Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 30.01.2020, Blaðsíða 72
Útsölunni ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 lýkur 6. febrúar LAKE BORÐSTOFUBORÐ Olíuborin gegnheil eik. 100x200 cm. Áður 119.900 kr.NÚ 79.900 kr. CONRAD BORÐSTOFUSTÓLL Ljósgrátt áklæði, svartir málmfætur. Áður 8.900 kr.NÚ 6.600 kr. PHOENIX SÓFI. 3ja sæta með gráu áklæði. L 238 x D 94 cm. Áður 229.900 kr.NÚ 169.900 kr. 169.900 SPARaðu 60.000 NIXON BORÐSTOFUSTÓLL Hvít seta með eikarfótum. Áður 19.900 kr. Nú 14.900 kr. SANTIAGO HLIÐARBORÐ á hjólum. Áður 16.900 kr. Nú 12.600 kr.BALL WALL eggljós með USB. 8.995 kr.Nú 20.297 kr. 14.900 SPARaðu 5.000 FLEXA PLAY GEYMSLUBEKKUR með baki. 65x57x35 cm. Áður 29.900 kr.Nú 17.940 kr. DOROTHY HUNDAKARFA 84x73 cm. Bastkarfa með púða. Áður 12.995 kr.NÚ 9.746 kr 25% 0% 40% 25% v Áður 2 3 17.940 SPARaðu 11.960 Dúó Freyja heldur tónleika í Hann- esarholti í dag kl. 17 og eru þeir á dagskrá Myrkra músíkdaga. Dúóið mun frumflytja dúetta fyrir fiðlu og víólu eftir sex íslensk tón- skáld og allt konur, þær Mist Þorkelsdóttur, Elínu Gunnlaugsdóttur, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, Báru Gríms- dóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Dúó Freyju skipa Rannveig Marta Sarc fiðluleikari og Svava Bern- harðsdóttir víóluleikari. Frumflytja dúetta eftir sex íslensk tónskáld FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 30. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Kári Gunnarsson, Íslandsmeistari í badminton, er á leiðinni til Íran á al- þjóðlegt mót þar sem hann reynir að vinna sér inn punkta í baráttunni um keppnisrétt á Ólympíuleikunum í sumar. Fram undan eru líka ferða- lög um Evrópu og Suður-Ameríku í sama tilgangi en höfuðstöðvarnar hjá honum eru hins vegar úti í sveit í Danmörku. »61 Löng ferðalög í leitinni að ólympíupunktum ÍÞRÓTTIR MENNING Guðmundur Pétursson gítarleikari og Þorleifur Gaukur Davíðsson munnhörpuleikari koma fram í Djúpinu, í kjallara veitingastaðarins Hornsins í Hafnarstræti 15, í kvöld kl. 20.30. Þeir munu heiðra blús- ræturnar, setja vetrardekkin undir kjöltustálgítarinn, væta kverkarnar og veina þríradda um hvað allt er ómögulegt, eins og þeir segja sjálf- ir frá. Andri Ólafsson kontrabassa- leikari mun einn- ig mæta á svæðið og blúsa með þeim fé- lögum. Blúsræturnar heiðraðar í Djúpinu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Brynja Mary Sverrisdóttir er nýorð- in 16 ára, er einu ári á undan sínum árgangi í skóla og byrjaði í Tónlistar- skóla FÍH eftir áramót. Hún hefur búið í sex löndum og talar jafnmörg tungumál, hefur öðlast töluverða reynslu í söng, hljóðfæraleik, leiklist, módelstörfum og dansi, hefur sett stefnuna á frægð og frama í útlönd- um og syngur eigið lag í Söngva- keppni Ríkisútvarpsins, undan- keppni fyrir Eurovision, 8. febrúar nk. Hún er yngst keppenda og syng- ur lag sitt og Lasses Qvist, „Augun þín“ eða „In Your Eyes“. Kristján Hreinsson samdi íslenska textann en Brynja Mary þann enska. Listakonan segist hafa sent lagið í keppnina á síðustu stundu. „Ég hef alltaf stefnt að því að ná langt í tón- list og þetta er stórt skref á þeirri leið.“ Þegar hún var 13 ára gerði hún samning við útgefanda í Kaup- mannahöfn, samdi tvö lög um hverja helgi og eurovisionlagið varð til eina helgina árið eftir. „Það kom nánast af sjálfu sér, tók aðeins fjóra tíma,“ rifjar hún upp. „Á tímabili var ég lögð í mikið einelti í skólanum vegna staðfestu minnar í að ná langt í tón- listinni og ég skrifaði lagið sem svar við niðurrifinu. Ég hugsaði með sjálfri mér að ég gæti gert allt sem ég vildi og og ætlaði ekki að láta neinn draga mig niður.“ Samrýndar systur Systurnar Brynja Mary og Sara Victoria, sem verður 15 ára í haust, hafa sungið mikið saman og er ráð- gert að gefa út lög með þeim síðar á árinu. Nálgast má lag Brynju Mary á netinu og þar syngur Sara Victoria bakrödd, en hún fær ekki að syngja með systur sinni í keppninni vegna 16 ára lágmarksaldurs. „Við náum vel saman, erum bestu vinkonur og það eru ekki margar systur sem syngja opinberlega saman og hafa sömu stefnu í lífinu,“ segir hún. „Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala,“ heldur Brynja Mary áfram. „Mamma setti mig í tónlistar- leikskóla í Danmörku þegar ég var þriggja ára og ég er alltaf syngj- andi.“ Hún hefur sungið víða, meðal annars á Spáni og Englandi, í Nor- egi, Danmörku, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Fyrsta lagið samdi hún þegar hún var sjö ára. „Þegar amma mín, Dagmar Gabríela Pétursdóttir, dó samdi ég lag fyrir hana.“ Brynja Mary byrjaði snemma í tónlistarskóla og spilar á píanó, gít- ar, ukulele og þverflautu. Systurnar hafa verið í leiklistarnámi og hafa farið reglulega á leiklistarnámskeið og í þjálfun hjá þekktum leikurum og kvikmyndaframleiðendum í Los Angeles og Lundúnum. Í fyrra léku þær aðalhlutverk í kvikmyndinni „Bullied“. Þær fara aftur í tökur í mars og er myndin væntanleg á Net- flix á árinu. Þær hafa dansað frá þriggja ára aldri og verið í fjöl- breyttu dansnámi í Danmörku, Nor- egi, Los Angels og Þýskalandi og á Spáni og Íslandi. Stefnan er sett á sigur í söngva- keppninni. „Ég ætla að gera mitt besta og vona það besta,“ segir Brynja Mary. „Ég vil sýna að árang- ur hefur ekkert með aldur að gera og með frammistöðunni vil ég benda krökkum og ungu fólki á að maður á að hafa trú á sjálfum sér og getur allt sem maður ætlar sér.“ Systurnar eru vikulega í sambandi við kennara í leiklist í LA og í söng í Kanada og á Spáni á skype á netinu. „Ég vil ná eins langt og ég get og er tilbúin að leggja mikið á mig til þess. Stefnan er að gefa út sem mest af tónlist, vekja athygli á tónlist minni á tónleikum og ná heimsfrægð auk þess sem draumurinn er að vera í módelstörfum, leika í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og dansa.“ Ungt fólk vill og getur Morgunblaðið/RAX Fjölhæfar systur Brynja Mary og Sara Victoria Sverrisdætur.  Brynja Mary Sverrisdóttir yngst í Eurovision en með reynslu Hljóðfæraleikur Brynja Mary spilar á píanó, gítar, úkúlele og þverflautu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.