Morgunblaðið - 31.01.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við fengum mjög skýra kröfu frá
fundarmönnum um að nóg sé komið.
Fólk vill fá sínar kjarabætur,“ segir
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður
BSRB, um niðurstöðu baráttu-
fundar sem þrjú af stærstu samtök-
um opinberra starfsmanna efndu til
í Háskólabíói í gær. Að minnsta
kosti sjö aðrir baráttufundir voru
haldnir úti um landið og var vel
mætt á öllum.
BSRB, Bandalag háskólamanna
og Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga efndu til fundarins í Háskóla-
bíói. Félög opinberra starfsmanna
hafa verið með lausa samninga í tíu
mánuði. „Það er greinilegt að fólki
þykir nóg komið,“ segir Guðbjörg
Pálsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga.
„Fólk vill að það komist betri
gangur í viðræðurnar. Það er kom-
inn tími til að ganga frá samn-
ingum,“ segir Guðbjörg. Hann segir
að til að gæta sannmælis verði að
geta þess að samningafólk hafi verið
að ræða saman. Komin sé lausn í
styttingu vinnuvikunnar hjá dag-
vinnufólki en enn séu viðræður um
vaktavinnu. Það sé flókið verkefni.
„En þetta á ekki að taka svona lang-
an tíma. Maður veltir því fyrir sér
hvort undirbúningur ríkisins fyrir
samninga hafi verið nógu góður.
Hver er raunverulegur vilji yfir-
valda til að semja? Það er kannski
þess vegna sem maður fær hálfgert
óbragð í munninn. Það er vanvirðing
við þessa hópa og hleypir illu blóði í
fólk,“ segir Guðbjörg.
Enn ber mikið á milli
Sonja Ýr segir að félagsmenn að-
ildarfélaga BSRB hafi áhyggjur af
því hversu mörg mál séu eftir og
hversu mikið beri á milli hjá samn-
inganefndum eftir þetta langar við-
ræður. „Þess vegna viljum við fylgja
kröfum okkar eftir,“ segir hún.
Á vegum þeirra 18 aðildarfélaga
BSRB sem eru í samfloti í viðræðun-
um hefur verið unnið að undirbún-
ingi aðgerða og segir Sonja að gripið
verði til þeirra ef ekki fer að komast
skriður á viðræðurnar. Næsta skref-
ið er að leggja fram tillögu um verk-
fallsaðgerðir og á Sonja von á því að
skýrt verði frá þeim á næstu dögum,
a.m.k. innan viku. Töluverður tími
mun líða þar til verkföll skella á, því
fyrst þarf að greiða atkvæði um
vinnustöðvum og ef hún verður sam-
þykkt er hægt að boða verkfall
fimmtán dögum frá þeim tíma.
Sonja segir ljóst að félögin átján
muni grípa til samstilltra aðgerða, ef
til þeirra kemur. Reiknar hún með
skæruverkföllum í upphafi.
Guðbjörg segir að hjúkrunarfræð-
ingar eigi mikið undir því að vel tak-
ist til með styttingu vinnutíma
vaktavinnufólks. Þess vegna vilji fé-
lagið gefa gott svigrúm fyrir þá
vinnu. Biðlundin sé hins vegar á
þrotum.
Biðlund fólks á þrotum
Fjölmenni og samstaða á baráttufundi opinberra starfsmanna vegna kjara-
viðræðna við ríkið Aðildarfélög BSRB undirbúa skæruverkföll, ef ekki semst
Morgunblaðið/Eggert
Barátta Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, var fyrsti ræðumaður á baráttufundi sem félög opinberra starfsmanna efndu til í Háskólabíói í gær.
Jarðskjálftavirkni heldur áfram í
grennd við fjallið Þorbjörn á
Reykjanesskaga og dreifist hún á
nokkrar sprungur norður af Grinda-
vík. Unnið er að því að bæta þremur
nýjum jarðskjálftamælum við raun-
tímavöktun Veðurstofunnar í
grennd við Þorbjörn. Tveir í viðbót
verða settir upp á næstu dögum.
Helsti tilgangur þeirra er að bæta
áreiðanleika jarðskjálftastaðsetn-
inga. Þetta kom fram á vísindaráðs-
fundi almannavarna í gær þar sem
jarðvísindamenn hittust og fóru yfir
stöðu mála vegna landriss og jarð-
skjálftavirkni á svæðinu.
Landrisið við Þorbjörn nemur 34
sentímetrum þar sem það er mest.
Þær niðurstöður sem fengist hafa
benda til að risið eigi upptök á um 4
kílómetra dýpi en töluverð óvissa er
enn varðandi dýpi þenslumiðju.
Gas og efnamælingar í jarðhita-
vökva hafa verið auknar á jarðhita-
svæðinu við Svartsengi og Eldvörp í
samstarfi við HS Orku.
Auka eftir-
lit við Þor-
björn
Nýir jarðskjálfta-
mælar bætast við
Karlmaður lést í snjóflóðinu sem féll
við Móskarðshnjúka um hádegisbil
síðastliðinn miðvikudag. Hann var
fluttur á Landspítalann til aðhlynn-
ingar en var úrskurðaður látinn eftir
að þangað var komið samkvæmt
upplýsingum lögreglu.
Maðurinn hét Sigurður Darri
Björnsson, 23 ára, til heimilis í
Hafnarfirði.
Lét lífið í
snjóflóði
Kjarasamninga strax! var yfir-
skrift baráttufundar BSRB,
BHM og Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga í gær. „Opinberir
starfsmenn sætta sig ekki við
áframhaldandi skeytingarleysi
viðsemjenda nú þegar tíu mán-
uðir eru liðnir frá því kjara-
samningar losnuðu,“ sagði í
fundarboði og var þess krafist
að ríki og sveitarfélög gengju
tafarlaust til samninga við
starfsfólk sitt. Forystufólk sam-
bandanna og einstakra félaga
fluttu hvatningarræður og var
vel tekið undir.
Samið verði
við starfsfólk
BARÁTTUFUNDUR
Margvíslegt undirbúningsstarf
stendur nú yfir á Landspítalanum
þannig að sjúkrahúsið geti tekið á
móti og sinnt vel þeim sjúklingum
sem þangað kunna að leita vegna kór-
ónafaraldursins. Upptök kóróna-
veirunnar eru í Wuhan í Kína og þar í
landi hafa um 7.734 manns tekið veir-
una, sem breiðist hratt út um heim-
inn. Á heimsvísu eru tilvikin orðin
7.824 og látnir eru 170. Á Íslandi hef-
ur almannavarnadeild Ríkis-
lögreglustjóra lýst yfir óvissustigi.
„Sjúkrahúsið er allt undir í ráðstöf-
unum sem nú eru gerðar,“ segir
Ragna Gústafsdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri á bráðamóttöku í Foss-
vogi. Farið er yfir viðbúnaðaráætl-
anir, starfsfólk fær fræðslu og á
sjúkrahúsinu eru skipulagðar leiðir
sem fólk með smitandi kórónaveiruna
verður flutt um svo að minnst áhætta
hljótist af. Á deildum er tiltækur
varnarbúnaður; gallar, grímur, gler-
augu og fleira. sbs@mbl.is
Varnarbúnaður tiltækur
Allt er undir á
Landspítalanum
í óvissuástandi
Morgunblaðið/Eggert
Bráðamóttakan Ragna Gústafsdóttir sýnir hlífðarbúnað starfsmanns.
Jakob Svavar Sigurðsson á Hálf-
mána frá Steinsholti sigraði í fjór-
gangi, sem er fyrsta keppnin í
meistaradeildinni í hestaíþróttum.
Keppnin fór fram í TM-höllinni hjá
Fáki í Víðidal í gærkvöldi. Keppnin
var spennandi og sveifluðust kepp-
endur til í úrslitakeppninni eftir því
hvernig þeim gekk. Jakob Svavar
var efstur inn í úrslit og hélt sæti
sínu. Mattías Leó Mattíasson á
Takti frá Vakursstöðum sem var
sjötti í forkeppninni reið sig upp í
annað sæti og Elin Holst á Frama
fór úr fimmta sæti í það þriðja.
Jakob Svavar sigr-
aði í fyrstu keppni