Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Blaðsíða 2
Hvar ertu staddur?
Ég er í vinnunni hér í keilusal í Höganäs í Svíþjóð þar sem ég bý og æfi.
Hvernig er lífið í Höganäs?
Það er ósköp rólegt, þetta er lítill bær í Suður-Svíþjóð. Það er lítið ann-
að en keilan sem kemst að.
Byrjaðir þú snemma að spila keilu?
Já, ég var bara smábarn. Pabbi vann við að laga keiluvélar þannig að
ef ég var ekki í leikskóla eða skóla var ég uppi í keilusal.
Hvað æfir þú mikið?
Svona fjórum til sex sinnum í viku. Það er misjafnt og fer eftir því
hvort ég er að ferðast og keppa á mótum úti í heimi.
Hefurðu keppt áður á RIG (Reykjavik International
Games)?
Já, tvisvar áður. Þessi mót eru að verða nokkuð sterk.
Ertu orðinn atvinnumaður í keilu?
Nei, ekki ennþá. Ég fæ ekki laun fyrir að spila keilu en það er ennþá mark-
miðið.
Hvað er svona skemmtilegt við keilu?
Hvað er ekki skemmtilegt við keilu? Strögglið og að vinna. Ég elska að lenda
í ströggli og bæta úr því.
Ertu mikið á ferð og flugi að keppa úti um allt?
Já, það má segja það.
Ertu í einhverju landsliði?
Ég er í íslenska landsliðinu. En oft er ég bara að keppa fyrir sjálfan mig.
Áttu þér önnur áhugamál?
Það fer mikill tími í keiluna en ég myndi segja enski boltinn!
Ljósmynd/Jóhann Ágúst Jóhannsson
ARNAR DAVÍÐ JÓNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Að ströggla
og vinna
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2020
Það er oft ótrúlega gaman að vera blaðamaður. Ég fæ tækifæri til aðhitta áhugavert, skemmtilegt og klárt fólk sem hjálpar mér að sinnaskyldum mínum við lesendur; að upplýsa, fræða og skemmta. Í vik-
unni hitti ég til að mynda tvo lækna, annan íslenskan og hinn bandarískan,
og tók ég viðtal við þann síðarnefnda um hinn sérkennilega sjúkdóm ME/
CFS, sem í gamla daga var kallað síþreyta og er að sumu leyti skylt vefja-
gigt, en þó ekki eins.
Alla vega, ég hvet ykkur til að lesa það viðtal í blaði dagsins og eins viðtal
við Svein Benediktsson, sem þjáist
af þessum vægast sagt leiðinlega
sjúkdómi. Það er ótrúlegt hversu lít-
ið er vitað um þennan sjúkdóm en
talið er að minnsta kosti 2% mann-
kyns séu haldin honum. Og enn fleiri
hafa ekki fengið greiningu og jafnvel
gengið á milli lækna svo árum skipti.
Með þessum viðtölum er ég nú
aðallega að upplýsa og fræða. Mögu-
lega verður það einhverjum til góðs
en ég get að minnsta kosti lofað að
efnið er bæði forvitnilegt og fræð-
andi.
Þá á ég alveg eftir að skemmta
ykkur! Geri það hér með.
Þannig var mál með vexti að í viðtalinu við bandaríska lækninn sat hinn ís-
lenski hjá, mér til halds og trausts. Eftir viðtalið gengum við niður stigann
og með okkur tókst létt spjall. Þar nefni ég að ég væri dóttir læknis. Lækn-
irinn vildi auðvitað vita hver það væri og að sjálfsögðu þekkti hann pabba.
Eftir að hafa borið mikið lof á föður minn heyrði ég þetta: „Er pabbi þinn
fiskur?“
Í eitt augnablik fannst mér spurningin frekar skrítin en svara glaðlega:
„Nei, hann er hrútur! Ég er hins vegar fiskur!“
Það kom smá hik á manninn, sem sagði svo: „Ég var bara að spyrja hvort
hann væri frískur.“
Ég skil þetta eftir hér. Verði ykkur að góðu.
Af hverju maðurinn hefði átt að spyrja að stjörnumerki föður míns upp úr
þurru er góð spurning. Af hverju mér datt í hug að svara, í stað þess að biðja
hann að endurtaka spurninguna; það er góð spurning. Af hverju ég var
svona glöð að hann nefndi fiskamerkið, það er góð spurning líka.
Ég skil ekkert í mér að hafa ekki bara líka sagt honum að synir mínir
væru meyja og krabbi. Og að mamma væri naut. Og svona líka alveg týpískt
naut.
Er pabbi þinn
fiskur?
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’ Í eitt augnablikfannst mér spurn-ingin frekar skrítin ensvara glaðlega: „Nei,
hann er hrútur! Ég er
hins vegar fiskur!“
Ólafur Sigurðsson
Já, mér finnst allur þorramatur
góður.
SPURNING
DAGSINS
Borðar þú
þorramat?
Camilla Stacey
Já. Lifrarpylsan er best en súrsað
selspik verst.
Gabríel Leó Ívarsson
Ekki allan, en ég borða alveg þorra-
mat. Borða alls ekki hrútspunga.
Mýra Jóhannesdóttir
Nei, ekki allan. Ég borða slátur en
ekki hákarl.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumynd úr einkasafni
Kristjáns Gíslasonar
ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
LauraStar Lift
Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ
Vinsælir sígildir
ljóðasöngvar
Kristín R. Sigurðar
& Arnhildur Valgarðs
26. janúar kl.16
Nánar á harpa.is/sigildir
RIG-leikarnir (Reykjavik International Games) fara nú fram í þrettánda sinn
dagana 23. janúar til 2. febrúar og skiptist dagskrá leikanna á tvær helgar. Arnar
Davíð Jónsson keiluspilari keppir á leikunum. Upplýsingar má finna á rig.is.