Morgunblaðið - 25.02.2020, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Hvort sem það var einhveraf kanónum breska Þjóð-leikhússins, handritshöf-undurinn Lee Hall eða
leikstjóri frumuppfærslunnar, Holl-
endingurinn Ivo van Hove, nokkurs-
konar sendifulltrúi fagurfræði megin-
landsleiklistar í bresku stofnana-
leikhúsi, sem fékk hugmyndina, þá á
viðkomandi hrós skilið. Það er ekkert
sjálfgefið að 45 ára gamlar næstum
gleymdar amerískar bíómyndir eigi
alvöru erindi við okkur, hvað þá er-
indi upp á leiksvið, en það reyndist
vera tilfellið með Network.
Grunnsagan er ekki flókin: Sjón-
varpsfréttamaðurinn Howard Beale
brotnar saman í beinni útsendingu
þegar honum er sagt upp störfum á
hnignandi sjónvarpsstöð í eigu gráð-
ugrar samsteypu. Niðurbrotsræðan
fær gríðarlegt áhorf og snjöll dag-
skrárgerðarkona sér möguleikana.
Howard Beale verður stjarna, spá-
maður hinna reiðu og valdalausu. Á
vegum hinna yfirveguðu og valda-
miklu. Og þar með er mótsagna- og
vendingasagan ekki sögð.
Og þarna leynist skýrt – en alls
ekki einfeldningslegt – erindi við sam-
tímann. Tíma falsfrétta sem næra
öfgar. Veröld þar sem skilin milli af-
þreyingar og upplýsingar dofna jafnt
og þétt. Heim þar sem upp er sprottin
bæði iðnaður og pólitískar hreyfingar
sem byggja á því að greina og virkja
óskilgreinda reiði, veita henni farveg
og kynda bálið undir henni. Peningar
og völd eru í húfi og þar sem peningar
og völd eru í boði er fólk fljótlega
tilbúið að sýna sínar verstu hliðar.
Þannig er það í dag og þannig var það
líka á áttunda áratugnum eins og sjá
má í Útsendingu.
Það er merkilegt að sýningin reyn-
ist jafn áhrifarík og raun ber vitni, svo
mörgum og ólíkum vopnum sem hún
beitir. Þessi óstöðugi og að miklu leyti
ósamhristi kokteill af margradda am-
erísku bíóraunsæi, brechtískri dæmi-
sögu og klassískum persónulegum
harmleik ætti ekki að virka. En gerir
það samt. Það má alveg velta fyrir sér
hvort hún væri áhrifaríkari ef við
fengjum að kynnast sálfræðilegum
forsendum fyrir ákvörðunum How-
ards. Að við sæjum hann meira í sam-
skiptum við fólk, en ekki næstum ein-
göngu í ham fyrir framan
myndavélarnar. Í einhverjum skiln-
ingi eru sinnaskipti hans eftir fund
með æðsta yfirmanni samsteyp-
unnar, sem er upphafið að endinum,
óundirbyggð og ófullnægjandi sem
drama í strangasta skilningi. Eins má
spyrja hvort ástarsamband metn-
aðarfullu, ungu dagskrárgerðarkon-
unnar og miðaldra deldarstjórans
skipti máli sem réttlætir plássið sem
það tekur. En á endanum heldur sýn-
ingin athygli bæði heila og hjarta –
við kaupum hana, svo gripið sé til
málsniðs markaðarins, eins og hlýtur
að teljast við hæfi.
Stóran hluta heiðursins á leikstjór-
inn. Guðjón Davíð Karlsson nær að
láta þetta feikiflókna sjónarspil virka
saman. Minna verður úr möguleikum
sem þó eru þarna til að skapa áhuga-
verðar og raunsætt trúverðugar per-
sónur. Raunsæisþátturinn í leiktext-
anum er líka pínu viðkvæmur fyrir
textaóöryggi sem var bæði of áber-
andi og útbreitt á frumsýningunni. Á
hinn bóginn er ótrúlegt öryggi í öllu
gangverkinu, bæði skiptingum í hinni
síhreyfilegu og snjöllu leikmynd
Egils Eðvarðssonar og lýsingu Hall-
dórs Arnar Óskarssonar en þó aðal-
lega í fyrirferðarmikilli notkun á
myndavélum og skjám sem er lygi-
lega hnökralaus og oft hreinlega
heillandi í sjálfu sér. Myndvörpunar-
blæti nútímaleikhússins á það til að
fara í taugarnar á þeim sem hér skrif-
ar en að þessu sinni eru græjurnar á
heimavelli. Reyndar umtalsvert nú-
tímalegri en rétt væri, en að öðru
leyti eru tímabilinu gerð nostursam-
leg skil, bæði í myndefni og hönnun
Ólafar Erlu Einarsdóttur og þó
kannski allra helst í búningum Helgu
I. Stefánsdóttur. Ef ekki væri fyrir
hið augljósa erindi þá mætti vel njóta
sýningarinnar með fortíðarþrána
eina að leiðarvísi. Fyrir utan útlit
leikaranna er hún ríkulega skreytt
auglýsingaefni og tónlistarmynd-
böndum. Fólk með óþol fyrir kali-
fornísku gullaldarpopprokki ætti að
hugsa sig um tvisvar.
Það er fjölmenni á stóra sviðinu í
þessari sýningu. Auk sextán leikara
með próf eru fimm tæknimenn, bún-
ingafólk, sminkur og aðrir að störfum
á sviðinu, hluti af upplifun okkar.
Mörg hlutverkana eru ofursmá, nán-
ast þögul en næstum alltaf til staðar
engu að síður.
Mest mæðir vitaskuld á Pálma
Gestssyni í hlutverki Howards Beale.
Til að byrja með var ég ekki alveg
sannfærður um hann í hlutverkinu,
fannst vanta kraft og myndugleika.
En þar skipti sennilega mestu máli
skorturinn á undirbyggingu fyrir
ákvarðanir og athafnir persónunnar í
verkinu sjálfur. Og áður en upp var
staðið var Pálmi kominn með heljar-
tök á verkefninu, kröftugur og
öruggur en um leið berskjaldaður.
Birgitta Birgisdóttir naut sín
greinilega vel í hlutverki hinnar
metnaðargjörnu Díönu, sem veit
hvert hún stefnir og hikar aldrei.
Þröstur Leó Gunnarsson fannst mér
á hinn bóginn ekki alveg finna sig í
hlutverki ástmannsins, og kannski er
sá þáttur verksins líka full-vannærð-
ur frá höfundarins hendi þó hann taki
sitt pláss í leiktíma. Það var oft gam-
an að þeim stressaða hrokagikk sem
Atli Rafn Sigurðarson skóp úr ný-
ráðnum yfirmanni stöðvarinnar og
það er alltaf til bóta þegar Ólafía
Hrönn Jónsdóttir tekur dansspor og
lætur áhorfendur éta úr lófa sínum.
Af fólkinu í bakgrunninum fangaði
Hallgrímur Ólafsson oftast athygl-
ina.
Útsending er óvenjuleg sýning um
margt. Þetta er tæknilega flókið, stíl-
lega brotakennt og pólitískt hlaðið
verk sem spyr flókinna spurninga,
sakfellir engan, eða kannski okkur
öll. Þessu er vel skilað í sýningu Þjóð-
leikhússins. Það er magnað að í þess-
ari gömlu bíómynd hafi fundist leið til
að segja svona glúrinn og mótsagna-
kenndan sannleika um fjölmiðla,
múgmennsku, kapítalisma og nú-
tímamenningu, og hina nagandi vissu
um að eitthvað sé rotið í því Dana-
veldi sem heimurinn var orðinn þá og
er enn. Þótt hér sé verið að sækja
verk sem hefur „sannað sig“ í
erlendu leikhúsi sanna dæmin að það
kál er ekki alltaf sopið þó í íslensku
ausuna sé komið. Hér bragðast það
hið besta, og er sennilega meinhollt
að auki.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Heljartök „Mest mæðir vitaskuld á Pálma Gestssyni í hlutverki Howards Beale,“ segir í rýni um Útsendingu.
Þjóðleikhúsið
Útsending bbbbn
Eftir Lee Hall, byggt á kvikmyndahand-
riti eftir Paddy Chayefsky. Íslensk þýð-
ing: Kristján Þórður Hrafnsson. Leik-
stjórn: Guðjón Davíð Karlsson. Leik-
mynd: Egill Eðvarðsson. Búningar:
Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Halldór
Örn Óskarsson. Tæknihönnun: Björn
Helgason. Tónlist: Eðvarð Egilsson.
Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Krist-
ján Sigmundur Einarsson og Eðvarð
Egilsson. Myndbönd og grafík: Ólöf Erla
Einarsdóttir. Leikarar: Arnar Jónsson,
Arndís Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sig-
urðarson, Baldur Trausti Hreinsson,
Birgitta Birgisdóttir, Edda Arnljóts-
dóttir, Gunnar Smári Jóhannesson,
Hallgrímur Ólafsson, Hildur Vala
Baldursdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson,
Snæfríður Ingvarsdóttir, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Þröstur Leó Gunnars-
son og Örn Árnason. Aðrir þátttakendur
í sýningunni: Alexander John George
Hatfield, Eysteinn Aron Halldórsson,
Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir, Snæ-
fríður Jóhannsdóttir og Sturla Skúlason
Holm. Frumsýning á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins 21. febrúar 2020.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Kapítalisminn étur börnin sín
Úthlutun úr Minningarsjóði Jóns
Stefánssonar fór fram á laugardag-
inn var, 22. febrúar, í Langholts-
kirkju og hlutu sex styrki úr sjóðn-
um, þau Lilja María Ásmundsdóttir
sem er doktorsnemi í tónsmíðum,
sópransöngkonurnar Eyrún Unn-
arsdóttir, Álfheiður Guðmunds-
dóttir og Harpa Ósk Björnsdóttir,
Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari
og Baldvin Snær Hlynsson píanó-
leikari.
Sjóðurinn var stofnaður árið
2017 í minningu Jóns Stefánssonar
sem var organisti Langholtskirkju í
50 ár og byggði upp tónlistarlíf í
kirkjunni með eiginkonu sinni,
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur
óperusöngkonu. Markmið sjóðsins
er að styðja ungt fólk sem er að
hasla sér völl á sviði tónlistar og
styrkja önnur verkefni sem stjórn
sjóðsins metur að falli að hug-
sjónum Jóns Stefánssonar.
Að úthlutunarathöfn lokinni
steig Eivör Pálsdóttir á svið og hélt
tónleika en allur aðgangseyrir af
tónleikunum rann í sjóðinn. Hún
lauk tónleikunum með því að
syngja „Heyr himna smiður“ í anda
Jóns, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Styrkþegar Frá afhendingu styrkja úr Minningarsjóði Jóns Stefánssonar.
Sex hlutu styrki úr
minningarsjóði