Morgunblaðið - 25.02.2020, Side 1

Morgunblaðið - 25.02.2020, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 5. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  47. tölublað  108. árgangur  ÍSLENSKUR SIGUR Á SVELLINU FYRIR NORÐAN MIKIL UPPBYGGING Í ÖSSURÁRDAL FEIKIFLÓKIÐ SJÓNARSPIL SEM VIRKAR HÓTEL EKKI Í UMHVERFISMAT 10 ÚTSENDING  28HM KVENNA Í ÍSHOKKÍ 26 Ferðafólk sækir mjög í Reynisfjöru til að upplifa ævintýri fjörunnar og samspil við úfinn sjá. Þar hafa orðið slys þegar fólk hefur ekki áttað sig á afli úthafsöldunnar og mun oftar legið við slysum. Sjórinn sýndi klærnar í gær þótt veður væri þokkalegt. Því er ekki að heilsa í dag því spáð er norðaustan- átt með éljum á Norður- og Austurlandi en björtu sunnan- lands og vestan. Veðurstofan gaf í gær út gula viðvörun fyrir daginn í dag, fyrir norðanvert landið, frá Vestfjörðum til Austfjarða og taldi hættu á að samgöngur gætu raskast. Morgunblaðið/RAX Sjálfa við úfinn sjá  Formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar átti í gær von á því að ríkissáttasemjari myndi boða til fundar í deilu Eflingar og borgarinnar þar sem Efling hefði óskað eftir því. „Við þurfum fyrst að hittast og bera saman bækur okkar og skerpa á sameiginlegum skilningi,“ sagði Harpa Ólafsdóttir þegar yfirlýsing Eflingar um ósam- ræmi í málflutningi var borin undir hana. Vaxandi áhyggjur eru meðal foreldra vegna þeirrar aðstöðu sem margir þeirra eru í vegna verkfalls- ins. Mörg dæmi eru um að fólk þurfi að taka sér frí frá vinnu og gangi á orlofsrétt til að sinna börnum. »6 Ríkissáttasemjari boði til fundar  Skattrannsóknarstjóri segir að eftir úrtakskönnun á gögnum um einstaklinga sem nýttu sér fjárfest- ingarleið Seðlabankans á árunum 2012-2015 hafi ein fjárfærsla verið tekin til sérstakrar skoðunar og sé málið nú til athugunar hjá embætti ríkisskattstjóra. Engir lögaðilar hafa hins vegar verið skoðaðir sökum anna hjá embættinu. Þetta kemur fram í um- sögn embættisins um þingsályktun- artillögu um skipun rannsóknar- nefndar til að fara í saumana á fjárfestingarleiðinni. »14 Skattayfirvöld skoða einn aðila Helgi Bjarnason Jóhann Ólafsson Ör útbreiðsla kórónuveirunnar CO- VID-19 í fjórum sveitarfélögum í norðurhluta Ítalíu varð til þess að yfirvöld hér leggja til sömu ráðstaf- anir varðandi ferðafólk og gilt hafa um samskipti við Kína. Mælt er með því að ferðafólk þaðan fari í fjórtán daga sóttkví og þeir sem eru með einkenni hafi samband við lækni. Áhættumat Sóttvarnastofnunar Evrópu sýnir auknar líkur á því að tilfelli komi til Íslands frá öðrum löndum en Kína. Stjórnvöld hér ráðleggja fólki frá því að ferðast að nauðsynjalausu til héraðsins þar sem sýkingar hafa komið upp. Yfirvöld hafa gert ýmsar ráðstaf- anir til að efla varnir og bregðast við hugsanlegu smiti sem sífellt er talið líklegra. Liður í því er að Landspítalinn hefur tekið í notkun gámaeiningu við hlið bráðamóttök- unnar í Fossvogi og er hún ætluð þeim sem grunur leikur á um að séu smituð af kórónaveirunni. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO gaf það út í gær að ríki heims yrðu að búa sig undir „mögulegan al- heimsfaraldur“ vegna kórónuveir- unnar. Framkvæmdastjóri stofnun- arinnar sagði það einkum vera áhyggjuefni hversu mjög tilfellum veirunnar hefði fjölgað á skömmum tíma á Ítalíu, Íran og Suður-Kóreu. Varnir efldar vegna veirunnar  Sóttkví í gámum hefur verið komið upp við Landspítalann Viðbúnaður Sóttvarnagámur er tilbúinn við hlið bráðamóttökunnar. MKórónuveiran »2,13 Morgunblaðið/Árni Sæberg „Erfitt er að segja til um magnið en það er alls engin bjartsýni komin í okkur,“ segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjáv- arsviðs Hafrannsóknastofnunar, um mat á mælingu á loðnutorfum sem fundust á afmörkuðu svæði suður og suðvestur af Papey um helgina. Bú- ist er við að niðurstöðurnar verði gefnar út árdegis í dag. Sjómenn og útvegsmenn upp- sjávarveiðiskipa hafa bundið með sér vonir um að þessi mæling dugi til að veiðikvóti verði gefin út í ár. Það er ekki líklegt, ef marka má fyrri mælingar og tilfinningu Guð- mundar. Polar reynir við torfuna Guðmundur segir að fjárveitingar sem Hafró hafi til loðnumælinga í ár séu uppurnar og bæði rannsóknar- skipin haldi næst í togararall. Eigi að síður hélt grænlenska uppsjávarveiðiskipið Polar Amaroq úr höfn í gær til að reyna að ná ann- arri mælingu á loðnugönguna. Ferðin er á vegum útgerðarinnar en í samvinnu við Hafró þó að stofn- unin sé ekki með mann um borð. »4 Engin bjartsýni  Ekki útlit fyrir loðnukvóta í ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.