Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Síða 20
Sandra Björg Helgadóttir ersannarlega jákvæð og orku-mikil kona sem veit hvað hún
vill. Hún féllst á að hitta blaðamann í
vikunni og segja frá sínum hugðar-
efnum; líkamlegri og andlegri heilsu.
Sandra er með BS-próf í iðnaðarverk-
fræði og hyggur á MBA-nám í haust
en þessa dagana þjálfar hún fólk,
dansar og heldur námskeið og fyrir-
lestra.
„Eftir námið vann ég lengi hjá Öl-
gerðinni í viðskiptatengdum verk-
efnum, lengst af í markaðsdeildinni,
og fann að það átti betur við mig en
það sem ég lærði í verkfræðinni, þótt
námið sé vissulega góður grunnur.
Ég hætti hjá Ölgerðinni fyrir jól, en
hafði reyndar hætt áður fyrir tveimur
árum, þegar ég stofnaði Absolute
Training. Sú sem tók við af mér varð
svo fljótlega ólétt svo ég fór til baka í
Ölgerðina eftir árs pásu. Síðasta árið
var ég því í 200% vinnu,“ segir
Sandra og hlær.
Hræðileg í fótbolta
Sandra segist hafa stundað hreyfingu
allt sitt líf. „Mamma og pabbi voru
dugleg að láta okkur systkinin prófa
allt. Mamma gæti örugglega sagt þér
hversu vandræðalegt það var að
standa á hliðarlínunni og horfa á mig
spila fótbolta. Ég var hræðileg í fót-
bolta,“ segir hún og brosir.
„Ég er mjög léleg í svona átökum,
eins og átökum um boltann. Ég lét
andstæðinginn gjarnan bara hafa
hann,“ segir hún hlæjandi.
„Ég dáist að foreldrum mínum fyr-
ir að hafa látið mig prófa mig áfram
endalaust en það var ekki fyrr en ég
fór í fimleika og dans að ég fann mína
hillu. Ég bjó sem barn í Danmörku og
fór þar níu ára gömul í fimleika. Þeg-
ar ég kom heim ellefu ára var það
dansinn sem heillaði og ég fann mig
vel hjá Stellu Rósinkranz og hef elt
hana síðan ég var unglingur. Hún er
einn flottasti dansari sem við eigum,“
segir hún.
„Ég hef verið að æfa hjá henni og
kenna síðan 2008. Ég var að byrja aft-
ur að kenna dans núna í nóvember
eftir smá pásu. Ég og vinkona mín
Tara Sif Birgisdóttir kennum nám-
skeið sem heitir Dans Fit og er kennt
í Dansstúdíói World Class. Við erum
með sömu rútínu í byrjun, upphitun,
en kennum svo alltaf nýjan dans í
hverri viku. Þá er dansað í fjörutíu
mínútur og svitnað!“ segir hún.
„Dansinn hefur haldið mér á hreyf-
ingu en ég hef líka verið í herþjálfun,
crossfit og svo hef ég kennt spinning
lengi. Ég féll mest fyrir spinning, fyr-
ir utan dansinn.“
Hvað er svona gaman við það að
sitja á hjóli inni í sal?
„Fyrir mér er það tónlistin og takt-
urinn. Ég er alin upp við mikla tónlist.
En ég man að þegar ég fór í fyrsta
spinningtímann minn hugsaði ég að
ég færi aldrei aftur. Ég held að flestir
upplifi það. Maður þarf að komast yf-
ir það tímabil að hata spinning, því
fyrst hatar maður það en fær svo
fíknina,“ segir hún og hlær.
Endar með tryllingi
Dansinn hefur alltaf verið eitt af því
skemmtilegasta sem Sandra veit og
var hún því ekki lengi að ákveða að
skella sér í prufur hjá Rigg-
viðburðum þegar auglýst var eftir
dönsurum í Tinu Turner-heiðurssýn-
ingu sem sett var upp í Hörpu og á
Akureyri vorið 2015. „Við vorum á
endanum fjórar sem vorum valdar til
að dansa. Þetta var sýning með fimm
söngkonum og fjórum dönsurum og
heilli hljómsveit,“ segir Sandra, en
ein af söngkonunum, Bryndís Ás-
mundsdóttir, hélt áfram að koma
fram í einkaveislum og syngja lög
Tinu. Sandra og Tara Sif fylgja henni
sem dansarar.
„Við höfum verið á árshátíðum,
þorrablótum, brúðkaupum og alls
kyns veislum að skemmta í fjögur,
fimm ár. Þetta hefur gengið mjög vel
og er það skemmtilegasta sem ég geri
í lífinu! Á tímabili var ég farin að
vinna allt of mikið og setti mér þá
reglu að vinna ekki um helgar, en
þetta er eina undantekningin. Þetta
er ekki eins og vinna af því þetta er
svo gaman. Bryndís er svo ótrúleg að
hún fær alla með sér í stuð; það endar
alltaf með að það tryllist allt, jafnvel á
elliheimilum,“ segir hún og hlær.
„Hún nær öllum upp úr sætinu; al-
gjör orkusprengja. Á næstu mán-
uðum erum við bókaðar í átta sýn-
ingar, þannig að það er nóg að gera.“
Andleg og líkamleg heilsa
Góð líkamleg heilsa er gulli betri en
Sandra vildi finna leið til að geta unn-
ið með líkamlega og andlega heilsu
samtímis. Hún fann því upp á pró-
Hin tæplega þrítuga
Sandra Björg Helga-
dóttir hefur komið víða
við þegar heilsan er
annars vegar. Dans,
spinning, crossfit, jóga,
líkamsrækt og andleg
heilsa er efst á blaði.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ljósmynd/Helgi Ómarsson
Dansinn það skemmtilegasta
Sandra og Tara Sif hafa dansað í Tinu Turner-sýningu þar sem Bryndís Ás-
mundsdóttir syngur lög Tinu og heldur uppi svaka stemningu.
„Dansinn hefur
haldið mér á hreyf-
ingu en ég hef líka
verið í boot-camp,
crossfit og svo hef
ég kennt spinning
lengi. Ég féll mest
fyrir spinning, fyrir
utan dansinn,“ seg-
ir Sandra Björg.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Opnaðu
fyrir hönnun á heimilið
Randi hurðarhúnarnir eru
margverðlaunaðir fyrir ný-
sköpun, stílhreina hönnun
og gæði. Hönnunin byggir
á gömlum grunni, en Randi
var stofnað í Danmörku árið
1878. Fjölmargar þekktar
hönnunarstofur hafa komið
að hönnun hurðarhúnanna,
meðal annars AART
designers, Friis & Moltke
og C.F. Møller.
Randi Komé
Svartur
Hönnuður: C.F. Möller
Randi Komé
Kopar
Hönnuður: C.F. Möller
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS