Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Page 20
Sænska móðurskipið IKEA hef-ur tekið að sér að leysa vandaþeirra sem eru að drepast úr leiðindum. Nú er nefnilega ný lína að koma á markað sem heitir FREK- VENS. Ef þú vilt hækka í tíðninni og keyra upp stemninguna sem býr einhvers staðar innra með þér þá er ekki úr vegi að halda gott partí. Til að halda gott partí þarftu að bjóða skemmtilegu fólki því maður er jú manns gaman. En það er annað sem skiptir máli og það er að geta hækk- að vel í græjunum. Tónlist er eitt stærsta sameiningartákn menning- arheima og magnar upp tilfinningar. Í FREKVENS er að finna hátal- ara sem þú getur tengt saman og alls konar ljós sem gera partíið heima hjá þér enn þá skemmtilegra. Í línunni eru líka silfurlitaðir púðar sem breyta heimilinu þínu um- svifalaust í skemmtistaðinn Tunglið sem var vinsæll fyrir tveimur ára- tugum. Í línunni er líka borðbúnaður sem hentar vel fyrir stuðsamkomur. Ef þú ert kominn á þann stað í líf- inu að hafa hrist alla af þér og átt fáa vini getur þú svo sannarlega keyrt upp gleðina innra með þér með því að spila þín uppáhaldslög og rifjað upp gamlar minningar þegar þú varst enn þá ung/ur og töff. Svo er ekki úr vegi að dusta rykið af löngu gleymdum danstöktum. Dragðu samt fyrir svo nágrannar þínir hringi ekki á lögguna. Leysir vanda þeirra sem eru að drepast úr leiðindum Það eru margir að missa lífsviljann meðan lægðir og gular og appelsínugular viðvaranir mokast yf- ir landið. Þegar veðrið er leiðinlegt þarf maðurinn eða konan að finna sér eitthvað til dundurs annað en að kvarta yfir því hvað þetta sé allt ömurlegt. Marta María mm@mbl.is Hægt er að raða hátölurum og ljós- um saman eftir eigin hentisemi. Þeir sem vilja vera á ferðinni ættu að fá sér hátalara með hanka. Það að halda gott partí getur bjargað þér frá því að andast úr leiðindum meðan lægðir mokast yfir landið. Hér má sjá hvernig nokkrum ljósum og há- tölurum er smellt saman. Línan kemur í versl- anir 31. janúar. Smáhýsið er hlýlegt að innan. Eldhúsið stúkar af stofu og eldhús. Hér er aldeilis notalegt að sitja og drekka kaffi. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.