Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Það er gaman að bregða sér í leikhús, tónleika, í bíó og annað slíkt. Hins vegar eru nokkuratriði sem við þurfum að hafa í huga. Við verðum ekki ósýnileg á þessum stöðum, ekkifrekar en í bílnum á rauðu ljósi borandi í nefið.
Getum við áhorfendur átt enn betri samskipti þegar við förum í leikhús eða önnur samkomu-
hús? Yfirleitt erum við reyndar til fyrirmyndar. Svo kurteis að við viljum láta náungann í friði og
komum því stundum fram við aðra eins og þeir séu framliðnir. Kannski gætum við litið meira í
kringum okkur, brosað, jafnvel kinkað vingjarnlega kolli áður en við göngum í salinn, enda erum
við öll eftirvæntingarfull og komin til að njóta viðburðarins!
Flott framkoma er alltaf álitamál og ekkert við því að segja þótt fólk hafi mismunandi smekk.
Atriðin hér að neðan eru engin lög, meira til umhugsunar:
Leikhús eða tónleikar
– nokkur atriði sem
gott er að hafa í huga
Hvað skal gera?
Albert Eiríksson
albert.eiriksson@gmail.com
mbl.is/freyjagylfa
Forðumst eins og hægt er að fara með hósta í leikhús eða á tón-
leika sem krefjast náinnar hlustunar. Oftast ræðst fjöðrin til atlögu
í hálsinum einmitt þegar við megum ekki hósta. Ef við teljum okk-
ur geta haldið þetta út, en erum ekki alveg viss, reynum þá að
panta okkur sæti úti á enda til þess að geta læðst fram ef hóstinn
gerir vart við sig. Einnig er gott að hafa með sér hálstöflur, það róar
oft hálsinn að vita af þeim. Sumar hálstöflur eru í hörðu plast-
umbúðum með álpappír á.
Þegar þær eru teknar úr umbúðum heyrist skrjáf sem berst um
allt og veldur truflun. Best er að setja molana í hljóðlátari umbúðir
áður en haldið er að stað að heiman.
Hóstakast
Klöppum þegar okkur finnst eitthvað vel gert, en þægilegt er að þekkja
klappvenjur á klassískum tónleikum og í óperum.
Venja er að klappa ekki á milli kafla í heildstæðu verki, t.d. í þriggja
kafla sinfóníu eða sónötu. Á söngtónleikum er heldur ekki klappað á
milli laga í röð eftir sama höfund eða á milli laga í lagaflokki. Þetta
mætti gjarnan taka fram fyrir óvana tónleikagesti, svo að þeir verði ekki
vandræðalegir. Í óperum er gömul venja að klappa eftir einstakar aríur
eða önnur söngatriði. Ég verð að játa að stundum finnst mér það trufla
framvindu leiksins og tónlistarinnar, ef ekki er sérstök ástæða til; við
slítum til dæmis ekki talað leikrit í sundur með því að klappa eftir eintöl.
En svona er venjan og maður spilar með!
Klöppum
Ekkert af ofangreindu gefur til-
efni til að fara í fýlu, eða hneykslast
eins og snobbhænsn. Kannski hef-
ur fólk aldrei pælt í hinum og þess-
um siðvenjum eða dregur dám af
því sem flestir gera. Enginn sér
heldur í annars rann. Þess vegna
getur fólk haft sínar ástæður fyrir
því að vera afskiptalaust eða sinnu-
laust um náungann. Við höldum
bara okkar striki og reynum eftir
föngum að sýna gott fordæmi! En
þó að við reynum að rækta með
okkur þörf til að gera lífið þægi-
legra fyrir okkur sjálf og aðra þýðir
það ekki að við höfum alltaf rétt
fyrir okkur. Eða eins og Paulo Co-
elho sagði: Eitt er að finnast maður
vera á réttri leið, annað er að
halda að sú leið sem maður velur
sé sú eina rétta.
Af öðrum atriðum sem gott
er að hafa í huga má nefna:
Mæta tímanlega
Taka „öryggispiss“
Taka hringinguna af símanum
Laumast ekki til að taka myndir
Tyggjófólk: muna að henda tyggjói
Hvorki tala né hvísla eftir að við-
burður hefst
Sparifötin? Já ef tilefni er til, a.m.k.
ekki mæta í gömlu flíspeysunni
Sleppum veitingum, sælgæti og
drykkjum meðan á sýningu/
tónleikum stendur
Þetta á fyrst og fremst við í bíóhúsum, en þau eru líka
leikhús, að minnsta kosti kallar enskurinn þau stundum
movie theatres. Afgangs popp og gosdrykkir eru ekki
beinlínis það notalegasta að hafa neðan á skónum þeg-
ar maður ætlar að njóta þess að horfa á góða kvik-
mynd. Ef til vill þurfa bíóhús að hafa fleiri ruslatunnur,
svo að þetta verði þægilegra. Sleppum því að henda
rusli á gólfin.
Rusl í ruslafötur
Göngum inn í sætaröð með bros á vör, snúum að þeim sem
standa upp fyrir okkur. Þannig gefst okkur færi á að biðjast
afsökunar, eða þakka fyrir eða bjóða að minnsta kosti góð-
an dag eða gott kvöld.
Um daginn sat ég úti á enda í sætaröð í leikhúsi þegar
maður nokkur stóð allt í einu við hliðina á mér og horfði á
sætið sem hann ætlaði að setjast í. Vissulega skildi ég að
hann ætlaðist til að ég stæði upp og það var auðvitað alveg
sjálfsagt. Á hinn bóginn hefði verið viðkunnanlegra ef hann
hefði gert mér viðvart, jafnvel þakkað fyrir sig og ekki otað
að mér óæðri endanum þegar hann gekk inn í sætaröðina.
Bros á vör
Hlæjum dátt eða grátum eftir atvikum, en munum samt
að það eru fleiri í salnum en við sjálf. Allajafna er hlát-
urmilt fólk dásamlegir áhorfendur og getur jafnvel breytt
meðalsýningu í afbragðsskemmtun með sínum smitandi
hlátri. Aftur á móti höfum við misjafnan húmor og hlát-
ursdúkkur sem geta ekki hamið sig á sorglegustu stöðum
geta spillt áhrifunum fyrir öðrum.
Hlæjum dátt