Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Síða 29
arseríunum á milli sín,“ segir Davíð.
Ýmsir komu til álita en það var yf-
ir hádegisverði á Múlakaffi að Þórð-
ur og Davíð horfðu hvor á annan og
mæltu svo til samstundis: En þú? En
ég? „Eftir á að hyggja blasti það við.
Ég var búinn að vera á kafi í verk-
efninu í tvö ár, þekkti efnið út og inn
og vissi nákvæmlega hvert Þórður
vildi fara með það. Mér leið aldrei
eins og ég væri að leikstýra annarra
manna verkefni,“ segir Davíð, sem
leikstýrði meðal annars kvikmynd-
inni Bakk ásamt Gunnari Hanssyni
árið 2015.
Á að vera afþreying
Davíð segir það alls ekki hafa verið
flókið að vera með bæði leikstjóra-
og framleiðandahattinn í Broti enda
hafi aðstandendur seríunnar frá
upphafi gengið í takt og vitað hverju
þeir vildu ná fram með henni. „Brot
á að vera afþreying. Popp og kók.
Tempóið er hraðara en við þekkjum
úr íslenskum glæpaseríum og okkur
fleytt hratt gegnum söguna.“
Að sögn Davíðs unnu leikstjór-
arnir þrír náið saman. „Við sátum
ófáar klukkustundirnar saman og
krufðum hvern þátt fyrir sig. Þetta
var samstillt átak og við Þóra kom-
um með hugmyndir fyrir þættina
sem Þórður leikstýrði og öfugt.
Þetta var virkilega gaman og gef-
andi. Þegar verklagið er með þess-
um hætti kemur hver leikstjóri
gjarnan með sinn tökumann en í
Broti hvíldi sú vinna öll á herðum
Árna Filippussonar. Það kom því oft
og tíðum í hans hlut að passa upp á
sjónrænu hliðina og Árni skilaði frá-
bæru verki.“
Davíð kveðst hæstánægður með
heildarútkomuna. „Við erum með
mjög sterkt efni í höndunum, ekki
síst vegna þess hversu vel við nostr-
uðum við söguna og góður tími var
tekinn í æfingar með leikurunum.
Tökur frestuðust um einn og hálfan
mánuð, sem var pirrandi á þeim
tíma, en þegar upp er staðið varð
það bara til þess að gera þættina enn
þá betri. Enn meiri tími gafst til æf-
inga og undirbúnings.“
Eins og fram hefur komið hefjast
sýningar á Broti í Bretlandi og Dan-
mörku áður en sýningum lýkur hér
heima, annaðhvort í janúar eða
snemma í febrúar. „DR og BBC
stefna að því að vera búin að klára
seríuna áður en hún kemur inn á
Netflix sem má setja hana í loftið frá
og með 1. mars. Það verður mjög
spennandi að sjá hvernig þáttunum
verður tekið erlendis.“
Allir vissu af Valhalla
BBC kynnti þættina sérstaklega á
vefsíðu sinni í desember og segir
Davíð það hafa haft mikil áhrif. „Ég
var nýlega á fundi með stórum að-
ilum úr sjónvarpsbransanum í Lond-
on og þar vissu allir um hvað maður
var að tala þegar Brot, eða The Val-
halla Murders, eins og serían kallast
ytra, bar á góma.“
Davíð er ekki í minnsta vafa um að
mikil sóknarfæri séu fyrir íslenskt
sjónvarpsefni erlendis, einkum
glæpaþætti. „Ófærð og Fangar hafa
plægt akurinn og nú er það undir
okkur komið að hamra járnið og
skila áfram góðu og söluvænlegu
efni, eins og Danir hafa gert und-
anfarin ár og misseri. Vonandi opnar
Brot fleiri dyr, ekki bara fyrir okkur
sem að þáttunum stöndum, heldur
íslenskt sjónvarpsefni almennt.“
Davíð segir seríur eins og Brot
þurfa að sækja um helming fjár-
magnsins til útlanda, eigi að halda í
þau viðmið sem sett hafi verið með
Óærð og Föngum. Í dag sé það vel
raunhæft en alls ekki sjálfgefið.
„Auðvitað viljum við frekar leggja
upp seríu og sækja svo ráðstöf-
unarféð í stað þess að laga seríu að
ráðstöfunarfénu. Þýskaland og
Frakkland eru stærstu markaðirnir
en eðli málsins samkvæmt kaupa
þau lönd ekki margar íslenskar serí-
ur á ári. Þess vegna þarf að leita
annað og það gengur alltaf betur og
betur. Netflix fjármagnar til dæmis
40% af Broti og ný sería Baltasars
Kormáks, Katla, verður að óbreyttu
fyrsta íslenska serían sem Netflix
fjármagnar að fullu. Það þýðir samt
ekki að einhver gullöld sé runnin
upp varðandi fjármögnun á íslensku
sjónvarpsefni erlendis. Þetta er enn
þá hark. Og verður. Möguleikarnir
eru hins vegar orðnir fleiri en áður.
Það hefur breyst. Annars má þetta
auðvitað ekki verða of auðvelt; er
það ekki eðli okkar Íslendinga að
vilja hafa fyrir hlutunum?“
Davíð Óskar Ólafsson
segir leikstjóra Brots
hafa unnið mjög náið
saman.
Morgunblaðið/RAX
12.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
GÓÐGERÐ Dee gamli Snider,
söngvari glysmálmbandsins Twisted
Sister, skellti sér í búninginn fræga
sem hann klæddist á albúmi plöt-
unnar Stay Hungry, sem kom út árið
1984, til að vekja athygli á skógar-
eldunum í Ástralíu. Þótti kappinn
taka sig vel út enda lítið breyst og
hefur ekki bætt á sig grammi í milli-
tíðinni. Fjöldi tónlistarmanna hefur
lagt lóð sitt á vogarskálarnar og gef-
ið fé til hjálparstarfsins í Ástralíu,
svo sem Metallica, Kylie Minogue og
Elton John.
Vekur athygli á skógareldunum
Dee Snider í 36 ára gömlum búningi.
Instagram
BÓKSALA 1.-7. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Ketóflex 3-3-1 Þorbjörg Hafsteinsdóttir
2
Almanak Háskóla
Íslands 2020
Þorsteinn Sæmundss./Gunn-
laugur Björnss./Jón Árni
3 Bettý Arnaldur Indriðason
4 Svínshöfuð Bergþóra Snæbjörnsdóttir
5 Bókmenntir í nýju landi Ármann Jakobsson
1 Leðurjakkaveður Fríða Ísberg
2
Til þeirra sem málið
varðar
Einar Már Guðmundsson
3 Mislæg gatnamót Þórdís Gísladóttir
4 Til í að vera til Þórarinn Eldjárn
5 Heiðin Bjarki Bjarnason
1
Dagbók Kidda klaufa 11
– allt á hvolfi
Jeff Kinney
2
Dagbók Kidda klaufa
– Randver kjaftar frá
Jeff Kinney
3 Ofurhetjur í einn dag Anna Guðrún Steinsen
4 Leitið og finnið – hvolpasveitin
5
Gurra grís – ég elska
þig mamma
Neville/Mark
6
Leyndarmál Lindu
– sögur af ekki-svo-góðri
ástarsorg
Rachel Renée Russell
7 Tímakistan Andri Snær Magnason
Allar bækur
Ljóðabækur
Barnabækur
Um daginn bankaði upp á heima
hjá mér ungur maður, Ægir Þór.
Hann sagðist vera farandskáld og
seldi mér nýjustu
ljóðabókina sína,
Bullið. Hún er
smellin. Mér
finnst til að
mynda óborg-
anlegt að geta
ekki tekið kvíða-
stillandi lyf af því
að þau valdi manni áhyggjum!
Ég sótti seinna upplestur hjá
honum til að fá bókina áritaða og
þar lásu fleiri ung-
skáld úr sínum
ljóðabókum.
Brynja Hjálms-
dóttir og Harpa
Rún Kristjáns-
dóttir hreyfðu
mest við mér og
ég keypti í kjölfar-
ið bækur beggja, Okfrumuna og
Eddu. Báðar fantagóðar, sér-
staklega sú síðarnefnda, enda
fengu þrír heppnir
hana frá mér um
jólin.
Ég er á leið til
Buenos Aires og
þess vegna hef ég
gluggað í smásög-
ur Jorges Luis
Borges. Sumar
þeirra eru of absúrd fyrir mig,
einkum þær sem eru skrifaðar
eins og bókmenntagagnrýni, en
þær sem hafa einhvers konar
þráð sem ég get greint og haldið í
finnst mér góðar. Hugmynda-
flugið er ævintýralegt.
Nýlega fengum við að hitta
George Clooney við kvikmynda-
tökur á Vatnajökli. Það lá því
beint við að lesa í kjölfarið bókina
sem myndin er byggð á, Good
Morning, Midnight. Hún gerist
annars vegar í geimfari og hins
vegar í afskekktri rannsóknarstöð
út við heimskaut. Á hvorugum
staðnum er nokkurt samband við
umheiminn og við höfum óljósa
hugmynd um að einhverjar skelfi-
legar hamfarir eða hörmungar
hafi riðið yfir jörð-
ina.
Talandi um
hörmungar þá hef
ég líka verið að
lesa dálítið um
áföll og mótlæti.
Leitin að tilgangi
lífsins eftir Viktor
Frankl, sem lifði af fangabúðir
nasista, er auðvitað fræg. Hann
var sálfræðingur og lagði höfuð-
áherslu á mikilvægi tilgangs, sem
hann sagði að gæti verið þrenns
konar: starf eða sköpun, upplifun
eða tengsl, eða að takast á við
þjáningu.
Umhugsunarvert! – Einnig las
ég bókina Dauðinn, sorgin og von-
in eftir danskan prest um hvernig
hann tókst á við að missa son
sinn, tengdadóttur og tvö barna-
börn í flóðbylgj-
unni á Taílandi.
Jólaskáldsög-
urnar hjá mér
voru Tilfinn-
ingabyltingin, Að-
ferðir til að lifa af
og Svínshöfuð,
sem eru allar góð-
ar en höfðuðu til mín í þeirri röð.
Ég teygaði síðan Skjáskot Bergs
Ebba af áfergju eins og hressandi
svaladrykk; hann er frábær penni.
Klopp er svo næstur á dagskrá!
ÓLAFUR TEITUR ER AÐ LESA
Skáld knúði dyra
Ólafur Teitur
Guðnason er
aðstoðar-
maður ferða-
mála-, iðnaðar-
og nýsköp-
unarráðherra.
Hugsum áður en við hendum!
www.gamafelagid.is 577 5757