Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma fleiri 757-vélar í flota sínum en Ice- landair, sem er með 26 vélar af þeirri tegund í þjónustu sinni. Hin félögin eru United með 76 vélar og Delta, sem er með 127 slíkar í flota sínum. Síðastnefnda félagið hefur ekki stokkið á vagninn hjá Airbus og und- ir lok síðasta árs ítrekaði forstjóri Delta að félagið hefði enn áhuga á því að leggja inn pöntun fyrir 200 vélum af gerðinni Boeing 797. Eini vandinn sem forstjórinn og framleið- andi vélanna standa frammi fyrir er sú staðreynd að vélartegundin er ekki til. Hún hefur aðeins öðlast líf á teikniborði hönnuða Boeing og virð- ist hafa legið þar allt frá árinu 2015. Hefur hún alla jafna gengið undir vinnuheitinu NMA (New Midsize Airplane) eða ný vél í millistærð en gengið er út frá því að hún hljóti ein- kennisnúmerið 797 þegar vélin verð- ur kynnt á markað. Stefndu á markaðinn 2025 Lengi vel héldu forsvarsmenn Bo- eing því fram að 797-vélin yrði komin á markað árið 2025 og því gætu þau félög sem keyrðu mikið á 757 og 767 vélum, líkt og Icelandair, beðið eftir komu hennar á markaðinn. Engin ástæða væri til að stökkva á vélar frá keppinautnum. Hins vegar hefur þróunarferlið á 797 dregist úr hömlu. Vandræðin í tengslum við kyrrsetn- ingu MAX-vélanna töfðu framleið- andann enn frekar og jafnt og þétt hefur það runnið upp fyrir flugfélög- um víða um heim að óraunhæft væri að búast við 797-vélinni fyrr en í fyrsta lagi undir lok nýs áratugar. Í fyrra gengu þó sögur um að innan tíðar myndi Boeing kynna hina nýju vél til sögunnar. Þær vonir urðu hins vegar að engu í liðinni viku þegar nýr forstjóri Boeing skipaði hönnuð- um fyrirtækisins að hefja hönnunar- ferli vélarinnar að nýju og þá frá grunni. Í samtali við Reuters sagði forstjórinn, Dave Calhoun, að mark- aðurinn hefði breyst og að hugsa þyrfti verkefnið alveg frá grunni. Vera kann að vinsældir A321XLR hafi þar áhrif og ljóst að forskot Air- bus á þessum markaði verður mikið, einfaldlega af þeirri ástæðu að fyrstu vélarnar af þeirri tegund fara í þjón- ustu flugfélaga árið 2023, gangi áætl- anir eftir. Ekki inni í sviðsmyndinni MAX-vélarnar sem Icelandair vinnur nú að því að taka inn í flota sinn henta að mörgu leyti vel inn í leiðakerfi félagsins, ekki síst á Evrópuhlutann og inn á áfangastaði á austurströnd Norður-Ameríku. Því ræður ekki aðeins sparneytni vélanna heldur einnig stærð þeirra. Það krefst mun minna átaks að tryggja fullfermi í vél sem telur 160- 180 sæti í farþegarými heldur en þar sem sætafjöldinn teygir sig upp í 262 eins og í 767-breiðþotunum sem Ice- landair hefur á að skipa. MAX-vél- arnar henta þó ekki að öllu leyti vel. Bæði eru þær takmarkandi á þeim leiðum þar sem eftirspurn er mikil en þá er drægi þeirra takmarkað. Þannig eru borgir í Flórída, Texas, Washington og Kaliforníu t.d. utan færis og einnig ákveðin svæði í Kan- ada. Þá er ljóst að ekki væri hægt að hrinda hugmyndum um Asíuflug í framkvæmd ef félagið hefði einvörð- ungu á að skipa MAX-vélum. Af þessum sökum hafa ýmsir talið að við endurskoðun á flugflota Ice- landair hafi menn rennt hýru auga til 797-vélarinnar. Hennar var þó í engu getið þegar félagið um mitt síðasta ár tilkynnti að það ynni nú eftir þremur sviðs- myndum við mat á framtíðarflota sínum. Þar var í fyrsta lagi talað um óbreytta flotastefnu, sem þó var ekki útskýrt hver væri. Í öðru lagi að hraða endurnýjun flotans með A321NEO-vélum sem reknar yrðu samhliða 737 MAX-vélunum og að fækkun 757-vélanna yrði hraðað og í þriðja lagi að hraða endurnýjun flot- ans með Airbus-vélum og að Boeing hyrfi úr flotanum á komandi árum. Þegar nýjustu yfirlýsingar for- stjóra Boeing voru bornar undir Ice- landair var svarið það að fyrir hefði legið um nokkurt skeið að 797-vélin kæmi ekki á markað fyrr en í fyrsta lagi 2026 eða 2027 og því hefði hún ekki verið álitin valkostur í þeirri vinnu sem nú stendur yfir. Icelandair hafði ætlað að tilkynna nýja flotastefnu fyrir lok september- mánaðar 2019. Staðan sem komin er upp í kjölfar kyrrsetningar MAX- vélanna olli því hins vegar að slá varð þeim fyrirætlunum á frest. Enn er óvíst hvenær kyrrsetningunni verð- ur aflétt en þá má gera ráð fyrir að félagið muni setja aukinn kraft í þá vinnu. Hefur ekki áhrif á Icelandair  Enn stefnir í frekari tafir á nýrri vélartegund frá Boeing sem koma átti 2025  Icelandair hefur ekki haft augastað á henni við framtíðarskipan flotamála sinna BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Árið 2004 hætti Boeing framleiðslu á vélartegund sem ber einkennisnúm- erið 757. Þá hafði félagið smíðað 1.050 slíkar vélar allt frá árinu 1981. Þessar vélar eru Íslendingum að góðu kunnar enda hafa þær lengi þjónað sem hryggjarstykkið í flota Icelandair Group. Hafa þær þótt henta afar vel inn í leiðakerfi félags- ins, sem teygir sig milli Evrópu og yfir á vesturströnd Bandaríkjanna. Opinberlega sést vélinni einna helst bregða fyrir í fréttaflutningi af vara- forseta Bandaríkjanna en hann ferðast milli staða á vél sem í grunn- in er 757 en ber þó tegundarheitið C-32 sökum þess að vélin er búin til herþjónustu. Með stöðvun framleiðslunnar árið 2004 hætti Boeing í raun að bjóða upp á millistóra vél með það drægi sem 757-vélin bjó yfir. Töldu stjórn- endur félagsins á þeim tíma að 737- vélar, sem eru minni og skamm- drægari, þjónuðu nægilega eftir- spurn á markaðnum. Þetta staðfesti m.a. Raymond E. Conner, þáverandi forstjóri Boeing, í viðtali í Viðskipta- Mogganum 15. desember 2016. Og að nokkru leyti höfðu forsvarsmenn fyrirtækisins rétt fyrir sér. MAX sló í gegn Þegar ný kynslóð 737-vélanna, sem nefnist MAX, var kynnt til sög- unnar hlóðust inn pantanir sem aldr- ei fyrr. Allt benti til þess að félagið hefði í raun hitt á eins konar gullæð með framleiðslu hinnar nýju kyn- slóðar. Þó hefur komið í ljós að eftir því sem 757-vélarnar hafa elst og fleiri vélum af þeirri tegund verið lagt hef- ur myndast gat á markaðnum sem aðrar vélar Boeing geta ekki svo auðveldlega fyllt. Á sama tíma hefur keppinauturinn evrópski, Airbus, leitað leiða til þess með nýrri kynslóð svokallaðra A321-véla. Á síðustu misserum hafa mörg flugfélög, sem státað hafa af Boeing 757-vélum í flota sínum, tekið ákvörðun um að skipta þeim út, ekki síst fyrir svo- kallaða A321XLR vél frá Airbus sem formlega var kynnt til sögunnar á flugsýningunni í París í fyrrasumar. Sú vél er afar langdræg líkt og 757- vélin en búin öðrum kostum sem eldri vélar eru ekki, m.a. með tilliti til sparneytni. Í þeim hópi er American Airlines sem pantað hefur 50 A321XLR vélar en félagið er í dag með 34 Boeing 757-vélar í flota sínum. Fá félög með fleiri 757-vélar American Airlines er raunar eitt þriggja flugfélaga í heiminum (flutn- ingavélar ekki taldar með) sem hafa Boing 737 MAX Boing 757 Airbus A321LR Airbus A321XLR Boing 767 Boeing 797 Drægni mismunandi fl ugvélagerða Boeing og Airbus Kortagrunnur: Icelandair. Drægni véla er samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum og samtölum við sérfræðinga. TÓKÝÓ SEÚL DUBAI RECIFE MIAMI DALLAS SEATTLE NEW YORK KEFLAVÍK ANCHORAGE PANAMA PEKING Morgunblaðið/RAX Boeing Framleiðsla á nýrri vélarteg- und sem boðuð var 2025 tefst enn. Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili er nú 1,7% og hefur ekki verið jafn lág síðan í nóv- ember árið 2017 en þá mældist hún einnig 1,7%. Hagstofa Ís- lands birti í gær vísitölu neyslu- verðs, miðað við verðlag í jan- úarmánuði sem reyndist vera 469,8 stig og hefur lækkað um 0,74% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,5 stig og lækk- ar um 0,87% frá desember 2020. Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,9% en áhrif þess á vísitöluna vega 0,48% og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 6,7% (-0,13 áhrif á vísitöluna). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) lækkaði um 0,6%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,7% eins og áður segir en vísitalan án húsnæðis um 1,6%. Í sama mán- uði fyrir ári var verðbólgan 3,4% skv. tölum Hagstofunnar. Verðbólgan minnkar og mælist 1,7%  Ekki verið jafn lág frá nóvember 2017 Janúarútsölur eru víða í gangi. Mikill munur er á heildargjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat milli sveitarfélaga, en 68% eða 17.157 kr. munur er hæstu gjöld- unum sem eru á Seltjarnarnesi, 42.315 kr. og þeim lægstu í Fjarða- byggð, 25.158 kr. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun ASÍ. Í 14 af 15 sveitarfélögum sem úttektin nær til hækka heildargjöld á bilinu 0,7%- 2,6%. Seltjarnarnes sker sig úr með 10,1% hækkun. „Heildargjöld fyrir skóladag- vistun og skólamat hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins hækkuðu í öllum tilvikum milli ára en voru alltaf um eða undir 2,5% nema í til- viki Seltjarnarness þar sem gjöldin hækkuðu mest, um 10,1%. Hækk- unin nemur 3.875 kr. á mánuði eða 34.875 kr. á ári miðað við 9 mánaða vistun. Þess má geta að gjöldin á Seltjarnarnesi voru þau hæstu með- al þeirra 15 sveitarfélaga sem út- tektin nær til fyrir breytinguna og eru það enn. Minnstu hækkanir á gjöldum fyr- ir skóladagvistun og skólamat voru í Mosfellsbæ,“ segir í umfjöllun ASÍ. Mikill mun- ur á gjöldum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.