Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
✝ Anna GuðrúnTryggvadóttir
fæddist í Reykjavík
14. júní 1927. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Drop-
laugarstöðum 21.
janúar 2020. For-
eldrar hennar voru
Tryggvi Þórhalls-
son forsætisráð-
herra, f. 9.2. 1889,
d. 31.7. 1935, og
kona hans Anna Guðrún Klem-
ensdóttir, f. 19.6. 1890, d. 27.1.
1987. Tryggvi var sonur Þór-
halls Bjarnarsonar biskups, f.
1855, frá Laufási við Eyjafjörð,
og Valgerðar Jónsdóttur, f.
1863, en foreldrar Önnu voru
Klemens Jónsson, landritari og
ráðherra, f. 1862, og Þorbjörg
Stefánsdóttir, f. 1866. Anna
Guðrún var yngst sjö systkina.
Þau voru Klemens, f. 1914, Val-
gerður, f. 1916, Þórhallur, f.
1917, Agnar, f. 1919, Þorbjörg,
f. 1922 og Björn, f. 1924. Nú eru
þau öll látin.
Anna Guðrún giftist 6.4. 1955
Bjarna Guðnasyni prófessor, f.
3.9. 1928. Bjarni er sonur Guðna
Jónssonar, f. 22.7. 1901, d. 4.3.
1974, prófessors og konu hans
Jónínu Margrétar Pálsdóttur, f.
Bergur Ari, f. 31.1. 2016. c)
Hildur, f. 19.8. 1988.
3) Auður deildarstjóri, f. 25.9.
1961. Börn hennar: a) Bjarni
Tryggvason, f. 3.5. 1993. Sam-
býliskona hans Sigríður Borg-
hildur Jónsdóttir, f. 10.4. 1993.
b) Anna Guðrún Þorsteinsdóttir,
f. 28.3. 1996. Sambýlismaður
hennar Dagur Hilmarsson, f.
11.2. 1989.
4) Unnur bankastarfsmaður,
f. 1.7. 1963. Dóttir hennar Stein-
unn Helga Sigurðardóttir, f. 8.3.
1986, faðir hennar Sigurður
Stefnisson, f. 23.8. 1963. Sam-
býlismaður hennar Viktor Krist-
inn Vilmundarson, f. 15.11.
1987. Börn þeirra: Ragnar
Helgi, f. 30.11. 2016 og Arna Sif,
f. 13.7. 2018.
Anna Guðrún ólst upp í Lauf-
ási í Reykjavík, varð stúdent frá
MR árið 1947 og starfaði á Til-
raunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði á Keldum að loknu
stúdentsprófi til ársins 1956.
Fluttist til Uppsala í Svíþjóð árið
1956 og bjó þar til ársins 1962 á
meðan Bjarni var sendikennari
við háskólann þar. Eftir heim-
komuna lauk hún kennaraprófi
frá Kennaraskóla Íslands árið
1968 og sama ár varð hún kenn-
ari við Álftamýraraskóla í
Reykjavík og starfaði þar til
ársins 1992.
Anna Guðrún verður jarð-
sungin frá Grensáskirkju í
Reykjavík í dag, 31. janúar
2020, og hefst athöfnin klukkan
13.
4.4. 1906, d. 2.10.
1936. Börn Önnu
Guðrúnar og
Bjarna eru:
1) Tryggvi lög-
fræðingur, f. 5.10.
1955. Sambýliskona
hans Erna Eyjólfs-
dóttir skrifstofu-
maður, f. 4.6. 1956.
Synir þeirra eru: a)
Bjarni, f. 23.11.
1981. Eiginkona
hans Birgitta Rán Ásgeirsdóttir,
f. 19.7. 1987. Börn þeirra:
Tryggvi Snær, f. 10.4. 2012,
Bjarki Fannar, f. 8.8. 2014, Haf-
dís Lilja, f. 1.11. 2017. b) Stein-
dór, f. 16.1. 1987 og c) Trausti, f.
30.10. 1988. Sambýliskona hans
Viktoría Rós Viktorsdóttir, f.
23.11. 1995.
2) Gerður kennari, f. 3.5.
1958. Eiginmaður hennar Jón
Steindór Valdimarsson alþing-
ismaður, f. 27.6. 1958. Dætur
þeirra: a) Gunnur, f. 2.10. 1982.
Sambýlismaður hennar Andri
Guðmundsson, f. 4.10. 1980.
Dætur þeirra: Úlfhildur, f. 7.12.
2010 og Alda, f. 5.6. 2015. b)
Halla, f. 5.3. 1986. Eiginmaður
hennar Hannes Þór Halldórs-
son, f. 27.4. 1984. Börn þeirra:
Katrín Una, f. 13.3. 2013 og
Á lífsleiðinni er mikilvægt að
eiga nána samferðamenn. Suma
velur maður en aðra fær maður
upp í hendurnar. Fyrir rúmum
fjörutíu árum eignaðist ég kær-
ustu sem síðar varð eiginkona
mín. Fljótlega kom að því að ég
hitti tilvonandi tengdaforeldra
mína, þau Önnu Guðrúnu og
Bjarna. Skemmst er frá því að
segja að þar fékk ég gott fólk í
kaupbæti með konu minni.
Það er erfitt að minnast Önnu
Guðrúnar án þess að grípa til
lýsingarorða á borð við góð,
grandvör og umhyggjusöm. Það
var hún svo sannarlega, en líka
snarpgáfuð. Hógværð og kímni
einkenndi fas hennar. Hún var
ekki mikið fyrir að láta fyrir sér
fara eða vekja á sér óþarfa at-
hygli. Á því sviði voru enda
margir aðrir í fjölskyldunni
frekari til fjörsins. Þrátt fyrir
hógværð og hlédrægni var hún
ákveðin, lét ekki sitt eftir liggja
og vildi hafa skikk á hlutunum.
Anna Guðrún hafði gott skop-
skyn og naut sín í góðra vina
hópi.
Anna Guðrún lagði áherslu á
að fjölskyldan væri samhent.
Ættrækni var henni náttúruleg
og hún var stolt af rótum sínum,
forfeðrum og formæðrum. Það
var ekki laust við að manni
þætti að bláleitt blóð rynni um
æðar Laufásfjölskyldunnar en
það steig Önnu Guðrúnu aldrei
til höfuðs.
Anna Guðrún lauk stúdents-
prófi frá MR og hóf þegar störf
á Tilraunastöðinni á Keldum og
undi hag sínum vel. Hún var
einn meðhöfunda vísindagreinar
um mæðiveiki í sauðfé sem birt
var á alþjóðlegum vettvangi árið
1953. Örlögin höguðu því þannig
að Anna Guðrún fylgdi Bjarna
til Uppsala þar sem hún ann-
aðist stækkandi fjölskyldu. Þeg-
ar heim kom varð hún farsæll
kennari við Álftamýrarskóla í 24
ár.
Önnu Guðrúnu var margt til
lista lagt og nægir þar að nefna
hannyrðir hvers konar, postu-
línsmálun svo ekki sé minnst á
bridds eða krossgáturáðningar.
Listakokkur var hún og þær eru
ekki fáar máltíðir sem hún
reiddi fram fyrir okkur. Um
margra ára skeið var það ófrá-
víkjanleg regla að mæta í Heið-
argerðið í sunnudagsmatinn. Þá
var alltaf fjör þegar Anna Guð-
rún og Bjarni dvöldu í orlofshúsi
í Brekkuskógi í fjölda sumra því
allaf vildu þau hafa börn sín og
barnabörn hjá sér. Allt skapar
þetta tengsl sem eru ómetanleg
fyrir stórfjölskylduna.
Anna Guðrún og Bjarni hafa
alla tíð birst mér samhent og
áhugasöm um lífið og tilveruna.
Á margan hátt ólík en samt
með sterka sameiginlega taug
sem batt þau saman. Það er
ómetanlegt í 65 ára hjónabandi.
Andlát Önnu Guðrúnar er
þungbært fyrir Bjarna en um
leið líkn þar sem hún bjó við
erfiða heilsu síðustu tvö árin
þegar skarpur hugurinn lét
smátt og smátt undan Elli kerl-
ingu.
Með Önnu Guðrúnu er geng-
in sæmdarkona, sem ég var svo
heppinn að fá fyrir tengdamóð-
ur og ömmu og langömmu
barna minna og barnabarna.
Fyrir það er ég þakklátur.
Jón Steindór Valdimarsson.
Í dag kveðjum við elsku
ömmu okkar, hana Önnu Guð-
rúnu.
Í Heiðargerði tóku þau
amma og afi alltaf vel á móti
okkur. Heimili þeirra einkennd-
ist af hlýju, kærleik og botn-
lausri visku. Þar var alltaf hægt
að treysta á að til væri nýbakað
góðgæti og kakómalt. Amma
starfaði sem kennari og gátum
við krakkarnir alltaf leitað til
hennar með hjálp við námið.
Hún átti það til að draga fram
krossgátur og þrautir úr
kennslunni og leysa með okkur
barnabörnunum af mikilli þol-
inmæði.
Mikið er spilað í fjölskyld-
unni og er Heiðargerðið svo
sannarlega miðpunktur þess.
Amma var afbragðsspilakona
og í lok fjölskylduboða þar sem
ekkert var gefið eftir við spila-
borðið var hún iðulega í efstu
sætunum þegar stigin voru les-
in upp.
Okkur er sérstaklega minn-
isstæð ferð fjölskyldunnar til
Ítalíu sem farin var í tilefni átt-
ræðisafmælis ömmu þar sem
við áttum saman góðar stundir.
Amma var yndisleg og mun
ávallt skipa stóran sess í huga
okkar. Hún skilur eftir sig
óteljandi góðar minningar og
hennar verður sárt saknað.
Bjarni, Steindór, Trausti,
Gunnur, Halla og Hildur.
Það er ekki erfitt að hugsa til
baka og finna góðar minningar
um ömmu. Fyrstu ár ævi minn-
ar bjuggum við mamma heima
hjá ömmu og afa. Við sex ára
aldur fluttum við í næsta hverfi,
en ég hóf skólagöngu mína í
hverfinu hjá ömmu og afa. Á
hverjum morgni þegar mamma
fór að vinna, fór ég til ömmu og
var þar þangað til skólinn byrj-
aði. Þar var alltaf tekið vel á
móti mér, í hlýju húsinu, þar
sem morgunleikfimin ómaði í
Ríkisútvarpinu og húsið ilmaði
af nýlöguðu kaffi og nýju
brauði. Amma hafði verið kenn-
ari í mörg ár en fór á eftirlaun
sama ár og ég byrjaði í grunn-
skóla. Hún aðstoðaði mig við
heimavinnuna af sérstakri þol-
inmæði. Það var til dæmis mjög
mikilvægt að kunna margföld-
unartöflurnar aftur á bak og
áfram og þegar ég hafði lært
hverja töflu utanbókar fékk ég
límmiða að launum á stærð-
fræðibókina.
Amma var dugleg að segja
mér sögur frá gömlum tímum.
Hún söng oft fyrir mig vísur
sem Tryggvi faðir hennar hafði
samið um hana og systkini
hennar. Hún var mikil spila-
kona og þó að bridds hafi verið
hennar uppáhald, þá gat hún
setið löngum stundum og við
spiluðum saman öll heimsins
spil og hún leit undan þó að litl-
ir fingur svindluðu örlítið til að
ná hjartadrottningunni.
Það væri hægt að skrifa heila
bók um ömmu. Það er skrýtið
að hugsa sér heiminn án hennar
visku, hlýju og gæsku. Hún var
mikill listamaður og til fyrir-
myndar í eldhúsinu, þar var
auðvitað efstur á lista hrís-
grjónagrauturinn hennar sem
var eldaður mjög oft í hádeg-
inu. Það var alltaf hægt að leita
til hennar og ég er mjög þakk-
lát fyrir allan þann tíma sem
við áttum saman.
Hvíl í friði, elsku amma. Þín
verður sárt saknað.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði
að sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
En sólin, hún sígur, og sólin, hún rís,
og sjá: Þér við hlið er þín
hamingjudís,
sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf:
Það er íslenska konan, tákn trúar og
vonar,
sem ann þér og þér helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson.)
Steinunn Helga
Sigurðardóttir.
Elsku amma. Nú þegar mað-
ur er orðinn eldri og lítur til
baka sér maður hlutina auðvit-
að frá öðru sjónarhorni en þeg-
ar maður var lítill. Að vera hjá
þér og afa á hverjum virkum
degi í tíu ár eftir skóla þar til
mamma kláraði vinnudaginn
þótti manni í raun vera sjálf-
sagður hlutur. Það að þú hafir
alltaf verið til staðar fyrir okk-
ur, gefið okkur að borða, hugg-
að okkur þegar við vorum leið,
alltaf verið tilbúin að spila, fara
yfir heimavinnu, kennt okkur
að lesa og skrifa var bara eðli-
legt fyrir okkur. En auðvitað er
það ekkert sjálfsagt að flesta
daga vikunnar værir þú með
tvö börn, og síðar unglinga,
sem oft þurftu umsjón í margar
klukkustundir. Alltaf tókuð þið
afi þó á móti okkur með opinn
faðm og bros á vör, líka þegar
við komum með vini í heimsókn
með tilheyrandi látum og
skrípaleikjum.
Eftir að þú veiktist fórum við
auðvitað að sjá fyrir að samleið
okkar með þér væri senn á
enda og að við þyrftum brátt að
kveðja. En sama hversu und-
irbúinn maður telur sig vera, þá
varð það samt áfall þegar
stundin rann loksins upp. Nú
færð þú að hvíla en þó eru eng-
in orð sem lýsa því hversu
þakklát við erum fyrir að hafa
haft þig sem ömmu. Þú kenndir
okkur mörg gildi sem við tökum
með fram í lífið og gerðir okkur
að betri manneskjum en við
hefðum verið án þín.
Takk fyrir allt.
Bjarni og Anna.
Anna Guðrún móðursystir
mín var alltaf kölluð Gígga af
ættinni. Hún ólst upp í Laufási
við Laufásveg yngst sjö systk-
ina sem nú hafa öll gengið á vit
feðra sinna. Mín fyrsta minning
tengist því hvað ég var spennt
að hitta frændsystkin mín þeg-
ar Gígga og Bjarni fluttu heim
frá Svíþjóð. Fljótlega keyptu
þau blokkaríbúð í Bólstaðarhlíð
og þar var alltaf líf og fjör enda
barnmargt heimili. Mér fannst
einhver ævintýraljómi yfir því
að búa í blokk þar sem börn
voru í hverri íbúð. Alltaf nægir
leikfélagar og margt til gamans
gert og ég sótti það stíft og
með góðum árangri að fá að
fara í heimsókn þangað. Eft-
irminnilegir eru bíltúrar í
Moskvitchinum. Það var sér-
stök lykt í bílnum. Bjarni sagði
að ef við drægjum djúpt andann
þá fyndum við lykt af rúss-
neskri alþýðu. Það fannst mér
skrítið. Á þessum árum dreif
Gígga sig í Kennaraskólann og
starfaði að loknu námi sem
kennari við Álftamýrarskóla.
Eftir nokkur ár í Bólstaðarhlíð
flutti fjölskyldan sig í Heiðar-
gerði þar sem þau bjuggu alla
tíð. Ný og stærri húsakynni en
sami góði andinn á heimilinu.
Laufássystkinin hittust einu
sinni í mánuði yfir veturinn og
kepptu í bridds. Það var þeirra
leið til að hittast og flest voru
þau slyngir spilarar. Börnin
fengu að sitja við borðið og
fylgjast með en það var alveg
bannað að trufla fullorðna fólk-
ið. Við systkinabörnin ætluðum
að endurvekja fjölskyldubridds-
inn fyrir nokkrum árum en það
varð nú því miður hálfenda-
sleppt þrátt fyrir að spilaáhugi
foreldra okkar hafi skilað sér til
okkar flestra. Í staðinn hitt-
umst við frænkur alltaf 21. jan-
úar á svokölluðum Distudegi en
þann dag fæddist Valgerður
elsta Laufássystirin. Það er fal-
leg tilviljun að Gígga skyldi
deyja á þessum sama degi.
Gígga og Bjarni áttu gott líf
saman, eignuðust góð börn og
afkomendur eru orðnir margir.
Síðustu ár voru þó erfið, heilsan
farin hjá Gíggu og undir lokin
bjó hún á Droplaugarstöðum.
Við systur heimsóttum hana
rétt fyrir jól og þá fannst okkur
eins og hún þekkti okkur ekki
lengur. Svo var bankað á dyrn-
ar og Bjarni kom inn og þá
ljómaði hún. Það var svo ótrú-
lega fallegt að sjá Gíggu fá
glimt í augað þegar eiginmaður
hennar til nærri 65 ára kom inn
í herbergið.
Takk fyrir allt elsku Gígga.
Hvíl þú í friði.
Anna Guðrún Ívarsdóttir.
Látin er á Droplaugarstöðum
elskuleg föðursystir mín, Anna
Guðrún Tryggvadóttir, eftir erf-
ið veikindi.
Hún var yngst sjö glaðværra
Laufássystkina sem öll síðar
mörkuðu sín spor í samfélaginu,
þrjár systur og fjórir bræður.
Með henni eru þau nú öll geng-
in. Faðir þeirra, Tryggvi Þór-
hallsson, dó ungur frá fjölskyldu
sinni eftir stjórnmálaferil sem
tók verulega á. Hún var nýlega
fædd þegar fjölskyldan fluttist í
ráðherrabústaðinn við Tjarnar-
götu. Bróðir hennar Björn, þá
þriggja ára, var mjög athafna-
samur og forvitinn drengur,
sem oft þurfti að hafa afskipti
af. Hann spurði forviða þegar
elskusemi hans keyrði úr hófi
gagnvart litlu systur: „Á ríkið
hana líka?“ Í þá daga var mikil
virðing borin fyrir eigum rík-
isins eins og föðurbróðir minn,
Klemens, sýndi síðar í verki
sem hagstofustjóri. Faðir minn,
Agnar, var langdvölum erlendis
við nám og störf. Sé það í bréf-
um sem fóru á milli að hann
gaukaði ýmsu að sínum nán-
ustu, sérstaklega vildi hann
gleðja Giggu, litlu systur. Að
Giggu stóðu sterkir stofnar, föð-
urafinn biskup og móðurafinn
landritari. Í þá daga unnu mæð-
ur og ömmur störf sín í hljóði.
Móðir hennar og nafna stóð ein
uppi með barnahópinn á miðjum
aldri og kom öllum vel til
manns. Var síðan ekkja í Lauf-
ási næstu ríflegu 50 árin. Við
barnabörn ömmu í Laufási eig-
um saman yndislegar minningar
frá liðnum jóladögum þegar öll
fjölskyldan kom saman í Lauf-
ási við leik og söng. Þar gengu
þær Dista, Obba og Gigga um
beina ásamt mágkonum og
stórum frænkum og allir glödd-
ust saman. Amma hafði viðað að
sér alls kyns góðgæti sem
yngsta kynslóðin kunni vel að
meta og ekki fékkst nema á
tyllidögum.
Gigga gekk í MR og vann eft-
ir stúdentspróf sem aðstoðar-
kona hjá Birni Sigurðssyni,
lækni á Keldum. Hún giftist
Bjarna Guðnasyni, eftirlifandi
manni sínum, árið 1955 og
fylgdi honum til Uppsala þar
sem hann var sendikennari í ís-
lenskri tungu og bókmenntum.
Hann var lengst af íslenskupró-
fessor við HÍ. Við heimkomuna
dreif hún sig í kennaranám og
átti farsælan kennsluferil. Þau
eignuðust fjögur mannvænleg
börn, son og þrjár dætur. Giggu
var margt vel gefið, hún málaði
postulín, eins og Svava föður-
systir hennar hafði verið braut-
ryðjandi í, vann alls konar
handavinnu og síðast en ekki
síst hafði hún yndi af bridge
eins og afgangurinn af fjöl-
skyldunni eða hér um bil. Bjarni
deildi heils hugar spilaáhuga-
num og var hann þeirra besta
skemmtun. Þegar um hægðist
voru þau hjónin dugleg að
ferðast og huga að barnabarna-
hópnum, sem stækkaði ört.
Hjónin voru natin við að leið-
beina og uppfræða ungdóminn,
enda bera afkomendur þeirra
þess ljóst merki. Ég á Giggu
margt gott að þakka. Hæverska
hennar og góðmennska var mér
fyrirmynd og til hennar leitaði
ég með ýmis mál. Veit að systk-
ini mín taka undir þakkir og
kveðjur til Bjarna og fjölskyld-
unnar. Blessuð sé minning
hennar.
Anna Agnarsdóttir.
Anna Guðrún mágkona mín
er látin á 93. aldursári eftir erf-
ið veikindi í kjölfar heilablóð-
falls fyrir tveimur árum. Þegar
dauðinn vitjar við þær kring-
umstæður getum við sem eftir
stöndum ekki annað en þakkað
fyrir að hún hafi nú fengið
hvíldina. Hún átti langt og far-
sælt líf fram yfir nírætt og skil-
ur eftir sig minningu um ein-
staklega ljúfa, glaðlynda og
góða konu sem á eftir að ylja
okkur sem hana þekktum um
ókomna tíð. Fyrir það ber sann-
arlega að þakka.
Mér er í barnsminni brúð-
kaup hennar og Bjarna bróður
sem fór fram á æskuheimili
hennar í Laufási vorið 1955. Ég
var full lotningar fyrir athöfn-
inni en ekki síður umgjörðinni í
því virðulega gamla húsi sem
geymdi ótal dýrgripi úr fortíð-
inni. Anna Guðrún ólst upp í
þessu umhverfi og ég tel víst að
það hafi átt þátt í að móta per-
sónuleika hennar, fágun hennar
og hógværð. Anna Guðrún var
um leið svo hlý, brosmild og
traust manneskja að manni leið
alltaf vel í návist hennar.
Ári eftir brúðkaupið fluttu
Bjarni og Gigga, eins og hún
var oftast kölluð í fjölskyldunni,
til Uppsala í Svíþjóð og voru
þar í sex ár. Ég var svo lánsöm
að fá að dvelja hjá þeim smá-
tíma 11 ára gömul, en meira
gladdist ég þó þegar þau fluttu
heim aftur. Þá hafði fjölskyldan
stækkað og börnin orðin þrjú.
Fyrstu árin bjuggu þau í Ból-
staðarhlíð og þar bættist enn
við fjölskylduna. Um 1970 flutt-
ust þau í Heiðargerði 46 og þar
hefur heimili þeirra staðið í
hálfa öld.
Heimsóknirnar í Heiðargerði
eru því orðnar æði margar. Allt-
af tóku þau hjón á móti mér og
mínum með jafnmikilli hlýju og
elskusemi og mér fannst ég allt-
af hjartanlega velkomin. Bjarni
og Gigga voru einstaklega sam-
taka og hvorugt þeirra lagði
mikið upp úr fínheitum og ver-
aldarprjáli. Heimilið var af-
slappað en hjartarýmið stórt og
allir í stórfjölskyldunni vel-
komnir hvenær sem var. Aldrei
var hægt að merkja að húsmóð-
irin ætti neitt annríkt, jafnvel
þótt hún starfaði sem kennari
meðan börnin voru að vaxa úr
grasi auk þess að bera meg-
inþungann af umönnun stórrar
fjölskyldu.
Oftar en ekki sat hún við
handavinnu þegar mann bar að
garði. Allt lék í höndum hennar,
hvort heldur var prjónaskapur,
útsaumur eða postulínsmálun. Á
heimili þeirra Bjarna eru ótal
postulínsmunir sem bera vitni
um listfengi hennar og fallegt
handbragð. Á sínum efri árum
tók hún sig til og lærði bókband
á námskeiðum fyrir eldra fólk.
Bækurnar sem hún batt inn
bera af öðrum í stóru bókasafni
heimilisins. Anna Guðrún hafði
auk alls þessa ómældan áhuga á
bridsi og trúlega var það henn-
ar mesta ánægja, einkum síð-
ustu áratugina. Hún spilaði af
gleði og ástríðu, stundum oft í
viku, alveg þar til heilsan bilaði.
Anna Guðrún og Bjarni hafa
skipað stóran sess í lífi mínu og
þau hafa líka átt ríkan þátt í
samheldni stórfjölskyldunnar.
Þáttur í því var að fagna stóraf-
mælum. Ég mun alltaf varðveita
í huga mér minninguna um
hana þar sem hún lék við hvern
sinn fingur í níræðisafmælinu
sínu, björt og brosandi. Blessuð
sé minning hennar.
Nenni og ég vottum Bjarna
bróður og allri Heiðargerðisfjöl-
skyldunni okkar dýpstu samúð.
Jónína Margrét
Guðnadóttir.
Anna Guðrún
Tryggvadóttir