Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 15
– Spilar kynið hér einhverja rullu? „Hugsanlega. Karlar eru alla jafna stolt- ari en konur og eiga fyrir vikið erfiðara með að viðurkenna vanmátt sinn og mistök. Keyra frekar áfram, þangað til hlutirnir verða helmingi verri. Þegar fyrirtæki eru á hlutabréfamarkaði eru menn gjarnan í kapphlaupi við einhverja skammtímahags- muni. Mér er eðlislægara að hugsa til lengri tíma.“ Óhætt er að fullyrða að Rannveig hafi verið á fullri ferð allt sitt líf. Eins og fram hefur komið var hún í vatnamælingum með föður sínum í samtals ellefu sumur. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1980, lauk námi frá Vélskóla Ís- lands árið 1983, og kláraði sveinspróf í vél- virkjun árið 1985, fyrst kvenna. Hún lauk námi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1987 og MBA-námi frá San Francisco- háskóla í Bandaríkjunum árið 1989. Að loknu námi í vélvirkjun var hún í nokkur sumur vélstjóri á togurum. Árið 1990 hóf Rannveig störf í álverinu í Straumsvík og sinnti þar ýmsum stjórnunarstörfum þang- að til hún tók við starfi forstjóra. Hún var m.a. deildarstjóri öryggis- og umhverfis- mála, talsmaður fyrirtækisins, steypuskála- og kerskálastjóri, þar til hún var ráðin for- stjóri fyrirtækisins árið 1996 en hún tók við starfinu í ársbyrjun 1997. Náminu var þar með ekki lokið en í fyrra nældi Rannveig sér í meistarabréf í vélvirkjun. Byrjar á því að sofa Hún hlær þegar spurt er hvernig það komi til með að henta henni að slaka á og hvíla sig í nokkra mánuði. „Mér líst mjög vel á að kynnast því. Ég stíg hægt og rólega inn í þetta verkefni en reikna ekki með að enda sem jógakennari,“ segir hún hlæjandi „Nú set ég sjálfa mig og heilsuna í önd- vegi og ætli ég byrji ekki bara á því að sofa eins mikið og ég get, til að safna kröftum. Ég hef alltaf átt auðvelt með svefn þangað til að undanförnu, að höfuðverkirnir fóru að vekja mig fyrir allar aldir. Ég á yndislega fjölskyldu og vini og hlakka til að verja tíma með þeim á næstunni, ekki síst barna- börnunum mínum tveimur. Ég á að hreyfa mig og mun halda áfram í Boot Camp og fara í sund og gönguferðir, þegar veðrið skánar. Svo hef ég gaman af því að hlusta á hljóðbækur. Ég held ég hefði einnig gott af því að komast í annað umhverfi og langar að fara til útlanda, svo fremi sem kórónu- veiran leyfir. Ég hef svo sem ferðast um allan heim gegnum tíðina, mikið í tengslum við starfið. Ég hef aldrei komið til Tene.“ Hún hlær. „Að öllu gríni slepptu þá vona ég að ég hafi áttað mig á þessum veikindum í tæka tíð og að verið sé að grípa inn í á réttum tíma. Ég verð að aftengja frá Straumsvík og fá algjöra hvíld. Annars geta afleiðing- arnar orðið skelfilegar. Þetta er svolítið eins og í díselvélfræðinni; þegar maður of- keyrir vélina þarf að taka af henni álag. Eins hræðileg og veikindi pabba voru þá má segja að öllum þessum árum síðar sé gott að hafa þó lært af þeim; hefði þetta ekki komið fyrir pabba hefði ég örugglega hunsað öll einkennin og keyrt áfram. Síð- asta sumar þurfti ég sem forstjóri að taka erfiða ákvörðun um að taka kerskála 3 í Straumsvík úr rekstri vegna þess að hann var ekki lengur öruggur. Fyrst ég gat tekið hann úr rekstri hlýt ég að geta gert það sama við sjálfa mig,“ segir hún brosandi og bætir við: „Ég er frekar varkár að eðlisfari og það vinnur með mér núna. Maður gerir víst ekkert úr „kassanum“, eins og einn vinnufélagi minn segir. Þeir tala enga tæpi- tungu þarna í Straumsvík.“ Hún brosir. Heilsan ekki sjálfsögð – Ertu hrædd? „Já, ég viðurkenni það. Þetta var högg og ég er ennþá að átta mig á því að ég sé kom- in á þennan stað. Maður getur alls ekki tek- ið heilsunni sem sjálfsögðum hlut. Pabbi var miklu hraustari en ég þannig að maður get- ur ímyndað sér hvernig færi fyrir mér fengi ég heilablóðfall. Mér finnst líka dálítið óhugnanlegt að yngsta dóttir mín er jafn- gömul í dag og ég var þegar pabbi veiktist, nítján ára. Annars reyni ég að ýta hræðsl- unni frá mér. Þess í stað lít ég á þetta sem verkefni og tækifæri. Ætla að einbeita mér að því næstu mánuðina.“ – Ertu bjartsýn á að ná fullum bata? „Já, læknirinn minn telur alveg raunhæft að ég nái mér að fullu og verði aftur á mín- um sextán sílendrum, að því gefnu að ég fái algjöra hvíld frá öllu álagi næstu mánuðina. Ég er ekkert sérstaklega heppin en ég hef verið farsæl gegnum tíðina. Maður velur ekki í hverju maður lendir í þessu lífi en maður velur hvernig maður vinnur úr því. Trú mín er sú að hlutirnir hafi tilhneigingu til að fara vel – sérstaklega ef maður vinnur að því.“ Morgunblaðið/RAX ’Að sumu leyti hefði veriðauðveldara að haldabara áfram og taka áhætt-una. Það þarf hugrekki til að stíga til hliðar og setja sig þar með á skotskífuna. En í mínum huga er engin skömm að veikjast og gefa sér tíma til að ná heilsu á ný. 1.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Það sætti miklum tíðindum þegarRannveig var ráðin forstjóri ÍSALárið 1997. En hvað hefur breyst á þessum 23 árum varðandi konur í æðstu stjórnunarstöðum stærri fyrirtækja? „Konur hafa menntunina og eru komnar lengra. Þær vilja stjórna en þrátt fyrir það gengur þessi þróun mjög hægt fyrir sig. Stjórnir fyrirtækja ráða ekki fólk til starfa, heldur framkvæmdastjórnir og það þarf, að mínu viti, að jafna kynjahlutföll í framkvæmdastjórnum til þess að koma meiri hreyfingu á þessi mál. Blandaðar framkvæmdastjórnir eru miklu víðsýnni en þær sem eru bara skipaðar körlum. Árið 2020 finnst mér eðlilegt að ekkert fyrir- tæki ætti að fást skráð á verðbréfaþing nema að það standi sig í jafnréttismálum. Eins umhverfismálum. Einnig mætti hugsa sér að umbuna fyrirtækjum, sem standa sig í þessum mikilvægu málaflokkum, með afslætti gagnvart sköttum eða öðrum gjöldum.“ Hún segir karllæga menningu í fyrir- tækjum seigari en hún bjóst við. „Annars þarf það svo sem ekkert að koma á óvart; sýnt hefur verið fram á að menn hafa tilhneigingu til að ráða fólk til starfa sem líkist þeim sjálfum og þeir tengja við. Þannig að karl ræður gjarnan karl. Þess vegna er svo mikilvægt að fjölga konum í fram- kvæmdastjórnum. Hafandi sagt það þá gengur konum í stjórn- unarstöðum almennt mjög vel og er treyst fyrir stærri verkefnum en áður var. Kannski er ég bara svona óþolinmóð og leið yfir því að þetta þurfi að vera enn á dagskrá.“ Hún brosir. Spurð um álverið í Straumsvík þá segir Rannveig alla jafna ganga vel að ráða konur, hámenntaðar annars vegar og ófag- lærðar hins vegar, til starfa. Öðru máli gegni um iðnmenntaðar konur enda séu þær ennþá alltof fáar. „Þess vegna fagna ég átak- inu hjá Tækniskólanum og öðrum og að rafvirkjar hafi valið sér konu sem formann. Þetta telur allt og hjálpar til við að vekja at- hygli og áhuga á iðngreinunum.“ Hún segir mikilvægt að konur haldi sínu striki í iðngreinum; „Við erum með fáar, en mjög öflugar iðnmenntaðar konur í Straumsvík.“ Samkomulag um fyrirkomulagið Þegar einstaklingur tekur að sér krefjandi og tímafrekt starf, líkt og það sem Rannveig gegnir, er mikilvægt að samvinna sé heima fyrir. Gildir þá einu hvort einstaklingurinn er kona eða karl. „Við hjónin ræddum þetta mjög vandlega fyrir 30 árum áður en ég þáði stjórnunarstarf í Straumsvík. Fyrir lá að starfið yrði eril- samt. Umræðuna tókum við svo aftur áður en ég þáði forstjóra- starfið því ljóst var að það krefðist mikilla ferðalaga erlendis. Maðurinn minn gerði sér grein fyrir þessu og vissi frá upphafi að hann yrði að sjá um heimilið í minni fjarveru. Og öfugt. Þetta hefur aldrei verið vandamál enda gerðum við samkomulag um fyrirkomulagið áður en lagt var upp í þessa vegferð.“ Spurð hvort hún hefði þurft að gera slíkt samkomulag væri hún karlmaður svarar Rannveig: „Ég veit það ekki. Ef til vill ekki. En auðvitað ætti það að vera þannig. Ég geri mér grein fyr- ir því að ríkjandi viðhorf í samfélaginu er ennþá á þann veg að konur beri meiri ábyrgð á heimilinu en karlar. Sem betur fer er það þó að breytast. Í mínu tilviki hafði maðurinn minn ekki minni áhuga á því en ég sjálf að ég tæki þetta starf að mér. Það er ekki sjálfgefið að það sé alltaf þannig. En lykilatriðið er að reikna aldrei með neinu; svona lagað þarf að vera á hreinu áður en mað- ur er kominn út í djúpu laugina. Það er vont að þurfa að hafa áhyggjur af heimilinu og öðru sem nálægt manni stendur í erli dagsins.“ Þrátt fyrir annríki í starfi hefur Rannveig alltaf gætt þess að gefa sér drjúgan tíma með fjölskyldunni. Hún er til dæmis bara í einum félagsskap sem hittist utan dagvinnutíma – og það er saumaklúbbur. „Ég tek helst ekki að mér verkefni sem kalla á viðveru utan hefðbundins vinnutíma; frítíma mínum vil ég verja með fjölskyldu og vinum. Rannveig veitir Jafnréttisverðlaunum Hafnarfjarðar viðtöku árið 2001 fyrir hönd ÍSAL. Með henni á myndinni eru Magnús Gunnarsson bæjarstjóri og Magnús Heimisson, formaður jafnréttisnefndar. Morgunblaðið/Þorkell Karllæga menningin seig

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.