Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Side 18
svítur, tvö einstaklings-
herbergi og tíu tveggja
manna herbergi. Á hótelinu
er veitingastaður, hestaleiga
og á næsta ári verður opnuð
þar baðstofa.
„Öll herbergin eru mis-
munandi að lögun og útliti.
Ég vildi að gestir gætu kom-
ið ár eftir ár og valið um
mismunandi herbergi og fengið nýja upplifun
í hverri ferð. Bestu meðmælin eru þegar
gestir vilja helst ekki yfirgefa hótelið og
framlengja dvölina, en það er býsna algengt.
Mér þótti mikilvægt að allt á hótelinu væri
einstakt fyrir hótelið. Ég hannaði því öll hús-
gögn og lét smíða hér bæði hér heima og er-
lendis. Minnstu smáatriði skiptu máli og ég
lét framleiða hnífapör sérstaklega fyrir hót-
elið, einnig hannaði ég gólfteppi í anda hót-
elsins,“ segir hún.
Það er mikið að gerast í hverju rými. Hver
er galdurinn við að blanda saman ólíkum efn-
um og áferð án þess að það verði of mikið?
„Það er mikilvægt að sama þema haldi sér í
gegnum allt hótelið og það sé samræmi í
hönnuninni. Allt þarf að lokum að tóna sam-
an. Grunnurinn í öllum herbergjum er sá
sami, gegnheilt eikarparket með fiskibeina-
munstri, öll loft eru máluð í sama lit og bað-
herbergin öll eins. Þegar ég hanna þá er ég
mjög fljótlega búin að sjá fyrir mér hver
lokaniðurstaðan er, hvernig verkefnið kemur
til með að líta út fullgert. Stundum virðist
litavalið vera úr öllu samhengi, en málararnir
eru farnir að þekkja mig og vita að þegar allt
er komið saman var ástæða fyrir að ég valdi
þennan ákveðna lit. Breytingar eru kostn-
aðarsamar og það er mikilvægt að vera með
allt fyrir fram ákveðið þannig að það þurfi
ekki að gera kostnaðarsamar breytingar á
verkferlinu,“ segir hún.
Til þess að fullkomna heildarmyndina fór
Elín utan ásamt eigendum hótelsins þar sem
það sem vantaði upp á var keypt.
„Við keyptum veggfóður og alla inn-
anstokksmuni fyrir hótelið mörgum mán-
uðum áður en vinna að innan hófst. Hús-
gögnin voru valin í hvert herbergi fyrir sig í
þeim lit sem passaði við lit á málningu, vegg-
fóður, efni á rúmbotnum, púðum, gardínum
og ábreiðum. Að lokum voru eigendur og við-
skiptavinir ánægðir með útkomuna og það er
það sem skiptir mig mestu máli.“
Áður en Elín hannaði Skálakot hannaðihún veitingastaðinn Fákasel. Þegar eigendur Skálakots, Guð-
mundur og Jóhanna, komu á þann veit-
ingastað höfðu þau samband og báðu Elínu
að hanna fyrir sig hótel.
„Sveinn Ívarsson hannaði húsið sem passar
fullkomlega inn í umhverfið. Þegar ég keyrði
upp að byggingunni og áður en ég kom inn í
hana vissi ég hvaða stefnu ég vildi taka varð-
andi innanhússhönnun. Þeirra hugmyndir og
mínar fóru vel saman og hófst farsælt sam-
starf sem stendur enn yfir. Hönnunin er í
gamaldags stíl sem hæfir húsinu og staðsetn-
ingunni. Markmiðið var strax í upphafi að
gestir upplifðu að þeir væru staddir á íslensk-
um sveitabæ. Það er mikil áhersla á rólegt og
afslappað andrúmsloft í fallegu umhverfi.
Hótelið er „boutique“ hótel sem felur í sér
að það eru fá herbergi á hótelinu, lúxus og
mikið lagt upp úr hönnun og upplifun. Þegar
ég tók við hönnuninni var hótelið, sem er ný-
bygging, tilbúið til innréttingar. Það fólst því
mikil áskorun í að hanna hótelið í gamla stíln-
um og finna innanstokksmuni sem pössuðu
inn á hótelið,“ segir Elín.
Á hótelinu eru alls fjórtán herbergi, tvær
Hér er herbergið
málað í blágráum lit.
Loftin eru hvít með
svörtum bitum.
Mikið lagt upp úr
hönnun og upplifun
Elín Þorsteinsdóttir innanhússarkitekt fékk það verkefni að hanna hótelið Skálakot sem er við
Hvolsvöll. Gamaldags stíll ræður ríkjum á hótelinu og er hlýleikinn í forgrunni.
Marta María mm@mbl.is
Elín
Þorsteinsdóttir
Í þessu glæsilega herbergi er
hægt að liggja í baði og hafa
það huggulegt á meðan.
Munstraðar gólfflísar
og veggfóðraðir
veggir fara vel saman.
Herbergin
á hótelinu
eru hlýleg.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020
LÍFSSTÍLL
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
60%AFSLÁTTUR
ALLT AÐÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN