Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Page 2
Nú ert þú að fara að tala um hamingju og ár-
angur í Hörpu. Hvað ætlar þú að fjalla um?
Ég ætla að segja frá vegferð minni síðustu átta ár. Ég hef
unnið sem ævintýrakona og því fylgja bæði sorgir og sigr-
ar. Oft og tíðum koma djúpir dalir inni á milli, eins og þeg-
ar ég lenti í slysunum á Everest.
Er leiðin að árangri oft þyrnum stráð?
Já, hún er það. Ég þekki engan sem hefur gengið á rauð-
um dregli alla leið. Erfiðast er að taka ákvörðunina og
leggja af stað en ef maður trúir ekki á sig nær maður
aldrei árangri. Fólk þarf að trúa á sig, alveg sama hvað
öðrum finnst.
Kemur hamingja í kjölfarið á góðum ár-
angri?
Já og nei. Maður þarf líka að þora að vera hamingjusamur.
Stundum kemur hamingjan til manns en ef maður finnur sig í
aðstæðum sem maður er óhamingjusamur í þarf hugrekki til
þess að þora að brjóta það upp og fara í átt að hamingjunni.
Nú hefur þú sett þér mörg markmið og náð
þeim. Hvert er næsta markmið þitt?
Nú ætla ég að hlúa að fyrirtækinu mínu, Tindar Travel, og sinna
vel því fólki sem treystir okkur fyrir sínum markmiðum. Svo ætla
ég að njóta lífsins, en ég verð fertug á árinu.
Ertu hamingjusöm?
Já, ég held það bara!
VILBORG ARNA
GISSURARDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hugrekki til
að þora
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020
Riiiiiiiiing.Morgunblaðið. Orri Páll.Ha! Morgunblaðið? Orri Páll?
Já.
Nú, ég hélt að ég væri að hringja á fæðingardeildina.
Nei. Við tökum ekki á móti börnum hér. Ég var hins vegar að spá í að
taka við þig viðtal.
Viltu taka viðtal við mig?
Já.
Nei, það gengur því miður ekki. Ég er á leiðinni upp á fæðingardeild að
eiga barn.
Nú, jæja. Það er ekkert annað. Þá er líklega rétt að bíða með viðtalið.
Já, ætli það ekki. Ég er svolítið
annars hugar núna. Þú skilur.
Já, mikil ósköp. Það er alveg
eðlileg forgangsröð; að þú eigir
barnið fyrst og við tölum saman
við annað tækifæri.
Já. Það er líklega best. Þér er
velkomið að taka hús á mér á
morgun, ef það hentar.
Tja, það liggur kannski ekki al-
veg svo mikið á þessu. En takk fyr-
ir og gangi þér vel!
Já. Takk sömuleiðis!
Á löngum ferli hérna á blaðinu
hef ég lent í ýmsu en engu í líkingu við símtalið sem lýst er hér að framan
og átti sér stað fyrir rúmri viku. Ég hef aldrei fyrr hitt á viðmælanda sem
kominn er á steypirinn og á þráðbeinni leið á fæðingardeildina. Í fyrra
sótti ég reyndar að manni meðan hann var í sundi en það er allt annað og
ómerkilegra. Með fullri virðingu fyrir þeirri göfugu íþrótt sundinu.
Þetta er í raun ennþá kyndugra fyrir þær sakir að eins og línurnar hér
að ofan gefa til kynna þá hringdi konan í mig – en ekki öfugt. Ég hafði að
vísu reynt að ná í hana svona fimmtán mínútum áður en enginn svarað í
símann. Ég gef mér að konan hafi verið búin að vera í sambandi við fæð-
ingardeildina fyrr um daginn og óvart valið númerið mitt þegar hún ætl-
aði að hringja þangað til að stimpla sig inn.
Enda þótt konan væri ekki alveg með hugann við blaðaviðtal þá gaf
hún sér góðan tíma til að útskýra stöðuna fyrir mér. Það datt hvorki né
draup af henni og hló hún dátt að þessum undarlega misskilningi – og við
bæði.
Það er sem ég segi; engir tveir dagar eru eins í þessu ágæta starfi.
Á undan viðtali
kemur fæðing
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Ég hef aldrei fyrr hittá viðmælanda semkominn er á steypirinn ogá þráðbeinni leið á fæð-
ingardeildina.
Erna Sif Smáradóttir
Já, ég held þeim eigi eftir að ganga
rosa vel.
SPURNING
DAGSINS
Spáir þú
hand-
boltaliðinu
góðu gengi
á EM?
Bjarki Tómas Leifsson
Ég horfi bara á fótbolta.
Helga Björnsdóttir
Ég spái þeim áttunda sætinu.
Davíð Ísar Einarsson
Ég held þeir komist upp úr riðlinum
með heppni. En ég held við töpum í
fyrstu umferð eftir það.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
RAX
Sunnudaginn 12. janúar fer fram í Hörpu fyrirlestradagurinn Hamingja og árangur
sem ráðgjafarfyrirtækið Meðbyr stendur fyrir. Þar mun íslenskt afreksfólk ræða
leið sína að árangri og er Vilborg Arna Gissurardóttir þar í hópi. Miðar fást á tix.is.
TÆKNI A
FYRIR H
TVINNUMANNSIN
E I
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
LauraStar
er létt og
meðfærilegt og
þú ert fljótari
að strauja en
nokkru sinni
fyrr.
Settu þína
ráðstefnu
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Morgunblaðið/Eggert