Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2020
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Frá árinu 2014 hefur enski landsliðsmiðherjinn Harry
Kane skorað 133 mörk fyrir Tottenham Hotspur í ensku
úrvalsdeildinni; 85 fleiri en næsti maður á listanum, landi
hans Dele Alli. Það segir sig því sjálft að möguleikar liðs-
ins á því ná einu af fjórum efstu sætum deildarinnar og
þar með tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu
á næstu leiktíð hafa laskast eftir að upplýst var að mið-
herjinn yrði frá í allt að þrjá mánuði vegna meiðsla aftan
í læri sem hann varð fyrir í leik gegn Southampton á ný-
ársdag. Tottenham er nú í sjötta sæti. Ef marka má töl-
fræði sem Sky Sports tíndi til í vikunni minnka sig-
urlíkur Tottenham í leikjum um heil 9% ef Kanes nýtur
ekki við.
Kane mun missa af fjölda stórleikja fram á vorið; þeim
fyrsta strax um helgina, þegar Tottenham tekur á móti
meistaraefnunum í Liverpool. Hann mun einnig missa af
heimaleikjum gegn Manchester-liðunum tveimur og úti-
leik gegn Chelsea. Þá verður Kane fjarri góðu gamni
þegar Tottenham glímir við þýska liðið RB Leipzig í sex-
tán-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar og
mars. Hann ætti að verða klár í slaginn fyrir EM í sum-
ar.
Harry Kane kennir
sér meins aftan í læri
gegn Southampton.
Áhyggjurnar leyna sér
ekki í svip Deles Allis.
AFP
Mikið er mein, Kane
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham varð fyrir miklu áfalli á dögunum
þegar í ljós kom að Harry Kane verður lengi frá æfingum og keppni.
Breska konungsfjölskyldan var
milli tannanna á fólki fyrir rétt-
um aldarfjórðungi, líkt og nú.
Þá beindust spjótin að Karli
Bretaprins en í frétt Morg-
unblaðsins 12. janúar 1995 sagði
að hans biði áralangt stríð við
að bæta ímynd sína hygðist
hann skilja við Díönu prinsessu
og kvænast Camillu Parker
Bowles, sem þá var sjálf nýskil-
in, og verða kóngur jafnframt.
Var vitnað til manna sem fróðir
eru um málefni bresku kon-
ungsfjölskyldunnar.
„Breska stjórnarskráin kemur
ekki í veg fyrir að Karl verði
kóngur síðar meir þó svo hann
skilji við Díönu og kvænist Ca-
millu Parker Bowles,“ stóð í
frétt blaðsins. „Sérfróðum
mönnum þykir hins vegar, að af
slíkum ráðstöfunum verði ekki í
bráð, jafnvel ekki í áratug, þar
sem almenningur sé ekki á
þeim buxunum. Þó svo Karl sé
staðráðinn í að taka við kon-
ungstign þegar móðir hans kýs
að standa upp af valdastóli,
muni það ráðast alfarið af af-
stöðu almennings hvort eða
hvenær hann kvænist öðru
sinni. [...] Sumir eru reyndar á
því, að það eitt að ganga að
eiga Parker-Bowles gæti reynst
náðarhöggið.“
GAMLA FRÉTTIN
Kóngafólk
í klemmu
Eftir japl, jaml og fuður gekk Karl að eiga Camillu Parker Bowles árið 2005.
Reuters
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sanna Marin
forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Jacinda Ardern
forsætisráðherra