Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2020
LESBÓK
LOFTSLAGSMÁL Heitar umræður hafa spunnist á
samfélagsmiðlum eftir að gamla rokktröllið Meat Loaf,
eða Kjöthleifur, greindi frá því í samtali við breska blað-
ið Daily Mail á dögunum að hann fyndi til með loftslags-
frömuðinum Gretu Thunberg vegna þess að hún hefði
verið heilaþvegin. Thunberg svaraði um hæl á Twitter
og sagði loftslagmál hvorki snúast um sig, Kjöthleif né
stjórnmál. Þau snerust um vísindalegar staðreyndir.
Undir þau ummæli tók dóttir söngvarans, Amanda
Aday, og bætti við að hún deildi ekki sjónarmiðum hans
í loftslagsmálum. Gamli leðurbarkinn og Íslandsvin-
urinn Sebastian Bach, sem í eina tíð var í Skid Row,
greip þann bolta á lofti og sagði að það væru þeir sem
tryðu ekki á loftslagsbreytingar sem væru heilaþvegnir.
Vorkennir Thunberg
Kjöthleifur
hress að vanda.
AFP
KVIKMYNDIR Kristen Stewart fær glimr-
andi góða dóma í breska blaðinu The Guardi-
an fyrir túlkun sína á stallsystur sinni Jean
Seberg í kvikmynd um líf þeirrar síðar-
nefndu sem kallast einfaldlega Seberg. Sér-
stök áhersla er á tímabilið þegar leikkonan
studdi hin róttæku samtök Black Panthers og
átti í sambandi með aðgerðasinnanum Hakim
Jamal sem Anthony Mackie leikur. Rýni þyk-
ir myndin sjálf, sem Benedict Andrews leik-
stýrir, á hinn bóginn missa marks; segir hana
um margt gallaða og gefur henni aðeins tvær
stjörnur af fimm mögulegum. The Independ-
ent gefur sömu einkunn.
Stewart þykir góð sem Jean Seberg
Kristen Stewart kemst vel frá sínu í myndinni.
AFP
Courteney Cox hefur engu gleymt.
Cox í Modern
Family
Sjónvarp Courteney Cox, sem
frægust er fyrir að hafa leikið Mo-
nicu í hinum ástsæla gamanþætti
Vinum, mun bregða fyrir í lokaserí-
unni af Modern Family, öðrum vin-
sælum bandarískum gamanþætti
sem mun renna sitt skeið á enda á
árinu sem er nýhafið. Mun hún þar
leika sjálfa sig, ef svo má að orði
komast, í senu þar sem sparkgoðið
David Beckham kemur einnig við
sögu. Lítið hefur farið fyrir Cox
undanfarin ár en í fyrra átti hún þó
stórleik sem áfengissjúk leikkona í
spédramanu Shameless. Beckham
hefur ekki verið þekktur fyrir
leiksigra fram að þessu en mögu-
lega breytist það nú. Eða ekki.
Ég kom fyrst að þessu verkefnisem framleiðandi fyrir umtveimur árum og hef verið
mjög virkur í öllu ferlinu síðan. Það
var því mjög skemmtilegt að fá tæki-
færi til að spreyta sig sem leikstjóri
líka,“ segir Davíð Óskar Ólafsson en
hann leikstýrir þáttum þrjú og fjög-
ur í glæpaseríunni Broti og er sá
seinni á dagskrá RÚV í kvöld,
sunnudagskvöld.
Það er Þórður Pálsson kvik-
myndaleikstjóri sem á hugmyndina
að Broti en hann leikstýrir sjálfur
fjórum þáttum af átta. Þriðji leik-
stjórinn er Þóra Hilmarsdóttir.
„Þórður talaði upphaflega við fram-
leiðslufyrirtækið Truenorth en þar
sem við hjá Mystery Productions
höfum verið í samstarfi við þá und-
anfarin fjögur ár þá kom ég snemma
inn í verkefnið sem framleiðandi.
Meðal þess sem ég tók þátt í var að
þróa söguna ásamt fleirum sem var
mjög skemmtileg vinna. Eins hæfi-
leikaríkur og Þórður er þá er hann
að stíga sín fyrstu skref í faginu og
þess vegna var ákveðið að fá fleiri
leikstjóra að borðinu, eins og tíðkast
með sjónvarpsseríur, bæði hér
heima og erlendis. Nokkrir leik-
stjórar hafa til dæmis skipt Ófærð-
Viljum hafa
fyrir hlutunum
Davíð Óskar Ólafsson, sem leikstýrir tveimur
þáttum af Broti og er einn af framleiðendum serí-
unnar, hefur tröllatrú á verkefninu og vonar að
viðtökur erlendis verði til þess fallnar að opna
fleiri dyr fyrir vandað íslenskt sjónvarpsefni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Nína Dögg Filippusdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Björn Thors í Broti.
Það er skammt stórra högga á milli hjá Davíð og Mystery Produc-
tions en nýjasta myndin sem fyrirtækið framleiðir, Gullregn eftir
Ragnar Bragason, var frumsýnd á föstudaginn. Hann er bjartsýnn á
viðtökur. „Á forsýningunni sat ég úti í sal í fyrsta skipti á mynd sem
ég framleiði og viðtökur voru vonum framar; mikið var hlegið og
meira en maður bjóst við. Gullregn gæti hæglega gert góða hluti.“
Spurður um útrás þess verkefnis upplýsir Davíð að leit standi nú
yfir að sölufyrirtæki. „Við vildum bíða þangað til myndin yrði tilbú-
in áður en við héldum af stað í þá vegferð en erum nú byrjaðir að
senda hana á erlend sölufyrirtæki. Annar möguleiki er sá að við
gerum þetta sjálfir. Við sjáum hvað setur.“
Næsta sjónvarpsverkefni Mystery er væntanlega Fangar 2. Hand-
rit er svo gott sem tilbúið, að sögn Davíðs, og unnið er að því að
klára fjármögnun. Þá eru þrjár kvikmyndir í pípunum hjá fyrir-
tækinu: Konur eftir skáldsögu Steinars Braga í leikstjórn Þóru
Hilmarsdóttur; The Hidden í leikstjórn Þórhalls Sævarssonar en sú
mynd verður á ensku en tekin upp hér á landi; og loks er það mynd
eftir Davíð sjálfan, sem hefur vinnuheitið Midnight en ekki liggur
fyrir hvort hún verður á íslensku eða ensku.
Bjartsýnn á gengi Gullregns
Útivist &
ferðalög
innanlands
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir mánudaginn 27. janúar.
SÉRBLAÐ
Glæsilegt sérblað um Útivist
og ferðalög fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 31. janúar
Meira fyrir lesendur