Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020 Sitthvað er nú tínt til í réttlæt-ingarskyni fyrir einkavæð-ingu banka í ríkiseigu. Slaki sé í efnahagslífinu og lífsnauðsyn að losa um fjármagn með þessum hætti, jafnvel taka, auk fyrirhugaðrar bankasölu, milljarðatugi að láni til að örva efnahagskerfið. Þá þurfi skatt- ar á fyrirtæki að lækka í sama til- gangi. Innspýting heitir þetta á máli stjórnmálanna og þykir allra meina bót. Upp eru talin margvísleg þjóð- þrifamál sem þurfi að næra og hljómar það sannfærandi í eyrum okkar; því meira sem spýtt sé þeim mun betra hljóti það að vera. En er þá komið að varnaðar- orðum og kannski líka áminningu um að ríkisstjórn þurfi að vera sam- kvæm sjálfri sér, yfirlýst stefna annars vegar og framkvæmd þeirrar stefnu hins vegar, megi ekki vera sitt hvað – og hvað þá svart og hvítt. Yfirlýsta stefnan (Sjálfstæð- isflokkur samþykkir með þögninni) er að umhverfis- og loftslagsmál skuli hafa algeran forgang við mótun efnahagsstefnu okkar til framtíðar. Þetta sé einfaldlega nýi tíminn. Fínt, segi ég. En þýðir þetta þá ekki að huga beri að tvennu. Svona til að byrja með. Í fyrsta lagi, að sporna beri gegn hernaðaruppbyggingu og hern- aðarhyggju í ljósi þess að hervélar heimsins eru afkastamestu umhverf- issóðar samtímans. Gerum við þetta? Nei, þvert á móti þá spýtum við í. Í öðru lagi, að gjalda beri varhug við hagvaxtarkröfu kapítalismans; að viðbrögð við samdrætti og áföllum megi ekki sjálfkrafa vera þau að gefa betur í til að ná þenslunni í gang aft- ur. Með öðrum orðum, að varast beri þá innspýtingarstefnu sem nú er boðuð í Stjórnarráðinu, hvað þá að hún skuli fjármögnuð með einkavæð- ingu og lántökum. En hver er þá valkosturinn? Varla viljum við atvinnuleysi sem gjarnan er fylgifiskur samdráttar í efnahags- lífinu? Nei, atvinnuleysi viljum við ekki. Valkosturinn heitir jöfnuður og hófsemi. Verkalýðshreyfingin er að gera sitt til að jafna kjörin í þjóðfélaginu. Það er gott og það ber að styðja. Þá þurfum við að fylkja okkur um kröf- ur um að dregið verði úr auðsöfnun og þar með samþjöppun á fjármagni og valdi. Til dæmis í sjávarútvegi þar sem óheyrilegur auður er kominn of- an í vasann á örfáum einstaklingum og fyrirtækjum. Kvótann heim – til þjóðar og byggðarlaga, er krafa sem heyrist sífellt oftar frá fólki sem vill endurheimta veiðar og vinnslu við sjávarsíðu Íslands þannig að lands- byggðin fái lifað á forsendum sem jafnframt gagnist okkur öllum sem byggjum þetta land. Nauðsynlegt sé að stokka upp spilin þannig að við hlið stærri út- gerðarfélaga fái smærri útgerð þrifist og dafnað. Guðjón Ein- arsson, fyrrum fréttamaður Sjón- varps og síðar rit- stjóri Fiskifrétta, skrifar upplýsandi grein í Bænda- blaðið í fyrri viku. Hann fjallar þar um fisk- veiðistjórn- unarkerfið í Noregi. Spyr hann með- al annars íslenskan smábátasjómann, sem þar starfar og hefur því þekkingu á bæði íslensku og norsku fiskveiðikerfi, hvort kerfið hann telji betra. Stórútgerð er arð- samari en smáútgerð svarar viðmæl- andinn, það segi sig nánast sjálft að ódýrara sé að vera með fá skip með miklar aflaheimildir en að dreifa þeim á marga aðila. En hvort sé betra fyrir byggðirnar sé önnur saga. Þar hafi smærri einingarnar vinninginn! Er það ekki svona sem við verðum að fara að hugsa, spyrja hvað gagnist samfélaginu best og hvað sé best fyr- ir lífríkið. Þannig segir ríkisstjórnin að sig langi til að hugsa. En hvers vegna ekki gera það og þá einnig framkvæma í samræmi við þá hugsun? Þegar allt kemur til alls er niður- staðan sú að betra sé að jafna en að spýta í. Betra að jafna en að spýta í Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Er það ekki svonasem við verðum aðfara að hugsa, spyrjahvað gagnist samfélaginu best og hvað sé best fyrir lífríkið. Þannig segir rík- isstjórnin að sig langi til að hugsa. En hvers vegna ekki gera það og þá einnig framkvæma í samræmi við þá hugsun? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Ögmundur bendir á að hervélar séu mestu umhverfissóðar sam- tímans, en samt sé spýtt í. Vissuð þið að það er tilboð á bjór áDönsku kránni í dag? Íslenskur bjórá 750 krónur og brennivínsskot á 800 kall. Og vissuð þið að Tíu sopar buðu þeim sem komu í búning og sungu á öskudaginn upp á bjór? Og að Erdinger mun vera vin- sælasti hveitibjórinn á Íslandi? Og þú færð Aperotivo Spritz á 1.500-kall á Sportbarnum hans Gumma Ben í kvöld? Ég veit þetta af því ég sá þetta auglýst. Sem hlýtur nú að vera merkilegt í ljósi þess að það er klárlega bannað að auglýsa áfengi á Íslandi. Bara algjörlega stranglega bann- að. Fjölmiðlar hafa þurft að borga háar sektir fyrir að leyfa sér að nefna áfengi. En samt voru allar þessar auglýsingar á ís- lensku. Á litlum og krúttlegum miðli sem heitir Facebook. Sem vel að merkja borgar engin gjöld á Íslandi. Út af fyrir sig skil ég bann við áfengis- auglýsingum. Altso pælinguna. Fram- kvæmdin er bara svo rosalega heimskuleg. Við sjáum auglýsingar alls staðar. Insta- gram, Youtube, Twitter og að sjálfsögðu í sjónvarpinu. En ekki í íslenskum fjölmiðlum. Það væri hræðilegt. Það verður að teljast líklegt að íslenskir unglingar missi stjórn á lífi sínu eftir að hafa séð freyðivínsauglýs- ingu á blaðsíðu 17 í Mogganum. En þau eru alveg örugg þegar þau sjá auglýsingu um Egils Gull með smáa letrinu um að þetta sé ekkert spennandi. Þetta er bara léttöl. Þetta bann finnst mér álíka gáfulegt og að banna íslenskum aðilum að stunda netversl- un með áfengi. Ef mig langar til að panta mér flösku af Reyka-vodka þá er það ekkert mál. Ég get pantað hana frá útlöndum. Mjög einfalt allt saman. Fyrir utan smá- atriðið sem felst í því að senda flöskuna til útlanda til að senda hana aftur til Íslands og fá hana senda heim til mín. Nú er sem sagt loksins komið fram frum- varp sem myndi leyfa íslenska netverslun með áfengi. Með ströngum reglum og fyr- irvörum. Og líka að íslensk brugghús geti selt afurðir sínar á staðnum til gesta sem hafa mögulega komið að skoða framleiðsl- una. Að sjálfsögðu aðeins þeim sem hafa aldur til kaupanna. Einhver gæti sagt að þetta væru eðlileg spor í átt að frelsi og eðlilegum viðskiptaháttum. En svo eru hinir sem segja okkur að auð- vitað sé það hræðileg hugmynd að hægt sé að senda áfengi. Hvað ef 16 ára unglingur tekur bara við sendingunni fyrir mistök og hverfur samstundis á vit Bakkusar? Og lík- lega gætum við búist við hópferðum ung- linga á Árskógssand með fölsuð skilríki að kaupa Kalda. Eða ekki. Nú er orðið býsna langt síðan ég var ung- lingur. En ef það er eitthvað sem ég man frá þeim tíma þá er það að maður reddaði sér. Þá var til siðs að hanga við hornið á Ríkinu (sem nú heitir því virðu- lega nafni Vín- búðin) og fá ein- hvern til að kaupa fyrir sig. Einhvern sem hafði gengið þessa sömu leið í þroskanum og fann til með illa klæddum unglingum að reyna að kaupa það sem var ódýrast. Sama hvernig það bragðaðist. Hvað maður hefði gefið fyrir að vera í hlýjunni í Kringlunni. Síðan hefur vínbúðum fjölgað mikið og úr- valið aukist. Samt sem áður hefur dregið úr unglingadrykkju. Kannski er möguleiki, þótt hann hljómi fjarlægur og furðulegur, að við hættum að afneita raunveruleikanum og horfumst í augu við það að við getum ekki lokað land- inu og stýrt öllu sem okkur dettur í hug (eða einhverjum öðrum, ég hef ekki þessa þörf fyrir að ákveða hluti fyrir annað fólk). Treystum fólki og setjum reglur sem eru skynsamlegar, frjálslyndar og umfram allt eðlilegar. ’Ef mig langar til að pantamér flösku af Reyka-vodkaþá er það ekkert mál. Ég getpantað hana frá útlöndum. Mjög einfalt allt saman. Fyrir utan smáatriðið sem felst í því að senda flöskuna til útlanda til að senda hana aftur til Íslands og fá hana senda heim til mín. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Unlingurinn í ríkinu 2-3ja mánaðaskammtur íhverju glasi „Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn að njóta þess að styðja við heilsu mína með hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“ Kristófer Valdimarsson, 81 árs. Mest selda liðbætiefni á Íslandi LIÐVERKIR STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.