Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Side 18
Í stað þess að mála húsið var klæðn-
ingin brennd eftir eldgamalli japanskri
aðferð sem kallast „shou sugi ban“.
Ég lærði innanhússhönnun í Flórens á Ítalíu en flutti síð-an til Danmerkur til þess að læra arkitektúr í Kaup-mannahöfn. Ég útskrifaðist í janúar 2015 frá deild
sem kallast Transformation og vinnur með menningararf,
umbreytingar og endurbyggingar. Síðan ég kláraði mennta-
skóla hef ég ferðast mikið og búið í fleiri löndum, bæði í lengri
og skemmri tíma. Ég hef búið í Ekvador, Buenos Aires í Arg-
entínu, Flórens á Ítalíu, Corrubedo, litlum fiskibæ á Spáni og
í Kaupmannahöfn,“ segir Aldís.
Hún er sannfærð um að gæði umhverfisins hafi bein áhrif á
lífsgæði fólks. „Það eru ákveðnir staðir, bæði landslag, bæir
og rými þar sem manni líður strax eins og heima hjá sér og
aðrir staðir sem maður þarf tíma til að venjast áður en maður
getur slappað af. Ég hef verið upptekin af því að greina hvað
það er í umhverfinu sem gerir það að manni líður vel á þess-
um stöðum og þaðan kemur innblásturinn að nafninu á
teiknistofunni, Studio Heima.
Ég stofnaði Studio Heima í janúar 2017 með manninum
mínum, Casper Berntsen, sem er frá Borgundarhólmi. Borg-
undarhólmur á það sameiginlegt með Íslandi að vera mjög
vinsæll ferðamannastaður. Við þekkjum bæði jákvæðu og
neikvæðu hliðarnar á ferðamennsku. Í því samhengi höfum
við velt fyrir okkur hvaða áhrif fjöldi ferðamanna hefur á um-
hverfið og hvernig arkitektúr getur haft áhrif á að bæta upp-
lifun bæði heimamanna og ferðamanna,“ segir Aldís.
Aldís og Casperi stofnuðu Studio Heima árið 2017. Teikni-
stofan er í Kaupmannahöfn en hjónin eru alltaf með annan
fótinn í verkefnum á Íslandi.
Umhverfið hefur
áhrif á almenna líðan
Aldís Gísladóttir arkitekt rekur arkitektastofuna Studio Heima ásamt eiginmanni
sínum, Casper Berntsen. Stofan er í Kaupmannahöfn en eftir að hafa lært
innanhússhönnun á Ítalíu fór hún yfir til Kaupmannahafnar þar sem hún lærði
arkitektúr. Hjónin eiga heiðurinn af hönnun 20 fm smáhýsis við Mývatn.
Marta María mm@mbl.is
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Aldís Gísladóttir og Casper Berntsen
reka arkitektastofuna Studio Heima.
Það er svo sannarlega
hægt að hafa það nota-
legt í rúmi hússins.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
60%AFSLÁTTUR
ALLT AÐÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN