Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Page 17
skáldað upp og fréttamenn trúðu eins og nýju
neti, þrátt fyrir að sá maður hafi aldrei gefið til-
efni til þess að vera tekinn alvarlega. Þegar upp
komst upp um strákinn Schiff sagðist hann hafa
skáldað upp þetta samtal sem gamanmál af sinni
hálfu, eins og öllum hefði mátt vera ljóst!
Úr þingsal í dómsal
Nú hefur öldungadeild þingsins um stundarsakir
breytt sér í dómsal og forseti Hæstaréttar Banda-
ríkjanna gegnir stöðu þingforseta á meðan það
ástand varir. Hann leggur sig fram um að halda
aga í bekknum og vill að andrúmsloftið minni ör-
lítið meira á alvörudómsal en síður á hinn hefð-
bundna þvargsal þingsins. Þegar dómforsetinn var
búinn að fá upp í kok af þjarkinu setti hann ofan í
við talsmenn beggja flokka og fordæmdi það sem
hann kallaði „pettifogging“. Nokkrir þingmenn
ruku úr þingsalnum til að fletta orðinu upp í orða-
bók og sáu að það þýddi „merkingarlaus auka-
atriði“ og skynjuðu að forsetinn teldi að lunginn
af „röksemdum“ þingmanna snerist um merking-
arlaus aukaatriði.
Það myndi vera átakanleg lífsreynsla fyrir John
Roberts ef hann neyddist til að líta inn í þingsal-
inn við Austurvöll þar sem hver ræðan af annarri
er helguð „pettifogging“.
Engum í öldungadeilinni vestra dettur í hug að
neitt bitastætt muni koma út úr þessari skrítnu
saksókn til embættismissis sem demókratar hafa
verið með í burðarliðnum frá því að fyrir lá að
Trump hefði unnið kosningarnar í nóvember 2016.
Eina vonin sem binda má við þessa sviðsetningu
er að þingmenn geti dregið lærdóm alvörunnar af
aðkomumanninum í forsetastólnum.
Ítalska umræðan svíkur ekki
Stóru tíðindin í evrópskri pólitík síðustu daga eru
annars vegar þau að drottning Breta hefur undir-
ritað lög um útgöngu ríkisins úr ESB um næstu
mánaðamót og hins vegar að Luigi Di Maio, utan-
ríkisráðherra Ítalíu, hefur sagt af sér embætti
sem leiðtogi Fimmstjörnuhreyfingarinnar. Og það
er óneitanlega dálítið flott fyrir íslenska aðdá-
endur að sá sem tekur við flokksforystunni í 5-
stjörnunni til bráðabirgða heitir Vito Crimi. Án
þess að hafa nokkuð fyrir sér hefur maður gefið
sér að hann hljóti að vera ættaður frá þorpinu
Corleone á Sikiley.
Það hitnar undir samsteypustjórninni í Róm og
fari næstu héraðskosningar eins og spár gefa til-
efni til að ætla að þær geri gæti það oðið náð-
arhöggið. Þá gæti Bandalag Matteos Salvinis
fengið þær kosningar í gegn sem hann hefur góð-
ar væntingar um að myndu skola honum í stól for-
sætisráðherra. Þegar hafa 15 þingmenn 5-stjörn-
unnar yfirgefið þann flokk vegna óánægju með
samstarf flokksins við sósíalistana. Þá hafa nokkr-
ir þingmenn sósíalistanna sagt sig úr þeim flokki
vegna óánægju með samstarfið við „lýðskrum-
arana“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’Í Bandaríkjunum eru beinar útsendingarfrá sviðsetningu á leikriti demókrata íþinginu sem fjallar um tilraunir þeirra til aðbola forsetanum úr embætti níu mánuðum
áður en kjósendur fá sérstakt tækifæri til að
ákveða hvort þeiri vilji hafa hann áfram í
Hvíta húsinu.
26.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17