Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Hvort sem það var einhveraf kanónum breska Þjóð-leikhússins, handritshöf-undurinn Lee Hall eða leikstjóri frumuppfærslunnar, Holl- endingurinn Ivo van Hove, nokkurs- konar sendifulltrúi fagurfræði megin- landsleiklistar í bresku stofnana- leikhúsi, sem fékk hugmyndina, þá á viðkomandi hrós skilið. Það er ekkert sjálfgefið að 45 ára gamlar næstum gleymdar amerískar bíómyndir eigi alvöru erindi við okkur, hvað þá er- indi upp á leiksvið, en það reyndist vera tilfellið með Network. Grunnsagan er ekki flókin: Sjón- varpsfréttamaðurinn Howard Beale brotnar saman í beinni útsendingu þegar honum er sagt upp störfum á hnignandi sjónvarpsstöð í eigu gráð- ugrar samsteypu. Niðurbrotsræðan fær gríðarlegt áhorf og snjöll dag- skrárgerðarkona sér möguleikana. Howard Beale verður stjarna, spá- maður hinna reiðu og valdalausu. Á vegum hinna yfirveguðu og valda- miklu. Og þar með er mótsagna- og vendingasagan ekki sögð. Og þarna leynist skýrt – en alls ekki einfeldningslegt – erindi við sam- tímann. Tíma falsfrétta sem næra öfgar. Veröld þar sem skilin milli af- þreyingar og upplýsingar dofna jafnt og þétt. Heim þar sem upp er sprottin bæði iðnaður og pólitískar hreyfingar sem byggja á því að greina og virkja óskilgreinda reiði, veita henni farveg og kynda bálið undir henni. Peningar og völd eru í húfi og þar sem peningar og völd eru í boði er fólk fljótlega tilbúið að sýna sínar verstu hliðar. Þannig er það í dag og þannig var það líka á áttunda áratugnum eins og sjá má í Útsendingu. Það er merkilegt að sýningin reyn- ist jafn áhrifarík og raun ber vitni, svo mörgum og ólíkum vopnum sem hún beitir. Þessi óstöðugi og að miklu leyti ósamhristi kokteill af margradda am- erísku bíóraunsæi, brechtískri dæmi- sögu og klassískum persónulegum harmleik ætti ekki að virka. En gerir það samt. Það má alveg velta fyrir sér hvort hún væri áhrifaríkari ef við fengjum að kynnast sálfræðilegum forsendum fyrir ákvörðunum How- ards. Að við sæjum hann meira í sam- skiptum við fólk, en ekki næstum ein- göngu í ham fyrir framan myndavélarnar. Í einhverjum skiln- ingi eru sinnaskipti hans eftir fund með æðsta yfirmanni samsteyp- unnar, sem er upphafið að endinum, óundirbyggð og ófullnægjandi sem drama í strangasta skilningi. Eins má spyrja hvort ástarsamband metn- aðarfullu, ungu dagskrárgerðarkon- unnar og miðaldra deldarstjórans skipti máli sem réttlætir plássið sem það tekur. En á endanum heldur sýn- ingin athygli bæði heila og hjarta – við kaupum hana, svo gripið sé til málsniðs markaðarins, eins og hlýtur að teljast við hæfi. Stóran hluta heiðursins á leikstjór- inn. Guðjón Davíð Karlsson nær að láta þetta feikiflókna sjónarspil virka saman. Minna verður úr möguleikum sem þó eru þarna til að skapa áhuga- verðar og raunsætt trúverðugar per- sónur. Raunsæisþátturinn í leiktext- anum er líka pínu viðkvæmur fyrir textaóöryggi sem var bæði of áber- andi og útbreitt á frumsýningunni. Á hinn bóginn er ótrúlegt öryggi í öllu gangverkinu, bæði skiptingum í hinni síhreyfilegu og snjöllu leikmynd Egils Eðvarðssonar og lýsingu Hall- dórs Arnar Óskarssonar en þó aðal- lega í fyrirferðarmikilli notkun á myndavélum og skjám sem er lygi- lega hnökralaus og oft hreinlega heillandi í sjálfu sér. Myndvörpunar- blæti nútímaleikhússins á það til að fara í taugarnar á þeim sem hér skrif- ar en að þessu sinni eru græjurnar á heimavelli. Reyndar umtalsvert nú- tímalegri en rétt væri, en að öðru leyti eru tímabilinu gerð nostursam- leg skil, bæði í myndefni og hönnun Ólafar Erlu Einarsdóttur og þó kannski allra helst í búningum Helgu I. Stefánsdóttur. Ef ekki væri fyrir hið augljósa erindi þá mætti vel njóta sýningarinnar með fortíðarþrána eina að leiðarvísi. Fyrir utan útlit leikaranna er hún ríkulega skreytt auglýsingaefni og tónlistarmynd- böndum. Fólk með óþol fyrir kali- fornísku gullaldarpopprokki ætti að hugsa sig um tvisvar. Það er fjölmenni á stóra sviðinu í þessari sýningu. Auk sextán leikara með próf eru fimm tæknimenn, bún- ingafólk, sminkur og aðrir að störfum á sviðinu, hluti af upplifun okkar. Mörg hlutverkana eru ofursmá, nán- ast þögul en næstum alltaf til staðar engu að síður. Mest mæðir vitaskuld á Pálma Gestssyni í hlutverki Howards Beale. Til að byrja með var ég ekki alveg sannfærður um hann í hlutverkinu, fannst vanta kraft og myndugleika. En þar skipti sennilega mestu máli skorturinn á undirbyggingu fyrir ákvarðanir og athafnir persónunnar í verkinu sjálfur. Og áður en upp var staðið var Pálmi kominn með heljar- tök á verkefninu, kröftugur og öruggur en um leið berskjaldaður. Birgitta Birgisdóttir naut sín greinilega vel í hlutverki hinnar metnaðargjörnu Díönu, sem veit hvert hún stefnir og hikar aldrei. Þröstur Leó Gunnarsson fannst mér á hinn bóginn ekki alveg finna sig í hlutverki ástmannsins, og kannski er sá þáttur verksins líka full-vannærð- ur frá höfundarins hendi þó hann taki sitt pláss í leiktíma. Það var oft gam- an að þeim stressaða hrokagikk sem Atli Rafn Sigurðarson skóp úr ný- ráðnum yfirmanni stöðvarinnar og það er alltaf til bóta þegar Ólafía Hrönn Jónsdóttir tekur dansspor og lætur áhorfendur éta úr lófa sínum. Af fólkinu í bakgrunninum fangaði Hallgrímur Ólafsson oftast athygl- ina. Útsending er óvenjuleg sýning um margt. Þetta er tæknilega flókið, stíl- lega brotakennt og pólitískt hlaðið verk sem spyr flókinna spurninga, sakfellir engan, eða kannski okkur öll. Þessu er vel skilað í sýningu Þjóð- leikhússins. Það er magnað að í þess- ari gömlu bíómynd hafi fundist leið til að segja svona glúrinn og mótsagna- kenndan sannleika um fjölmiðla, múgmennsku, kapítalisma og nú- tímamenningu, og hina nagandi vissu um að eitthvað sé rotið í því Dana- veldi sem heimurinn var orðinn þá og er enn. Þótt hér sé verið að sækja verk sem hefur „sannað sig“ í erlendu leikhúsi sanna dæmin að það kál er ekki alltaf sopið þó í íslensku ausuna sé komið. Hér bragðast það hið besta, og er sennilega meinhollt að auki. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Heljartök „Mest mæðir vitaskuld á Pálma Gestssyni í hlutverki Howards Beale,“ segir í rýni um Útsendingu. Þjóðleikhúsið Útsending bbbbn Eftir Lee Hall, byggt á kvikmyndahand- riti eftir Paddy Chayefsky. Íslensk þýð- ing: Kristján Þórður Hrafnsson. Leik- stjórn: Guðjón Davíð Karlsson. Leik- mynd: Egill Eðvarðsson. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Tæknihönnun: Björn Helgason. Tónlist: Eðvarð Egilsson. Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Krist- ján Sigmundur Einarsson og Eðvarð Egilsson. Myndbönd og grafík: Ólöf Erla Einarsdóttir. Leikarar: Arnar Jónsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sig- urðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Birgitta Birgisdóttir, Edda Arnljóts- dóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Hallgrímur Ólafsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson, Snæfríður Ingvarsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þröstur Leó Gunnars- son og Örn Árnason. Aðrir þátttakendur í sýningunni: Alexander John George Hatfield, Eysteinn Aron Halldórsson, Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir, Snæ- fríður Jóhannsdóttir og Sturla Skúlason Holm. Frumsýning á Stóra sviði Þjóð- leikhússins 21. febrúar 2020. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Kapítalisminn étur börnin sín Úthlutun úr Minningarsjóði Jóns Stefánssonar fór fram á laugardag- inn var, 22. febrúar, í Langholts- kirkju og hlutu sex styrki úr sjóðn- um, þau Lilja María Ásmundsdóttir sem er doktorsnemi í tónsmíðum, sópransöngkonurnar Eyrún Unn- arsdóttir, Álfheiður Guðmunds- dóttir og Harpa Ósk Björnsdóttir, Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari og Baldvin Snær Hlynsson píanó- leikari. Sjóðurinn var stofnaður árið 2017 í minningu Jóns Stefánssonar sem var organisti Langholtskirkju í 50 ár og byggði upp tónlistarlíf í kirkjunni með eiginkonu sinni, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur óperusöngkonu. Markmið sjóðsins er að styðja ungt fólk sem er að hasla sér völl á sviði tónlistar og styrkja önnur verkefni sem stjórn sjóðsins metur að falli að hug- sjónum Jóns Stefánssonar. Að úthlutunarathöfn lokinni steig Eivör Pálsdóttir á svið og hélt tónleika en allur aðgangseyrir af tónleikunum rann í sjóðinn. Hún lauk tónleikunum með því að syngja „Heyr himna smiður“ í anda Jóns, að því er fram kemur í til- kynningu. Styrkþegar Frá afhendingu styrkja úr Minningarsjóði Jóns Stefánssonar. Sex hlutu styrki úr minningarsjóði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.