Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 13
hringa. Náði mér en hef látið fylgjast vel með mér síðan,“ segir Rannveig sem var nokkrum árum síðar hætt komin vegna brisbólgu. Rannveig hringdi í lækninn á föstudegi og eftir að hafa heyrt söguna gaf hann henni tíma strax á mánudagsmorgni. Skoðun þyldi enga bið. Niðurstaðan var sú að hún væri með verulega mikil einkenni sem stöfuðu af langvinnu álagi en þau voru meðal annars hár blóðþrýstingur, svæsinn höfuðverkur, dofi og klaufska í hennar til- viki. Þessi einkenni gætu verið undanfari heilaáfalls og að eina leiðin til að ná heilsu væri löng hvíld frá miklu álagi. „Auðvitað brá mér, ég get ekki neitað því, en á sama tíma var ég fegin að fá grun minn stað- festan og að geta þannig gripið inn í áður en að ég veiktist alvarlega. Tækifæri sem pabbi fékk aldrei. Davíð vildi senda mig strax í frí til að taka út álagsvaldana en ég sagði honum að ég þyrfti tvær vikur til að hnýta lausa enda í vinnunni; gera eigendum álversins grein fyrir stöðunni og tala við starfsfólkið. Hann féllst á það.“ Það gefur augaleið að forstjórastarfi í stóru fyrirtæki fylgir mikið álag, ekki síst í fyrirtæki eins og álverinu í Straumsvík sem gustað hefur um í gegnum tíðina, af ýmsum ástæðum. „Þetta er þannig starf, alltaf er hægt að ná í mig og þó ég hafi gjarnan gætt þess að vinna ekki of langan vinnudag þá hefur ekki alltaf gengið vel að komast í frí. Ef til vill er það að koma niður á mér núna. Það hefur líka verið mottó hjá mér að svara ekki tölvupósti utan vinnutíma og það hefur gengið ágætlega. Með einhverjum undantekningum þó.“ Alltaf verið bindindismaður Rannveig sér ekki fram á að breyta um lífs- stíl. „Ég hef aldrei reykt né drukkið og sé auðvitað eftir því núna; þá gæti ég nefni- lega hætt þessu hvoru tveggja!“ Hún hlær. „Ég hef líka verið dugleg að hreyfa mig; byrjaði í Boot Camp um fimmtugt og æfi að jafnaði þrisvar í viku. Læknirinn ráðleggur mér að halda áfram að hreyfa mig enda dragi það úr álagi og streitu. Ég er fegin því enda er mjög gaman í Boot Camp og fé- lagsskapurinn góður. Mikið af ungu og fersku fólki.“ Rétt er að halda því til haga að veikinda- leyfi sem Rannveig fór í undir lok síðasta árs tengist ekki beint veikindum hennar í dag. Það var aðgerð sem heppnaðist vel og hefur hún náð sér af því meini. „Aðgerðin gerði það raunar að verkum að ég hef ekki getað hreyft mig eins mikið og ég er vön undanfarna mánuði og það kann að hafa haft slæm áhrif á blóðþrýstinginn. En að öðru leyti er þetta ótengt. Það er hins veg- ar athyglisvert að þegar ég var í því veik- indaleyfi fann ég minna fyrir þessum ein- Morgunblaðið/RAX „Maður velur ekki í hverju maður lendir í þessu lífi en maður velur hvernig maður vinnur úr því,“ segir Rannveig Rist. „Trú mín er sú að hlutirnir hafi tilhneigingu til að fara vel – sérstaklega ef maður vinnur að því.“ 1.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Flestir kannast við að hófleg streitu- viðbrögð til skamms tíma geti verið gagn- leg til að takast á við ákveðin verkefni, jafn- vel aukið afköst og skerpt á einbeitingu. Ef streita verður langvarandi getur hún hins vegar haft margvísleg slæm áhrif bæði andlega og líkamlega, segir Davíð O. Arn- ar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala. Davíð segir að langvinn streita og álag geti þannig ýtt undir hækkun á blóð- þrýstingi, valdið hjartsláttaróþægindum, höfuðverkjum, svefntruflunum, melting- aróþægindum og margvíslegum einkenn- um frá stoðkerfi. Þetta getur stundum valdið mikilli vanlíðan. Einkenni geta þó verið talsvert breytileg frá einum ein- staklingi til annars. Verulegt álag til langs tíma getur einnig haft neikvæð áhrif á ónæmiskerfið og valdið aukningu bólgu- þátta í líkamanum sem getur síðan aukið áhættuna á hjartaáföllum, heilaáföllum og jafnvel vissum tegundum krabbameina. Þá er vel þekkt að langvinnri streitu geti stundum fylgt einbeitingarskortur, minnistruflanir, kvíði og þunglyndi. „Það er oft erfitt að takast á við alvarleg einkenni langvinnrar streitu nema að draga úr eða jafnvel fjarlægja álagsvaldinn tímabundið meðan verið er að ná tökum á stöðunni,“ segir Davíð. „Lykilatriði í að takast á við streitu eru að ná að hvílast vel, hreyfa sig reglulega og huga að heilsunni á sem jákvæðastan hátt.“ Hann segir að regluleg líkamshreyfing sé gríðarlega mikilvæg til að fyrirbyggja streitu og takast á við krefjandi aðstæður. Hreyfingin veiti bæði útrás og byggi upp þrek til að takast á við erfið verkefni. „Það verður hver og einn að finna þá tegund hreyfingar sem hentar en líkast til er besta ráðið að blanda saman þolþjálfun og styrktarþjálfun,“ segir hann. „Það eru athyglisverðar nýlegar hugmyndir um að styrktarþjálfun geti verið vörn gegn mið- taugakerfisáhrifum streitu. Þá getur núvit- und og innhverf íhugun dregið úr streitu- einkennum og vissar tegundir jóga hafa sömuleiðis gefist vel.“ Langvinnt álag getur haft afar neikvæð áhrif

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.