Morgunblaðið - 25.02.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 25.02.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson er fæddur árið 1990, einu ári á undan mér. Við ólumst upp í sama hverfi og sá ég hann reglulega á æfingum og í leikjum með Víkingi Reykja- vík. Þá vorum við um tíma saman í Réttó. Það var vitað þegar Kolbeinn var kornungur að hann myndi ná langt. Það var líka vitað þegar ég var ungur að ég myndi ekki ná langt, en það er ekki aðalatriðið í þessari sögu. Einhverra hluta vegna fékk ég samt sem áður að vera í bekkjarliði mínu á fótboltamóti Réttó. Að sjálfsögðu fór ég í markið og ekki mátti verja með höndum. Það gekk svo sem ágætlega. Svo mættum við Kolbeini og bekkjarbræðrum hans. Við stóð- um vel í stórstjörnunni og vinum hans en urðum að lokum að játa okkur sigraða, 0:2, ef ég man rétt, en það eru orðin sextán ár síðan. Í stöðunni 0:0 átti Kolbeinn algjöra bombu að marki og ég fann hvernig tíminn hægði á sér. Ég sá boltann stefna að mér löturhægt, en á sama tíma gat ég lítið gert. Ég beið bara eftir að fá hann í mig. Boltinn fór í mig miðjan, á eins vondan stað og hann gat farið. Ég man hvernig ég hneig niður í grasið og gat varla andað. Svo sá ég að einn félagi hans tók frákastið og skoraði á meðan ég lá í grasinu. Það eina sem er verra en að fá bombu frá Kolbeini Sigþórs- syni í punginn er að fá bombu frá Kolbeini Sigþórssyni í punginn og sjá liðsfélaga hans skora framhjá þér strax í kjölfarið. Ég á engin börn í dag og ég kenni honum um. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenskir knattspyrnumenn þreyta ekki frumraun sína á hverjum degi í einni af sterkustu deildum Evrópu. Það telst því til tíðinda að um síð- ustu helgi, á sama sólarhringnum, léku tveir Íslendingar í fyrsta skipti í efstu deildum Þýskalands og Ítalíu. Samúel Kári Friðjónsson kom inn á hjá Paderborn gegn stórveld- inu Bayern München á 81. mínútu á föstudagskvöldið og spilaði þar með í fyrsta sinn í þýsku Bundesligunni, daginn fyrir 24. afmælisdaginn sinn. Engu munaði að Samúel tæki þátt í afar óvæntum úrslitum því Robert Lewandowski skoraði sigurmark Bayern, 3:2, á 88. mín- útu leiksins. Andri Fannar Baldursson kom inn á sem varamaður hjá Bologna gegn Udinese eftir 58 mínútna leik í ítölsku A-deildinni á laugardaginn. Hann gat fagnað í uppbótartíma leiksins því þá jafnaði Rodrigo Palacio fyrir Bologna og leikurinn endaði 1:1. Samúel fjórtándi í Þýskalandi Samúel er fjórtándi Íslendingur- inn sem spilar í Bundesligunni þýsku, frá því Atli Eðvaldsson lék þar fyrstur árið 1980. Síðan bætt- ust við Ásgeir Sigurvinsson, Pétur Ormslev, Lárus Guðmundsson, Magnús Bergs, Eyjólfur Sverris- son, Helgi Sigurðsson, Þórður Guð- jónsson, Bjarni Guðjónsson, Gunn- ar Heiðar Þorvaldsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Jóhannsson og Alfreð Finnbogason. Þrír af þessum eru langleikja- hæstir en Eyjólfur spilaði 250 leiki í Bundesligunni, Atli 224 og Ásgeir 211. Alfreð er næstur á eftir þeim með 81 leik í deildinni. Andri fimmti á Ítalíu Andri Fannar er aðeins fimmti Ís- lendingurinn sem spilar í ítölsku A- deildinni en á undan honum voru það Albert Guðmundsson, Emil Hall- freðsson, Birkir Bjarnason og Hörð- ur Björgvin Magnússon. Birkir er nú kominn þangað aftur og spilar með Brescia en hann hefur leikið 42 leiki í deildinni. Albert lék 14 leiki með AC Milan en alvarleg meiðsli komu í veg fyrir að þeir yrðu fleiri. Emil hefur leikið 177 A-deildarleiki með Reggina, Verona, Udinese og Frosinone og Hörður Björgvin 12 leiki með Cesena. Andri yngstur og Sigurður yngstur í byrjunarliði Þá varð Andri yngstur Íslendinga til að spila deildarleik í einni af fimm „stærstu“ deildum Evrópufótbolt- ans en þar er átt við England, Þýskaland, Ítalíu, Spán og Frakk- land. Andri Fannar, sem kom til Bo- logna frá Breiðabliki snemma á síð- asta ári, varð 18 ára þann 10. janúar sl. og er því nokkrum mánuðum yngri en Skagamaðurinn Sigurður Jónsson var þegar honum var teflt fram í byrjunarliði Sheffield Wednesday gegn Leicester á Filbert Street í Leicester 9. mars árið 1985, í efstu deild á Englandi. Sigurður var þá 18 ára og sex mánaða gamall og er ennþá sá yngsti til að byrja leik í einni af þessum fimm deildum. Fjórir af þeim bestu byrjuðu kornungir Þegar horft er út fyrir þessar „stóru fimm“ deildir hafa nokkrir ís- lenskir knattspyrnumenn leikið kornungir með sterkum félagsliðum í Evrópu, þar á meðal fjórir af bestu knattspyrnumönnum Íslandssög- unnar.  Arnór Guðjohnsen var 17 ára og þriggja mánaða gamall þegar hann lék fyrst með Lokeren í belgísku A- deildinni gegn Club Brugge 4. nóv- ember 1978, og rúmum mánuði eldri þegar hann gerði bæði mörk Loke- ren í 2:0 sigurleik gegn Liege.  Eiður Smári Guðjohnsen, sonur Arnórs, var 17 ára og fjögurra mán- aða þegar hann kom inn á hjá PSV Eindhoven í 4:1 sigri á Breda í hol- lensku úrvalsdeildinni, 16. janúar ár- ið 1996. Mánuði síðar skoraði hann sitt fyrsta mark í deildinni, í 7:0 sigri PSV á Volendam.  Ásgeir Sigurvinsson var 18 ára og fimm mánaða þegar hann var í byrjunarliði hjá Standard Liege gegn Beerschot í sínum fyrsta leik í belgísku A-deildinni í október árið 1973.  Þá var Pétur Pétursson 19 ára gamall þegar hann skoraði 11 mörk í 16 leikjum fyrir Feyenoord í hol- lensku úrvalsdeildinni veturinn 1978-1979, og tvítugur þegar hann gerði 32 mörk fyrir félagið tímabilið 1979-1980. Tveir nýir á sama sólarhring  Íslenskir fótboltamenn þreyttu frumraun sína í þýsku og ítölsku deildunum  Andri yngstur í stærstu deildunum  Fjórir af þeim bestu byrjuðu kornungir Ljósmynd/Bologna Bologna Andri Fannar Baldursson faðmar 38 ára gamlan liðsfélaga. Ljósmynd/aðsend Paderborn Samúel Kári Friðjóns- son spilaði gegn Bayern München. Körfuboltamaðurinn Valur Orri Valsson er á leið til Keflavíkur eftir þriggja og hálfs árs fjarveru, en hann hefur leikið með Florida Tech í bandaríska háskólaboltanum frá 2016. Vísir greindi frá þessu í gær. Valur Orri er 25 ára gamall bak- vörður sem hóf ferilinn í Njarðvík þar sem hann lék þrjá leiki 15 ára gamall í úrvalsdeildinni en lék síð- an eitt tímabil með FSu á Selfossi í 1. deild. Hann spilaði síðan með Keflavík frá 2012 til 2016 þar sem hann gerði 12,6 stig í leik í úrvals- deildinni síðasta tímabilið. Valur snýr aftur til Keflavíkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimkoma Valur Orri Valsson lýk- ur tímabilinu með Keflavík. Knattspyrnumaðurinn Aron Jó- hannsson skoraði langþráð mörk í gærkvöld þegar hann gerði tvö mörk og lagði eitt upp í sigri Hammarby á Varberg, 5:1, í sænsku bikarkeppninni. Aron skor- aði síðast fyrir tveimur árum, 2. mars 2018, fyrir Werder Bremen gegn Mönchengladbach í þýsku Bundesligunni. Hann missti af nán- ast heilu tímabili í kjölfarið en kom til liðs við Hammarby síðsumars 2019 og náði þá ekki að skora í tíu leikjum með liðinu í úrvalsdeild- inni. Langþráð mörk hjá Aroni Ljósmynd/Hammarby Tvenna Aron Jóhannsson fagnar fyrra marki sínu gegn Varberg. Útbreiðsla kórónuveirunnar á norðurhluta Ítalíu hefur haft mikil áhrif á knattspyrnuna þar í landi undanfarna sólarhringa. Fjölmörg- um leikjum var frestað um helgina og félög hafa gripið til ýmissa ráð- stafana. Brescia, félag Birkis Bjarnasonar, gaf út í gær að allt unglingastarf yrði lagt niður fram yfir mánaðamótin hið minnsta. Forseti ítalska knattspyrnu- sambandsins, Paolo Dal Pinto, sendi ríkisstjórn Ítalíu bréf í gær þar sem hann óskaði eftir því að hætt væri við frestanir leikja en í stað þess yrðu þeir leiknir án áhorf- enda til að forðast fjölmenni og mögulegt smit. Ítalir gætu annars lent í vand- ræðum með að ljúka tímabilinu, sem þarf að vera lokið 24. maí vegna lokakeppni Evrópumóts karla. Heimaleik Inter Mílanó í A-deild karla var frestað um helgina en Int- er á að taka á móti Ludogorets frá Búlgaríu í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið. Þar verður leikið án áhorfenda en það var stað- fest í gærkvöld. Þá hafa Frakkar áhyggjur af því að fá um 3.000 stuðningsmenn Juv- entus yfir til Lyon vegna leiks lið- anna í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. vs@mbl.is Vilja frekar tóma velli en frestanir Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslandsmeistarar Selfoss unnu öruggan 33:29-sigur á Stjörnunni á útivelli í Olísdeild karla í handbolta í gærkvöld. Selfoss skoraði tvö fyrstu mörkin og héldu undirtök- unum út allan leikinn og var Stjarn- an aldrei líkleg til þess að ná að jafna metin. Liðin mættust í bikarkeppninni 5. febrúar síðastliðinn og fór Stjarnan þá illa með Selfyssinga í sama húsi, 34:21. Allt annað var að sjá til Sel- fossliðsins í gær og eru meistar- arnir að komast á skrið á besta tíma. Sigurinn var sá þriðji í röð og sá þriðji í röð sem er sannfærandi. Haukur Þrastarson er búinn að vera einstaklega góður síðan hann kom heim af Evrópumótinu í janúar og þá hefur innkoma Einars Sverrissonar eftir meiðsli gert mik- ið fyrir Selfoss. Margir leikmenn Selfoss geta spilað býsna vel. Magnús Öder Einarsson fór t.d fyr- ir Selfyssingum þegar það hægðist örlítið á Hauki í seinni hálfleik. Selfoss er ekki á meðal líklegustu liða þegar kemur að úrslitakeppn- inni en haldi ríkjandi meistararnir áfram á þessari braut verður erfitt fyrir hvaða lið sem er að slá þá úr leik. Stjarnan hafnaði í áttunda sæti á síðustu leiktíð og mun líklega gera það aftur núna. Það er lítið um framfarir í Garðabæ, þótt mikið hafi verið lagt í liðið síðustu ár. Það hljóta að vera vonbrigði þar á bæ. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjarna Haukur Þrastarson var skærasta stjarnan gegn Stjörnunni. Komu fram hefnd- um í Garðabæ  Íslandsmeistararnir að komast á skrið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.