Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Blaðsíða 15
12.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Þ
ví fylgir alltaf eft-
irvænting að setjast í
sæti sitt í leikhúsi og
bíða eftir að tjaldið
verði dregið frá. Ef vel
tekst til gleymir áhorfandinn sér
um stund og sogast inn í sögu og
atburðarás sem leikin er beint fyr-
ir augum hans. Ekkert má fara
úrskeiðis því hér er ekkert sett á
pásu eða spólað til baka. Full-
skapað leikverk birtist á sviðinu
en að baki liggja ótal vinnustundir
og mörg handtökin. Það þarf að
smíða leikmynd, sauma búninga,
hanna ljósin og læra rullur. Og
æfa, æfa, æfa. Fyrir hverja sýn-
ingu þarf svo að fara í búninga,
setjast í förðunarstólinn, greiða
hár og snyrta skegg, svo eitthvað
sé nefnt.
Brostnar vonir og húmor
Leikhúsið býr sannarlega yfir
töfrum, bæði á sviði og baksviðs.
Fæstir fá þó að skyggnast á bak
við tjöldin en þau forréttindi fékk
ljósmyndari í vikunni. Þar ríkti
gleðin ein því það styttist í stóru
stundina; sjálfan frumsýning-
ardaginn. Leikstjórinn Brynhildur
var á hlaupum að fínpússa og fara
yfir síðustu atriðin með leik-
urunum og það var létt yfir henni.
Það var mikið spjallað og hlegið,
bæði á kaffistofunni og í smink-
herberginu. Annað slagið heyrðist
í hátalarakerfinu: „Tuttugu mín-
útur í sýningu. Fimmtán mínútur í
sýningu.“
Leikarar tíndust inn á svið og
ljósmyndari elti. Nokkrir tugir
áhorfenda voru mættir á rennslið
og ljósmyndari dreif sig út í sal
áður en tjaldið lyftist. Áður en
varði var athyglin öll á sviðinu.
Vanja frændi er eitt af stóru
meistaraverkum Antons Tsjékhovs
og af mörgum talið það skemmti-
legasta en það er þrátt fyrir
brostnar vonir og sorg stútfullt af
húmor og léttleika. Leikarar stigu
ekki feilspor en þarna má sjá
glæsilegan hóp vel þekktra leikara
sem sýna hvað í þeim býr. Ekki
var annað að sjá en að áhorfendur
kynnu vel að meta þetta gamla
meistarastykki. Því þrátt fyrir að
sagan sé yfir aldar gömul er
manneskjan alltaf söm við sig,
með sínar langanir, þrár og
breyskleika.
Morgunblaðið/Ásdís
Jóhann og Margrét Helga tóku sig vel út. Brynhildur leggur línurnar fyrir leikarana.
Brynhildur og Valur Freyr slá á létta strengi á kaffistofunni.
Töfrar byrja
baksviðs
Borgarleikhúsið frumsýnir nú meistaraverkið
Vanja frænda eftir Anton Tsjékhov í leikstjórn
Brynhildar Guðjónsdóttur. Ljósmyndari fékk að
vera fluga á vegg í vikunni og fylgdist með
undirbúningi og rennsli.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Sigrún Edda Björnsdóttir og Valur Freyr á sviðinu.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Jóhann Sigurðarson og Unnur Ösp Stefánsdóttir sjást hér á sviðinu í hlutverkum sínum.