Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Síða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020 Breski grínarinn Ricky Gervaisgerði allt vitlaust á GoldenGlobe-verðlaununum fyrir nokkrum dögum með því að gera kol- svart grín að frjálslynda og „góða fólk- inu“ í Hollywood. Sakaði það blákalt um hræsni, í gríni og alvöru. Athygl- isvert hefur verið að fylgjast með við- brögðunum. Gervais hefur útskýrt að hann hafi ekki verið að stimpla sig í lið gegn Hollywood-fólkinu heldur hafi hann verið að gagnrýna sitt eigið lið. Einhver sagði að það þyrfti hug- rekki til að gagnrýna andstæðinga sína en tvöfalt hugrekki til að gagnrýna vini sína. Samvinna um borgaraleg gildi Samvinna íhaldssamra og frjálslyndra afla um framgang borgaralegra gilda hefur skipt sköpum fyrir sam- félagsþróunina á Íslandi. Mikilvægt er að hún haldi áfram og verði áfram traust, þó að vitaskuld verði alltaf tek- ist á um gildi stöðugleikans annars vegar og breytinga hins vegar. Gyllti hnötturinn: I Átök stöðugleika og breytinga eru heillandi, sígilt og vinsælt viðfangsefni. Þau eru til að mynda rauði þráðurinn í kvikmyndinni „Páfarnir tveir“, sem Netflix gaf nýlega út og var tilnefnd sem besta myndin á fyrrnefndum Gol- den Globe-verðlaunum. Þar takast þeir á í heitum rökræð- um, Benedikt páfi og sá sem átti síðar eftir að taka við af honum og verða Frans páfi. Sá íhaldssami og sá frjáls- lyndi. Báðir innan sömu íhaldssömu stofnunarinnar. Báðir viðurkenna að hafa breytt um áherslur í áranna rás en svo takast þeir skemmtilega á um hvort það hafi verið sinnaskipti eða málamiðlun – og hvort sé skárra! Þrátt fyrir djúpstæðan ágreining þeirra á milli svífur yfir vötn- um að þeir séu þrátt fyrir allt nær hvor öðrum en ætla mætti. Gyllti hnötturinn: II Átök stöðugleika og breytinga eru líka einn af rauðu þráðunum í sjónvarps- þáttunum um Elísabetu Bretadrottn- ingu, „Crown“, sem voru líka tilnefndir til Golden Globe rétt eins og myndin um páfana. Þar rembist hin þunglama- lega krúna við að skilja hlutverk sitt í breyttum heimi. Undir lok þriðju seríu fer fram ákveðið uppgjör á milli Elísabetar og föðurbróður hennar, kóngsins fyrrver- andi sem hafði gefið konungdæmið frá sér fyrir ástina. Sú erki-íhaldssama og sá frjálslyndari. Bæði á sínum tíma innan sömu íhaldssömu stofnunar- innar. Á ákveðinn hátt má segja að þau nái saman. Það gera einnig hin hægláta Elísa- bet og systir hennar, sú óstýriláta og fjöruga, þegar sú fyrrnefnda tekur að efast um sjálfa sig og spyr hvort hún hafi gert landi sínu gagn, hvort það sé ekki allt að liðast í sundur á hennar vakt. Systirin tekur þá óvænt upp hanskann fyrir íhaldssemina og svarar eitthvað á þessa leið: Stöðugleiki þinn og óhagganleiki er nauðsynlegt lím í brothætta sjálfsmynd þjóðarinnar. Þriðja og kannski skýrasta dæmið um svipaða „brúarsmíði“ sem kemur fram í þáttunum er hið góða og trausta samband Elísabetar og vinstrimanns- ins Wilsons forsætisráðherra. Innskot Felst ekki einhver mótsögn í því að framsæknustu og frjálslyndustu sam- félög heims, Svíþjóð, Noregur og Dan- mörk, skuli öll ennþá halda í hina fornu hefð konungdæmisins? Hún er jú al- gjörlega á skjön við nútímahugmyndir um jafnrétti og afnám meðfæddra for- réttinda. Eða er þetta kannski lexía um að íhaldssemi og frjálslyndi geti farið mjög vel saman og vegi jafnvel hvort annað upp? Þetta er að minnsta kosti umhugsunarvert. Greining Economist Blaðið Economist hélt því fram fyrir nokkrum mánuðum í áhugaverðri greiningu, að engin hugmynd ætti meira undir högg að sækja á Vest- urlöndum um þessar mundir en klass- ísk íhaldsstefna. En ástæðan væri ekki atlaga frá frjálslyndum heldur innan úr eigin herbúðum, frá „nýja hægrinu“. Hér er endursögn á hluta af rök- semdafærslu blaðsins fyrir því að nýja hægrið sé í raun að leggja til atlögu við hefðbundna íhaldsmenn: Íhaldsmenn vilja fara varlega í breytingar en nýja hægrið er í byltingarhug. Íhaldsmenn eru praktískir en nýja hægrið er ósveigjanlegt og dogmatískt og fer auk þess frjálslega með staðreyndir. Íhaldsmenn leggja mikið upp úr skap- gerð og mannkostum en nýja hægrið leggur meira upp úr ásýnd og vinsæl- um uppátækjum og fyrirgefur auð- veldlega skapgerðarbresti. Íhalds- menn styðja milliríkjaverslun en nýja hægrið stundar tollastríð. Blaðið nefnir fleiri dæmi. Blaðið segist vera að gagnrýna vini sína. – Rétt eins og Ricky Gervais, mínus húmorinn. Um íhald og gyllta hnetti Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Samvinna íhalds-samra og frjálslyndraafla um framgang borg-aralegra gilda hefur skipt sköpum fyrir sam- félagsþróunina á Íslandi. Nýlega voru birtar upplýs-ingar um árangur íslenskranemenda í PISA- könnunum árið 2018. PISA er stór alþjóðleg könnun sem 79 lönd taka þátt í. Í niðurstöðunum kom fram að meðalskor íslenskra unglinga í lestri/lesskilningi er 474 stig og að þar er Ísland í 35. sæti af 79 löndum. Meðaltalið meðal ríkja í Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD, var 487 stig. Á Íslandi var skor drengja 454 stig og stúlkna 494 stig. Samkvæmt könnuninni geta 34% íslenskra drengja ekki lesið sér til gagns og 19% stúlkna. Af hinum þjóð- unum á Norðurlöndunum skora Finn- ar best og eru með meðalskor upp á 520 stig og eru í sjöunda sæti af 79 löndum sem taka þátt í PISA. Finnsk- ar stúlkur eru í þriðja sæti með skor upp á 546 stig og finnskir drengir eru með skor upp á 495 stig og eru í 9. sæti. Hin löndin á toppnum með Finn- landi eru Kína með 555 stig og Singa- púr með 549 stig. Á botninum eru síð- an eftirfarandi lönd: Filippseyjar með 340 stig og Dóminíska lýðveldið með 342 stig. Í náttúrufræði erum við með 475 stig og erum númer 35 af 79 lönd- um og í stærðfræði erum við með 495 stig og númer 26 af 79 löndum. Þetta er grafalvarleg staða og við verðum að taka okkur verulega á ef við eigum að geta snúið vörn í sókn. Mikilvægt er að nota vísindi sem út- gangspunkt fyrir þær aðgerðir sem verður ráðist í. Það sem þarf að mínu mati að gera er m.a.: 1. Efla hreyfingu. Láta öll börn/ unglinga í leik- og grunnskólum hreyfa sig í 60 mínútur á dag. Hreyf- ing er jákvæð fyrir taugakerfið, heilsu og vellíðan. 2. Efla samveru – gefa okkur tíma til að njóta stundar saman hvort sem það er í góðu yfirlæti heima við eða í sundlauginni. Samvera er jákvæð fyrir taugakerfið og vellíðan. 3. Lesa fyrir börn frá unga aldri. Það að lesa fyrir börn er jákvætt fyrir málþroska þeirra og áhuga á bókum. Förum saman á bókasafnið og velj- um bækur. Þannig sýnum við að bækur og lestur eru mikilvæg. 4. Tala meira við börnin, ekki gleyma strákunum. Heyra hvað þau voru að fást við og hvernig gekk í skólanum. Það að foreldrar/forráðamenn sýni áhuga er mikilvægt. 5. Brjóta lestrarkóðann. Kennum bókstafi/þeirra hljóð í upphafi lestr- arnáms. Rannsóknir sýna mikilvægi þess að kunna bókstafi og hljóð þeirra til þess að börnin nái að brjóta lestrarkóðann. 6. Kalla fram ástríðuna hjá kenn- urum í þeirra mikilvæga starfi. 7. Útivist – gönguferðir – fjöruferðir. Brjótum upp skólahversdaginn með skemmtilegum og áhugaverðum gönguferðum um nágrennið. 8. Setja lestur í forgang í skólunum fyrstu 1-3 árin. Sjá til þess að allir nái að brjóta lestrarkóðann (fyrir utan þau 3-5% sem af lífeðl- isfræðilegum ástæðum eiga í lestr- arvanda). 9. Tryggja hjálp við heimanám í skólunum fyrir þau sem ekki fá hjálp heima. 10. Hætta að mæla leshraða. Mæla frekar hversu margar bækur las barnið síðasta mánuð og hvaða þrjár voru skemmtilegastar. 11. Búa til og nota góðar lestr- arbækur með mismunandi erf- iðleikastig í skólanum. Á hverju stigi þyrfti að vera hægt að velja úr 20 áhugaverðum bókum. 12. Skapa áhuga, veita áskoranir miðað við færni. 13. Fjarlægja snjallsímana úr skól- anum – ný rannsókn sýnir fram á „spekileka“ (e. „brain-drain“) þegar síminn er nálægt barninu. Sem sagt tekur vitsmunagetu og vinnuminni. 14. Auka þjálfun á mikilvægum þátt- um náms. Það er samfélagslegt verk- efni, við þurfum að gefa okkur tíma. PISA 2018 – vinnum með réttu hlutina Morgunblaðið/Eggert ’Þetta er grafalvarlegstaða og við verðumað taka okkur verulega áef við eigum að geta snúið vörn í sókn. Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundur@ru.is Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.