Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 32

Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 32
Kabarett og tangó á Tíbrártónleikum Kraftmiklir og tælandi tónar munu óma á tón- leikum í röðinni Tíbrá í Salnum í kvöld kl. 19.30. Þá munu Guja Sand- holt mezzósópr- an, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari og píanóleikarinn Eva Þyri Hilmarsdóttir flytja verk eftir Ben- jamin Britten og Kurt Weill, tangóa og lög sem Marlene Dietrich, Lotte Lenya og Ute Lemper gerðu fræg. Tónleikakynning með sófaspjalli verður fyrir tónleikana í fordyri Sal- arins í umsjón Friðriks Margrétar- Guðmundssonar og hefst hún kl. 18.30 en húsið verður opnað hálf- tíma fyrr. ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Hinn sextán ára gamli Kristján Viggó Sigfinnsson er í sérflokki í grein sinni, hástökki, hér á landi og stefnir á að ná langt í íþrótt- inni. Hann náði langþráðu tak- marki um helgina með því að fara yfir 2,15 metra og hefur nú sett markið hærra en segir að sig vanti meiri samkeppni í greininni hér á landi. »26 Meistarann vantar meiri samkeppni ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Marta Kristín Friðriksdóttir, sópran og nemi við tónlistarháskólann í Vín í Austurríki, syngur einsöng á tón- leikum Kvennakórsins Cantabile, sem hefjast klukkan 20 í Fríkirkjunni í Reykjavík nk. fimmtudagskvöld. Hún frumflytur meðal annars lag eft- ir Björgvin Þ. Valdimarsson við ljóð Margrétar Pálmadóttur, stjórnanda kórsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Marta er einsöngvari á fjölmennum kórtón- leikum hjá Möggu Pálma en hún ólst upp í kórastarfi hennar, var félagi í Stúlknakór Reykjavíkur frá sex ára aldri og söng með dömukórnum Au- roru samfara einsöngsnáminu. Auk þess lærði hún í Domus vox, söng- skóla Möggu, og fór í framhaldsnám í Söngskóla Reykjavíkur, þar sem hún lærði hjá Signýju Sæmundsdóttur. Hún hefur staðið sig vel í söngnum og sigraði meðal annars í klassísku söngkeppninni Vox Domini hér á Ís- landi árið 2017. „Magga hvatti mig áfram og á stóran þátt í því að ég fór í frekara söngnám,“ segir Marta. „Hún hefur fylgst með mér vaxa og dafna og verða sú söngkona sem ég nú er, en þetta er stærsta tækifæri mitt hjá henni. Það er ótrúlega gaman og mikill heiður að hún treysti mér fyrir þessu.“ Fyrir um 25 árum stofnaði Magga kórinn Gospelsystur Reykjavíkur, sem varð að Cantabile fyrir konur 50 ára og eldri 2002. „Við Gospelsystur vorum um 130 og nú eru um 60 fé- lagar í Cantabile og þar af um 50 þétt starfandi í kórnum,“ segir hún, en næsta verkefni erlendis verður söng- ferð til Írlands um hvítasunnuna. Næturdrottning með drauma Söngkonur úr Domus vox syngja með kórnum á tónleikunum í Frí- kirkjunni og auk Mörtu syngur Matt- hildur G. Hafliðadóttir, mezzósópran og dóttir Möggu, einsöng. „Við verð- um um 80 söngkonur á þessum kveðjutónleikum áður en ég fer til Rómar til að kynna mér messusöng og fleira í mánuð,“ segir Magga. Söngur hefur fylgt Mörtu frá því hún man eftir sér. Hún bendir á að sem barn hafi hún meðal annars ver- ið í sönglist í Borgarleikhúsinu og sem nemandi í Hlíðaskóla hafi hún tekið þátt í leiklist og söngleikjum. „Ég hef alltaf haft óskaplega gaman af söng og innst inni vitað að ég vildi vinna við að vera á sviði og gefa fólki lítinn part af sjálfri mér.“ Töfraflautan eftir Mozart verður sett upp í tónlistarháskólanum í Vín í vor og þá verður Marta í hlutverki Næturdrottningarinnar. Að háskóla- náminu loknu ætlar Marta að reyna fyrir sér í óperuhúsum í Evrópu, en hún er komin vel á veg í náminu, er á þriðja ári af fjórum. „Draumurinn er auðvitað að syngja á sviði og upp- skera eins og til hefur verið sáð.“ Hún áréttar gleði yfir því að syngja einsöng með Cantabile og segir að ljóð Möggu sé yndislegt. „Að vita það að þessi texti varð til hjá Möggu er sérstaklega fallegt. Ég hef þekkt hana nánast allt mitt líf og þetta er eins og að horfa inn í sálina hennar.“ Morgunblaðið/Eggert Einsöngvari Marta Kristín Friðriksdóttir syngur með Cantabile á tónleikum í Fríkirkjunni annað kvöld. Sálin styrkir sönginn  Marta Kristín Friðriksdóttir einsöngvari á tónleikum Kvennakórsins Cantabile  Næturdrottningin í Vínarborg Íslendingar eignuðust leikmenn í tveimur af sterkustu fótboltadeild- um Evrópu á sama sólarhringnum þegar Samúel Kári Friðjónsson og Andri Fannar Baldursson léku í fyrsta skipti í Þýska- landi og á Ítalíu um helgina. Andri er aðeins átján ára og er kominn í hóp með nokkr- um af þekkt- ustu knatt- spyrnumönn- um landsins sem hófu feril- inn kornungir með sterkum félagsliðum. »27 Tveir nýir á sama sólarhringnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.