Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 8
Elsku Ljónið mitt, ef einhver getur hert upp hugann þá ert það þú og þú hefur
þurft á öllum þínum mætti að halda undanfarið, og hvert skref sem þú hefur stigið er sigurskref. Að
sjálfsögðu finnurðu samt til hræðslu í öllum þeim breytingum sem hafa læðst að þér, þú hefur þurft að
taka eða mætt þér því þér hættir oft til að taka of stór skref, þú keyrir þig niður eða dregur þig í hlé.
Það er verið að lækna orkuna þína og þú finnur hvað þú ert að fara í gott form, því ástand líkama
þíns er þér mjög mikilvægt. Það er svo skemmtilegt að heyra það frá mér sem finnst ekkert sér-
staklega spennandi að hreyfa mig, að benda þér á að hreyfa þig og virkja til hins ýtrasta því líkami
þinn endurspeglar hvernig þér líður.
Þú finnur að þú hefur mikinn viljastyrk, svo það eina sem þú þarft að smyrja í þann styrk er út-
hald, hugsa ekki of langt fram í tímann heldur nýta þér lífið eins og þú sérð það í augnablikinu. Það
er að byggjast upp hjá þér svo mikið hugrekki, sem þú hefur reyndar alltaf haft en finnur svo sterk-
lega fyrir núna, þú rífur þig áfram og reisir þig upp úr öllum leiðindum.
Þér finnst þú verða pínulítið þreyttur á að bíða eftir viðurkenningu eða þeirri stöðuhækkun sem
þú sérð fyrir þér í lífinu, ekki missa móðinn og haltu bara áfram eins og enginn sé morgundagurinn.
En sjáðu það svolítið fyrir þér að það gæti verið ein manneskja sem breytir lífi þínu og þú veist aldr-
ei hver eða hvar sú manneskja er sem á eftir að ýta á takka í lífi þínu svo hagaðu þér alltaf þannig að
þessi manneskja sé handan við hornið og sjái þig þegar þú síst væntir.
Vertu með opinn faðminn fyrir kærleikann og ástina, þá verður eins og eldingu hafi lostið niður
því kraftaverk gerast og þú færð nýja sýn.
Viljastyrkur og hugrekki
LJÓNIÐ | 21. JÚLÍ 21. ÁGÚST
Elsku Krabbinn minn, það koma að sjálfsögðu þannig tímar að þér finnist þú
vera aleinn í heiminum og enginn sé að fylgjast með þér, þetta er að mörgu leyti vegna þess að
þú hefur svo stórt hjarta, en það getur líka valdið þér sárri angist. Svo einkennilegt sem það er
þá geta fallegu hugsanirnar þínar og hugsjónir fengið þig til að efast um sjálfan þig.
Þú átt von á uppskeru því þú ert búinn að sá svo fallega í lífið og ef þú ert að spekúlera í ást-
inni skaltu steinhætta að óttast höfnun eða sársauka; það er um tvennt að ræða: Að elska eða
óttast.
Þú hrósar svo skemmtilega svo mörgum í kringum þig og orð þín eyðast aldrei því öllum orð-
um fylgir orka og þú ert einskonar kyndilberi eða persóna sem gengur með ljósið.
Þú ert búinn að hafa miklar áhyggjur af ýmislegri vá eða hættu í kringum þig en þú átt eftir
að forða þér því lífið mun færa þér framúrskarandi sigur og sérstaklega kenna þér á næstunni
að elska og fyrirgefa og þú skalt skoða í ástinni umhyggjusömu týpuna sem færir þér mat og
nuddar á þér axlirnar.
Það myndast mikil spenna á næstu mánuðum vegna þess að þú tekur að þér verkefni sem þú
sérð ekki fyrir endann á og þú efast um að þú hafir þann styrk til að bera að standa undir
væntingum og þeim breytingum sem eru að koma sem þú finnur fyrir og ert jafnvel búinn að
taka ákvörðun um. Þetta mun færa þér blessun og betri líðan, og þó þú getir ekki stjórnað öll-
um aðstæðum sem verða í kringum þig, þá getur þú stjórnað því hvernig þú bregst við að-
stæðum og með því áttu eftir að heilla alla.
Orð þín eyðast aldrei
KRABBINN | 21. JÚNÍ 20. JÚLÍ
Elsku Tvíburinn minn, þú átt auðvelt með að greina aðalatriðin frá
aukaatriðunum en svona yfir vetrartímann nennirðu því kannski ekki því þú liggur í
hálfgerðum dvala. En hugur þinn á eftir að finna nýjar lausnir og það verður hægt að
segja að þú hafir aldrei verið jákvæðari og þú átt eftir að tala þig upp og tala þig til og
þannig greiðir þú hratt og vel úr vandamálunum.
Þú ert svo leikinn í mannlegum samskiptum og gætir jafnvel hresst hina andlausu við
og það sem er svo skemmtilegt við þig er hvað þú ert óútreiknanlegur og spennandi og
næsti mánuður gefur þér mikla orku og ný plön, þú ert vel máli farinn og átt eftir að
koma þínu svo vel frá þér og af stað.
Ekki taka ástina of alvarlega ef þú ert á lausu, leyfðu þér að sveiflast og vera svolítið
opinn fyrir því sem er að koma þinn veg. Þér á eftir að ganga vel í tengslum við fjár-
mál því þú ert svo útsjónarsamur þegar þú þarft þess og átt eftir að geta lifað svo vel
og vera á réttum stað á réttum tíma.
Þú kynnist nýju fólki sem hefur áhrif, greiðir þér leið og hjálpar þér við þau mál sem
þú þarft að leysa. Það er svo mikil ástríða á næstu mánuðum og þú geislar af þeirri
orku, elskaðu sjálfan þig af öllum mætti því þá færðu þann félaga sem elskar þig og dá-
ir á allan veg, því á þessum tíma áttu eftir að láta hjartað ráða för og gæfan mun brosa
við þér.
Það eru ævintýri að gerast, þú munt taka þátt í þeim og svo sannarlega sjá allt það
dásamlega sem lífið ætlar að færa þér, hlúðu vel að snillingnum sem býr innra með þér
og raðaðu í kringum þig því fólki sem kemur með kraft jákvæðninnar.
Ævintýri gerast
TVÍBURINN | 21. MAÍ 20. JÚNÍ
Elsku Nautið mitt, þú ert á bráðgóðu tímabili, passaðu þig á að hafa ekki lognmollu
í kringum þig, því innst inni elskarðu fjörið. Þú ert búinn að taka skemmtilega hluti að þér sem gætu
tengst ferðalögum, ferðamönnum eða einhverskonar keimlíkri hressingu fyrir fólk. Einhver af þessum
atriðum munu magnast upp og búa til pláss fyrir meiri, spennandi og betri aðstæður.
Tilfinningarnar þínar eru eins og þegar beljunum er hleypt út á vorin, þig langar að hafa frið en
svo langar þig líka að hafa margbreytileikann. Þegar 9. mars birtist hjá þér, elskan mín, þá er fullt
tungl í Meyjarmerkinu, þá geturðu séð hvernig þú sameinar allt, skipuleggur allt og þú gerir einhver
tilboð eða færð, þetta er eitthvað svo spennandi.
Þegar líða tekur nær vorinu þá koma til þín þeir peningar sem þú ert búinn að vera að hugsa um
og þú getur reddað málunum, áhyggjur eru alveg ástæðulausar og til einskis nýtar. Þú ert í óðaönn
að slíta þig frá meðvirkni og sýna sjálfum þér og öðrum hvernig þú getur breytt lífinu sjálfur.
Sumt fólk slíturðu þó ekki af þér, því það er partur af þér sjálfum og mun aldrei sleppa þér alveg
sama hvað þú reynir. Vertu þá bara ánægður að hafa einhvern svona þétt upp að þér. Ástin blómstr-
ar í þínu merki, það er gredda í mörgu til að breyta lífinu, ná sér í kærasta eða kærustu og vera ham-
ingjusamur og þú færð möguleika í bunkum, hvað viltu, hvað viltu ekki, það er spurningin.
Ég er viss um að það er manneskja í Steingeitarmerkinu sem á eftir að hafa mikil áhrif á þig þegar
nær dregur vori, það er svo spennandi! Láttu fólk í kringum þig vita hugmyndir og áætlanir þínar,
ekki hafa neina trú á að einhver steli frá þér einhverju sem er þitt, það kemur til þín fólk sem hvetur
þig til dáða og hjálpar þér, því þú ert alltaf að gera allt upp á eigin spýtur. Þú sest í þá tilfinningu að þú
viljir að ekkert ófyrirséð hendi þig, en mikið er það eitthvað þurrt og leiðinilegt, svo taktu því óvænta fagn-
andi, þá upplifirðu þessi ævintýri og hamingjuna sem verður allt í kringum þig.
Fagnaðu því óvænta
NAUTIÐ | 21. APRÍL 20. MAÍ
Elsku Hrúturinn minn, það er einkennileg orka búin að vera í kringum þig
og þú ert ekki alveg viss hvernig þú átt að tækla þessa tíma sem þú ert að fara í. Þú virðist
taka svo vel á öllu sem tengist vanköntum í lífi þínu, ferð að byggja svo vel upp líkama og sál
og af fremsta megni að standa með öllum í kringum þig.
Þú byggir þig upp eins hratt og hugsunin flýgur, tekur áskorunum sem þú hræðist, en þú
þarft samt að vita betur hverjum þú getur treyst og læra að fara milliveginn í því að stjórna
öðrum í kringum þig eða kenna þeim lexíu.
Það verður mikil aðdáun í kringum þig, alveg sama hvar þú ert staddur í þjóðfélagsstigan-
um, þér finnst eins og þú hafir áorkað svo miklu og líður svo vel með sjálfan þig og það er
svo sannarlega satt, sérstaklega á næstu 70 dögum. Þetta tímabil byggir svo sérstaka undir-
stöðu og hjálpar þér svo innilega að sjá hvert þú stefnir.
Hugbreytandi efni er eini þröskuldurinn sem ég sé að hindri fögnuð þinn, en þegar þú tek-
ur ákvörðun um að breyta þá stoppar þig ekkert, svo ákvörðun er allt sem þarf.
Þú hefur farið í gegnum mikið álag í lífi þínu, þess vegna ertu vitur og skilaboðin til þín eru
að skoða fjárhaginn, það virðist vera að þú getir breytt svo mörgu með því að laga aðeins til í
kringum þig og gera það sjálfur.
Það er mikil orka velferðar í kringum þig á næstunni og í þeirri tíðni er mikilvægt að þú
takir ábyrgð og safnir í sjóð, því það er svo mikil innspýting fyrir þig. Í ástinni verða þér allir
vegir færir en trygglyndið er það sem trónir á toppnum, það færir þér kraft til að gera hvað
sem er.
Uppbygging og aðdáun
HRÚTURINN | 21. MARS 20. APRÍL
Elsku Fiskurinn minn, það er búin að vera mikil spenna og stress í kringum þig,
en þú vinnur allt líka miklu betur þegar þú ert á tánum. Það er eins og þú fljúgir áfram og þó þú
dettir öðru hverju þá stendurðu alltaf upp jafnharðan.
Vertu bjartsýnn og magnaðu upp það jákvæða tilfinningaflæði sem er allt í kringum þig, þú getur
ekki breytt öðrum svo láttu engan stjórna skapi þínu eða líðan. Um leið og þú sleppir og hættir að
spekúlera í því þá færðu það frelsi í hjartanu sem þú ert að leita að.
Það eru svo spennandi tímar búnir að vera að banka á hurðina þína, svo taktu bara vel eftir hvað
er að gerast og segðu já þótt þú nennir ekki, því þegar þú opnar hurðina er eins og það sé röð af
manneskjum sem eru að bjóða þér ný tækifæri, svo leyfðu þér að fljóta, þá muntu njóta.
Í ástarmálunum verður allt akkúrat eins og það á að vera, þið sem eruð á lausu megið búast við
spennandi tækifærum, en þeir ykkar sem eru svo dásamlega heppnir að vera búnir að velja sér
framtíðarmaka eiga bara að dekra við hann og sýna honum skilning, þannig þróast allt á besta veg.
Þú þarft ekki svo mikinn tíma til að slaka á, þú nærð einhvernveginn að tengja þig svo vel og rífa
upp orkuna þína jafnóðum þó að þú búist ekki við að þú getir það, því það er alveg sama hversu mik-
ið þú tekur að þér, þú kemst yfir það. Þér mun ganga vel ef einhverskonar próf eru að mæta þér og
það þarf ekki að vera í einhverjum skóla heldur bara í öllu lífinu, þú kemur út í sigurvegarasætinu.
Það skipast svo fljótt veður í lofti og miklar breytingar eiga sér stað, jafnvel dag frá degi og
stundum finnst þér þú alveg vera að bugast, en það er bara ímyndun þín. Fólkið í kringum þig þekk-
ir þig betur en þú sjálfur og þeir sjá mætavel hvað þú stendur þig vel á þessu tímabili, svo biddu
bara um ráð frá þeim sem þú treystir.
Spennandi tímar banka
FISKARNIR | 19. FEBRÚAR 20. MARS
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020
Mars