –Þú trúir sumsé á það? „Já, ég hef engar forsendur til að trúa ekki á eitthvað, álfa eða spámiðla,“ svarar Benni. –Nú eða guð og talandi um guð þá er á plöt- unni lag sem þú samdir við Davíðssálm nr. 51. Hvers vegna gerðirðu það? „Það er einmitt það sem ég var að reyna að útskýra,“ svarar Benni. „Ég var bara að kíkja í þessa bók og svo bara prófaði ég að spila eitt- hvað við sálminn og þetta varð til mest í raun- tíma. Mér finnst eins og ég sé pínulítið óheiðarlegur að segja að ég hafi samið það. Mér finnst líka eitthvað mjög spennandi við að gera svona stuðlag við svona „hardcore“ texta. Ekkert er harðara en Gamla testamentið,“ svarar Benni. Annað lag á plötunni heitir „Trúarjátningin“ og segir Benni það fjalla um trúna á það að við, þ.e. mannfólkið, séum ein vera sem er ómeð- vituð um sjálfa sig. „Svo tala ég um ýmislegt í því sem ég trúi ekki á,“ segir Benni, „pælingar sem hafa verið að gerjast í nokkur ár, um pen- inga, tímann og hluti sem við tökum mjög al- varlega en eru bara einhver vitleysa.“ Út um allt –Ef þú værir gagnrýnandi, hvernig mynd- irðu þá lýsa plötunni? „Ég myndi segja að hún væri út um allt, að lögin væru ekki lík hvert öðru. Mér finnst það spennandi en sumum finnst þetta „meika sens“ og að lögin séu lík hvert öðru.“ Benni er tónlistarkennari í Hagaskóla, sem fyrr segir, og er spurður að því hvort hann hafi sem tónlistarmaður lært mikið af börnunum. „Já, mjög mikið. Ég var einmitt að tala við vin- konu mína sem kennir tónlist líka og ég held að það sé algengt að tónlistarfólk sé hrætt við að kenna. Fyrir tónlistarfólk eru þetta mjög ógn- vekjandi aðstæður, að standa fyrir framan krakka og ég man alveg eftir því að hafa séð þetta þannig. Það er rosalega auðvelt að lokast inni í einhverju vinnuherbergi þegar maður er tónlistarmaður og ef maður er að fást við sköp- un með krökkum er maður stanslaust að benda þeim á styrkleika, hvað það er sem heldur aft- ur af þeim og lokar þau inni. Þá verður aðeins erfiðara fyrir mann sjálfan að loka sig inni og missa bensínið.“ Frá upphafi til enda Benni segist nú í fyrsta sinn vera að pródú- sera poppplötu frá upphafi til enda, hann hafi gert það að mestu leyti einn. Finnst honum það betra eða hvers vegna vildi hann gera allt sjálfur? „Ég veit það ekki, ég fékk bara skyndilega trú á að ég gæti ráðið við það,“ svarar hann. „Ég hef alltaf haldið að ég gæti ekki alveg klárað sjálfur nema það væri eitthvað mjög einfalt. Ég hef áður gert lög sem eru bara píanó, gítar og söngur og eitt- hvað en aldrei mixað svona mikið alveg sjálfur. Nema Skordýr sem er öðruvísi dæmi,“’ svarar Benni og á þar við plötu sína frá árinu 2016. –Var það ekki bara skemmtilegt? „Jú, bara mjög skemmtilegt.“ Miðasala á tónleikana annað kvöld fer fram á vefnum Tix.is. Ljósmynd/BIG Miðill „Ég fór til spámiðils fyrir svona ári og það hafði óneitanlega áhrif að sjá inn í aðra heima,“ segir tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm um plötu sína Kast spark fast. Kylfa ræður kasti  Benni Hemm Hemm gefur út plötuna Kast spark fast  „Ég er einhvers konar miðill í sköpunar- ferlinu,“ segir hann um gerð plötunnar  Fjöldi listamanna leggur Benna lið á útgáfutónleikum Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur fram á hátíðinni Myrkum músík- dögum í Eldborg í Hörpu í kvöld kl. 19.30. Á tónleikum hennar verður þess minnst að 40 ár eru liðin frá því að hátíðin var haldin í fyrsta sinn en meðal forsprakka hennar fyrstu árin var tónskáldið Atli Heimir Sveinsson og á tónleikunum flytur hljómsveitin „Hjakk“ sem er eitt lykilverka á ferli hans, að því er segir í tilkynningu. Verkið samdi Atli Heimir árið 1979 og vakti það mikla athygli og umtal á sinni tíð, að því er segir á vef SÍ. „Þar er hjakkað af bráðskemmtilegri hug- kvæmni í ætt við sverðdansa og svoleiðis, eða verksmiðju- og virkjanamúsík frá dögum Leníns & co.“, er þar haft eftir Leifi Þór- arinssyni í blaðadómi. Einnig verða frumflutt tvö íslensk verk, annars vegar konsert fyrir hljómsveit eftir Snorra Sigfús Birgisson og hins vegar nýr harmóníkukonsert eftir Huga Guðmundsson með einleik- aranum Andreas Borregaard. Einn- ig verður flutt fjörugt verk frá árinu 2013 eftir bandaríska tón- skáldið Missy Mazzoli og „ÓS“ eftir Báru Gísladóttur sem samið var í tilefni af aldarafmæli fullveldis Ís- lands. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Morgunblaðið/Kristinn Minning Atli Heimir Sveinsson lést í fyrra og verður þess minnst á Myrkum músíkdögum að hann var einn forsprakka hátíðarinnar við stofnun hennar. „Hjakkað af bráðskemmti- legri hugkvæmni“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.