Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020 LÍFSSTÍLL Það er gaman að bregða sér í leikhús, tónleika, í bíó og annað slíkt. Hins vegar eru nokkuratriði sem við þurfum að hafa í huga. Við verðum ekki ósýnileg á þessum stöðum, ekkifrekar en í bílnum á rauðu ljósi borandi í nefið. Getum við áhorfendur átt enn betri samskipti þegar við förum í leikhús eða önnur samkomu- hús? Yfirleitt erum við reyndar til fyrirmyndar. Svo kurteis að við viljum láta náungann í friði og komum því stundum fram við aðra eins og þeir séu framliðnir. Kannski gætum við litið meira í kringum okkur, brosað, jafnvel kinkað vingjarnlega kolli áður en við göngum í salinn, enda erum við öll eftirvæntingarfull og komin til að njóta viðburðarins! Flott framkoma er alltaf álitamál og ekkert við því að segja þótt fólk hafi mismunandi smekk. Atriðin hér að neðan eru engin lög, meira til umhugsunar: Leikhús eða tónleikar – nokkur atriði sem gott er að hafa í huga Hvað skal gera? Albert Eiríksson albert.eiriksson@gmail.com mbl.is/freyjagylfa Forðumst eins og hægt er að fara með hósta í leikhús eða á tón- leika sem krefjast náinnar hlustunar. Oftast ræðst fjöðrin til atlögu í hálsinum einmitt þegar við megum ekki hósta. Ef við teljum okk- ur geta haldið þetta út, en erum ekki alveg viss, reynum þá að panta okkur sæti úti á enda til þess að geta læðst fram ef hóstinn gerir vart við sig. Einnig er gott að hafa með sér hálstöflur, það róar oft hálsinn að vita af þeim. Sumar hálstöflur eru í hörðu plast- umbúðum með álpappír á. Þegar þær eru teknar úr umbúðum heyrist skrjáf sem berst um allt og veldur truflun. Best er að setja molana í hljóðlátari umbúðir áður en haldið er að stað að heiman. Hóstakast Klöppum þegar okkur finnst eitthvað vel gert, en þægilegt er að þekkja klappvenjur á klassískum tónleikum og í óperum. Venja er að klappa ekki á milli kafla í heildstæðu verki, t.d. í þriggja kafla sinfóníu eða sónötu. Á söngtónleikum er heldur ekki klappað á milli laga í röð eftir sama höfund eða á milli laga í lagaflokki. Þetta mætti gjarnan taka fram fyrir óvana tónleikagesti, svo að þeir verði ekki vandræðalegir. Í óperum er gömul venja að klappa eftir einstakar aríur eða önnur söngatriði. Ég verð að játa að stundum finnst mér það trufla framvindu leiksins og tónlistarinnar, ef ekki er sérstök ástæða til; við slítum til dæmis ekki talað leikrit í sundur með því að klappa eftir eintöl. En svona er venjan og maður spilar með! Klöppum Ekkert af ofangreindu gefur til- efni til að fara í fýlu, eða hneykslast eins og snobbhænsn. Kannski hef- ur fólk aldrei pælt í hinum og þess- um siðvenjum eða dregur dám af því sem flestir gera. Enginn sér heldur í annars rann. Þess vegna getur fólk haft sínar ástæður fyrir því að vera afskiptalaust eða sinnu- laust um náungann. Við höldum bara okkar striki og reynum eftir föngum að sýna gott fordæmi! En þó að við reynum að rækta með okkur þörf til að gera lífið þægi- legra fyrir okkur sjálf og aðra þýðir það ekki að við höfum alltaf rétt fyrir okkur. Eða eins og Paulo Co- elho sagði: Eitt er að finnast maður vera á réttri leið, annað er að halda að sú leið sem maður velur sé sú eina rétta. Af öðrum atriðum sem gott er að hafa í huga má nefna:  Mæta tímanlega  Taka „öryggispiss“  Taka hringinguna af símanum  Laumast ekki til að taka myndir  Tyggjófólk: muna að henda tyggjói  Hvorki tala né hvísla eftir að við- burður hefst  Sparifötin? Já ef tilefni er til, a.m.k. ekki mæta í gömlu flíspeysunni  Sleppum veitingum, sælgæti og drykkjum meðan á sýningu/ tónleikum stendur Þetta á fyrst og fremst við í bíóhúsum, en þau eru líka leikhús, að minnsta kosti kallar enskurinn þau stundum movie theatres. Afgangs popp og gosdrykkir eru ekki beinlínis það notalegasta að hafa neðan á skónum þeg- ar maður ætlar að njóta þess að horfa á góða kvik- mynd. Ef til vill þurfa bíóhús að hafa fleiri ruslatunnur, svo að þetta verði þægilegra. Sleppum því að henda rusli á gólfin. Rusl í ruslafötur Göngum inn í sætaröð með bros á vör, snúum að þeim sem standa upp fyrir okkur. Þannig gefst okkur færi á að biðjast afsökunar, eða þakka fyrir eða bjóða að minnsta kosti góð- an dag eða gott kvöld. Um daginn sat ég úti á enda í sætaröð í leikhúsi þegar maður nokkur stóð allt í einu við hliðina á mér og horfði á sætið sem hann ætlaði að setjast í. Vissulega skildi ég að hann ætlaðist til að ég stæði upp og það var auðvitað alveg sjálfsagt. Á hinn bóginn hefði verið viðkunnanlegra ef hann hefði gert mér viðvart, jafnvel þakkað fyrir sig og ekki otað að mér óæðri endanum þegar hann gekk inn í sætaröðina. Bros á vör Hlæjum dátt eða grátum eftir atvikum, en munum samt að það eru fleiri í salnum en við sjálf. Allajafna er hlát- urmilt fólk dásamlegir áhorfendur og getur jafnvel breytt meðalsýningu í afbragðsskemmtun með sínum smitandi hlátri. Aftur á móti höfum við misjafnan húmor og hlát- ursdúkkur sem geta ekki hamið sig á sorglegustu stöðum geta spillt áhrifunum fyrir öðrum. Hlæjum dátt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.