Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Qupperneq 17
eftir ákvörðun um kosningar í Bretlandi sem taldar
væru þær æsilegustu í áratugi.
En á daginn kom, rétt eins og nú, að áhuginn á
hverju því sem snertir konungsfjölskylduna var enn
langt utan við öll þekkt og viðurkennd mörk í þessu
góða landi.
Viðtalið við prinsinn þótti hvorki vel heppnað eða
sannfærandi. Fjarri því. Og í rauninni mátti aldrei
gera ráð fyrir því að það gæti snúið neinu til jákvæðrar
áttar vegna eðlis umfjöllunarefnisins. En það breytti
engu. Viðtalið ýtti öllum fréttum fjölmiðla um kosn-
ingabaráttuna til hliðar í marga daga á eftir og það
þótt örstutt væri í kjördag. En óneitanlega hafði prins-
inn það þó upp úr krafsinu að viðtalsbeiðnin er úr sög-
unni og ekki óhugsandi að fyrning þessa fárs geti haf-
ist þótt hægt muni fara.
Traustabrestir eða fúi?
Þau Harry og Meghan hafa fram að þessu verið vinsæl
í Bretlandi og á þau bregður bæði birtu konungdæmis-
ins í bland við þá draumkenndu áru sem stafar enn frá
móður hans Díönu, sem Blair forsætisráðherra hóf
upp á stallinn sem „Prinsessu fólksins“ eftir sviplegan
dauða hennar.
Hin nýja kona sem Harry færði inn í umræðuna,
glæsileg „kynblönduð“ leikkona frá Bandaríkjunum,
varð ekki til að draga úr, þvert á móti. Henni var tekið
fagnandi. En unga parið virðist hafa fipast á síðustu
misserum. Þótt áhuginn á því sé enn mjög mikill á
„samfélagsmiðlum“ og víðar er fullyrt að velvild í garð
þeirra hafi minnkað nokkuð. Nú er oftar minnt á að
hertogaynjan sé fráskilinn Bandaríkjamaður. Það hafi
ekki farið vel síðast þegar þetta hafi verið reynt í höll-
inni. Sjálfsagt þýddi lítið að andmæla og benda á að
gallagripurinn sem réði því hvernig fór á þriðja ára-
tugunum hafi ekki síst verið heimamaðurinn sjálfur.
En hvað sem því líður situr frú Simpson uppi með að
hafa komið Játvarði áttunda undan krúnunni. Eða eins
og sagði í vísu í Morgunblaðinu á þeim tíma:
Simpson kemur víða við,
veldur breyttum högum.
Krúnurakar kvenfólkið,
karlmenn nú á dögum.
Fjúkandi reið
Blöðin hafa hvert af öðru slegið því upp að drottningin
sé „fjúkandi reið“ yfir einhliða yfirlýsingum parsins
um að það ætli sér að fjarlægjast opinberar skyldur
sínar og minnka um helming eða meir, en halda þó allt
að 95% af tekjum sínum frá konungsfjölskyldunni og
þá beint og óbeint frá almenningi.
Gjarnan er tekið fram að uppslátturinn um fjúkandi
illa drottningu sé ekki út í loftið. Því ónafngreindir
stórvesírar við hirðina hafi sagt að „drottningin hafi
orðið fyrir verulegum vonbrigðum“.
Þegar þau orð hinnar varfærnu hátignar séu færð
yfir á fjölmiðlamál af sérstökum fréttariturum um
konungdæmið þýði þau að drottningin sé reið og að öll-
um líkindum fjúkandi reið.
En þótt búið sé að flengja þessum meintu við-
brögðum drottningar yfir margar þverar forsíður
verður að hafa í huga að lengi er deilt um réttmæti
þess sem haft er eftir eðalkvenpeningi af þessu tagi.
Ein frægasta tilvitnun í langalangömmu Elísabetar
II. er setning Viktoríu: „We are not amused.“ „Oss er
eigi skemmt.“
Enn deila fræðimenn, svo ekki sé talað um fróða
leikmenn, um það af hvaða tilefni drottningin lét þessa
frægu setningu fjalla. Eru tilefnin sem nefnd eru til
sögu harla ólík og hafa reyndar mismikið fylgi fræði-
manna.
Reyndar er einnig deilt um það hvort drottningin
hafi átt við sig sjálfa með „We“ og því haldið fram af
sumum að vitnisburðir séu til um að hún hafi átt við að
engum þeirra sem voru í nærveru hennar það sinnið
hafi verið skemmt.
Og ekki eru nema 44 ár síðan Alice prinsessa, barna-
barn Viktoríu drottningar, þvertók sjálf fyrir það að
Viktoría hefði nokkru sinni látið þessi frægu orð út úr
sér.
Ný vísbending af gömlum meiði
En er þá nægjanlega örugg ástæða til þess að slá því
föstu að staða hinna fjölmiðlaglöðu fiðrilda konung-
dæmisins hafi versnað að mun og að sú sem allir
treysta sé bálill?
Það gæti verið, því að enn eitt merkið hefur bæst við
og bendir ótvírætt til sömu áttar. Það merki kemur frá
valinkunnri stofnun og gamalgróinni, sjálfri Madame
Tussaud.
Í gær bárust fréttir um að Madam Tussaud hefði
fært vaxstyttur af Harry og Meghan fjær styttum af
hinum í konungsfjölskyldunni sem enn njóta náðar.
Það þótti mörgum vera merki sem ekki yrði mis-
skilið. Madame Tussaud var stórmerkileg kona og
samtímamaður Viktoríu drottningar, þótt drottningin
væri mun yngri og um hálf öld á milli andláts þeirra.
Frú Tussaud lét gera fræga sýningu af krýningu
drottningarinnar 1837 sem fékk feikna athygli og vitað
er að drottningin „lét sig ekki vanta“ eins og nú er við-
kvæðið um allar samkomur. Madame Tussaud stóð sig
framúrskarandi vel sem viðskiptajöfur og er skínandi
merki um að velgengni kvenna í viðskiptum er ekki al-
gjörlega ný bóla.
Í ár verða liðin rétt 170 ár frá láti hennar og gerðu
samtök kvenna í atvinnulífinu vel í því að efna til hóp-
ferðar á hið stórgóða safn frúarinnar í Lundúnum í til-
efni tímamótanna. Yfirgnæfandi líkur eru á að hópur-
inn gæti kyrjað í kór að lokinni heimsókn:
Nú var Oss skemmt.
Og kannski væri gustuk að leyfa fulltrúum hins sí-
veikara kyns að fá að fljóta með, svo lengi sem laus
sæti finnast.
Því ekki?
Morgunblaðið/RAX
’
Allmargar fréttastofur hafa fullyrt að
þegar eldflaugaárásir Írana á herstöðvar
Bandaríkjanna í Bagdad hófust hafi sam-
tímis verið ræst „sjálfstýring“ á kerfi varnar-
flauga um flugvöll höfuðborgarinnar. Sú full-
yrðing hljómar þó sem hreinn fáránleiki að
setja varnarkerfi flugvallarins á sjálfstýringu
og hafa völlinn áfram opinn fyrir
almennri flugumferð.
12.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17