Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Side 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020 Á rni Bergmann man tímana tvenna þegar kemur að umræðum um stjórnmál, þjóðmál og menningu í þessu landi. Hann var barn að aldri þegar kalt stríð skall á í kjöl- far heimsstyrjaldarinnar síðari og þegar hann sneri heim til Íslands með MA-gráðu í rússnesku frá Moskvuháskóla upp á vasann höfðu átakalín- ur skýrst ennfrekar, jafnt hér heima sem erlend- is. Næstu áratugina var Árni í hringiðu þessarar umræðu og það kom því ekki á óvart að aðstand- endur uppfærslu Þjóðleikhússins á Atómstöðinni eftir Halldór Laxness skyldu kalla þá Styrmi Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðs- ins, til skrafs og ráðagerða fyrr í vetur enda eru líklega fáir núlifandi menn þess umkomnir að veita andrúmi kalda stríðsins af eins mikilli þekk- ingu og innsæi inn í hóp okkar sem yngri erum og munum þessa tíma ekki nema að litlu leyti og jafnvel alls ekki. Segja má að frétt um þennan fund gömlu rit- stjóranna með leikhúsfólkinu sé kveikjan að sam- talinu sem hér fer á eftir en Árni brást ljúflega við beiðni minni um að horfa um öxl, á átakalínur kalda stríðsins, og bera þær saman við heims- myndina eins og hún blasir við okkur í dag og horfa til framtíðar í heimi sem tekið hefur rót- tækum breytingum frá því hann gekk seinast út af Þjóðviljanum, þegar blaðið lagði upp laupana árið 1992. Ári eftir að Sovétríkin féllu. Enn ein vetrarlægðin er komin á kreik þegar við Ragnar Axelsson ljósmyndari tökum hús á Árna í Mosfellsbænum þetta síðdegi en hlýtt og notalegt innandyra í Hulduhólum listhúsi. Manni verður ósjálfrátt hugsað til njósnarans sem kom inn úr kuldanum í einni frægustu spennusögu kalda stríðsins, eftir John Le Carré. Ekki svo að skilja að við RAX komum í annarlegum tilgangi; hér er allt uppi á borðinu. Við komum okkur fljótt að efninu enda stendur ekki á Árna þegar kalda stríðið er annars vegar. Hann leggur upp með tvö hugtök, ótta og vonir. Klauf þjóðina í tvennt „Bandaríski herinn og afstaðan til hans varð snemma að máli málanna hér á landi í kalda stríðinu og klauf þjóðina í tvennt,“ byrjar Árni og bætir við að sameiginlegur ótti hafi gripið marga; óttinn við nýja styrjöld, ekki síst vegna þess að kjarnorkuvopn voru komin fram á sjónarsviðið. „Seinni heimsstyrjöldinnni var nýlokið en ekki leið á löngu uns þjóðirnar sem sigruðu Hitler og nasismann voru komnar í hár saman. Það vakti mönnum ugg og óttinn við nýja styrjöld varð leiðandi stef gegnum mest allt kalda stríðið. Þessi höfuðótti var ólíkur eftir því hvort horft var á stöðuna frá vinstri eða hægri. Hægrimenn voru hræddir við Sovétríkin og valdarán þeirra í Aust- ur-Evrópu en hinir róttæku óttuðust Bandaríkin og yfirráð þeirra sem þeir töldu að kæmu í veg fyrir að samfélög gætu breytt sér. Þessar átaka- línur urðu snemma mjög skýrar,“ segir Árni. Hér heima segir hann óttann við bandarísk áhrif hafa blandast saman við þjóðernisumræð- una enda Ísland nýorðið sjálfstætt lýðveldi og mörgu ósvarað um stöðu þess í heiminum. „Menn fóru að vinna hjá hernum, fyrst Bretum en síðan Bandaríkjamönnum, og vinstrimenn og margir fleiri reyndar voru ekki í neinum vafa um að það hefði haft djúpstæð áhrif á siðferði þjóð- arinnar. Menn töldu að siðferðinu hefði stórlega hnignað hvað sem leið augljósum áhrifum hers- ins á atvinnulíf og velmegun í landinu. Talað var um hernám hugarfarsins og því haldið fram að Íslendingar væru orðnir háskalega háðir um- svifum hersins og fyrir vikið misst allan sjálf- stæðan vilja og metnað. Magnús Kjartansson rit- stjóri skrifaði oftar en ekki um þetta í Þjóðviljann og spáði því reyndar að hersetan sem Morg- unblaðið kallaði framan af illa nauðsyn yrði svo sjálfsögð að jafnvel þótt Ameríkanar vildu sjálfir fara burt með her sinn síðar meir myndu ráða- menn þjóðarinnar grátbiðja þá um að vera áfram. Og sú spá rættist. Segja má að hífaður kunningi minn, sem kom einu sinni að máli við mig, hafi talað fyrir munn margra þegar hann sagði að herinn væri það versta sem hefði komið fyrir þessa þjóð; hann hefði gert okkur öll að aumingjum. En úr því hann væri hérna væri um að gera að láta hann borga!“ Haldnir sögulegri bjartsýni – En við hvað tengdu menn vonir sínar og vænt- ingar í kalda stríðinu? Var eitthvað sem samein- aði menn í því tilliti? „Menn voru haldnir sögulegri bjartsýni,“ svar- ar Árni. „uppgangur var mikill og menn höfðu óbifandi trú á hagvexti, menntun og tækni- framförum, svo fátt eitt sé nefnt, og tengdu þessa þætti vitaskuld við sína pólitík. Fjórflokkurinn réði lengst af lögum og lofum í íslenskum stjórn- málum og almenningur lagði traust sitt á póli- tíska flokka; menn áttu þar heima og leiðtogar flokkanna voru eins og andlegir feður þeirra. Menn skipuðu sér í sveitir og áttu þar sitt heimili. Þessum sterku tökum flokkanna á þjóðlífinu fylgdi kannski hugsjónamennska og fórnfýsi – en líka spilling. Þegar menn komust til valda hikuðu þeir ekki við að mismuna fólki á vinnumarkaði og við ráðningu í embætti, eftir því hvar í flokki það stóð, og það sem meira var, gert var ráð fyrir þessu. Þetta stuðlaði að þröngsýni og neikvæðni. Það var sama hvaðan var horft, pólitískir and- stæðingar gátu ekki undir neinum kring- umstæðum haft rétt fyrir sér. Fyrir vikið varð kaldastríðsumræðan afskaplega grimm.“ Að sögn Árna var ýmsum brögðum beitt og nefnir hann í því sambandi Gallup-könnun sem gerð var árið 1955. „Niðurstöður hennar voru leyndarmál sem komst ekki upp fyrr en áratug- um síðar. Könnunin leiddi sumsé í ljós að nálægt 60% þjóðarinnar væru á móti herstöðinni. En það mátti auðvitað ekki spyrjast út,“ segir hann en þegar könnunin var gerð sat í landinu rík- isstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Ólafs Thors. „Í Atómstöðinni, sem kom út 1948, og í blaða- greinum talar Halldór Laxness um land- ráðamenn sem svipt hafi þjóðina gleðinni yfir því að vera þjóð en herstöðvarsinnar voru ekki síst iðnir við að hamast gegn öllum sem voru tvístíg- andi og settu sér það takmark að pólarisera þjóð- ina. Enginn mátti vera á móti báðum fylkingum; menn urðu að vera með annað hvort frelsinu sem Ameríkanar vildu helst einoka eða sósíalism- anum sem Sovétmenn töldu hvergi til í raun nema hjá þeim. Við þetta skapaðist ákveðin nauðhyggja og ekki mátti gagnrýna það aflið sem stóð mönnum nær því þá væru þeir að hjálpa handhöfum hins illa.“ Auðvitað hljóp skoðanaofstopinn einatt með menn í gönur, að sögn Árna, en það helgaðist ekki síst af því að menn tóku sínar lífsskoðanir af meiri alvöru en gengur og gerist þegar víglínur eru óskýrari. Skoðanaleysið er eitt það alversta sem til er, segir persóna í einni skáldsögu Hall- dórs Laxness og eflaust hafa margir verið til- búnir að skrifa upp á það.“ Nauðhyggjan gaf eftir Árni segir nauðhyggjuna hafa gefið eftir með tímanum. „Það tók svona tuttugu ár að vinda of- an af henni en með ókyrrðinni hjá unga fólkinu í heiminum, frá 1968 til 1970, fara menn að verða varir við vaxandi gagnrýni vinstrimanna á Sov- étríkin vegna mannréttindamála og yfirgangs þeirra í Austur-Evrópu og hjá borgaralega þenkjandi mönnum á Bandaríkin vegna Víet- namstríðsins og fleira. Þannig komu menn sér smám saman út úr nauðhyggjunni án þess að nýjar línur yrðu alveg hreinar. Ég man eftir að hafa hitt Matthías Johannessen, skáld og rit- stjóra Morgunblaðsins, á götu á þessum tíma og hann kvaðst mjög feginn því að „nú hafið þið meira svigrúm til að gagnrýna Sovétríkin og við til að gagnrýna Ameríkana“.“ Glíman tók á sig ýmsar myndir og til marks um andrúmsloftið víkur Árni máli sínu að ónefndum karlaklúbbi sem enn er starfandi. Mælt var með inngöngu hans í klúbbinn en sam- kvæmt reglum þurftu allir meðlimir að vera inn- göngunni samþykkir. Svo var ekki í tilviki Árna og var honum því hafnað. Sama máli gegndi um Sigurð A. Magnússon, rithöfund og Morg- unblaðsmann á svipuðum tíma. „Menn voru dauðhræddir að hrófla við einhverju ímynduðu jafnvægi. Á endanum var þó gerð málamiðlum um að hleypa okkur Sigurði inn á sama fundi,“ segir Árni og brosir. Þótt átakalínur væru svona skýrar hafði ná- lægðin í litlu samfélagi tilhneigingu til að milda nokkuð andstæður. „Við Íslendingar erum ýmist frændur, skólabræður eða úr sama sveitarfé- laginu. Nú eða höldum með sama íþróttafélaginu. Þannig er persónuleiki hvers og eins nokkurs- konar tryggðakerfi og menn spiluðu úr þessu eft- ir bestu getu. Hver af þessum tryggðaböndum eru sterkust? Þau pólitísku, fjölskyldan, upprun- inn nú eða bara Valur eða KR? Það er svo margt sem getur skipað manni í sveitir í þessu lífi.“ Eins og menn þekkja þá drógust menningin og bókmenntirnar inn í nauðhyggjuna. „Margir áttu erfitt með að viðurkenna Halldór Laxness áður en hann fékk Nóbelsverðlaunin. Eftir það vildu allir vera vinir hans. Strákar sem voru með mér í heimavist í Reykholti og síðar á Laug- arvatni vildu alls ekki lesa bækurnar hans þótt þeir hefðu mætur á skáldskap vegna þess að þeim þótti hann fara með níð um bændamenn- inguna og fleira gott,“ segir Árni en þess má til gamans geta að hann var fyrsti stúdentinn sem brautskráður var frá Laugarvatni enda fremstur í stafrófinu í fyrsta útskriftarhópnum, 1954. Úrkynjun gegn lævísi Annað gilti um gamla góða ljóðið sem tók óvænt upp á þeim ósköpum að slíta sig úr fjötrum stuðla og höfuðstafa. Atómskáldskapur kallaðist hið nýja form, kennt við téða skáldsögu Laxness. „Í þeim efnum skipuðu menn sér í grunninn ekki í sveitir eftir pólitískum skoðunum, heldur kynslóðum,“ segir Árni. „Eldra fólk vildi halda áfram að yrkja eftir viðurkenndum bragháttum en yngra fólkið sagði „rímbullinu“ stríð á hendur. Einhver brögð voru þó að því að þeir sem voru á móti atómskáldskap tengdu ljóðbyltinguna við andstæðinga sína í pólitík. Hann var þá borg- Umræðan var afskaplega grimm Heimurinn var um margt svarthvítur á tímum kalda stríðsins, við og þeir, frjálshyggja og sósíalismi, en þrjátíu ár eru nú liðin frá lokum þess. Við blasir ný og flóknari heimsmynd. Hvernig lágu hinar alræmdu átakalínur á tímum kalda stríðsins og hvernig blasir staðan í dag við Árna Bergmann, rithöfundi, þýðanda og fyrrverandi ritstjóra Þjóðviljans, sem hertist í eldi kalda stríðsins og fylgist enn vel með þjóð- og heimsmálum? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Talað var um hernám hug-arfarsins og því haldið framað Íslendingar væru orðnirháskalega háðir umsvifum hers- ins og fyrir vikið misst allan sjálfstæðan vilja og metnað.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.